Morgunblaðið - 02.03.2003, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 02.03.2003, Blaðsíða 57
má geta að Supersilent hyggst gefa út allar tónleikaupptökur sínar á næstunni, nokkra tugi diska, en ekki er ljóst hversu margir verða í hverjum pakka.) 6 Eins og getið er í upphafi kom ný skífa Supersilent út fyrir skemmstu og berst væntanlega til landsins á morgun. Sú heitir því knappa nafni 6 og er tekin upp í hljóðveri Helge Stens. Enn eru menn að snarstefja, en orðnir býsna samstilltir því mikið af skífunni hljómar eins og það sé þrælsamið og útsett. Til að tryggja rétta stemmningu settu þeir Supersilent-menn upp tónleikahljóðkerfi í hljóðverinu og síðan var talið í, enginn með heyrn- artól heldur allir að spila eftir því sem næsti maður var að gera. Eins og Sten lýsir vinnunni spiluðu þeir saman í hálftíma eða svo, hlustuðu á upptökuna og héldu síðan áfram með þær hugmyndir sem þeim fannst vera að ganga upp, en plöt- unni var svo raðað saman úr því sem heppnaðist best. Ekkert er heldur um eftirvinnslu frekar en fyrri daginn, en platan var tekin upp og tónjöfnuð á fimm dög- um. Skemmst er frá því að segja að umsagnir um plötuna hafa verið lof- samlegar að venju og aðdáendum svo ólíkra hljómsveita sem Sigur Rós, Godspeed You, Black Emper- or!, Plaid, Talk Talk, Popol Vuh og King Crimson er bent á skífuna, en hún sameinar einmitt geggjunina sem knúði sveitina áfram í mörgum „lögum“ á Supersilent 1-3 og naum- hyggjulegan andvara Supersilent 5. FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARS 2003 57 Fjall hetjunnar (Heroe’s Mountain) Drama Ástralía 2002. Skífan VHS. Öllum leyfð. (95 mín.) Leikstjórn Peter Andrikidis. Að- alhlutverk Craig McLachlan, Tom Long. STÓRSLYSAMYND þessi byggist á sönnum harmleik sem átti sér stað í Ástralíu 1997 er snjóflóð féll á fjallabæinn Thredbo og varð 60 íbú- um bæjarins að bana. Einum þeirra sem varð undir flóð- inu, Stuart Diver (McLachlan), tókst þó með ótrúlegum hætti að tóra í heila 65 tíma fastur undir fönn áður en björg- unarmenn unnu hetjulegt afrek með því að finna hann og grafa upp á lífi. Þetta er saga þessa ofurmennis og hreint dæmalauss lífsvilja hans. Myndin, sem gerð er fyrir sjón- varp, er býsna vel gerð og heldur manni við efnið allan tímann, enda framvindan næsta lygileg. En þó ber að varast að sumum hlýtur að finnast hún ákaflega óþægileg áhorfs.  Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Ótrúlegur lífsvilji A I K I D O Einnig hægt að fá kynningar fyrir skóla, félagasamtök og fyrirtæki Komið og takið þátt eða fylgist með Nútímasjálfsvarnarlist fyrir alla Nánari upplýsingar: í símum 822 1824/868 9037 http://here.is/aikido aikido@here.is Sjálfsvörn – Líkamsrækt Ný námskeið að hefjast í mars! Fríir kynningartímar mánudaginn 3. mars og miðvikudaginn 5. mars kl. 18.00 í Faxafeni 8.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.