Morgunblaðið - 06.03.2003, Síða 9

Morgunblaðið - 06.03.2003, Síða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2003 9 BANDALAG ÍSLENSKRA LEIKFÉLAGA Vantar þig gervi fyrir grímuballið? Hárkollur • Trúðanef • Gervinef • Tannlakk Gerviskegg • Gerviaugnhár • Lithársprey Leikhúsfarði • Gervitennur • Gervieyru Gerviskallar • Gerviblóð • Gervihor Sendum í póstkröfu! Laugavegi 96 • www.leiklist.is • 551 6974 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 GUÐMUNDUR Einarsson, for- stjóri Heilsugæslunnar, segir að talsverður skortur sé á heimilis- læknum á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir hins vegar að mikil uppbygging eigi sér stað í heilsu- gæslunni. „Við höfum ekki náð að byggja okkur nægjanlega upp ennþá. Þar hefur skort á heimildir og fjárveitingar. Mér sýnist þó að það horfi mjög til bóta þegar kem- ur lengra fram á þetta ár og svo sérstaklega það næsta.“ Heilsugæslan hefur stjórnsýslu í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnar- nesi og Mosfellsbæ og segir Guð- mundur ástandið misjafnt eftir hverfum, en einna verst sé það í hverfi 104, Voga- og Heimahverfi. Ekki er starfandi heilsugæsla í hverfinu og ritar Þórdís Gunnars- dóttir opið bréf til heilbrigðisráð- herra í Morgunblaðið í gær þar sem hún hefur verið án heimilis- læknis síðan 1. desember 2001. Hún segist ýmist þurfa að leita í Spöngina í Grafarvogi eða lækna- vaktina í Smáranum. Hún segist jafnframt hafa fengið mun betri læknaþjónustu er hún bjó á lands- byggðinni. „Það erfiðasta við Voga- og Heimahverfið er að þar er ekki komin heilsugæslustöð en það er í undirbúningi að hún taki til starfa á næsta ári,“ sagði Guðmundur og bætti við að í bígerð væri að lýsa eftir húsnæði. Hann sagði vanda- mál skapast í heilsugæslustöðvum í kringum 104-svæðið þar sem þær tækju á móti fólki úr hverfinu og yfirfylltust því. „Þetta er svolítið keðjuverkandi.“ Guðmundur sagði sjálfstætt starfandi heimilislæknum fara fækkandi og væru nú aðeins um 13 eftir. Hins vegar hefði heimilis- læknum á heilsugæslustöðvum fjölgað og væru nú um 70 starf- andi á svæðinu. Guðmundur sagði það fyrirkomulag gott þar sem heilsugæslustöðvarnar gætu bæði tekið við tímapöntunum og sinnt bráðaþjónustu. Margir að nema heimilislækningar Guðmundur sagði ekki lengur vandamál að fá heimilislækna í laus störf. „Það er mikil aðsókn í framhaldsnám í heimilislækning- um svo þar er mikil breyting frá því sem var.“ Guðmundur er því bjartsýnn á betri tíma í heimilislækningum. „Við erum óneitanlega í svolitlum vandræðum í dag og okkur þykir það leitt. Við biðjum fólk af- sökunar á því að það lendi í vand- ræðum en við gerum okkar besta til að leysa úr því,“ sagði Guð- mundur. Skortur er á heimilislæknum á höfuðborgarsvæðinu Fullyrt að staðan batni á næstu tveimur árum Ný sending af flottum gallafatnaði frá Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00. Ný sending af bolum og glæsilegum toppum Margir litir Bolir verð kr. 1.990 - Toppar frá kr. 1.990 Laugavegi 56, sími 552 2201 TEENO FALLEG FÖT FYRIR FERMING- ARNAR Síðustu dagar útsölunnar Rosaleg lækkun Kringlunni, sími 588 1680. iðunn tískuverslun Glæsilegt úrval af yfirhöfnum frá Wellington og Fyrsta Íslandsmót kvenna í pool á Íslandi á Players að sjálfsögðu, hvar annarsstaðar! Skráning á Players. Íslandsmót kvenna í pool á Players sunnudaginn 9. mars kl. 19.00 Bæjarlind 4 sími 544 5514

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.