Morgunblaðið - 02.02.2003, Side 31
MYRKIR Músíkdagar, tónlist-
arhátíð Tónskáldafélags Íslands
hefst í dag. Frá upphafi hefur íslensk
tónlist verið í öndvegi á dagskrá há-
tíðarinnar ásamt nýlegum erlendum
tónverkum. Að sögn Kjartans Ólafs-
sonar, formanns Tónskáldafélagsins,
verður hátíðin með hefðbundnu sniði;
á dagskránni verða meðal annars
tónleikar með Kammersveit Reykja-
víkur, kórtónleikar með Hljómeyki,
strengjakvartettstónleikar með
Eþos-strengjakvartettinum, flautu-
kórstónleikar, raftónleikar og fleira.
Að sögn Kjartans verða 65 tónverk
eftir um 60 tónskáld flutt á tólf tón-
leikum hátíðarinnar. Á annan tug ís-
lenskra tónverka verður frumflutt,
og má þar meðal annars nefna tón-
leika með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands, þar sem fjögur íslensk hljóm-
sveitarverk heyrast í fyrsta sinn –
þar af eitt samið á þessu ári. Fjölóma
raftónverk verða frumflutt í Salnum
og nýr íslenskur strengjakvartett ef-
ir Svein Lúðvík Björnsson verður
frumfluttur á kvartettatónleikum
Eþos-kvartettsins. Á þeim tónleikum
verður einnig leikinn Strengjakvart-
ett Þórðar Magnússonar sem til-
nefndur var til Íslensku tónlist-
arverðlaunanna.
Sibyl Urbancic kemur til landsins
með spunahóp sinn, Voces spontanae
og segir Kjartan að það verði spenn-
andi tónleikar. „Þau gefa bara upp
drög að efnisskrá og tónleikarnir
geta svo farið í hvaða átt sem er. Það
gæti jafnvel verið að einhverjir
þeirra sem mæta sem áheyrendur,
endi sem flytjendur, þegar upp er
staðið.“ Charles Ross, Breti sem búið
hefur á Íslandi, verður með tónleika
með eigin verkum sem tengjast álf-
um og umhverfi. Hljómeyki verður
með kórtónleika og frumflytur meðal
annars verk eftir Stefán Arason og
Jónas Tómasson.
Steindór kveður með lúðrasveit
„Við verðum með tvenna lúðra-
sveitartónleika. Annars vegar tón-
leika Blásarasveitar Reykjavíkur
undir stjórn Kjartans Óskarssonar.
Þar verða frumflutt verk eftir ungu
tónskáldin Áka Ásgeirsson og Inga
Garðar Erlendsson og verk eftir
Tryggva M. Baldvinsson sem hann
samdi fyrir Sveinhildi Torfadóttur
sem frumflutti það á lokaprófi sínu í
Belgíu fyrir stuttu. Hátíðinni lýkur
með tónleikum Lúðrasveitar Reykja-
víkur, þar sem verður meðal annars
flutt verk Lárusar Grímssonar, Ann
ég dýrust drósa, með Steindóri And-
ersen kvæðamanni og Lúðrasveit-
inni. Upphaflega er þetta ballettverk,
en verður nú flutt sem sjálfstætt
verk í konsertsal. Lúðrasveitin leikur
verk eftir Pál Pampichler Pálsson
sem var lengi stjórnandi sveitarinnar
og nokkur létt erlend verk.“
Kjartan nefnir fleiri áhugaverða
og spennandi tónleika – org-
eltónleika Eyþórs Jónssonar, tón-
leika í samvinnu við nemendur
Listaháskólans og tónleika einstaks
flautukórs. „Á flaututónleikunum
koma saman allir helstu flauturleik-
arar landsins og blása í sínar blístr-
ur,“ segir Kjartan. „Þetta verða mjög
spennandi tónleikar. Þetta hefur
sjaldan, ef þá nokkurn tíma verið
gert hér að stefna saman svona
mörgum flautuleikurum á eina tón-
leika.“ Meðal verka á flaututónleik-
unum eru fimmtán af tuttugu og
einni músíkmínútu eftir Atla Heimi
Sveinsson, Ra’s Dozen fyrir eftir
Þorkel Sigurbjörnsson fyrir tólf
flautur, verk eftir Harvey Sollberger
og Steve Reich fyrir ellefu og tólf
flautur. Kolbeinn Bjarnason og Ás-
hildur Haraldsdóttir frumflytja verk
eftir Doina Rotaru Uroboros og Ref-
ill, nýtt verk eftir Þuríði Jónsdóttur
fyrir sjö flautur verður frumflutt.
