Morgunblaðið - 02.03.2003, Page 56

Morgunblaðið - 02.03.2003, Page 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 2. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ norskir, sem segir sitt um gróskuna í framsækinni tónlist í Noregi; menn eru ekki bara að sjóða saman vemmilegt Röyksopp-popp heldur svellur þeim móður í tilraunatónlist og frjálsum spuna. Engin hljómsveit gengur þó lengra í þá átt en Sup- ersilent, sem varð til nánast fyrir tilviljun þegar upptökustjórinn Helge „Deathprod“ Sten, tromp- etleikarinn Arve Henriksen, slag- verksleikarinn Jarle Vespestad og hljómborðsleikarinn Stale Storløk- ken komu saman í snarstefjunarlotu að beiðni djasshátíðarinnar í Berg- en, en þrír þeir síðarnefndu höfðu þá spilað tilraunakenndan djass saman í nokkur ár. Þeim þótti svo gaman að spila saman að ákveðið var að halda áfram tilraunamennsku í hljóðveri Stens, en þess má geta hér að sem Deathprod hefur hann meðal annars gefið út plötu með Biosphere. AUSTUR í Noregi hefur til-raunakennd raftónlistblómstrað meira og beturen víða annars staðar. Flestir þekkja eflaust þann árangur sem poppuð raftónlist þaðan hefur náð og ekki langt síðan prýðissveit á því sviði lék hér á landi. Öllu veiga- meiri er þó tilraunatónlistin, naum- hyggjuleg og tormelt raftónlist að hætti Biosphere, léttari en þó til- raunakenndari tónlist Jaga Jazzist, geimklassík Dans Truemans, raf- soðinn frjáls djass Nils Petter Mol- vær eða samsteypa af djassspuna, dauðarokki og rafeindasveim líkt og Supersilent, sem verður að teljast ein forvitnilegasta hljómsveit Norð- urlanda nú um stundir. Á morgun berast hingað til lands fyrstu ein- tökin af nýjustu skífu hljómsveit- arinnar sem heitir einfaldlega 6. Ofangreindir tónlistarmenn eiga fátt sameiginlegt annað en að vera Spunaloturnar í hljóðveri Stens urðu margar og langar og býsna ævintýralegar, að sögn voru upp- tökur rúmir tíu klukkutímar þegar þeir voru búnir að spila nægju sína, en ekki stóð til að gefa tónlistina út. Kunningi Stens, Rune Krist- offersen, heyrði hluta af upptök- unum og vildi endilega gefa þær út, eða í það minnsta hluta af þeim. Hann stofnaði útgáfu til þess, Rune Grammofon, sem er upp frá því eitt merkilegasta fyrirtæki sinnar teg- undar á Norðurlöndum. Úr öllum upptökunum urðu svo til þrír diskar sem gefnir voru út undir nafninu Supersilent 1-3 í janúar 1998, en nafn sveitarinnar valdi Sten á leið heim úr hljóðverinu eitt sinn og leit rafalstengivagn á leið sinni. Hljómsveitin er ekki hljómsveit Snar þáttur í starfi Supersilent er að hún er ekki hljómsveit og þannig koma menn aldrei saman fyrir tón- leika eða upptökur, allt verður til á staðnum og er síðan klippt niður í hæfilega skammta til að gefa út. Umslög platna Supersilent eru líka naumhyggjuleg í meira lagi, ekkert um upplýsingar og lögin heita bara númerum með nafni hverrar plötu, en þær heita einmitt númerum, skeytt framan við. Allt er þetta til- raun til að skilja á milli tónlistar og flytjanda; tryggja að hlustandi setji plötuna á án þess að búast við ein- hverju sértöku eftir að hafa litið mynd á umslagi eða lesið texta í bæklingi. Auk þess sögðu þeir Sup- ersilent-liðar um það leyti sem fyrsta platan (eða fyrstu þrjár plöt- urnar, fer eftir því hvernig á það er litið) kom út að ef þeir hefðu farið að gefa lögunum heiti hefði hvert lag heitið fjórum nöfnum því spuna- tónlist beri svo sterk einkenni af framlagi hvers og eins að ekki sé hægt að skilja þar á milli. Eftir að platan var komin út stóð ekki til að gera meira og reyndar eru samskipti