Morgunblaðið - 30.03.2003, Side 39

Morgunblaðið - 30.03.2003, Side 39
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2003 39 ÁRIÐ 2002 skiluðu íslenskar kýr framúrskarandi afurðum. Þær settu nýtt met í nythæð og skiluðu að meðaltali 5.000 kg eftir hverja kú á skýrslu. Í smágrein í Morgun- blaðinu 29. janúar sl. gerði ég þess- ar miklu afurðir að umræðuefni og gladdist yfir ágæti kúnna okkar. Í Morgunblaðinu 6. febrúar sl. dró Snorri Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Landssambands kúabænda, úr ágæti kúnna. Hann bar þær sam- an við handboltastrákana og benti á að strákarnir okkar væru fáir og kýrnar líka og þess vegna gætum við hvorki búist við árangri á heims- vísu hjá strákunum eða kúnum. Strákarnir sýndu þó áður en yfir lauk að þeir léku handbolta á heims- vísu, þó að þeir væru frá fámennri þjóð, og áunnu sér rétt til að keppa á næstu Ólympíuleikum. Kýrnar hafa sýnt það í nýlegum rannsóknum að mjólkin úr þeim virðist bæði holl til neyslu og hag- kvæm til vinnslu. Okkar kýr kæm- ust kannske líka áleiðis á Ólympíu- leikana ef þar væri keppt um gæði kúamjólkur. Rannsóknir á kúamjólk eru á sumum sviðum tiltölulega nýjar af nálinni. Þær fjalla um þau efni sem eru í mjólkinni og hvernig þau eru samsett. Þær snúast líka um það hvaða áhrif efnin í mjólkinni hafa á heilsufar neytandans og hversu hag- kvæm mjólkin er þegar á að vinna úr henni mikilvægar afurðir, sér- staklega osta. Yfirgripsmikil skýrsla um arf- gengan breytileika í mjólkurpró- teinum í íslenskum kúm var flutt á ráðunautafundi 2003 nú í vetur. Höf- undar hennar voru Bragi Líndal Ólafsson, Emma Eyþórsdóttir og Helga Björg Hafberg á Rannsókn- arstofnun landbúnaðarins. Alls voru rannsökuð sýni úr 443 dætrum 32 nauta, en auk þess sýni úr flestum kúnum á tilraunastöðinni á Stóra- Ármóti. Margar gerðir eru til af mjólkur- próteinum og eiginleikar þeirra eru mjög misjafnir. Hér verða aðeins tekin til umfjöllunar tvö þeirra pró- teina sem Bragi Líndal og sam- starfsmenn fjölluðu um, en þau eru betakasein og kappakasein. Betakasein er til í tveimur gerð- um í íslenskum kúm, A1 og A2. Far- aldsfræðilegar rannsóknir og rann- sóknir á músum hafa gefið til kynna að betakasein A1 tengist nýgengi á sykursýki af gerð I sem kemur fyrir hjá börnum. Þessi varasama gerð, A1, er með lága tíðni í íslenskri mjólk eða 0,32, en hlutlausa gerðin, A2, ríflega tvöfalt algengari með tíðnina 0,68. Á Íslandi er mjólkurneysla mun meiri en í nágrannalöndunum en sykursýki barna mun sjaldgæfari. Þetta gæti skýrst af því að hlutlausa betakaseinið, A2, er meira en tvöfalt algengara á Íslandi, eins og að ofan segir, og sykursýkisáhættan sem því nemur minni. Hjá nágrönnum okkar er jafnmikið af báðum gerð- unum af betakaseini, þeirri vara- sömu og þeirri hlutlausu, og syk- ursýki sem því nemur algengari, þó að mjólkurneyslan sé minni þar. Kappakasein er aðallega til í tveimur gerðum, A- og B-gerð. B- gerðin bætir nýtinguna á ostefni við ostagerð. Kappakasein B er algeng- ara í íslenskum kúm en í erlendum samanburðarkúm, með háa tíðni, 0,76. Tíðnin á B-gerðinni er mjög lág í norska kyninu NRF og í finnsku Ayrshire-kúnum eða 0,09 og 0,08 og lág í Holstein Friesean-kúm, 0,25. