Morgunblaðið - 02.02.2003, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 61
Inni
held
ur e
fni s
em
þú h
efði
r ald
rei
feng
ið a
ð sj
á í
sjón
varp
i.
Sjúklegasta grínmynd ársins er komin í bíó.
Kvikmyndir.is
Radíó X
ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRIÁLFABAKKI AKUREYRI
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5 og 8. B. I. 16.
Náðu þeim
í bíó í dag.
í mynd eftir Steven Spielberg.
SV MBL
/
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
HJ. MBL
Radio X
Sýnd kl. 8 og 10. / Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10
KEFLAVÍK ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. / Sýnd kl. 6 og 8. B. i. 14.
SKYLDUDAGAR
/ /
Sími 552 3030
vikulegur þáttur tileinkaður ís-
lenskri tónlist hefur ekki verið
gerður áður. Núna er svo mikil
gróska í tónlistinni og af mörgu að
taka,“ segir Ómar.
Framleiðandi þáttanna er ekki
SkjárEinn heldur Filmus. „Það er
mjög vant fólk, sem vinnur við gerð
þeirra.“
Rappaði á íslensku
Ómar hefur verið í hinum og
þessum hljómsveitum í gegnum tíð-
ina. Hann var í fyrstu rapp-
hljómsveitinni, sem rappaði á ís-
lensku í Músíktilraunum. Hún hét
Tríó Óla Skans og lenti í öðru sæti
árið 1997. Eftir það tók Ómar virk-
ari þátt í rappsenunni, gekk á tíma-
bili undir nafninu Móri, og endaði í
Quarashi.
Þrátt fyrir að Höskuldur Ólafs-
son, Hössi, sé hættur í Quarashi
hefur hljómsveitin langt í frá lagt
upp laupana. „Næst á dagskrá er að
leggja lokahönd á demó til að senda
út til Columbia, sem efni fyrir
næstu plötu,“ segir Ómar.
„Ef eitthvað er þá er komið að-
eins meira rokk í hljómsveitina.
Annars á þetta eftir að breytast.
Við erum ekki komnir það langt af
stað,“ segir Ómar, sem veit ekki
hvenær næsta plata Quarashi kem-
ur út.
Tími á eitthvað nýtt
„Vonandi kemur hún sem fyrst.
Það er mikið af fólki, sem vill heyra
nýtt efni. Elstu meðlimirnir í band-
inu eru líka búnir að vera að taka
sum lögin í sex ár. Það er komin
smáþreyta í þau og tími til kominn
að gera eitthvað alveg glænýtt “
Einhverjir hafa eflaust tekið eftir
því að Quarashi kom ekkert við
sögu við veitingu Íslensku tónlist-
arverðlaunanna á dögunum. „Við
vitum af hverju við vorum ekki til-
nefndir fyrir neitt. Það er af því að
við borguðum ekki gjaldið. Þetta er
furðulegt fyrirkomulag. Við höfum
verið tilnefndir erlendis án þess að
hafa þurft að borga neitt,“ segir
Ómar og bendir á að fyrirkomulag-
ið sé annað á Hlustendaverðlaunum
FM 957 og Tónlistarverðlaunum
Radíó X og Undirtóna.
Þrátt fyrir að hafa ekki látið ljós
sitt skína á ÍTV sýndi Quarashi að
hljómveitin er ein sú vinsælasta á
landinu þegar hún hreppti þrenn
verðlaun á hátíð Radíó X og Und-
irtóna. Quarashi var valin hljóm-
sveit ársins, „Stick ’Em Up“ var
valið myndband ársins og Jinx
plata ársins og er Ómar að sjálf-
sögðu ánægður með árangurinn.
Þrjár heimsálfur eftir
Quarashi fór eins og kunnugt er í
tónleikaferðalag um heiminn, sem
Ómar segir hafa verið mjög
skemmtilegt. „Við eigum bara
þrjár heimsálfur eftir, Suð-
urskautslandið, Afríku og Suður-
Ameríku. Það væri gaman að fara
til Suður-Ameríku. Platan hefur að
minnsta kosti borist þangað.“
Ómar er sem sagt ekki búinn að
fá leið á tónleikaferðalögum. „Ég
væri alveg til í að vera að spila ein-
hvers staðar úti í heimi. Það eru
minni áhyggjur, sem fylgja því.
Maður er svo áhyggjulaus úti í út-
löndum, þarf ekkert að pæla í þessu
veseni hérna heima. Þegar maður
stígur út í Leifsstöð hleðst þetta allt
á mann aftur og maður fer að
hugsa um reikninga.“
Haldinn söfnunaráráttu
Ómar viðurkennir að vera hald-
inn söfnunaráráttu eins og sést
þegar heimili hans er skoðað.
„Þetta er allt meira og minna úr
einhverjum bíómyndum. Verst er
að það er ekki hægt að fá neitt af
þessu hérna heima. Dótabúðir á Ís-
landi selja bara rusl. Það virðist
bara vera farið eftir því hvað heild-
salinn á, ekkert fylgst með því hvað
er að gerast í útlöndum,“ segir
hann og er harðorður.
„Ekkert af þessu endist, ég hef
oft séð ódýrar og ólöglegar eftirlík-
ingar í búðunum,“ segir Ómar, sem
ætti að vita hvað hann er að tala
um.
„Nexus er með skemmtilega dót-
ið en ég hef keypt mest á ferðalög-
um, og svo pantað þetta bara,“ seg-
ir Ómar og segir söfnunaráráttuna
hafa fyrst gert vart við sig um
1995, eftir að farið var að endur-
útgefa upprunalegt Star Wars-dót.
He-Man og hryllingsmyndir
Ómar er nú farinn að hægja á sér
í söfnuninni enda var hann búinn að
sanka að sér meira dóti en rúmast á
einu heimili. Hann bendir áhuga-
sömum á að He-Man-kallarnir séu
farnir að fást aftur í Bandaríkj-
unum. „Það er búið að endurgera
þá. Ég skil ekki af hverju þeir fást
ekki hér. Þetta var nú vinsælasta
dótið hérna einu sinni.“
Þetta er þó ekki eintómt dót, eða
leikföng, sem Ómar á því flestar
fígúrurnar eru beinlínis safngripir,
seldir dýru verði.
„Ég safna líka bókum, bókaút-
gáfum af lélegum hryllings-
myndum eins og Friday the 13th
númer þrjú,“ segir Ómar og hlær.
Popp og kók verður á dagskrá
SkjásEins á föstudagskvöldum
fram á vor og fer þá í sumarfrí.
„Svo kemur framhaldið í ljós. Von-
andi fær þátturinn góðar við-
tökur.“
Tónlistarþátturinn Popp og kók
hefur göngu sína á SkjáEinum
föstudagskvöldið 7. febrúar.
ingarun@mbl.is