Morgunblaðið - 30.03.2003, Qupperneq 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2003 37
Magnús Axelsson lögg. fasteignasali
sími 533 1111
fax 533 1115
Kringlan 4-12 - Stóri turn - 9. hæð - www.laufas.is
Laufbrekka 16 – Opið hús í dag
Hjá okkur á Laufási er til sölu mjög
gott og vel skipulagt tveggja hæða
einbýlishús á rólegum stað í Kópa-
vogi. Húsið skiptist í forstofu, hol, 3
stofur, eldhús, sólskála stórt þvotta-
hús og geymslu á neðri hæð, en á
efri hæðinni eru
4 svefnherbergi,
sjónvarpshol og
stórt, glæsilegt baðherbergi. Eignin býður upp á gífur-
lega möguleika fyrir hugmyndaríkt fólk. Flísar og parket
á öllum gólfum. Svalir og verönd. Verð 21,8 millj.
Guðrún Harðardóttir, þjónustufulltrúi Laufáss, tekur á
móti ykkur með kaffi á könnunni í dag frá klukkan
14:00-17:00. Skoðið og fáið leiðbeiningar á staðnum,
einnig er hægt að fá uppl. hjá Guðrúnu í síma 862 8885. Guðrún Harðardóttir
Um er að ræða fallega 4ra her-
bergja 96 fm íbúð á 2. hæð í litlu
fjölbýli ásamt bílskúr. Fallegar
innréttingar. Parket. Suðursvalir.
Góð eign á einum besta stað í
Hólahverfi. Stutt í skóla og þjón-
ustu. Gjörið svo vel að líta inn.
Valgerður og Sigurfinnur taka
vel á móti ykkur.
Sími 568 5556
BLIKAHÓLAR 6
OPIÐ HÚS Í DAG Á MILLI KL. 14 OG 17
OPIÐ Í DAG MILLI KL. 12 OG 14
Opið hús – Brekkuland 3
Góð efri sérhæð í tvíbýlishúsi
á góðum stað í Mosfellsbænum
Fjögur svefnherbergi. Hjónaherbergi
með geymslu innaf (auðvelt að
breyta í fataherb.). Eldhús með
snyrtilegri 3-4 ára furuinnréttingu,
borðkrókur og vönduð tæki. Baðher-
bergi ný flísalagt, t.f. þvottavél og
þurrkara, baðkar og sturtuklefi.
Stofa/borðstofa samliggjandi með
nýjum postulínsflísum. Nýr skeifulaga
sólpallur í skjólsælum vel grónum garði. Eignin er mun fleiri fm en FMR
gefur til kynna. Leyfi fyrir 80 fm bílskúr. Stórt eignarland.
Hörður og Hafdís taka vel á móti þér og þínum frá kl. 14-18.
WWW.EIGNAVAL.IS
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Vegna skipulagsbreytinga eigum
við eftirfarandi til ráðstöfunar í
þessu glæsilega húsi.
1. Hæð suðurhús. samtals 312 fm.
4. Hæð suðurhús. samtals 312 fm.
2. Hæð norðurhús. samtals 335 fm.
Skrifstofur í toppstandi, gott lyftuhús,
glæslegt útsýni yfir Laugardalinn.
Húsnæðið uppfyllir allar kröfur til nútíma
skrifstofureksturs.
Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt
sérhæft fasteignarfélag.
Sanngjörn og hagstæð leiga fyrir rétta aðila.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242.
Suðurlandsbraut - til leigu
Sími 575 8500
Fax 575 8505
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
REKAGRANDI 6 - BÍLSKÝLI
Falleg 4ra herb. íbúð á 4. h. Íbúðin er á tveimur
hæðum, neðri hæðin er 60 fm og skiptist í park-
etlagða stofu með útgangi út á suð-vestursvalir.
Eldhús með ágætri viðarinnréttingu. Rúmgott
svefnh. með skápum og flísalagt baðherb. Efri
hæðin er 33 fm og skiptist í sjónvarpshol, svefn-
herb. með skápum, annað minna herbergi og
baðherb. með sturtuklefa. Eigninni fylgir sér-
geymsla, stæði í bílgeymsluhúsi ásamt sam.
þvottaherb. með tækjum. Hús og sameign í góðu
ástandi. Guðlaugur og Anna taka á móti gestum.
Áhv. 5,2 m. V. 13,7 m.