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að það fæst allt að 8% meira af osti úr mjólkinni þegar hún er með hag- kvæma kappakaseinið, B-gerðina. Ávinningurinn fer eftir gerð ost- anna. Íslenska kýrin virðist geta haft áberandi yfirburði á þessu sviði. Hér eru dregin fram tvö mikilvæg jákvæð atriði um íslensku mjólkina. Annars vegar er sterk ábending um hollustu hennar varðandi vörn gegn sykursýki. Hins vegar eru sterkar líkur á verulega aukinni hagkvæmni í nýtingu hennar við ostagerð. Íslenska kýrin er að mörgu öðru leyti frábrugðin kúakynjum ná- granna okkar. Hún er létt á sér og fer vel með land, mjólkar vel miðað við stærð og flæðmjólkar við fyllstu natni. Margir kostir hennar myndu tapast við innflutning og fátt myndi vega það tap upp. (Því miður tafðist lokafrágangur á grein þessari vegna búferlaflutnings höfundar). Kýr og handbolti Eftir Stefán Aðalsteinsson „Íslenska kýrin er að mörgu öðru leyti frábrugðin kúakynjum nágranna okkar.“ Höfundur er doktor í búvísindum og fyrrverandi framkvæmdastjóri nor- ræns genabanka fyrir búfé. FURUBYGGÐ 11 - Mosfellsbæ Glæsilegt 169 fm parhús með bílskúr á sérlega fallegum stað. Glæsilegt eldhús og stór borðstofa/sólstofa, 2 stór svefnh., baðherb. með sturtu og kari og falleg stofa með arni, Timburverönd og fallegur suð- urgarður við óbyggt svæði með litlum læk. Verð kr. 20,8 m - Áhv. 6,7 m. Húsið er til sýnis í dag á milli kl. 13-15. Uppl. gefa Árni og Eydís í símum 586 8342 og 898 4657. Árni Valdimarsson lögg. fast.sali. Valdimar Óli sími 822 6439 Fasteignasalan Bakki, s. 533 4004, Skeifunni 4, Reykjavík s. 482 4000, Sigtúnum 2, Selfossi FRÁBÆR KAUP - OPIÐ HÚS Skeiðarvogur 115 – 163,6 fm raðhús Námsandinn svífur yfir Vogun- um og sumir segja að það verki örvandi að búa í nálægð við menntastofnanir. Hér er komin geggjuð villa með sólríkri lóð. Falleg og gróin lóð móti suðri, tvennar suðursvalir. Samliggj- andi stofur með útgangi á sval- ir í suður og þaðan á lóð í suður. Eldhús með fallegri innréttingu. Úr holi er glæsilegur tréstigi stigi á efri hæð. Parketlagður stiga- pallur. Útgangur úr hjónaherbergi á suðursvalir. Verð 17,9 millj. Sjón er sögu ríkari. Valdimar, sölumaður Bakka, býður ykkur velkomin í dag frá kl. 13.00-15.00. Bergstaðastræti 32B – 136,6 fm einbýlishús á besta stað í Þingholtunum. Mikið og vel að verki staðið við endurnýjun á þessu virðulega húsi. Tvær hæðir auk rislofts (ekki skráð hjá FMR). Falleg vesturverönd. Þrjú svefnher- bergi og þrjár stofur. Gólfefni náttúrusteinn, furugólfborð og teppi. Baðherbergi m. fallegum mosaiklögðum innréttingum, stóru mosaiklögðu hornbaðkari með sturtuaðstöðu. Hiti er í gólfum að stærstum hluta á neðri hæð hússins. Rafmagnslagnir og tafla eru nýleg. Vatns- og frárennslislagnir eru nýjar. Gler er nýtt. Húsið er nýklætt að utan með bárujárni og gler er nýtt. Möguleiki er á að útbúa tvær íbúðir í húsinu. Verð 19,0 millj. Sjón er sögu ríkari. Valdimar, sölumaður Bakka, býður ykkur velkomin í dag frá kl. 15.30-17.30. OPIÐ mánud.