Morgunblaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRYNSVEITIR Í BAGDAD Bandarískar brynsveitir voru enn í miðborg Bagdad seint í gærkvöldi og hermdu óstaðfestar fregnir að ekki væru uppi áform um að kalla liðsaflann þaðan. Greint var frá því í gær að bandarískt herlið hefði náð á sitt vald tveimur höllum Saddams Husseins forseta Íraks án teljandi mótspyrnu. Kostnaður 16–27 milljarðar Kostnaður ríkissjóðs vegna skattalækkana af ýmsu tagi sem stjórnmálaflokkarnir hafa boðað fyr- ir komandi kosningar er talinn geta numið 16–27 milljörðum króna. Í Mbl. í dag eru tillögur flokkanna í skattamálum raktar. Gallar á fjölþrepaskatti Fjármálaráðherra segist þeirrar skoðunar að núverandi skattkerfi hafi mikla yfirburði yfir fjölþrepa- skattkerfi. Þetta sé m.a. að hans mati staðfest í nýútkominni skýrslu nefndar sem fjallaði um kosti og galla fjölþrepaskattkerfis. Skiptinemar kallaðir heim Allir skiptinemar á vegum skipti- nemasamtakanna AFS í Hong Kong hafa verið kallaðir heim vegna ástandsins þar en 23 hafa látist af völdum bráðrar lungnabólgu sem geisar nú um Asíu og hefur meðal annars orðið vart í Evrópu. Í hópi skiptinemanna eru tvö íslensk ung- menni og komu þau heim á laug- ardag. Miðar í samkomulagsátt Verulega miðaði í samkomulags- átt á samningafundi EFTA-ríkjanna og Evrópusambandsins í Brussel í gærkvöldi um aðlögun EES-samn- ingsins að stækkun ESB. Halldór Asgrímsson utanríkisráðherra seg- ist „bærilega bjartsýnn“ á að sam- komulag náist á samningafundi sem boðaður er kl. 11 í dag. Skv. heim- ildum Mbl. er m.a. rætt um að Ísland hækki framlag sitt úr 100 milljónum króna í allt að 500 m. kr. Lík Efnavopna-Ali fundið Breski herinn staðfesti í gær að íraski hershöfðinginn Ali Hassan al- Majid, öðru nafni „Efnavopna-Ali“, hefði fallið í árás á heimili hans í borginni Basra á laugardag. Þriðjudagur 8. apríl 2003 Prentsmiðja Morgunblaðsins blað B Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu Hagstæð íbúðalán 8 Sameiginlegur kostnaður Ómissandi þægindi Greiðsluskylda eigenda 32 Vatnsveitur og salerni 43 ÞAÐ vekur ávallt athygli, þegar góð íbúðarhús í vesturbæ Reykjavíkur koma á markað. Hjá fasteignasöl- unni Höfða er nú til sölu fallegt íbúðarhús við Ásvallagötu 67. Húsið er í funkisstíl, á tveimur hæðum auk kjallara sem er með sér tveggja her- bergja íbúð. Sérinngangur er á 1. hæð. Þrjár stofur eru á hæðinni með fallegum listum í lofti og parketi á gólfi. Úr holi er parketlagður stigi upp á efri hæð en á þeirri hæð eru þrjú rúm- góð herbergi með parketi á gólfi. Útgangur er út á rúmgóðar svalir. Kjallaraíbúðin er snyrtileg og hún er með sérinngangi en búið er að hanna glæsilegan garð. Ásett verð er 27,9 millj. kr. Sögulegt gildi „Ásvallagata 67 er hús sem hefur menningarsögulegt gildi og góða sál,“ segir Ásmundur Skeggjason hjá Höfða. „Það er eitt af þeim hús- um sem Byggingasamvinnufélag Reykjavíkur hóf byggingu á 1934– 35. Byggingasamvinnufélagið reisti íbúðarbyggð á reit sem afmarkast af Hringbraut, Vesturvallagötu, Sól- vallagötu og Bræðraborgarstíg, en bæjaryfirvöld veittu undanþágur fyrir byggingu svo margra timbur- húsa. Þau voru öll hönnuð í anda funkisstefnunar. Sá hluti húsanna sem var úr timbri var ýmist múrhúðaður eða klæddur bárujárni, en einnig voru nokkur með timburklæðningu. Sam- vinnubústaðirnir voru eins konar millistéttarhverfi í Reykjavík þar sem húsin voru nokkuð dýr. Þarna voru byggðar 