Morgunblaðið - 02.02.2003, Síða 55

Morgunblaðið - 02.02.2003, Síða 55
konar tónlist. Áhuginn dvínaði ekki með árunum og Whitman segist hafa eytt lunganum af unglingsárunum á plötuhátíðum víða um New Jersey í leit að alls kyns framúrstefnu allt frá tilraunamennsku í djassi upp úr seinni heimsstyrjöldinni. Á unglingsárunum lærði Whitman gítarleik og lék á rafgítar í ýmsum hljómsveitum. Á námsárum sínum skrifaði hann meðal annars dálk í gít- artímaritið Guitar World, Metal De- tector, og fjallaði þar um ýmiskonar jaðarþungarokk. Hann hætti því 1992, en var þá tekinn til við að skrifa fyrir útgáfuna / dreifingarfyrirtækið Forced Exposure, sem var um tíma eitt helsta fyrirtæki á sínu sviði vest- an hafs, og er reyndar enn býsna öfl- ugt. Whitman nam tölvutónlist við Berklee-tónlistarskólann og naut það meðal annars handleiðslu Richards Boulangers. Á námsárunum stofnaði hann ýmsar tilraunsveitir, þar á með- al dúóið El-Ron, The Finger Lakes og Sheket/Trabant sem léku hvert fyfir sig ólíkar gerðir af bræðingi, en að því hann segir var hvert verkefni yfirleitt tveggja vikna æfingar eða svo, síðan einir tónleikar og svo ekki söguna meir. Hann lauk BSc. námi 1996, en lokaverkefnið, Error, var umdeilt, þriggja klukkustunda verk sett saman úr hljóðum úr biluðum DAT-tækjum, rispuðum geisla- diskum, ógreinilegu þruski, braki og brotnum hljóðum. Á næstu mánuðum sendi Whitman frá sér tugi laga undir ýmsum nöfn- um, en hann hefur látið þau orð falla að helst vildi hann búa til óend- anlegan fjölda aukasjálfa sem hver sé í sérstakri gerð tónlist með hlust- endahóp sem skarast ekki við hin aukasjálfin. Smám saman náði Hrvatski þó yfirhöndinni, en sagan segir að Whitman hafi rekist á það heiti á auglýsingaspjaldi í tungumála- skóla í Boston og tekið til hand- argagns þar sem því svipaði til nafns tónlistarmanns sem hann hafði dá- læti á, Steinski (Hrvatski þýðir Kró- ati á króatísku). Whitman lýsir verka- skiptingu aukasjálfsins og aðal- svo að Hrvatski eigi næturnar og Keith Fullerton Whitman dagana, þetta séu mjög ólíkir persónuleikar um margt eins og heyra megi af tónlistinni. Reckankreuzungsklankewerkzeuge 1998 stofnaði Whitman útgáfuna Reckankreuzungsklankewerkzeuge Recordings Limited of Cambridge, en nafnið Reckankreuzungs- klankewerkzeuge sótti hann í spaug sem Wagner lét frá sér fara er hann heyrði í saxófón í fyrsta sinn („það er eins og verið sé að segja Reck- ankreuzungsklankewerkzeuge“). Merkið stofnaði Whitman til að gefa úr breiðskífuna Attention: Cats sem var með verkum fjórtán ólíkra lista- manna (eða svo virtist á yfirborðinu, þeir voru allir aukasjálf Keiths Full- ertons Whitmans). Þó platan hafi ekki vakið ýkja mikla athygi bar hún hróður Whitmans víða. Endurgerð af þeirri plötu, rkk13cd kom út fyrir tveimur árum, en á henni fara hönd- um um lögin Thurston Moore, Jim O’Rourke, Kid606 og Chessie, svo dæmi séu tekin, en skífan var þrjú ár í smíðum. Fyrsta breiðskífan sem Whitman gaf út sem Hvratski, Oiseaux 96–98, vakti síðan talsverða athygli og var meðal annars valin níunda besta raf- tónlistarskífa ársins í tónlistar- tímaritinu The Wire. Hún er meðal annars merkileg fyrir það að á henni er Whitman að vinna meira og minna með sama trommubútinn, break sem fengið er úr laginu Amen Brother (og kallast fyrir vikið Amen Break, notað í hundruð drum ’n bass laga) með gospelsveitinni The Winstons, sem minnst er fyrir að hafa leikið undir hjá The Impressions. Endurvinnsla til skemmtunar Í framhaldinu bauðst Whitman fjöldi verkefna, sem hann segist reyndar eiga erfitt með að hafna. þó hann kunni jafnvel ekki að meta lista- manninn finnst honum spennandi að fá að hræra í verkum hans. Fræg (al- ræmd) er endurgerð hans af Kid 606 laginu Catstep, þar sem hann forrit- aði tölvu til að rappa svívirðingar um Kid 606 á bjagaðri ensku – undir- strikar að þó Whitman sé talinn býsna alvarlegur tónlistarmaður verður að taka öllu með fyrirvara. Annað nýlegt dæmi um endur- vinnslu hans má til að mynda heyra á plötunni Painted Black þar sem fjöldi listamanna endurgerir Rolling Sto- nes slagarann Paint it Black, auk hans meðal annars Stilluppsteypa, Acid Mothers Temple, Kit Clayton, The Tape Beatles og Fennesz. Annað verkefni má nefna; Whitman var beð- inn að endurgera Laurie Anderson- lagið O Superman og þó hann segist alls ekki kunna að meta Anderson, geti hann ekki sleppt því að hræra í laginu, en þess má geta að yfirleitt tekur hann lítið eða ekkert fyrir slíka vinnu. Framundan eru svo end- urgerðir á lögum með Merzbow, Dose One og Jel. Auknar vinsældir, ef vinsældir má kalla í svo fámennum hópi sem áhugamenn um tilraunatónlist eru, kölluðu á tónleikahald og sem Hrvatski lék Whitman á fjölda tón- leika á næstu mánuðum, hitaði meðal annars upp fyrir Mouse on Mars á tónleikum vestan hafs og síðan fyrir Labradford, Pan Sonic, Suicide, Thurston Moore & Lee Ranaldo og µ-Ziq, svo dæmi séu tekin. Til viðbótar við plöturnar tvær sem komu út á síðasta ári og hafa fengist í 12 tónum, má benda á skífuna 21:30 for Acoustic Guitar sem kom út 1991. Á henni er tónleikupptaka þar sem Whitman leikur á kassagítar í gegn- um tölvu sem breytir hljóðunum eftir forskrift hans, gítarhljómar verða að sínusbylgjum sem síðan koma af stað öðrum hljóðum og svo má telja. Óget- ið er og plötunnar Piano Quartets þar sem Whitman skeytir saman upp- tökum hljóma úr öllum píanóum sem hann hefur komist í tæri við á und- anförnum árum. Frekari upplýsingar um tónlist Whitmans og annarra álíka tónlistar- manna má nálgast á vefsetrinu reck- ankomplex.com (hann segist hafa heykst á þvi að nota fullt nafn útgáf- unnar í lénsheitinu, lái honum hver sem vill). Keith Fullerton Whitman/Hrvatski FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 55 Skemmtifundur í Glæsibæ í dag kl. 15.00 Meðal þeirra, sem koma fram, eru Guðbjörn Kristinsson og hljómsveit félagsins, auk margra annarra. Kaffikonur sjá um veitingar. Skemmtinefndin. Félag harmoniku- unnenda í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.