Morgunblaðið - 02.03.2003, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARS 2003 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Afmælisbarn dagsins er
ákveðið, einbeitt og þraut-
seigt. Það leggur sig fram
við allt sem það tekur sér
fyrir hendur. Og er trútt því
sem það á trúir.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í dag er nýtt tungl. Það birtist
í fiskamerkinu. Hugleiddu í ró
og næði hvað þú getur gert til
að öðlast innri frið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Upplagt að stíga á stokk og
strengja þess heit að taka sig
á til að geta öðlast traustari
vináttu annarra. Myndirðu
vilja eiga sjálfan þig að vini?
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hugsaðu um hvernig þú getur
unnið þig í betra álit hjá yf-
irmönnum og þar með hugs-
anlega öðlast meiri starfs-
frama. Gildir einu hver eða
hvað þú ert, af þér fer alltaf
eitthvert orð.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Mikilvægt er fyrir þig að láta
undan lönguninni um ævintýri
og frelsi. Menn missa mikils
með glötuðu tækifæri til að
létta lundina.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nú er komið að skuldadögum
og nauðsynlegt að gera upp
gamlar skuldir svo hægt sé að
byrja upp á nýtt með hreint
borð.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Til að samband þitt við föru-
naut verði vel heppnað verður
þú að vera honum eða henni
jafn góð/góður og förunaut-
urinn er þér. Gagnkvæmni er
lykilatriðið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Umhverfið hefur meiri áhrif á
þig en aðra og ræður líðan
þinni. Leggðu því meira í það í
dag að betrumbæta það, bæði
heima fyrir og á vinnustað.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ástarsamband, rómantík,
skemmtan eða frí er efst á
óskalistanum núna. Gerðu
ráðstafanir til að lyfta þér á
kreik.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Rifrildi og átök valda óham-
ingju og slæmri heilsu. Nýja
tunglið í dag er ákjósanlegt
tækifæri til að íhuga hvað þú
getur gert til að gera heim-
ilislífið dægilegra.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Íhugaðu samskipti þín við
aðra í dag. Hlustar þú á hvað
aðrir hafa að segja? Leita aðr-
ir eftir þínu áliti? Ertu hlýr og
einlæg/ur er þú ræðir við
aðra?
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Nýja tunglið í dag verður þér
hvöt til þess að íhuga hvernig
þú getur aukið tekjurnar og
nýtt betur þá fjármuni sem
fyrir eru. Peningar eru afl.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Bæði nýja tunglið og sólin eru
í merki þínu. Þetta er eina
skiptið sem það gerist á árinu.
Þú ert maður dagsins.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
GLEÐ ÞIG, SÆRÐA SÁL
Gleð þig, særða sál,
lífsins þrautum þyngd.
Flutt er munamál,
inn er helgi hringd.
Minnstu komu Krists,
hér er skuggaskil.
Fagna komu Krists,
flýt þér tíða til.
Kirkjan ómar öll,
býður hjálp og hlíf,
þessi klukknaköll
boða ljós og líf.
Heyrið málmsins mál.
Lofið Guð, sem gaf.
Og mín sjúka sál
verður hljómahaf.
- - -
Stefán frá Hvítadal
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
Vestur spilar út hjartatíu
gegn sex spöðum suðurs:
Suður gefur; allir í
hættu.
Norður
♠ KG3
♥ DG7
♦ ÁD75
♣K108
Suður
♠ Á9742
♥ ÁK6
♦ 83
♣ÁD9
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
Pass 2 tíglar Pass 2 grönd
Pass 3 spaðar Pass 4 lauf
Pass 4 tíglar Pass 4 grönd
Pass 5 hjörtu Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Slemman er ágæt og vel
melduð. Svar norðurs á
tveimur tíglum var geim-
krafa og þegar hann tók
svo undir spaðann á þriðja
þrepi var hann að gefa
makker undir fótinn með
slemmu. Suður sýndi fyr-
irstöðu í laufi, norður í
tígli, og eftir lykilspila-
spurningu þar sem í ljós
kom að drottninguna vant-
aði í spaðann, sagði suður
sex spaða.
Verkefni sagnhafa eru
nokkuð augljós: Hann þarf
að svína fyrir tígulkóng og
vinna úr tromplitnum.
Einn slag má hann gefa,
en ekki tvo, svo kannski er
þetta spurning um að önn-
ur af tveimur svíningum
heppnist.
Nei, það væri mikil ein-
földun á málinu. Spaðinn
gæti hæglega legið 4-1 og
ef gefa má slag á tromp er
hægt að ráða við slíka
legu.
Þess vegna er rétta
byrjunin að svína tígul-
drottningu í öðrum slag.
Ef svíningin misheppnast
verður að treysta á tromp-
drottninguna aðra eða
þriðja í vestur, en heppnist
tígulsvíningin myndast ný-
ir möguleikar:
Norður
♠ KG3
♥ DG7
♦ ÁD75
♣K108
Vestur Austur
♠ 5 ♠ D1086
♥ 109842 ♥ 53
♦ K62 ♦ G1094
♣G754 ♣632
Suður
♠ Á9742
♥ ÁK6
♦ 83
♣ÁD9
Þá er hægt að spila
trompinu af öryggi upp á
einn tapslag í mesta lagi.
