Morgunblaðið - 30.03.2003, Side 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 30. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í boði MBA
námsins
Opinn fyrirlestur
31. mars, kl. 12.00-13.00
Dr. Christopher K. Anderson:
Raunverulegir kostir í kvikri
verðlagningu og stýringu tekna
Chris Anderson er verkfræðingur (MSc) en hefur jafnframt lokið
MBA og PhD-prófi í viðskiptafræði með áherslu á aðgerðarannsóknir
og rekstrarstjórnun. Chris starfar sem lektor við Richard Ivey School
of Business og kennir aðgerðarannsóknir, tölfræði og fjármál í MBA
námi í skólanum.
Richard Ivey School of Business er í 6. sæti á lista
yfir bestu MBA skóla í Evrópu og Kanada sem birtur
var í tímaritinu Business Week í október sl.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Námunni, húsi
Endurmenntunar H. Í., Dunhaga. Allir velkomnir.
Háskóli Íslands
Vi›skipta- og hagfræ›ideild
www.mba.is
NEFNDARSTÖRF einkenndu
landsfund Sjálfstæðisflokksins fyrir
hádegi á laugardag en síðdegis var
stefnt að því að hefja almennar um-
ræður um drög að ályktunum
flokksins. Í sjávarútvegsnefnd
flokksins var m.a. samþykkt að
setja inn í ályktun um sjávarútvegs-
mál að sjálfstæðir rannsóknarað-
ilar ættu að hafa aðgang að nið-
urstöðum mælinga sem aflað væri
um borð í rannsóknarskipum á veg-
um opinberra aðila.Stefnt er að því
að landsfundi flokksins ljúki í dag
en áður verða afgreiddar ályktanir
fundarins. Einnig fara fram kosn-
ingar um miðstjórn flokksins, vara-
formann og formann.
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölmenni tók þátt í umræðum í sjávarútvegsnefnd Sjálfstæðisflokksins fyrir hádegi í gær.
Sjálfstæðir aðilar hafi aðgang
að rannsóknargögnum
EYMUNDUR Runólfsson, verk-
fræðingur í áætlanadeild Vega-
gerðarinnar, segir að Vegagerðin
hafi ekki skoðað ítarlega kosti
þess að gera hálendisveg milli Ak-
ureyrar og Reykjavíkur sem liggi
um Stórasand. Hann segist ekki
telja að snjóalög hamli slíkri veg-
arlagningu en hefur áhyggjur af
veðurhæð á fjallvegi í þessari
hæð, en vegurinn færi hæst í um
800 metra yfir sjávarmáli.
Halldór Blöndal, forseti Alþing-
is og fyrrverandi samgönguráð-
herra, hefur sett fram hugmyndir
um veg úr Borgarfirði um Stóra-
sand og Kjöl norður í Skagafjörð,
en slíkur vegur myndi stytta leið-
ina milli Akureyrar og Reykjavík-
ur um 42 km. Hann hefur einnig
bent á að hægt væri að fara með
veginn um Kaldadal og Mosfells-
heiði, en það myndi stytta leiðina
um 81 km.
Kostar 4,4–5,5 milljarða
Eymundur sagði að gróf áætlun
Vegagerðarinnar gerði ráð fyrir
að það myndi kosta 4,4 milljarða
að leggja hálendisveg úr Borgar-
firði og um 5,5 milljarða ef farið
væri um Kaldadal.
„Við þekkjum ekki vel veður-
hæð á þessu svæði. Ég hef ekki
miklar áhyggjur af snjó á þessari
leið, en óttast frekar veðurhæð.
Það er oft mjög vont veður á há-
lendinu. Vegurinn fer í mikla hæð
eða um 800 metra hæð þar sem
hæst er,“ sagði Eymundur. Til
samanburðar má geta þess að
Hellisheiði fer hæst í um 400
metra hæð og Öxnadalsheiði fer
hæst í um 500 metra.
Eymundur sagðist telja að
fyrsta skref í þessu máli væri að
rannsaka veðurlag á þessu svæði.
Hann sagði að þegar menn voru
að velta fyrir sér vegarlagningu á
Sprengisandi hefðu menn skoðað
mælingar úr sjálfvirkum veður-
mæli við Sandbúðir og hann hefði
sýnt að þarna kæmu stundum
slæm veður. Það væri hins vegar
alltaf matsatriði hversu miklu
þessi veðurþáttur ætti að ráða
þegar kæmi að ákvörðun um veg-
arlagningu.
