Morgunblaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2003 35 EINHVERJUM ljótasta kafla í stjórnmálasögu síðustu áratuga fer vonandi senn að ljúka. Baugs- feðgar, Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir, sonur hans, hafa einsett sér að koma Davíð Oddssyni for- sætisráðherra frá völdum. Þeim nægir ekki, að þeir hafa í stjórn- artíð hans orðið einhverjir rík- ustu menn landsins. Þeir gera út Fréttablaðið, sem er í herferð gegn Davíð. Jón Ásgeir treysti sér ekki einu sinni til að neita því í sjónvarpsviðtali fyrir skömmu, að hann ætti Fréttablaðið, þótt hann yrði allur flóttalegur við. Jón Ásgeir kemur trúnaðarupp- lýsingum innan úr fyrirtækinu í blaðið, þar sem allt er rangfært í því skyni að koma höggi á Davíð. Þessa dagana er auðvitað verið að leita að nýjum kennitölum til að skrá blaðið á, en það breytir engu um það, sem allir sjá og vita, að það er kostað af Jóni Ásgeiri og Baugi. Hlutur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur er ekki góður. Hún hóf kosningabaráttu sína í Borg- arnesi með því að dylgja um það, að Davíð Oddsson væri að siga lögreglunni og öðrum aðilum að ósekju á Jón Ólafsson og Baugs- feðga, en þeir sæta nú allir op- inberum rannsóknum. Þetta voru ótrúlegar ásakanir. Hún talaði þar eins og hún væri ekki for- sætisráðherraefni Samfylkingar- innar, heldur Jóns Ólafssonar og Baugsfeðga. Hún hefur að vísu þurft að taka allt aftur, sem hún sagði um rannsóknina á Jóni Ólafssyni. Hún hefur viðurkennt, að sú rannsókn var eðlileg. Hún hefur líka orðið að segja það sér- staklega lögreglumönnum lands- ins, að hún væri ekki að væna þá um óeðlileg vinnubrögð, þótt hún hefði raunar einmitt verið að gera það í ræðunni. Allt þetta bliknar þó hjá því, að Jón Ásgeir Jóhannesson orðaði það beinlínis við Hrein Loftsson, stjórnarformann Baugs, hvort gera mætti Davíð að vini fyrir- tækisins með því að greiða honum 300 milljónir króna inn á leyni- reikning erlendis, enda stæðist enginn maður slíkt boð. Það er ágreiningslaust milli Hreins, Davíðs og Illuga Gunnarssonar, sem voru á fundi saman úti í Lundúnum, að þetta gerðist, þótt Jón Ásgeir hafi á hinn bóginn orðið margsaga í málinu. Það breytir síðan engu, að þá Davíð og Hrein greinir á um aukaatriði eins og þau, hvenær dags Illugi kom á fundinn. Þetta er stóral- varlegt mál. Einn ríkasti maður landsins ætlaði að reyna að kaupa forsætisráðherrann, og þegar það tókst ekki, einsetti hann sér að reyna að koma honum frá völdum og notar leynt og ljóst til þess auð sinn og áhrif. Þetta er ekki aðeins aðför að Davíð Oddssyni, heldur að stjórn- skipan landsins. Hannes Hólmsteinn Gissurarson Aðför Ingibjargar og Baugsfeðga að Davíð Höfundur er prófessor í stjórnmálafræði. Stjörnuljómi Förðunarmeistarinn Corey Hedström frá ESTÉE LAUDER verður í snyrtivörudeild Debenhams á morgun föstudag og laugardag frá kl. 11.00-18.00 og sýnir nýja og byltingarkennda förðunartækni með loftúða. Komdu við eða hringdu og bókaðu tíma í síma 522-8008. FÖRÐUNARMEISTARI FRÁ www.esteelauder.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.