GRÝTUBAKKI 4
Góð 100 fm 4ra herb. íbúð á 2. h. Íbúðin skiptist í
parketlagt hol, stofu og borðstofu með parketi á
gólfi og útgang út á skjólgóðar suðursvalir, eld-
hús með snyrtilegri innréttingu og nýrri eldavél,
baðherbergi með flísum á gólfi og tengingu fyrir
þvottavél og þrjú rúmgóð parketlögð svefnh.
með skápum. Í kjallara er er rúmgóð sérgeymsla
og sameiginlegt þvottaherb. með tækjum. Húsið og sameignin í góðu ástandi. Margrét og Aðal-
steinn taka á móti gestum. Áhv. 6,6 m. V. 11,4 m.
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasali
Greinarhöfundur hefir engan num-
ið nefi sem ekki telur styrjöld síðasta
neyðarúrræðið til að beita, hversu
góður sem sá málstaður kann að
vera, sem barizt er fyrir.
Í leiðaranum rekur ritstjórinn rök
fyrir þeirri nauðsyn að afvopna Íraka
og ryðja Saddam Hussein úr vegi.
Undirritaður hefur heldur ekki
hitt nokkurn mann, sem er því ósam-
mála.
Enn og aftur: Málið snýst ekki um
það heldur hvernig það er gert.
Saddam Hussein kann að vera
réttdræpur. En er nauðsynlegt að
hann dragi e.t.v. hundruð þúsunda
saklausra borgara með sér í fallinu?
Eða takist að kveikja ófriðarbál, sem
e.t.v. mun loga lengi um veröld víða?
Vitnað er til þess að ófriðarbál hafi
geisað á Balkanskaga fyrir áratug og
ógnarstjórn ríkt. Alþjóðasamfélagið
hafi gripið í taumana, sem sjálfsagt
var til að stöðva manndráp. Um að-
gerðirnar var samstaða þjóða heims
og vopnbeiting neyðarúrræði þegar
til allra annarra ráða hafði verið grip-
ið. Sú var ekki raunin á í Írak, né
heldur að nein samstaða ríkti um að-
gerðirnar meðal þjóða heims. Þessi
mál eru því með öllu ósambærileg en
til þessa gripið til að verja vafasaman
málstað. Og er ekki langt seilst í
blekkingarskyni að réttlæta megi
stríðið í Írak með því að uppi hafi ver-
ið á fyrri öld múgmorðingjar á borð
við Hitler og Stalín sem of lengi hafi
setið að völdum?
Meðan þeirri spurningu er ósvar-
að, hvort stríðið í Írak hafi verið óum-
flýjanlegt, ríkir skelfing og sorg í
hugum manna.
Höfundur er alþingismaður.
völl í útgerð í stað þeirra sem hætta.
Þessu er því miður ekki svo farið.
Menn verða að kaupa eða leigja kvóta
í dag. Verðið á leigukvóta í þorski er
um 150 kr/kg en söluverðið á þorsk-
inum sem veiddur er fyrir þessa
heimild er á bilinu 110–150 kr/kg.
nema eingöngu sé veiddur allra
stærsti þorskurinn, þá fæst hærra
verð. Það sér hver maður að nýliðun
er ógerningur við þessar aðstæður.
Það er stærsti vandi kvótakerfisins.
Verð á kvóta er ekki í samræmi við
verð á fiski. Komið er í veg fyrir end-
urnýjun og því verða sjávarplássin
svo viðkvæm fyrir ákvörðunum ein-
stakra útgerðarmanna.
Ólokið verk
Sú niðurstaða að breyta engu varð-
andi úthlutun veiðiheimilda en ætla
útgerðarmönnum að greiða 2–5 kr.
fyrir hvert úthlutað kg í þorskveiði-
heimild breytti í raun engu um meg-
invandann í greininni, verðlagningu
veiðiheimildanna. Vegna andstöðu
LÍÚ var hafnað vilja meirihluta Auð-
lindanefnar sem lagði til innköllun
veiðiheimilda á löngum tíma og að
verð þeirra yrði ákvarðað á markaði.
Eftir stendur að vandinn er óleystur
og sáttin sem að var stefnt er ekki í
sjónmáli.
Höfundur er alþingismaður.
LÖGMAÐUR fjármálaráðuneyt-
is í þjóðlendumálum ritar grein í
Morgunblaðið 26. mars sl. undir
fyrirsögninni „Kosningamál Krist-
jáns Pálssonar“ og telur sig þar
vera að svara grein minni um sama
mál í Morgunblaðinu nokkrum
dögum áður.
