Morgunblaðið - 30.03.2003, Side 45

Morgunblaðið - 30.03.2003, Side 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2003 45 Elskulegur faðir okkar, bróðir, mágur og vinur, PÁLL SÖLVI PÁLSSON, Kleppsvegi 66, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn 31. mars kl. 13:30. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á reikning nr. 0319-13-110088, kt. 030751-2649, sem stofnaður hefur verið til styrktar drengjunum hans. Páll Óskar Pálsson, Gunnar Már Pálsson, Guðríður Pálsdóttir, Kristbjörn Þorkelsson, Halldór Pálsson, Hjörleifur Pálsson, Einar Pálsson, Reynir Pálsson, Marie La Cour, Erla Björk Sverrisdóttir. Okkar hjartans þökk sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, FRIÐÞÓRU STEFÁNSDÓTTUR frá Nöf við Hofsós. Sigríður Jóhannsdóttir, Henning Finnbogason, Þorvaldur Jóhannsson, Stefanía Jóhannsdóttir, Indriði Jóhannsson, Kristjana Leifsdóttir, Freysteinn Jóhannsson, Jóna Ágústa Ragnheiðardóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýju og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARÍU KONRÁÐSDÓTTUR, Hveragerði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði fyrir sérlega góða umönnun og hlýhug. Guð blessi ykkur öll. Guðný Jóhanna Kjartansdóttir, Ólafur Hannes Kornelíusson, Björn Guðjónsson, Ásta Gunnlaugsdóttir, Ingibjörg Sigrún Guðjónsdóttir, Óskar Elíasson, Sigurður Guðjónsson, Ólöf Geirmundsdóttir, Margrét Guðjónsdóttir, Ómar Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts ástkærs sambýlis- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HÓLMSTEINS HALLGRÍMSSONAR málarameistara. Svanfríður Guðmundsdóttir, Sigrún Hólmsteinsdóttir Appleby, Guðmundur B. Hólmsteinsson, María Kristín Thoroddsen, Hallgrímur Ó. Hólmsteinsson, Ásgerður Sveinsdóttir, Guðrún Hólmsteinsdóttir, Einar Erlingsson og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, PÉTURS MAGNÚSSONAR, Sörlaskjóli 9, Reykjavík. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki öldrunardeildar Landspítala, Fossvogi. Guð blessi ykkur öll. Guðmunda Dagbjartsdóttir, Jóhanna S. Pétursdóttir, Ingimar H. Þorkelsson, Magnús Þ. Pétursson, Kristín Guðmundsdóttir, Ólöf G. Pétursdóttir, Þorsteinn Njálsson, barnabörn og barnabarnabörn. Til útlanda barst okkur Ebbu fregnin um andlát góðs vinar og fyrrum náins sam- starfsmanns, Hannesar Guðjónssonar. Í stað þess að fylgja honum suður á Strönd og ganga í helgan reit Kálfatjarnar- kirkju á eftir kistu hans, urðum við að láta það nægja að hugsa til hans og ástvina hans allra og fela Guði. En heimkominn langar mig til að festa á blað örfá orð í þakkarskyni fyrir samfylgd sem var mér einstak- lega dýrmæt. Fyrst leiddu fundir okkur saman þegar ég sótti um Bú- staðasókn í vetrarbyrjun 1963. Ganga þurfti til kosninga, þótt ég væri eini umsækjandinn en einmitt þess vegna kviðu margir stuðnings- manna minna því, að fólk áttaði sig ekki á þörf fyrir það að mæta á kjör- stað. Í kosningaskrifstofu okkar í Víkingsheimilinu var svipmikil kona klædd íslenskum búningi og gustaði af henni, er hún bar fram kúfaða diska af ilmandi pönnukökum og ljúf- fengum kleinum. Þar var komin Sig- HANNES LÁRUS GUÐJÓNSSON ✝ Hannes LárusGuðjónsson fæddist á Ísafirði 6. ágúst 1905. Hann andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 5. mars síðastliðinn og var útför hans