Morgunblaðið - 30.03.2003, Blaðsíða 19
brúsanum mínum og hélt á eftir
Ngowi.
Sigri hrósandi göngumenn á nið-
urleið mættu okkur hver á fætur
öðrum, en hinum má ekki gleyma
sem gáfust upp. Þau ósköp gerðust
að einn göngumaðurinn settist grát-
andi niður á rassinn og neitaði að
halda áfram. Leiðsögumenn hans
tóku á málinu með skilningi og
hjálpuðu honum niður. Nokkrir til
viðbótar byrjuðu að kasta upp of-
arlega í hlíðunum og voru studdir
niður. Enn aðrir misstu sjónina af
einhverjum ástæðum og voru gripn-
ir staurblindir af leiðsögumönnum
sínum. Þeir þurftu að bruna með
allt þetta fólk niður í súrefnisríkara
loft og það var fremur óhugnanlegt
að sjá það teymt á ofsahraða niður
rykugar skriðurnar. Hersingarnar
hleyptu upp miklum rykmekki sem
óðara fauk framan í okkur Ngowi.
Loksins, eftir 40 mínútna göngu
frá Stella Point, sá ég sjálfan tind-
inn, Uhuru-tind. Mér fannst þetta
nærri ótrúlegt. Aðeins nokkur hæg
skref til viðbótar og ég var kominn á
tind Kilimanjaro klukkan 9:25. Ég
var reyndar tveimur tímum á eftir
strákunum og einum 114 árum á eft-
ir Hans Meyer, sem fyrstur fór á
tindinn 1889, en það skipti engu
máli, ég var í sjöunda himni. Þetta
var lítið skref fyrir fjallgönguíþrótt-
ina en stórt skref fyrir sálartetrið.
Öll þreyta hvarf á andartaki og ekk-
ert komst að nema ólýsanlegur létt-
ir. Nú fannst mér beinlínis hlægi-
legt að ég skyldi hafa hugsað um
uppgjöf fyrr um morguninn.
Uppi á fjallskollinum er jök-
ulhetta sem bráðnar stöðugt og er
spáð að verði horfin eftir fáeina ára-
tugi. Það er ákveðið áhyggjuefni
varðandi vatnsbúskap byggðanna
fyrir neðan. En sigur viljans var
orðinn að veruleika þennan kalda
febrúarmorgun og stund á hæsta
tindi Afríku gleymist aldrei. Óþreyj-
an eftir því að komast á enn hærra
fjall er strax orðin óbærileg.
orsi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2003 19
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
20
71
8
0
3/
20
03
S†NING
Nýbýlavegi 2 • 200 Kópavogi • S 570 5300
Opið frá kl. 13 til 16 sunnudag.
S U M A R 2 0 0 3
2 9 . - 3 0 . m a r s
Komdu á stærstu Yamaha mótorhjólasýningu sem
haldin hefur verið frá upphafi. 30 ný mótorhjól,
torfæruhjól, götuhjól, hippar og fjórhjól.
YAM
AHA
BLA
ÐIÐ
KOM
IÐ Ú
T
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.550
Flugsæti til Prag, út 10. apríl,
heim 13. apríl. Almennt verð með
sköttum. Flug og skattar á mann miðað
við að 2 ferðist saman, 2 fyrir 1.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Verð frá kr. 3.400
Glæsileg hótel í hjarta Prag frá aðeins
3.400. M.v. 2 í herbergi á Parkhotel.
Tryggðu þér síðustu sætin til Prag í apríl á ótrúlegu verði. Nú getur þú
kynnst þessari fegurstu borg Evrópu og tryggt þér farmiða frá aðeins kr.
19.550 og upplifað fallegasta tíma ársins í Prag. Hér upplifir þú mörg
hundruð ára sögu á hverju horni og mannlíf og andrúmsloft sem á ekki
sinn líka. Í boði eru spennandi kynnisferðir um kastalahverfið og
gamla bæinn, eða til hins einstaklega fagra
heilsubæjar Karlovy Vary, með íslenskum
fararstjórum Heimsferða.
Tryggðu þér
síðustu sætin í vor
3. apríl - 11 sæti
7. apríl - laust
10. apríl - 19 sæti
13. apríl - 8 sæti
17. apríl - 7 sæti
Vorið er komið í Prag. Í apríl er kominn 20 stiga hiti.
Munið
Mastercard
ferðaávísunina
Helgarferð til
Prag
10. apríl
frá kr. 19.550
DILBERT mbl.is