Morgunblaðið - 02.03.2003, Page 55

Morgunblaðið - 02.03.2003, Page 55
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARS 2003 55 Formúla 1 Sérblaðið Bílar verður helgað umfjöllun um Formúluna í næstu viku 5. mars. Í blaðinu verður fjallað í máli og myndum um komandi keppnistímabil, lið og ökuþóra, stórátök um skiptingu tekna af íþróttinni. Auglýsendur pantið fyrir kl. 16 mánudaginn 3. mars. Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á auglýsingadeild í síma 569 1111 eða augl@mbl.is bílar sem hetjur eins og X-men og Avengers þurftu að glíma við. Öflugasti óvinur hans er og var glæpakonungurinn Kingpin en hann hefur margan misind- ismanninn á sínum snærum og er brjálæðingurinn Bullseye þar fremstur í flokki. Báðir nánast ofurkraftalausir nema til séu súperfúlmenni. Annað sem gaf honum sérstöðu var sú áhersla sem lögð var á hetju- dáðir hans án búningsins; það er að segja í dómsalnum þar sem mörg af hans bestu æv- intýrum hafa gerst. Hetjan og höfundarnir Ofurhetjur verða aldrei fræknari en höfundar þeirra leyfa. Daredevil hefur jafnvel átt meira undir höfundum sín- um en margar aðrar hetjur þar sem ofurkraftaleysi hans hefur krafið höfundinn um persónu- legri nálgun en vill verða ef þeir geta borið fyrir sig hinar ótrúlegustu súperreddingar sögupersónanna. Þetta hefur gert það að verkum að stund- um hefur Daredevil verið ein allra besta myndasagan á boð- stólum en að sama skapi slæm ef höfundurinn hefur ekki hæft viðfangsefninu. Meðal þeirra höfunda sem gert hafa Dare- devil góð skil í gegn um tíðina eru áðurnefndur Stan Lee, Ann Nocenti, Kevin Smith og sá sem kannski skilaði bestu verki, Frank Miller. Miller hélt um stjórnartaumana á árunum 1979 til 1983. Hann bæði skrif- aði og teiknaði af slíkri ástríðu að í dag eru Daredevil-sögur hans taldar sígildar í þessum geira bókmennta. Miller kynnti til sögunnar eina sterkustu kvenpersónu ofurhetjuheims- ins, Elektru, sem varð hvort tveggja stærsta ástin í lífi Matts og hans hættulegasti and- stæðingur. Miller skóp úr Dare- devil myrka og þjakaða hetju sem þrátt fyrir hæfileika sína og ástæður hafði miklar efasemdir um ágæti gjörða sinna. Hann bjó ustu og langlífustu mynda- söguhetjum sögunnar eins og Spiderman, Hulk, Avengers og X-Men. Til að byrja með þótti Daredevil ekki líklegur til af- reka enda klæddur í hálf- misheppnaðan gul-svartan bún- ing og hafði ekki yfir almennilegum ofurkröftum að ráða auk þess að þurfa að kljást við blindu. Útlitið var ekki sérlega bjart. En á þess- um tíma (1960–1970) var í raun allt hægt í amerískum of- urhetjumyndasögum enda er tímabilið kallað „silfuröldin“ í bransanum. Myndasöguútgáfur sendu frá sér endalaust efni sem seldist nánast allt, hversu skrítið og skælt sem það var. Líftími margra þessara verka var ekki langur enda leikurinn ekki til þess gerður. Það sem telja má að hafi bjargað Dare- devil frá því að lenda í glat- kistu úrsérgenginna unglinga- hetja voru búningaskipti og það sem helst virtist mæla gegn honum í upphafi; blindan. Það að hafa fatlaða ofurhetju á kreiki þótti nýstárlegt og til þess gert að aðskilja hann frá fjöldanum. Nýi búningurinn, hárauður, aðsniðinn og með tveimur litlum púkahornum á hettunni, þótti nokkuð vogaður á þeim tíma og býsna kyn- þokkafullur þannig að mörgum í íhaldsamari kantinum þótti nóg um. Hvort sem það hefur eitthvað með búninginn að gera eða ekki þá er hlutfall kvenna í lesendahópi Dare- devil hærra en í lesendahópum annarra ofurhetjumyndasagna. Lee og félagar höfðu með þessu hitt á gullæð. Gamla, góða geislavirknibragðið Sem ungur maður lendir Matt Murdok í slysi þar sem hann blindast af geislavirkum aðskota- hlut. Samhliða sjónarmissinum skerpir geislunin öll önnur skiln- ingarvit hans þannig að hann get- ur heyrt hjartslátt manna, fundið ilmvatnslykt yfir hálfa borgina, lesið dagblöð með fingurgómunum og þar fram eftir götunum. Það er reyndar áhugavert að athuga að á þessum tíma kjarnorkuvár og geislahræðslu voru þær fáar ofur- hetjurnar sem ekki áttu krafta sína á einhvern hátt undir stökk- breytingum vegna geislunar af einhverju tagi. Þessi vísindi voru skammt á veg komin og möguleik- arnir virtust endalausir og eru það kannski enn eða eins og myndasöguhöfundurinn Grant Morrison orðaði það í viðtali: „Of- urhetjusögur eru raunsæisskáld- skapur framtíðarinnar.