gerð frá Kálfatjarnarkirkju 15. mars. urjóna Jóhannsdóttir og þótti þá þegar sem hún ætti hvert bein í okkur Ebbu og taldi gott að fá prest, sem þekkti til Suðurnesja og fólks þar. Hún leiddi síðan til fundar við okk- ur bónda sinn, Hannes, og þétt handtak hans var upphaf samfylgdar sem ekki slitnaði hvað þá að ójöfnur hindruðu framgang. Ekki hirði ég um að rekja hina margvíslegu þætti safnaðarstarfsins sem voru undirstaða byggingar kirkjunnar glæsilegu, sem kennd er við Bústaði, bæ í útjaðri Reykjavíkur og var búið þar enn þegar fyrsta skóflustunga kirkjunnar var tekin. Sigurjóna var í kvenfélaginu og mun- aði um framlag hennar og stuðning. Hannes í bræðrafélaginu og sótti alla fundi og þurfti ekki að efa vandvirkni þegar hann tók eitthvað að sér. En nánast var samstarf okkar á hverju vori. Við þurftum að leita eftir að- stöðu fyrir fermingar í hinum ýmsu kirkjum borgarinnar, þar sem ekki var við hæfi að ferma í skólasalnum. Það var mikið umstang þessu sam- fara, enda var fermt í allt að fimm kirkjum sama vorið. Ekki þurfti að- eins að leiða börnin í ný hverfi og kynna þeim væntanlega fermingar- kirkju sína, heldur þurftu kyrtlar líka að fylgja og máta þá og síðan flytja til næstu kirkju. Þar kom framlag Hannesar og Sillu, eins og okkur var tamt að kalla hana, til mikilla heilla. Hann ók bílnum sínum að kirkjum borgarinnar eftir að hafa aðstoðað konu sína við að koma kyrtlunum snyrtilega fyrir og síðan aftur að bera inn og að fermingu lokinni út aftur. Hannes taldi þetta ekki eftir sér, með hægð og góðlegum viðbrögðum kom hann mót börnunum, sem allt var nýtt fyrir, en hann og Silla voru tengslin við söfnuðinn, sem var þeirra, þótt engin væri kirkjan. Vorið 1995 þáði Sigurjóna leg í Kálfatjarnarkirkjugarði. Við hlið hennar var þegar tekið frá grafar- stæði fyrir bónda hennar. Þau voru alla tíð samstiga, þótt ólíkt væri yfir- bragð þeirra um margt, hún hinn sanni víkingur, sem allt hlaut að lúta, hann hinn hógværi hæglætismaður, sem skaut þó ævinlega fram athuga- semdum, sem ekki sjaldan löðuðu fram bros eða jafnvel hlátur. Þessar fáu línur eiga að túlka þakklæti okkar Ebbu og um leið virð- ingu fyrir þeim sæmdarhjónum Sig- urjónu og Hannesi sem við töldum okkur til tekna að mega kalla vini okkar og það voru þau sannarlega, vel virt, alúðleg og starfsfús. Kall Hannesar kom ekki óvænt, aldraður maður og farinn að láta undan íþyngd aldurs með fjölgun ára. Við lítum til baka í helgu þakklæti og biðjum þeim hjónum og niðjum öllum og tengda- fólki blessunar þess Guðs, sem lítur framlag hvers og eins og metur að lögmálum hjartans. Blessuð sé minning Hannesar og Sigurjónu og gleymist ekki tengsl þeirra við Bústaðasöfnuð og Bú- staðakirkju. Ólafur Skúlason. Fallin er frá ná- grannakona okkar Þor- gerður Sigríður, Sigga á Vestmannabraut 76. Sigga var ein af föstu póstunum í tilverunni og órjúfanlega tengd minningum okkar frá æskuár- unum í Eyjum. Sigga var lágvaxin, kekk og snaggaraleg, hreinskiptin, glaðlynd, stríðin og skemmtileg. Æsti sig stundum og skammaðist í okkur krökkunum en það bráði fljótt af kellu. Hún var vinur okkar og við bár- um virðingu fyrir henni. Sigga var hörkudugleg, sívinnandi og kattþrifin og minnumst við hennar með skúr- ingafötuna, þvottabalann eða kústinn í höndunum, enda heimilið mann- margt og