Það er er gert þannig: Til
að byrja með tekur sagn-
hafi á spaðakóng. Síðan fer
hann heim á lauf og spilar
spaða að gosanum. Hafi
vestur byrjað með drottn-
ingu fjórðu fær hann að-
eins einn slag á drottn-
inguna, en í þessari legu
kostar gosinn drottn-
inguna og síðan má svína
fyrir tíuna.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. c3 d5 4.
exd5 exd5 5. d4 a6 6. Be3
cxd4 7. Rxd4 Rf6 8. Bd3 Bd6
9. Rf5 O-O 10. O-O Rc6 11.
Rxd6 Dxd6 12. h3 He8 13.
Rd2
Staðan kom upp á Aero-
flot mótinu sem lauk fyrir
skömmu í Moskvu. Vadim
Zvjaginsev (2671) hafði
svart gegn Utat Adianto
(2562). 13...Bxh3! 14. He1
Svartur stæði einnig
með pálmann í hönd-
unum eftir 14. gxh3
Hxe3 15. fxe3 Dg3+
16. Kh1 Dxh3+ 17.
Kg1 Dxe3+.
14...Rg4 15. Rf1
Rxe3 16. Rxe3 Be6
17. Be4 Had8 18.
Rxd5 f5 19. Bf3 Re5
20. Rf4 Dxd1 21.
Bxd1 Bf7 22. Ba4 b5
23. Bb3 Rc4 24. Bxc4
Bxc4 25. Hxe8+
Hxe8 26. b3 Bf7 27.
Rd3 Hc8 28. Hc1 g5
29. Re5 Hc5 30. f4
gxf4 31. Rd3 Hd5 32. Rxf4
Hd2 33. c4 bxc4 34. bxc4
Hd4 35. Rd5 Bxd5 36. cxd5
Hxd5 37. Kh2 Ha5 38. Hc2
Kg7 39. Kh3 Ha4 40. Kg3
Kg6 41. Kf3 Kg5 42. g3
Ha3+ 43. Kg2 h6 44. Kf2 a5
45. Kg2 a4 46. Kf2 Hd3 47.
Kg2 h5 48. Kf2 a3 49. Kg2
Hd1 50. Kf3 Hf1+ 51. Kg2
Hb1 52. Kf3 Hb2 53. Hc8
Hxa2 54. Hg8+ Kf6 55. Hh8
Ha1 56. Kg2 a2 57. Ha8 h4
58. gxh4 f4 59. h5 f3+ 60.
Kh2 Kg5 61. Ha5+ Kh6 62.
Hxa2 Hxa2+ 63. Kg1 Ha5
64. Kf2 Hd5 65. Kg1 Ha5
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Skugginn/Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Dómkirkjunni 3.
janúar sl. af sr. Bolla Bolla-
syni þau Þyri Ásta Haf-
steinsdóttir og Björn Óttarr
Jónsson.
70 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 2.
mars, er sjötugur Sig-
urbjörn Guðmundsson
verkfræðingur, Laug-
arnesvegi 87. Kona hans er
Hanna Sigríður Anton-
íusdóttir. Þau taka á móti
gestum í Kiwanishúsinu,
Engjateigi 11, á afmæl-
isdaginn kl. 17–19.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Auðvitað eyðir hann miklu, en núna reynir enginn
að svína á mér lengur!
hvítir, svartir, ljósir
Er ferming
[s
v
a
rt á
h
v
ítu
]
framundan?
ver› 3990
ver› 3990
ver› 3990
hvítir, svartir, ljósir
svartir, ljósir
YOGA
Ný námskeið hefjast 10. mars.
Kennari er Arnhildur S. Magnúsdóttir sem m.a. byggir námskeiðin á sinni
eigin reynslu. Tilgangur námskeiðsins er að takast á við daglegt líf
að nýju með aðstoð yoga, styrkja sig líkamlega og andlega
auk þess að sættast við líkamann.
Námskeiðin verða haldin í sal Lífssýnar í Bolholti 4, 4. hæð v, Reykjavík.
fyrir alla sem eru að ganga
í gegnum eða hafa lokið
krabbameinsmeðferð
Skráning og upplýsingar eru hjá Arnhildi í síma 895 5848.
Leitum að hressum, jákvæðum og þjónustulunduðum
aðila sem vill samning á einum af bestu
hárgreiðslustofum landsins.
Tekið er við umsóknum á stofunum á næstum 2 vikum.
Templarasundi 3Vegamótastíg 4
.
.
LÍÐUR ÞÉR VEL Í VINNUNNI?
Ráðgjöf fyrir einstaklinga og hópa:
Álags- og streitustjórnun
Samspil einkalífs og vinnu
Samskipti og forvarnir gegn
ágreiningi
Lausn ágreinings og samninga-
tækni í viðskiptum
Nánari uppl. og tímapantanir í símum
551 6990 og 697 8397
Skipholt 50b, 2. hæð, 105 Reykjavík
www.starfsleikni.is – steinunn@starfsleikni.is
Steinunn I. Stefánsdóttir
M.Sc. í viðskiptasálfræði
og streitustjórnun
Leiklistarnámskeið í Iðnó
Stutt námskeið helgina 8.–10. mars fyrir fólk á öllum aldri (þó
ekki yngra en 16 ára). Möguleiki á að hæfileikafólki verði boðið
að koma fram í sýningum Light Nights í sumar.
Nánari uppl. og bókun í síma 551 9181.
Ferðaleikhúsið, Kristín G. Magnús.