Morgunblaðið - 02.03.2003, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 02.03.2003, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARS 2003 59 George Michael er alfarið á móti því að ungar poppstjörnur taki sig saman og hljóðriti mótmælasöng gegn fyrirhug- uðu stríði í Írak. Michael, sem hefur verið einn háværasti gagn- rýnandi stríðs- áforma Banda- ríkjamanna og Breta, sagði í viðtali í BBC- þættinum Hard- talk að þetta unga fólk stæði ein- faldlega ekki undir slíkum mál- flutningi, að það hefði engan veginn áunnið sér nægilega vigt til að mark væri takandi á boðskap þeirra í slíku lagi. Hann sagðist sjá uppátækið sem einhvers konar Band Aid 2-fyrirbrigði, en Band Aid var góðgerðarsöngur hljóðrit- aður árið 1984 til styrktar hungr- uðum í Eþíópíu og var um leið áskorun til yfirvalda um að auka aðstoð við þriðja heiminn. Michael tók sjálfur þátt í Band Aid, þá 21 árs gamall, ásamt Bono, Duran Duran, Sting, Bob Geldof o.fl. en hann fullyrðir að þeir tónlist- armenn hafi verið sér mun betur meðvitandi en þeir sem hafa í hyggju að mótmæla fyrirhuguðu stríði með svokölluðum War Aid- samsöng. Það er strákabandið Blue – yfirlýstir aðdáendur Mich- ael – sem reynt hefur að skipu- leggja War Aid og hafa þeir sett sig í samband og fengið jákvæð viðbrögð frá poppurum á borð við Kylie Minogue og Justin Timber- lake um að syngja með sér í stríðsandófslaginu „Stand Up As People“. En George Michael segir vart mark takandi á slíkum skemmtikröftum. Þetta uppátæki virkaði alltof framleitt, komið frá liði sem syngi ekki einu sinni eigin lög, og væri því ekki vant að miðla til fólks því sem þeim sjálfum ligg- ur á hjarta. „Ég óska þess heitt og innilega að ekki verði að þessu Band Aid 2-dæmi því veruleikinn er sá að það eru ósköp fáir í þess- um bransa núorðið af þeim sem spilaðir eru í útvarpinu, sem afla tekna af því sem kemur frá þeirra eigin hjarta. Þetta fólk er að græða á hugarsmíðum annarra þannig að eitthvert Band Aid 2- verkefni sem samanstæði af slík- um skemmtikröftum þætti mér al- veg óskaplega léttvægt – þetta fólk hefur ekki hundsvit á pólitík, þykist ég vita.“ Michael var harðlega gagnrýndur fyrir föst skot sín gegn stríðsbrölti Bush og Blair í lagi sínu „Shoot The Dog“ en hann segist hafa misst alla trú á forsætisráðherra sínum og ætlar aldrei að kjósa hann aftur …Cerys Matthews, söngkona velsku hljómsveitarinnar sálugu Catatonia, er gengin í það heilaga með bandaríska upp- tökustjóranum Seth Riddle … FÓLK Ífréttum ÞAÐ var öldungis mikil stemmning er brimbrettastuðmyndin Báran blá eða Blue Crush var forsýnd á fimmtudaginn var í Kringlubíói. Fönguleg fljóð réðu sér þar ekki fyrir kæti og breiddu út faðminn í tilbúnu flæðarmálinu, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Morgunblaðið/Jim Smart Guðbjörg, Halldóra, Ásgerður og Sólveig í brimbrettasveiflu. Í ástargreipum Ægis Báran blá forsýnd Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 SV. MBLHK DVÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com Tilnefningar til Óskars- verðlauna þ. á. m. besta mynd 13 Frábær svört kómedía með stór leikurunum Jack Nicholson og Kathy Bates sem bæði fengu til- nefningar til Óskarsverðlauanna í ár fyrir leik sinn í myndinni. Tilnefningar til Óskarsverðlauna: Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson. Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2 RADIO X SV MBL  Kvikmyndir.com  SG DV  kvikmyndir.com Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12. Tilnefningar til Óskarsverðlauna þ. á. m. Salma Hyaek sem besta leikona í aðalhlutverki6 Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i 12. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. www.regnboginn.is Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20. B.i. 16. Frumsýning á fyrstu stórmynd ársins Vinsælasta myndin í Bandaríkjunum. 2 vikur á toppnum. Stútfull af topp tónlist og brjálæðri spennu. Missið ekki af þessari mögnuðu mynd. Tilnefningar til Óskarsverðlauna, þ.á.m.besta mynd og besti leikstjóri10  HJ MBL Sýnd kl. 2 og 4. ísl. tal. 400 kr.  RADIO X SV MBL  KVIKMYNDIR.COM  SG DV Frábær svört kómedía með stór leikurun- um Jack Nicholson og Kathy Bates sem bæði fengu tilnefn- ingar til Ósk- arsverðlauanna í ár fyrir leik sinn í mynd- inni. Sýnd kl. 2. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 5.30, 8 og Powersýning kl. 10.15. B.i.16. Sýnd kl. 4, 7 og 10. B.i. 16 ára. Tilnefningar til Óskarsverðlauna: Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson. Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2 www.laugarasbio.is Frábær mynd frá leikstjóranum Martin Scorsese með stórleikurunum Leonardo DiCaprio, Daniel Day-Lewis og Cameron Diaz. Frumsýning á fyrstu stórmynd ársins Vinsælasta myndin í Bandaríkjunum. 2 vikur á toppnum. Stútfull af topp tónlist og brjálæðri spennu. Missið ekki af þessari mögnuðu mynd. POWERSÝNINGkl. 10.15Á STÆRSTA THXtJALDI LANDSINS  ÓHT RÁS 2 Túnfiskur „tempura“ með wasabi og soyasírópi Tempura spicy tuna sashimi roll, wasabi créme fraiche, soy syrup · Grillað lamb „salat“ með sate marineruðu asísku „slaw“ og jarðhnetusósu Grilled lamb salad with sate marinade, asian slaw,indonesian peanut sauce · Rækjur með "thai" karrísósu,ananas og jasmin hrísgrjónum Shrimp with red thai curry sauce, pineapple and jasmin rice · Lime créme brulee „tart“ með berjasósu Lime créme brulee tart, berry sauce Verð kr. 4.900.- FEMÍNISTASAMTÖKIN Skæruliðastelpur – Guerilla Girls – hafa hrundið af stað herferð gegn því kverkataki sem þær telja hvíta karl- menn hafa á Óskarsverð- launahátíðinni og bandaríska kvikmyndaiðnaðinum. Á mánudag ætla þær að setja upp stórt veggspjald í Los Angeles þar sem borin er saman staða kvenna í öldungadeild þingsins – 14 konur af 100 – og í Hollywood – 4% leikstjóra þar kvenfólk – með yf- irskriftinni: „Jafnvel öldungadeildin er framfarasinnaðri en Hollywood.“ Fullyrða skæruliðastelpurnar að meira að segja stjórnvöld í Afganist- an séu jafnréttissinnaðri en kvik- myndaiðnaðurinn. Í tölfræði sem stúlkurnar hafa tekið saman kemur fram að einungis 4 af 100 vin- sælustu myndum síðasta árs séu gerðar af konum, 8 konur eigi þátt í handritum þeirra og 12 klipptar af konum. Einnig segja þær staðreynd að eng- inn af öðrum kynþætti en þeim hvíta hafi ákvörðunar- vald í Hollywood. Skæruliða- stelpurnar benda á að auðvelt sé að auka jafnréttið með því að opna dyr þessa „karlaklúbbs“ líkt og gert hefði verið í lækna- og lögfræðistétt- um með góðum árangri. Þær árétta enn fremur mikilvægi þess að þær konur sem náð hafa langt veiti mál- staðnum liðsstyrk og biðla þar sér- staklega til Sölmu Hayek, sem til- nefnd er til Óskarsverðlauna í ár fyrir túlkun sína á Fridu Kahlo, og Halle Berry, sem hlaut Óskarinn í fyrra. Skæruliðastelpurnar hefja upp raust Segja hvíta karla ráða Hollywood Salma Hayek
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.