„Vegagerðin hefur almennt
verið þeirrar skoðunar í mörg ár,
að það beri að leggja áherslu á að
efla byggðavegi áður en byrjað er
á nýjum verkefnum,“ sagði Ey-
mundur.
Magnús Jónsson veðurstofu-
stjóri sagðist ekki hafa skoðað
þetta svæði sérstaklega, en það
lægi þó fyrir að norðvesturhluti
landsins væri alls ekki snjó-
þyngsti hluti landsins.
„Mér finnst í ljósi reynslu okkar
óvarlegt að fara með vegi upp í
800 metra hæð. Ég held að það
verði stefna okkar á næstu árum
og áratugum að reyna að komast í
gegn um heiðar sem eru flestar þó
ekki nema í 400–500 metra hæð.
Þessar heiðar eru oft á tíðum erf-
iðir og hættulegir farartálmar. Ég
get nefnt Vaðlaheiði sem er virki-
lega leiðinlegur fjallvegur þó hún
sé ekki há.“
Magnús sagði að ef farið yrði út
í að leggja vegi yfir hálendið yrðu
menn jafnframt að gera sér grein
fyrir að slíkum vegi yrði að loka
öðru hverju vegna veðurs. „Menn
verða að átta sig á að þarna verða
verri veður en á láglendi. Vind-
hraði er oft á tíðum hættulega
mikill til að óhætt sé að vera þarna
á ferð,“ sagði Magnús.
Verkfræðingur Vegagerðar og
veðurstofustjóri um hálendisveg
Hafa áhyggj-
ur af mikilli
veðurhæð
KOSNINGAMIÐSTÖÐ Samfylk-
ingarinnar í Lækjargötu í Reykja-
vík var opnuð í hádeginu í gær að
viðstöddu fjölmenni. Miðstöðin er
staðsett í byggingunni þar sem
verslunin Top Shop var áður til
húsa.
Það voru Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir og Össur Skarphéðinsson,
formaður flokksins, sem tóku á
móti gestum við opnun miðstöðv-
arinnar.
M.a. var boðið upp á hádeg-
isverð og tónlistarflutning en
klukkan 14 var haldið til mót-
mælafundar á Lækjartorgi þar
sem stríðsrekstri í Írak var mót-
mælt. Dagskránni lauk svo með
beinni útsendingu landsleiks Skota
og Íslendinga í knattspyrnu á risa-
skjá í kosningamiðstöðinni.
Morgunblaðið/Sverrir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tók á móti gestum við opnun kosningamiðstöðvarinnar í gær.
Samfylkingin opnar kosningamiðstöð
MD-flugfélagið, sem hefur verið með
höfuðstöðvar í Hamraborg í Kópa-
vogi, hefur verið tekið til gjaldþrota-
skipa að beiðni eigenda félagsins.
Var þrotabúinu skipaður skiptastjóri
í Héraðsdómi Reykjaness á fimmtu-
dag, Helgi Jóhannesson hrl.
Félagið var í fyrrasumar með fjór-
ar McDonnell Douglas MD-83-þotur
í ferðum milli norður-evrópskra
borga og áfangastaða við Miðjarðar-
haf. Flaug MD einkum leiguflug fyr-
ir ferðaskrifstofur í Svíþjóð en einnig
fyrir írskar skrifstofur og voru al-
gengir áfangastaðir félagsins til
dæmis Malaga, Alicante, Nice, Bol-
ogna, Palermo, Róm, Þessalóníka og
Aþena. Flugliðar voru allir erlendir
og leigðir sem verktakar til MD, en
10 til 15 manns störfuðu á vegum
fyrirtækisins hér á landi og hættu
þeir síðustu störfum í liðinni viku.
Helsta viðskiptafyrirtæki MD,
sænska ferðaskrifstofan Traffic
Europe Svenska a.b., var tekið til
gjaldþrotaskipta í nóvember sem
leið og hafði það mikil áhrif á rekstur
MD.
MD-flugfélagið var stofnað árið
1997 og hóf flugrekstur árið 2000.
Flugfélagið
MD tekið
til gjald-
þrotaskipta