39 íbúðir, þar af 33 einbýlishús og er Ásvallagata 67 eitt af þessum húsum og það eina sem ekkert hefur verið breytt frá upp- hafi. Fyrsti eigandi að Ásvallagötu 67 var Eysteinn Jónsson, fyrrverandi ráðherra, sem var einn af stofn- endum Byggingasamvinnufélags Reykjavíkur, sem var hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Ey- steinn og fjölskylda bjuggu í húsinu til ársins 1984 en þá keyptu húsið þau Hafsteinn Þór Stefánsson, fyrr- verandi skólastjóri Fjölbrautaskól- ans í Ármúla, og Bryndís Guðjóns- dóttir bankastarfsmaður. Árið 1996 keyptu svo núverandi eigendur húsið en þau eru Stefán Hermannsson húsasmíðameistari og Arnfríður Einarsdóttir skrifstofu- maður.“ „Nú bíður húsið bara eftir því að nýir eigendur gefi sig fram,“ sagði Ásmundur Skeggjason að lokum. Hús með sál og sögu í funkisstíl við Ásvallagötu Morgunblaðið/Golli Húsið er í funkisstíl, á tveimur hæðum auk kjallara, sem er með sér tveggja herbergja íbúð. Ásett verð er 27,9 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Höfða. Stjórnbúnaður fyrir varmaskipta w w w .f rj a ls i. is Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur komið við í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna- eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign. Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.* Vextir % 6,50% 7,50% 8,50% 9,50% 10,00% 5 ár 19.600 20.000 20.500 21.000 21.200 15 ár 8.700 9.300 9.800 10.400 10.700 30 ár 6.300 7.000 7.700 8.400 8.800 *Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta. Frjálsa fjárfestingarbankans Fasteignalán Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar                                                                  !"!#$! % " #$       &'( )*+ &'(  ) *+  ,     !  "#$!  %$  "&&% -%.$/#$ %"/++% 01%23+ 456#0!+ (1+1/7+ !+ 8+ 23+ '%" 9+ "  :$+; % ":$+; $!+%.+  :$+; % ":$+;        '     (%<) "%"+$ +$ 1+=""+)>>>1+    ?" /@+AB * * * * ! ! ! !", #$      ()    *" /@AB   ,%- & . "& ". / , ,0/ "$-&" ,%10 ,/ ,2/1" ,,1& 6+B  3 !  4   ! $ %,$ .$  "&&% 8%"+#$! &" %""+   " %" %                                $   $   Greiðslubyrði oghúsbréf „EINBÝLISHÚS fara fljótt og 2ja og 3ja herb. íbúðir seljast strax, enda eftirspurnin eftir þeim mikil,“ segir Magnús Geir Pálsson hjá fasteigna- sölunni Borgir í viðtali hér í blaðinu í dag, þar sem fjallað er um nýjar íbúðir við Hlynsali, sem nú eru til sölu. Íbúðirnar eru á miklum útsýnis- stað í Salahverfi í Kópavogi. Mark- aðurinn hefur tekið þessum íbúðum mjög vel. Sunnudaginn 30. marz var haft opið hús til þess að kynna íbúðirnar og þá komu hátt í 300 manns til þess að skoða þær. Magnús Geir telur mikla bjartsýni ríkjandi á markaðnum nú og meiri en var. „Það er búin að vera hörku- sala að undanförnu,“ segir hann. „Margir hafa trú á að hér verði gott atvinnuástand og uppsveifla í efna- hagslífinu, enda miklar stór- framkvæmdir framundan, bæði við virkjanir og álver. Þetta hefur sín áhrif á fasteignamarkaðinn.