Morgunblaðið - 02.03.2003, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 02.03.2003, Blaðsíða 64
Morgunblaðið/RAX Jóhann Gestur Jóhannesson mátar stélflöt vélarinnar við skrokkinn ásamt Davíð syni sínum en annar sonur hans, Jóhann Líndal, fylgist með. ÞESSA dagana úir og grúir af plötum, hnoð- um og teikningum í bílskúrnum hjá Jóhanni Gesti Jóhannssyni flugumferðarstjóra. Þetta dót fékk hann sent heim til sín í kassa og fyrir 17. desember næstkomandi, nánar tiltekið klukkan 14:35 ætlar hann að vera búinn að smíða sér nýja flugvél úr herlegheitunum, en þá eru einmitt 100 ár liðin frá því að Wright- bræður fóru sína fyrstu flugferð. Jóhann er enginn nýgræðingur í flugvéla- smíðinni því þetta er í fjórða sinn sem hann smíðar sér flugvél. Ein flugvélin var gömul Fis-vél sem hann endursmíðaði en hinar tvær smíðaði hann frá grunni á sama hátt og þá sem nú liggur í pörtum í skúrnum hjá honum. Hún kemur upp úr kassa, sem Jóhann keypti erlendis og er að hans sögn í raun ekki mikið frábrugðin gömlu flugvélamódelunum, sem margir kannast við að hafa límt saman sem börn. „Þú færð allt hráefnið, grófskorið niður og tilbúið fyrir þig að fínsmíða úr. Teikning- arnar, hnoðin og annað fylgir og svo geturðu ráðið hvort þú kaupir mótorinn með eða færð þér hann seinna. Svo er bara að snikka, smíða og bora,“ segir hann eins og ekkert sé einfald- ara. „Það getur hver sem er gert þetta, a.m.k. þeir sem kunna að bora og mæla. Maður smíð- ar bara eitt stykki í einu og svo þegar þetta er komið fær maður eitthvað stærra rými til að setja vélina saman og stilla vængina á og svo- leiðis. Þannig að það er ekkert mál að smíða þetta inni í hvaða kompu sem er.“ Hann viðurkennir þó að það liggi talsverð vinna í smíðinni og upplýsir að líklega liggi að meðaltali um 600 klukkutímar á bak við hverja flugvél. Og hann staðhæfir við vantrú- aðan blaðamann að það sé fullkomlega óhætt að fljúga í gripnum þegar hann er tilbúinn. „Þetta eru mjög öruggar vélar og sterkbyggð- ar og ekkert minni styrkur í þeim en t.d. Sessnu. Hins vegar eru þessar vélar léttari og veigaminni og þurfa þess vegna ekki að bera sjálfar sig svo þungar eins og Sessnurnar.“ Hann segist ætla að bjóða frúnni í flugtúr þegar vélin er tilbúin og vonast eftir að gott veður verði 17. desember, á 100 ára afmæli flugsins. Ætlar að bjóða frúnni í flugtúr HEILDARGREIÐSLUR úr Ábyrgðarsjóði launa námu 715 milljónum króna á síðasta ári, eða tvöfalt meira en árið 2001 þegar greiðslurnar námu 356 milljónum kr. Frá árinu 1998 hafa greiðslur úr sjóðnum fjórfaldast en þá námu þær 138 milljónum kr. á verðlagi þess árs. Af þessum 715 milljónum í fyrra voru launa- og orlofsgreiðslur 418 milljónir, lífeyrissjóðsgreiðslur 166 milljónir og rúmar 130 milljónir voru vextir og ýmsar aðrar greiðslur. Lífeyrissjóðsgreiðslurn- ar nærri fjórfölduðust á milli ára, námu 45 milljónum ár- ið 2001, og launa- og orlofsgreiðslur námu það ár 256 milljónum. Alls fengu um 1.500 einstaklingar greitt úr ábyrgðarsjóðnum á síð- asta ári samanborið við ríflega 1 þúsund árið áður. Fjöldi gjaldþrota fyrirtækja, þar sem launakröfur lentu á sjóðnum, liggur ekki endanlega fyrir vegna síðasta árs en talið er að gjald- þrotin séu vel á þriðja hundraðið. Þessi fyrirtæki voru 209 árið 2001, 141 árið 2000 og 86 árið 1999. Að sögn Björgvins Steingrímssonar, deild- arstjóra hjá Vinnu- málastofnun, sem sér um Ábyrgðarsjóð launa, þarf að fara aft- ur til áranna 1991–1992 til að finna sambæri- legar greiðslur úr sjóðnum. Þá námu heildargreiðslur 400– 500 milljónum króna á verðlagi þess tímabils en með framreikn- ingi nálgast þær greiðslur útkomu síðasta árs. Björgvin segir að gera