Reyndar er það svo að lögmað-
urinn víkur sér undan að svara
efnislega því sem ég var að gagn-
rýna í Morgunblaðsgrein minni en
það var fyrst og fremst hin óbil-
gjarna framganga lögfræðinga
fjármálaráðuneytisins í þjóðlend-
umálum sem fram kemur í þinglýs-
ingum ráðuneytisins á þjóðlendu-
línum langt inn í þinglýstar
eignarjarðir bænda á Suðurlandi.
Vond stjórnsýsla
Ýmsir mætir lögfræðingar og
kunnir fræðimenn á sviði lögfræði
telja reyndar að þessar aðfarir á
vegum ráðuneytisins stangist á við
eignarréttarákvæði stjórnarskrár
og Mannréttindasáttmála Evrópu.
Ólafur Sigurgeirsson og aðrir
sem lesa skrif mín í þjóðlendumál-
um þurfa ekki að misskilja eitt né
neitt eða reyna að snúa út úr mál-
flutningi mínum. Hann byggist
einfaldlega á því að lögvarinn eign-
arréttur manna sé friðhelgur og
varinn af Stjórnarskrá Íslands.
Þessum sjónarmiðum deili ég með
flestum sem ég hef rætt þessi mál
við.
Jafnframt hef ég lagt áherslu á,
að framganga fulltrúa fjármála-
ráðuneytisins í málflutningi bæði
fyrir óbyggðanefnd og í greinar-
gerðum fyrir Héraðsdómi Suður-
lands ýtir þessum lögvarða eign-
arrétti af bújörðum til hliðar með
þinglýsingum á tilbúnum þjóð-
lendulínum, sem þinglýst er inná
bújarðir að geðþótta lögfræðinga
fjármálaráðuneytisins. Þetta finnst
mér vera vond pólitík og vond
stjórnsýsla, flóknara er það ekki.
Ekki kosningamál
heldur réttlætismál
Ég ætla ekki að elta ólar við út-
úrsnúninga Ólafs Sigurgeirssonar
á skrifum mínum um þjóðlendumál
í Morgunblaðinu. Ég vil þó taka
fram að vissulega er það rétt að
óbyggðanefnd kvað upp sjö úr-
skurði í þjóðlendumálum í Árnes-
sýslu, en í fyrsta úrskurðinum
voru mörkuð grundvallaratriði
nefndarinnar, m.a. að tekið var til-
lit til þinglýstra eignarréttinda og
má segja að nefndin hafi þar með
viðurkennt þá grundvallarreglu í
íslenskum rétti, að sá sem vefengir
t.d. þinglýstan eignarrétt þurfi að
sanna fullyrðingar sínar. Samt vís-
ar fjármálaráðuneytið úrskurðun-
um til dómstóla og það kalla ég
endurtekinn ágang á lögvarinn
eignarrétt.
Hvað umferðarrétt varðar er öll-
um ljóst að þjóðlendulög fjalla ekki
um umferðarrétt. Ég var hins veg-
ar að benda lögmanninum á að al-
menningur hefur eðlilegan umferð-
arrétt um landið bæði í skjóli
náttúruverndarlaga og jafnframt
grunar mig að ákvæði í fornum
lögum íslenskum veiti almenningi
þennan umferðarrétt og séu
reyndar í gildi enn þann dag í dag,
en þau fræði kann lögfræðingurinn
betur en ég.
Framkvæmd kröfugerðar fjár-
málaráðuneytis í þjóðlendumálum
er ekki kosningamál mitt, hins
vegar réttlætismál og þar með úr-
lausnaratriði sem hlýtur að verða
tekið fyrir og afgreitt á næsta Al-
þingi með lagabreytingu sem
tryggir að embættismenn og
stjórnsýsla ríkisins taki fullt tillit
til lögvarins eignarréttar þegna
hins íslenska ríkis.
Eftir Kristján
Pálsson
„Almenn-
ingur hefur
eðlilegan
umferð-
arrétt um
landið.“
Höfundur er alþingismaður og 1.
maður á T-lista - Framboði óháðra í
Suðurkjördæmi.
Eignarréttur
er lögvarinn
og stjórnar-
skrárbundinn
FASTEIGNIR mbl.is