Kammersveitin gefur tóninn
Kjartan segist ekki vita hvernig
hægt væri að byrja Myrka mús-
íkdaga, öðru vísi en með Kamm-
ersveit Reykjavíkur, en sú hefð hefur
skapast að Kammersveitin leiki á
fyrstu tónleikum hátíðarinnar. „Þar
verður frumflutt á Íslandi verk eftir
Úlfar Inga Haraldsson Luce di
Transizione,“ segir Kjartan, en hin
verkin eru: The Unanswered Ques-
tion eftir Charles Ives, Concordanza
eftir Sofiu Gubaidulinu og Næturgal-
inn eftir John Speight Næturgalinn.
Einleikarar þar verða Sigurður
Bjarki Gunnarsson sellóleikari, í
hlutverki keisarans, og Daði Kol-
beinsson óbóleikari í hlutverki næt-
urgalans.
The Unanswered Question eftir
Charles Ives er í einfalt verk sem
býður upp á heimspekilegar vanga-
veltur. Verkið er eins konar harmljóð
á þremur ólíkum plönum. Tromp-
etinn varpar fram sömu spurning-
unni sjö sinnum og fær ekkert nema
staðreyndir frá tréblásturshljóðfær-
unum. Á meðan á þessu stendur und-
irstrikar strengjasveitin hlutlausa og
tímalausa lausn. Hin margverðlaun-
aða, rússneska, Sofia Gubaidulina
samdi Concordanza fyrir Musica
Viva hópinn í Prag 1971. Eins og í
flestum verka Sofiu er titillinn eins
konar útgangspunktur tónverksins,
einnig í þessu verki, Concordanza,
sem þýðir samhljómur eða eining.
Hér eru ekki hefðbundin stef sem
takast á, heldur hljóðeiningar sem
skarast og skiljast að. Verkið Luce di
Transizione var samið árið 1995 og
frumflutt í Bandaríkjunum sama ár.
Á íslensku gæti verkið heitið „ljós
umbreytinganna“ og tengist hug-
myndinni um ljósið sem fylgir manni
og leiðir gegnum erfiða tíma – ljósið
við enda gangsins, – ljósið sem í
fjarska flöktir í myrkrinu, en umlyk-
ur allt að lokum. Næturgalinn er
samið eftir samnefndu ævintýri H.C.
Andersens. Þegar verkið var frum-
flutt árið 1996 við ballett Láru Stef-
ánsdóttur, var vitnað í tónskáldið í
efnisskrá: „Þetta verk var skrifað á
10 mánuðum, frá ágúst 1987 til apríl
1988, og var upphaflega hugsað sem
ballett, en einnig er hægt að líta á
það sem konsertverk fyrir óbó, selló
og kammerhljómsveit. Á þessu tíma-
bili var ég mjög upptekinn af rann-
sóknum Oliviers Messiaens á fugla-
söng og fannst sagan um
Næturgalann gefa mér tækifæri til
að koma þessum hugrenningum á
framfæri.“ Í Næturgalanum má
heyra fuglasönginn tvinnast í tónvef
verksins.
Tónleikar Kammersveitarinnar
hefjast í Listasafni Íslands kl. 20 í
kvöld.