líflegt. Dolli var alltaf til sjós og lítið heima við og þá kom það í hlut sjómannskonunnar að annast börnin, búið og hin ýmsu mál sem snéru að útgerðinni. Það var mikið líf og fjör í krakkahópnum á Vestmannabraut- inni eftir að Sigga og Dolli fluttu inn á nr. 76 með barnaskarann sinn. Börn þeirra urðu okkar leikfélagar, þau Dollý, Stína, Kiddi, Jóna, Gunna, Gummi og Soffía. Dollý, sem er elst, fann fljótlega draumaprinsinn í ná- grenninu, Þór á Burstafelli, og höfðu þau öðrum hnöppum að hneppa en að taka þátt í leikjum okkar ,,villing- anna“ eins og sto, fallinni spýtu, sjá- inn sjáinn horfinn, hollý hó og öllum hinum og uppátækjum okkar á björt- um vor-, sumar- og haustkvöldum. Voru kartöflugarðarnir, Vestmanna- brautin og Fögrubrekkutúnið undir. Þau systkinin voru með af lífi og sál og tóku sum þeirra jafnvel að sér for- ystuhlutverkin. Þetta voru ár áhyggjulausrar æsku og alltaf eitt- hvað skemmtilegt að gerast. Soffía var á fyrsta ári þegar þau fluttu úr Bjarma, hún og Mardís kynntust strax á bleiualdrinum og ÞORGERÐUR SIG- RÍÐUR JÓNSDÓTTIR ✝ Þorgerður Sig-ríður Jónsdóttir fæddist á Ísafirði 19. júlí 1922. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 22. mars síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum 29. mars. hafa verið vinkonur alla tíð síðan. Má segja að hjá Siggu og Dolla á 76 hafi Mardís átt sitt ann- að heimili og munaði þau ekki um einn heim- alninginn í viðbót og prjónaði Sigga varla flík á Soffíu án þess að Mar- dís fengi aðra eins. Ógleymanlegar eru fiskibollurnar hennar, sem voru himneskar, við munum enn bragðið og þegar Sigga steikti fiskibollur lagði ilminn yfir hverfið og biðröðin á tröppunum var löng, eftirvæntingin mikil og allir fengu bollu. Ýmsar myndir koma upp í hugann; Sigga og pabbi á spjalli yfir ,,vegginn“ um lífs- ins gögn og nauðsynjar, Sigga á hlaupum í bænum heilsandi fólki á báða bóga með skoðanir á öllu, mönn- um og málefnum, Sigga við eldhús- gluggann. Um eða eftir fermingu skildu leiðir flestra okkar krakkanna en Sigga og Dolli voru alltaf á sínum stað. Nú er hljóðlátt á 76 þaðan sem áður ómuðu hróp og köll Siggu og krakkanna. Þar býr Dolli, sjómaður af lífi og sál, rólegur og yfirvegaður með öllum minningunum sem hljóta að fylgja húsinu eftir langt og við- burðaríkt líf. Síðustu árin urðu Siggu sérlega erfið vegna sjúkdóms hennar og varð hún að dvelja fjarri heimaslóðum síð- ustu árin en hún bar harm sinn í hljóði eins og hennar var von og vísa. Geng- in er einstök manneskja sem setti sterkan svip á umhverfi sitt. Við þökkum Siggu samfylgdina. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Við vottum Dolla, börnum og fjöl- skyldum þeirra samúð okkar. Júlía, Jóel og Mardís. MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds- laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangs- stræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5– 15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Grein- arhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir há- degi tveimur virkum dögum fyrr. Ef útför er á sunnudegi, mánudegi eða þriðjudegi þurfa greinarnar að berast fyrir hádegi á föstudegi. Berist greinar hins vegar ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist á réttum tíma. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.