“ Auk þess fékk hann eins konar rad- arskynjun sem lætur hann finna fyrir umhverfi sínu í allar áttir. Að þessu frátöldu er Daredevil ekki gæddur neinum sérstökum kröftum nema mikilli vígfimi og styrk sem eru þó innan mannlegra marka. Annað klassískt stef innan ofur- hetjugeirans er það að réttlæt- iskennd þeirra er ekki sjálf- sprottin heldur verður hún til við einhvers konar áfall þar sem ill- virkjar brjóta gegn þeim. Spider- man missti frænda sinn, Batman foreldra sína, Punisher eiginkonu sína og börn og þannig má lengi telja. Áfallið í lífi Matts er þegar gangsterar drepa föður hans, af- dankaðan boxara, fyrir að leggjast ekki í gólfið í boxhringnum eins og þeir höfðu veðjað á. Eftir það sver hann að berjast gegn glæpum á hvorum tveggja vígstöðvunum; á götunni og í réttarsalnum. Daredevil hlaut sérstakan sess innan Marvel-heimsins (Marvel er nafnið á útgáfufyrirtækinu) þar sem hetjudáðir hans voru ofurlítið raunsærri en kollega hans í of- urbransanum. Bófarnir voru margir hverjir hinir mestu ill- virkjar en þó ekki alveg af þeim heimseyðandi og alltdrepandi toga til heim þar sem verk persónanna höfðu afleiðingar sem gerðu fram- vindu sögunnar eins raunsæja og hugsast getur í bókum sem þess- um. Þegar Miller hafði yfirgefið herbúðir Daredevil fór hann að huga að verki sem átti eftir að lyfta honum á stjörnustall í bók- menntaheiminum; Batman: The Dark Knight Returns. Sú saga náði hylli langt út fyrir raðir myndasögugrúskara og var ein þeirra myndasagna sem brutu sér leið til viðurkenningar hins al- menna bókalesanda. Í raun má segja að sú heimsþekkta söguper- sóna sem Batman varð í með- förum Millers hafi átt upphaf sitt í skrifum hans um Daredevil enda persónurnar ekki ólíkar. Það bíð- ur því hvers nýs höfundar að þola samanburðinn við Miller og það er gleðiefni að sá sem síðast tók við stjórnartaumunum, Brian Michael Bendis, hefur verið að festa sig í sessi sem jafnoki Millers svo ekki sé meira sagt. Bendis hefur kosið að gera Daredevil-sögurnar raun- særri en áður hefur þekkst. Bend- is er að skapa nýjan farveg í ofur- hetjumyndasögum eins og Miller gerði fyrir 20 árum. Kvikmyndin um Daredevil, sem verður frumsýnd hér á næstu dög- um, hefur hlotið frábæra aðsókn í Bandaríkjunum síðan byrjað var að sýna hana. Leikstjórinn er mik- ill Daredevil-aðdáandi og hefur haldið tryggð við sögurnar eins og þær birtast í blöðunum. Sums staðar hefur textinn fengið að haldast nánast óbreyttur úr sög- um Millers og annars staðar eru senur klipptar beint úr sögum Kevins Smith eins og sést á með- fylgjandi mynd. Áhugi fólks á hetjunni mun væntanlega aukast mikið í kjölfar myndarinnar. Ryk- ið verður dustað af gömlu efni og það endurútgefið og ef það hefur þegar verið endurútgefið þá verð- ur það bara endur-endurútgefið með smáræðis aukaefni til að halda hörðustu söfnurunum við efnið. Allir sem áhuga hafa á þessari margslungnu sögupersónu ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi en hér verður látinn fylgja listi yfir brot af því besta. Góða skemmtun:  Out og Underboss eftir Brian Michael Bendis.  Visionaries og Borne Again eftir Frank Miller.  Guardian Angel eftir Kevin Smith.  Typhoid Mary eftir Ann Nocenti. Ást í meinum: Daredevil og Elektra í tilhugalífinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.