Morgunblaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 19
HJÚKRUNARKONUR á alþjóða-
flugvellinum í Sydney í Ástralíu fylgd-
ust í gær með því hvort komufarþegar
væru sýktir af bráðri lungnabólgu
(HABL), sem nú mun hafa orðið alls
eitt hundrað manns að bana í heim-
inum, flestum í Kína. Í gær var til-
kynnt um 23. dauðsfallið af völdum
sjúkdómsins í Hong Kong. Alls hefur
verið tilkynnt um 2.779 tilvik smits.
Áströlsk stjórnvöld hafa gripið til
harkalegra aðgerða til að hefta út-
breiðslu sjúkdómsins þar í landi. Hafa
heilbrigðismálayfirvöld í landinu
fengið heimild til að setja alla sem
sýna einkenni sjúkdómsins í sóttkví,
jafnvel gegn vilja þeirra. Einnig er nú
heimilt að loka skólum, opinberum
stöðum og landamærastöðvum í Ástr-
alíu.
Reuters
100 hafa látist af
völdum HABL
TUTTUGU og eitt barn og kennari
þeirra fórust er eldur kom upp í
skóla í Austur-Síberíu í gær að því er
fram kom hjá talsmanni rússnesku
almannavarnanna.
Fréttir um aldur barnanna voru
nokkuð á reiki og voru þau ýmist
sögð vera frá fimm til 11 eða 11 til 17
ára. Þá sagði einn, að sjö börn hefðu
verið flutt á sjúkrahús en annar 10.
Slysið átti sér stað í bænum Sydy
Bal í Jakútíu og hafa stjórnvöld þar
skipað sérstaka nefnd til að rann-
saka tildrögin.
21 barn
fórst í eldi
Moskvu. AFP.
ÞRJÁR manneskjur, majór í breska
hernum, eiginkona hans og mennta-
skólakennari frá Wales, voru í gær
fundin sek um að hafa svindlað í
sjónvarpsþættinum „Viltu vinna
milljón?“
Charles Ingram, Diana, kona
hans, og kennarinn Tecwen
Whittock voru dæmd fyrir að hafa
haft rangt við þegar Ingram vann
rúmlega 121 milljón íslenskra króna
í spurningaþættinum. Fóru þau
þannig að, að Whittock, sem sat á
áhorfendapallinum, hóstaði á réttum
tíma þegar spyrillinn las upp hugs-
anleg svör.
Ingram og kona hans voru dæmd í
18 mánaða fangelsi skilorðsbundið
og til að greiða rúmlega 1,8 milljónir
króna í sekt og 1,2 millj. í
málskostnað. Whittock var dæmdur
í árs fangelsi skilorðsbundið, 1,2
millj. kr. sekt og til að greiða rúm-
lega 900.000 kr. í málskostnað. Þá
fær Ingram að sjálfsögðu ekkert af
verðlaunafénu en það var fryst strax
og grunur vaknaði um svindl.
Sannað þótti, að Whittock hefði
veitt Ingram upplýsingar um rétt
svar með háværum hósta þegar við
átti. Var þátturinn ekki sýndur
beint, heldur tekinn upp og þegar
farið var að skoða upptökuna vöktu
hóstarokurnar í Whittock athygli.
Var þá strax hafin rannsókn á mál-
inu og af þeim sökum var þátturinn
aldrei sýndur í sjónvarpi.
Breski herinn hefur nú hafið sína
eigin rannsókn á þessu máli og er allt
eins víst, að Ingram verði rekinn.
Reuters
Charles Ingram og Diana, kona hans, er þau gengu fyrir dómarann í gær.
Þrjú fundin sek um svindl
London. AFP.
„Viltu vinna milljón?“
Í JÚNÍ fer fram uppboð á tveimur
nýjum útvarpsrásum, sem eiga að ná
til allrar Danmerkur.
Í útboðslýsingu segir, að önnur
rásin skuli ná til u.þ.b. 78% íbúa
Danmerkur. Skal hún senda út að
minnsta kosti 1.000 stundir af frétt-
um á ári og hafa að minnsta kosti
30% tónlistar norræn. Engar slíkar
kvaðir eru lagðar á sjöttu rásina,
sem gert er ráð fyrir að nái til um
37% danskra eyrna, að því er segir á
fréttavef dagblaðsins Politiken.
Uppboð á
útvarpsrásum
♦ ♦ ♦