-fimmtud. frá kl. 9-18, föstud. frá kl. 9-16. Sími 588 9490 Þingás 7 - Reykjavík Í dag frá kl. 14.00 til 17.00 er opið hús í Þingás 7, Reykjavík. Um er að ræða 150 fm einbýlis- hús og sérstæðan 31 fm bílskúr með sjálfvirkum hurðaropnara. Parket og flísar á gólfum. Nýleg og falleg eldhúsinnrétting, góður borðkrókur. 4 svefnherbergi, sjónvarpsherbergi og góð stofa með útgengi á stóra verönd og góðan garð er snýr á móti sólu. Hiti í gangstétt og bíla- stæði. Verð 19,9 m. Áhv. 2,6 m. Veðdeild. Marteinn og Kristín taka vel á móti gestum. Lautarsmári 6 - Kópavogi Í dag frá kl. 13.00 til 15.00 er opið hús í Lautarsmára 6, Kópavogi. Um er að ræða 93 fm glæsilega íbúð á þriðju hæð ásamt 24 fm bílskúr. Allar innréttingar eru glæsilegar og gólfefni eru parket og flísar. Stofa snýr í suður með góðum svölum. Þvottahús í íbúð. Þetta er eign sem vert er að skoða. Verð 15,9 m. Áhv. 4,6 m. húsbréf. Sölumenn Lyngvík fasteignasölu verða á staðnum. OPIÐ HÚS - OPIÐ HÚS Félag Fasteignasala- Sími 588 9490 Borgartúni 22, 105 Reykjavík, sími 5-900-800. Kirkjubraut 10, Valhúsahæð, Seltjarnarnesi Vorum að fá í sölu þetta glæsilega 136 fm parhús á einni hæð á besta stað á Nesinu. Húsið er með inn- byggðum bílskúr, 33 fm, með geymslulofti yfir. Skipting hússins er þannig, að komið er inn í for- stofu, þar innaf er gott þvottahús. Hurð úr forstofu inn í gott hol og þaðan í rúmgóða og bjarta stofu og er gengið þaðan út á hellulagða verönd og sérgarð með skjólgirðingu. Eldhúsið er rúmgott með borðaðstöðu. Eitt rúmgott barnaherbergi og gott hjónaherbergi með skápum. Þar við hliðina er rúmgott baðherbergi með sturtu, baðkari og innréttingu. Allar innréttingar mjög vandaðar úr ljósum við. Gólfefni eru ljóst parket á flest- um gólfum, flísar á baði, þvottahúsi og forstofu. Mjög gott skápapláss er í húsinu. Mjög rúm og góð aðkoma er að húsinu og góð bílastæði. Garður- inn er fallegur og hiti í stéttum fyrir framan húsið ásamt útiljósum. Áhv. ca 6,0 millj. húsbréf. Sjón sögur ríkari. Steingrímur tekur á móti þér og þínum í dag milli kl. 14.00 og 16.00. Opið hús í dag, sunnudag, frá kl. 14-16 á eftirtöldum stöðum Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali Ertu að leita að einbýlishúsi? Hjá Kjöreign ehf. eru á skrá fjöldi einbýlishúsa af ýmsum stærðum og gerðum. Sum bjóða upp á tvær aðskildar íbúðir. Góðar staðsetningar víðsvegar á Reykjavíkursvæðinu, s.s. á Seltjarnarnesi, í Gerð- unum, Smáíbúðahverfi, Breiðholti, Árbæ og víðar. TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA FRÁ 1976 Upplýsingar veitir Dan V.S Wiium, hdl. og lögg. fasteignasali og eigandi Kjöreignar, í síma 896 4013. Opið hús í dag – Sóltún 30 Vantar allar gerðir eigna á skrá sími 530 6500 Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Mjög falleg og vel skipulögð ca 110 fm endaíbúð á 5. hæð í góðu nýlegu lyftuhúsi. 4 rúm- góð herbergi og björt stofa með suðursvölum. Sérinngangur af svalagangi. Fallegt útsýni. Góð staðsetning. Mjög góð fjölskylduíbúð. Opið hús í dag frá kl. 14-17. Lára og Ólafur taka vel á móti fólki. Verð 15,5 millj. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.