“ Hann segir einkum mikla þörf fyrir fleiri litlar íbúðir á höfuðborg- arsvæðinu og að gera þyrfti stór- átak til þess að koma til móts við eftirspurnina. / 27 Morgunblaðið/Jim Smart Bjartsýni á markaðnum Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 32 Viðskipti 13/15 Minningar 33/35 Erlent 16/19 Hestar 37 Höfuðborgin 20 Bréf 40/41 Akureyri 21 Dagbók 42/43 Suðurnes 22 Íþróttir 44/47 Landið 23 Fólk 48/53 Neytendur 24 Bíó 50/53 Listir 24/26 Ljósvakar 54 Forystugrein 28 Veður 55 * * * ÞRÍR unglingar, tveir drengir og ein stúlka, liggja enn á sjúkrahúsi eftir öfluga gassprengingu í fyrrakvöld en líðan þeirra er sögð góð eftir atvik- um. Slysið átti sér stað í raðhúsi við Draumahæð í Garðabænum og höfðu unglingarnir verið að lykta af gasi þegar sprengingin varð. Laust fyrir miðnætti á sunnudag var slökkvilið- inu tilkynnt um eld og sprengingu í húsinu en þeg- ar komið var á staðinn var ljóst að mikil gas- sprenging hafði orðið í bílskúrnum þar sem tveir 9 kílóa gaskútar voru geymdir, en slíkir kútar eru meðal annars mikið notaðir við útigrill. Sprengingin var gífurlega öflug og olli miklum skemmdum á bílskúrnum og íbúðinni. Bílskúrs- hurð rifnaði af og flaug út á hlað, gluggar í íbúðinni sprungu, gluggakarmar flugu víða út í heilu lagi og loftklæðning hrundi niður að hluta. Fjórir unglingar voru í húsinu þegar spreng- ingin átti sér stað, þrír inni í bílskúrnum og slös- uðust þeir allir en einn var staddur í íbúðinni og slapp hann við meiðsli. Unglingarnir leituðu skjóls hjá nágrönnum þar til slökkvilið og lögregla komu á staðinn. Var að horfa á umfjöllun um stríðið í Írak Bjarni Svavarsson, sem býr í næsta húsi við slysstaðinn, var heima við þegar sprengingin varð og var fyrstur á staðinn. „Við hjónin vorum að horfa á umfjöllun um stríðið í Írak í sjónvarpinu þegar við heyrðum mikla sprengingu. Hún var gríðarlega öflug og mér finnst alveg stórskrýtið að ekkert hafi skemmst hérna hjá okkur. Þetta var alveg ólýsanlegt,“ segir Bjarni. Hann segist hafa heyrt tvo þunga og háværa hvelli, hvorn á eftir öðrum og allar rúður hafi nötrað. Bjarni hljóp strax út þar sem hann mætti tveimur drengjum sem hlupu fram og aftur um planið fyrir framan húsið og voru í mikilli geðshræringu. „Svo sá mað- ur bílskúrshurðina ofan á bílnum úti á plani og maður horfði bara í gegnum húsið og spurði sjálf- an sig: Hvað í ósköpunum hefur gerst hér? Mér finnst kraftaverki líkast að ekki hafi orðið alvar- legra slys,“ sagði Bjarni. Hann segir að ungling- arnir hafi greinilega verið í losti og enginn virtist vita hvað hafði komið fyrir. Kona Bjarna og aðrar nágrannakonur hlúðu að einum unglinganna og kældu brunasárin með vatni þar til sjúkrabílar mættu á staðinn. Bjarni segir að einhver eldur hafi verið í bíl- skúrnum eftir sprenginguna og nágranni hafi slökkt í honum með slökkvitæki. Hann segir einn- ig að lögregla hafi borið gaskútana heila út úr bíl- skúrnum eftir slysið þannig að ljóst sé að þeir hafi ekki sprungið sjálfir heldur hafi verið um þrýst- ingssprengingu að ræða. Enn er ekki ljóst hvað olli sprengingunni þótt vitað sé að skrúfað hefur verið frá gasi í bílskúrn- um en að sögn Hjartar Gunnarssonar, sviðsstjóra eldvarnarskoðana hjá slökkviliðinu, þarf ekki mik- ið til að koma af stað sprengingu ef skrúfað er frá gasi í lokuðu rými. Gasið sé þyngra en andrúms- loftið og leggist við jörðu en þegar það hefur náð ákveðinni hæð geti orðið sprenging. Þá nægi að gasið nái í rafmagnsrofa á tæki sem kveiki á sér, til dæmis frystikistu, til þess að sprenging verði. Hjörtur segir að best sé að geyma gas þar sem lofti vel um það, helst úti við, til dæmis á svölum, þar sem fólk kemur því við. Þrír enn á sjúkrahúsi eftir gassprengingu í Garðabæ Morgunblaðið/Júlíus Sjúkraflutningamenn flytja hina slösuðu af vettvangi eftir sprenginguna í fyrrakvöld. ÚTSÖLUVERÐ á eldsneyti lækkar frá og