þeirra félaga í lág- marki á milli þess sem þeir hittast til að spila, enda koma þeir hver úr sinni áttinni ef svo má segja, fást við mjög ólíkar gerðir tónlistar sem skilar einmitt svo góðu í samstarf- inu. Sten, sem jafnan er mjög upp- tekinn sem upptökustjóri, tók aftur upp samstarf við Geir „Biosphere“ Jenssen, að þessu sinni til að end- urvinna raftónlistarverk sem tón- skáldið Arne Nordheim, sem sagður er fremsta tónskáld Norðmanna frá því Grieg leið, samdi fyrir rúmum þremur áratugum. Sú endurvinnsla kom út á plötu haustið 1998 og tveimur mánuðum síðar kom út önnur (fjórða?) plata Supersilent, sem hét vitanlega bara 4. Á henni er tónlistin öllu hófstilltari en tilfinn- ingagosið sem einkennir fyrstu út- gáfuna, en þess má geta að af tón- leikaumsögnum að dæma er ekki á vísan að róa með Supersilent, einir tónleikar eru fínlegir hljómklasar sem gæla við eyru hlustenda og dilla þeim, en á þeim næstu eru menn með sandpappírinn og hljóðmeitlana á lofti. Á sumum tónleikum er þessu þó blandað saman. Enn var hægt á dýnamíkinni á 5 sem kom út 2001, en hún var úrval úr 30 tíma tónleikaupptökum frá Ósló, Lundúnum og Bologna. (Þess Naumhyggju- leg geggjun Mikið er á seyði í norskri tilraunatónlist, hver sveitin af annarri sendir frá sér forvitnilegar skífur sem ryðja raftónlist og djass nýjar brautir. Fremst meðal jafningja á því sviði er kvartettinn Supersil- ent sem er svo píetískur í sinni tónlistarsköpun að allt er tekið upp beint og liðsmenn ræða aldrei tónlist sín á milli, þeir bara spila. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Common – Electric Circus Þá er maður búinn að uppgötva fyrstu snilld ársins. Að vísu kom þessi ótrúlega plata út á síðasta ári en hún er ekki að berast til eyrna landans fyrr en á nýju ári og þökk sé almættinu fyrir það lán. Ég hef aldrei verið neitt sérlega gefinn fyrir sirkus og átti alltaf erfitt með að fatta hvað væri svona óskaplega skemmtilegt við Billy Smart og félaga en hér er loksins kominn sirkus sem er að mínu skapi. Og sannarlega er hann rafmagnaður sirkusinn sem rapparinn og heimsósómaskáldið Common ber á borð fyrir mann, upp- fullur af einvala hæfileikafólki – Phar- rel Williams úr The Neptunes og N.E.R.D., Mary J. Blige, Omar, Laet- itia Sadier úr Stereolab, Cee-Lo, Jill Scott og Erykah Badu – sem fram- kvæmir ótrúlegustu hundakúnstir. Og sjálf tónlistinn er á allt öðru plani en gerist og gengur í hipp-hoppinu, flóknari og margbreytilegri, og áhrif- in sótt á ólíklegustu mið, eins og t.d. til Kraftwerk, í súrkálsrokkið þýska og til fyrstu tilþrifa Prince.  Badly Drawn Boy – Have You Fed the Fish? Maðurinn er nátt- úrlega snillingur, um það verður ekki deilt. En hann er óskaplegt ólík- indatól og með stór- mennskubrjálæði á háu stigi. Have You Fed the Fish? ber þess líka klár merki, er yfirgengilega metnaðarfull, næstum bíræfin, því drengurinn telur sig geta allt og kom- ast upp með allt. Og það versta er að hann hefur á réttu að standa því það er meira fútt, meiri frumleiki og æv- intýramennska í þessum 15 lagasmíð- um hans en flestu öðru sem gefið er út á okkar tímum. Have You Fed the Fish? er þannig verk manns sem fær er í flestan sjó.  Erlend tónlist Skarphéðinn Guðmundsson Fermingar Laugardagur 15. mars Blaðauki um fermingar fylgir Morgunblaðinu laugardaginn 15. mars. Auglýsendur pantið fyrir kl. 16 þriðjudaginn 11. mars! Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1111 eða augl@mbl.is gjafir - skreytingar - veislan föt - hár - förðun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.