Margt og mikið á
Myrkum músíkdögum
Úlfar Ingi Haraldsson, Sveinn Lúðvík Björnsson, Áki Ásgeirsson, Hróðmar Sigurbjörnsson og Kjartan Ólafsson
eiga allir verk á Myrkum músíkdögum; Sibyl Urbancic kemur til landsins frá Vín með spunasönghóp sinn.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 31
Það hefur aldrei verið hagstæðara að ferðast en núna í sumar,
því Heimsferðir lækka verðið til vinsælasta áfangastaðar Íslend-
inga í sólinni og bjóða nú vikulegt flug til Costa del Sol á betra
verði en nokkru sinni fyrr. Þeir, sem bóka fyrir 15. mars, geta
tryggt sér allt að 32.000 afslátt fyrir fjölskylduna í valdar brott-
farir, eða kr. 8.000 á manninn. Á Costa del Sol bjóðum við þér
vinsælustu gististaðina á ströndinni, spennandi kynnisferðir í
fríinu og þjónustu reyndra fararstjóra Heimsferða til að tryggja
þér ánægjulega dvöl í fríinu.
Þeir fyrstu tryggja sér lægsta verðið
og bestu gististaðina
Verðlækkun til
Costa
del Sol
og að auki
32.000*kr.
afsláttur af ferðinni
Vinsælasti áfangastaður Íslendinga í sólinni
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 45.762
M.v hjón með 2 börn, 2–11 ára,
25. júní í 2 vikur, El Pinar,
með 8.000 kr. afslætti.
*
Verð kr. 49.950
M.v. 2 í stúdíói, Santa Clara, 25. júní,
vikuferð, með 8.000 kr. afslætti.
*
Við lækkum
verðið
Verð kr. 36.962
M.v. hjón með 2 börn, 21. maí í viku,
Santa Clara, m. 8.000 kr. afslætti
* Aldrei meiri afsláttur
8.000 kr.
afsláttur fyrir maninn af ferðum
í eftirtaldar brottfarir:
21. maí • 11. júní • 25. júní
11. júlí • 23. júlí
27. ágúst • 3. sept • 10. sept.
Gildir af fyrstu 300 sætunum
ef bókað er fyrir 15. mars.
*32.000 kr. afsláttur,
m.v. hámark 4 í bókun.
Þeir fyrstu tryggja sér lægsta verðið
og bestu gististaðina
Alltaf á þriðjudögum
SIGRÚN Steingrímsdóttir organisti
dvaldi í Nuuk á Grænlandi í annað
sinn síðla árs í fyrra í því skyni að
æfa og raddþjálfa þarlendan kór,
Nordisk kvindekor, og halda með
þeim tónleika.
„Í kórnum eru rúmlega 20 konur
en sá hængur er á að þær hafa eng-
an fastráðinn, tónlistarmenntaðan
kórstjóra. Þær æfa þó samvisku-
samlega einu sinni í viku undir
stjórn kórfélaga, sem er vel læs á
nótur. Hún útvegar nótur, fjölfald-
ar, kennir þeim raddirnar og út-
vegar þeim svo gestakennara einu
sinni á ári. Hann æfir þær svo dag-
lega í 3-4 vikur fyrir tónleika og
stjórnar þá kórnum,“ segir Sigrún.
„Margrét Pálmadóttir hefur verið
með þeim nokkrum sinnum, Sibyl
Urbancic tvisvar sinnum, í fyrra
fengu þær norskan kórstjóra og nú
ég hef svo verið með þeim tvisvar
sinnum, árið 2000 og nú 2002.
Námskeiðinu lauk svo með tón-
leikum í Hans Egedes kirkju, þar
sem kórinn söng verk eftir íslensk
og erlend tónskáld og ég spilaði
inná milli á orgelið. Þetta var ægi-
lega skemmtilegt. Stelpurnar eru
sólgnar í leiðsögn og það er gaman
að kenna svo áhugasömu fólki. Það
er mikilvægt að við höldum menn-
ingartengslum við þessa nágranna
okkar og þau þarf að efla,“ segir
Sigrún.
Sólgnar í
leiðsögn
Hluti grænlenska kórsins ásamt stjórnandanum, Sigrúnu Steingrímsdóttur.