með deginum í dag hjá Olíufé- laginu og Skeljungi um 1,50 kr. á hvern lítra. Hjá Olís voru verðbreyt- ingar einnig til skoðunar í gærkvöldi, en niðurstaða lá ekki fyrir. Skv. tilkynningu frá Olíufélaginu er verð í sjálfsafgreiðslu á þjónustu- stöðvum á höfuðborgarsvæðinu á hverjum lítra af 95 oktana bensíni 95,30 kr. eftir breytinguna, á ESSO Express-stöðvum kr. 94,10 en þjón- ustuverð er 99,30 kr. Sjálfsaf- greiðsluverð eftir breytinguna á Shell-stöðvum á höfuðborgarsvæð- inu er 95,30 kr. af 95 oktana bensíni. Verð á elds- neyti lækkar FRAMKVÆMDIR við nýja tví- breiða brú á Vatnsdalsá í A-Húnavatnssýslu eru langt komnar. Að sögn Guðmundar Sigurðssonar, verkstjóra brúar- vinnuflokks Vegagerðarinnar á Hvammstanga, standa vonir til að hleypa megi umferð yfir brúna í lok apríl eða byrjun maí. Nýja brúin leysir af hólmi ein- breiða trébrú sem smíðuð var 1972 og er þá aðeins eftir ein- breið brú á Síká í Hrútafirði ef horft er til þjóðvegarins um Húnaþing. Guðmundur og menn hans hófu smíði brúarinnar sl. haust en þrír aðrir verkþættir voru boðnir út. Um nýja vegtengingu við brúna sér Fjörður sf. frá Sauðárkróki, stálbitarnir voru smíðaðir hjá Vélsmiðju KÁ á Selfossi og steypueiningar komu frá Loft- orku í Borgarnesi. Alls nemur kostnaður við brúna um 120 milljónum króna. Guðmundur sagði að nú væri beðið eftir rétta veðrinu til að steypa sjálft brúargólfið en í það fara um 150 rúmmetrar af steypu. Þegar Morgunblaðsmenn voru þarna á ferð nýlega voru brúarsmiðir að hnýta lausa enda í vírverkinu en 8 manns hafa verið að störfum við brúna í vetur. Hefur gott tíðarfar gert smið- unum auðveldara að halda áætlun og gott betur en það. Næstu verkefni brúarvinnu- flokks Vegagerðarinnar er við- gerð á einum stöpli Borgarfjarð- arbrúar við Borgarnes og brúarsmíði á tveimur stöðum í Staðarsveit á Snæfellsnesi í sum- ar. Reisa á tvíbreiða brú á Stað- ará og breikka brúna yfir Vatns- holtsá. Þegar mest lætur starfa allt að 12 menn í brúarvinnu- flokknum, að sögn Guðmundar, enda af nógu að taka víða um land í viðhaldi og nýsmíði. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hallmundur Guðmundsson og Böðvar Guðmundsson úr brúarvinnuflokki Vegagerðarinnar voru að ganga frá járnabindingum á brúargólfinu og gera það klárt fyrir steypuvinnu þegar ljósmyndari var á ferð við Vatnsdalsá. Nýja brúin á Vatnsdalsá verður senn tekin í notkun ♦ ♦ ♦ ALLIR skiptinemar á vegum sam- takanna AFS í Hong Kong hafa ver- ið kallaðir heim vegna ástandsins í Hong Kong en þar hafa 23 menn lát- ist af völdum bráðrar lungnabólgu (HABL). Meðal skiptinemanna eru tvö íslensk ungmenni og komu þau til landsins á laugardag. Petrína Ásgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri AFS á Íslandi, segir að alþjóðaskrifstofa samtakanna og AFS í Hong Kong hafi tekið þessa ákvörðun. Ástæðan sé þó ekki ótti við smit heldur fyrst og fremst það ástand sem hefur myndast í borginni vegna HABL. Samkvæmt upplýs- ingum frá AFS í Hong Kong hafi ástandið í borginni verið mjög sér- stakt og mikill ótti meðal íbúa. „Öll- um skólum var lokað og það var ekki fyrirsjáanlegt að þau hefðu getað farið í skólann á næstu vikum. Einn- ig var öllum ferðalögum aflýst,“ seg- ir Petrína. Íslensku skiptinemarnir fóru til Hong Kong í ágúst og áttu eftir tæplega þrjá mánuði af dvöl sinni þar. Skiptinem- ar kallaðir heim frá Hong Kong
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.