megi ráð fyrir að tekjur sjóðsins í fyrra hafi numið um 260 millj- ónum, þar af námu tekjur af ábyrgðargjaldi um 170 milljónum. Flest mál hjá sjóðnum tengdust gjaldþrotum fyrirtækja í bygging- ariðnaði, verslun og þjónustu, upp- lýsingatækni, veitingahúsarekstri og fasteignaviðskiptum. Björgvin gerir ráð fyrir að greiðslur á þessu ári verði lægri en í fyrra þó að töluvert sé þegar búið að greiða út á árinu, miðað við sama tíma í fyrra. Greiðslur úr Ábyrgðar- sjóði launa tvöfölduðust          &  '(            #)$$  $$  Flundrur veiðast í lækjum og ám í Ölfusi Ljósmynd/Magnús Jóhannsson Flundra veidd í laxagildru Veiðimála- stofnunar við Óseyrarbrú sumarið 2001. FLUNDRUR veiðast nú reglulega í fersku vatni neðarlega í Ölfusá og í Varmá og Þorleifslæk í Ölfusi. Flundra er flatfiskur, náskyldur sandkola, rauð- sprettu, lúðu og grálúðu, en var óþekktur fiskur hér á landi fyrir árið 1999. Sam- hliða þessu flakki upp í ferskvatn hafa nokkrir fiskar einnig veiðst í söltum sjó. Fiskifræðingar telja að flundran sé farin að hrygna hér við land. Magnús Jóhannsson, fiskifræðingur Veiðimálastofnunar á Selfossi, sagði að fyrstu fiskarnir sem hann hafði spurnir af hefðu veiðst í net frá Hrauni við Ölfusá í september 1999 og um líkt leyti veiddust tveir á stöng í Varmá við Öxnalæk. Stofn- unin fékk einn af „allmörgum“ netafisk- unum til greiningar vorið eftir og það ár, 2000, hefðu tvær flundrur til viðbótar veiðst í laxagildru Veiðimálastofnunar við Óseyrarbrú og aðrar tvær veiddust í Varmá í Ölfusi, önnur á stöng og hin í ála- gildru. Þá fór að bera á því að veiðimenn sáu „kola“ skjótast undan fótum sínum, t.d. í Varmá og Þorleifslæk. Sama ár veiddist flundra í net í Lónsvík og önnur í Miðhúsavatni á Snæfellsnesi, sem er enn sem komið er sú eina sem veiðst hefur norðan Reykjaness. Árið 2001 fjölgaði flundrum mjög. Hrafnkell Karlsson á Hrauni veiddi t.d. 25 flundrur í net á einni nóttu í sept- ember og 11 til viðbótar næstu nótt. Net hans lágu þar sem Þorleifslækur sveigir í Ölfusárós. Flundrurnar voru flakaðar og hafðar til átu og þóttu góðar. MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 2. MARS 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. F í t o n / S Í A F I 0 0 5 3 7 6 Fyrsta heimilið www.bi.is MARKAÐSVIRÐI Flugleiða hefur ríf- lega þrefaldast á einu ári. Miðað við loka- gengi bréfanna í gær er markaðsvirði fé- lagsins nú 11,3 milljarðar króna en fyrir réttu ári nam það um 3,5 milljörðum króna. Gengi hlutabréfa í Flugleiðum hf. hefur hækkað verulega undanfarna daga. Frá því félagið birti afkomutölur sínar fyrir árið 2002 á miðvikudag hefur gengi bréfa í félaginu hækkað um ríflega 10%. Lokagengi miðvikudags var 4,9 krónur á hlut en við lok markaða í gær var gengið hins vegar 5,4 krónur á hlut. Markaðs- virði félagsins nam um 10,2 milljörðum á miðvikudag og hefur því aukist um tæp- an milljarð á tveimur dögum. Verð á hlutabréfum í Flugleiðum var um eða yfir tvær krónur á hlut frá seinni hluta árs 2001 og fram á mitt ár 2002 þeg- ar það tók að hækka aftur. Markaðsvirði Flugleiða jókst um milljarð á tveimur dögum       F0/ 00 F0G  :#",( $( H /HG IH/I IHJ FÓLKI án atvinnu fjölgaði um 431 í febrúarmánuði. Í lok mánaðarins voru 6.291 án vinnu, en það þýðir að atvinnuleysi er komið upp fyrir 4% af mannafla á vinnumarkaði. Þetta er mesta atvinnuleysi sem mælst hefur frá því vorið 1997, en í apríl það ár fór atvinnuleysi upp í 4,7%. Frá áramótum hefur atvinnulaus- um fjölgað um 1.220. Á höfuðborg- arsvæðinu eru næstum 4.000 manns atvinnulausir, 2.243 karlar og 1.752 konur. Atvinnu- lausum fjölg- aði um 431
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.