Morgunblaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 39
Ráðstefna EJS um öryggismál
EJS stendur fyrir ráðstefnu föstu-
daginn 11. apríl. Þar munu erlendir
öryggissérfræðingar fjalla um örygg-
islausnir frá Cisco, Microsoft, Trend
Micro, Checkpoint, RSA, Veritas og
kynna öryggisbúnað og -þjónustu.
Ráðstefnan er í tengslum við end-
urnýjun samnings EJS og Trend
Micro um sölu á Trend Micro vörum.
Í samningnum er EJS skilgreint sem
eini dreifingar- og þjónustuaðilinn á
Íslandi fyrir öryggislausnir Trend.
Skráning á ráðstefnuna fer fram á
heimasíðu EJS, www.ejs.is.
Á NÆSTUNNI
Skógræktarfélögin á höfuðborg-
arsvæðinu standa fyrir „Opnu
húsi“ í sal Ferðafélags Íslands í
Mörkinni 6 í dag, þriðjudaginn 8.
apríl, kl. 20. Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrv. forseti, verður með erindi
um skógrækt og Guðjón Jónsson
frá Fagurhólsmýri fjallar um skóg-
rækt i Öræfasveit. Fundurinn er í
fræðslusamstarfi skógræktarfélag-
anna og Búnaðarbanka Íslands og
er í umsjón Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar.
„Heimur unga fólksins“ er yf-
irskrift dagskrár sem Íslensk-
japanska félagið heldur í Alþjóða-
húsinu í kvöld kl. 20. Ragnar Þor-
varðarson segir frá dvöl sinni í
Japan í máli og myndum. Einnig
halda erindi María Hilmarsdóttir
og Gunnhildur Gunnarsdóttir. Árni
Kristjánsson tónlistarmaður fjallar
um tónlist í Japan.
Fræðslufundur félags aðstand-
enda Alzheimer-sjulklinga verður
haldinn í dag, þriðjudaginn 8. apríl,
kl. 20 í hjúkrunarheimilinu Eir í
Grafarvogi. Sigurbjörn Björnsson
yfirlæknir, Birna Svavarsdóttir og
Jóna Magnúsdóttir ræða um
vandamál sem tengjast sjúkdómn-
um.
Í DAG
ÓSÆTTI setti svip sinn
á skemtanahald í mið-
borginni nú um helgina.
Á föstudag datt kona
fyrir utan veitingastað í
Hafnarstræti og var talið að hún
hefði handleggsbrotnað. Seinna um
kvöldið lenti maður í útistöðum við
dyravörð á veitingastað í sömu
götu, sem lyktaði með því að mað-
urinn var talinn nefbrotinn. Þá átti
fólk í deilum á veitingastað í
Tryggvagötu sem endaði með tann-
broti.
Hjón komu á Miðborgarstöðina
til að kvarta undan dyraverði veit-
ingastaðar í austurborginni en þau
sögðu hann hafa ráðist á sig og
meinað sér inngöngu á staðinn. Þá
kom á lögreglustöðina maður blóð-
ugur í andliti og kvaðst hafa orðið
fyrir árás á veitingastað í Tryggva-
götu. Einnig kom maður sem sagð-
ist hafa verið bitinn í þumalfingur.
Hann vissi ekki hver hafði bitið.
Maður var sleginn í andlitið og
hann rotaður á veitingastað í
Bankastræti.
Konu var hrint fyrir utan veit-
ingastað í Tryggvagötu með þeim
afleiðingum að hún fótbrotnaði. Þá
kom þar að maður sem eitthvað ætl-
aði að aðgæta með konuna en hon-
um var þá hrint og við það féll hann
í götuna og fótbrotnaði.
Mun rólegra var aðfaranótt
sunnudags en þá nótt var bara einn
fluttur á slysadeild eftir slagsmál
fyrir framan veitingastað við Hverf-
isgötu.
26 umferðaróhöpp
Um helgina var tilkynnt um 26
umferðaróhöpp. 25 ökumenn voru
kærðir fyrir að aka of hratt. Þá
voru 6 ökumenn kærðir, grunaðir
um að vera ölvaðir við aksturinn.
Aðfaranótt sunnudags var lögreglan
með sérstakt eftirlit með ölvunar-
akstri í miðborg Reykjavíkur. Voru
stöðvuð um 50 ökutæki. Enginn
ökumannanna reyndist ölvaður.
Tilkynnt var um 24 innbrot og 13
þjófnaði um helgina. Þá var tilkynnt
um 15 skemmdarverk. Flest inn-
brotanna eru í bifreiðar og er yf-
irleitt stolið úr þeim hljómflutnings-
tækjum. Þá var úr einni bifreiðinni
stolið 50 til 60 þúsund krónum, sem
var uppgjör úr verslun en það hafði
verið geymt í hanskahólfi bifreið-
arinnar.
Á föstudag lenti maður með
handlegg í tannhjóli prentvélar með
þeim afleiðingum að handleggurinn
tættist illa.
Saman dag var kona handtekin í
lyfjaverslun í austurborginni eftir
að hafa stolið þar töluverðu af
skarti. Þá var þrennt, sem hafði
verið konunni samferða, handtekið í
bifreið fyrir utan staðinn. Fannst í
bifreiðinni þýfi úr nokkrum innbrot-
um.
Vegna innbrots var farið í húsleit
í Holtunum eftir að úrskurður dóm-
ara lá fyrir. Við húsleitina fannst
það sem að var leitað og einnig tölu-
vert af öðru þýfi og ætluð fíkniefni.
Á föstudagskvöldið var tilkynnt
um eld í bifreið á Réttarholtsvegi.
Slökkviliðið slökkti eldinn. Talið er
að kviknað hafi í hvarfakút bifreið-
arinnar.
Um miðnætti á föstudag hand-
tóku dyraverðir á veitingastað í
Austurstræti konu sem hafði stolið
fjórum veskjum og GSM-síma.
Tókst að hafa uppi á eigendum
veskjanna og koma þeim til skila.
Konan var færð á lögreglustöð til
yfirheyrslu.
Á laugardag var drengur hand-
samaður í austurborginni eftir að
hafa farið inn í tvær bifreiðar. Ann-
ar mun hafa verið með honum en sá
slapp. Lögreglan tók drenginn í
sína vörslu og færði á lögreglustöð.
Á laugardagskvöldið var bifreið
sem í voru þrjú ungmenni stöðvuð á
Strandvegi. Við leit í bifreiðinni
fannst ætlað þýfi og voru þá ung-
mennin handtekin og færð á lög-
reglustöð til yfirheyrslu.
Dagbók LR, helgina 4.–7. apríl
Slegist á veitinga-
húsum í Reykjavík
Frambjóðendur B-listans í Norð-
vesturkjördæmi verða með opinn
fund á Finnabæ, Bolungarvík, í dag,
þriðjudag 8. apríl, kl. 20.30. Á morg-
un, miðvikudaginn 9. apríl, kl. 20.30
verða frambjóðendur B-listans með
opinn fund á Vagninum, Flateyri.
Einnig munu frambjóðendur heim-
sækja fyrirtæki í Bolungarvík og á
Flateyri.
Árni Magnússon, framkvæmda-
stjóri Framsóknarflokksins, sem
skipar 2. sætið á lista Framsókn-
arflokksins í Reykjavíkurkjördæmi
norður, hefur opnað heimasíðu á
slóðinni www.arnimagg.is. Árni mun
daglega birta á heimasíðunni pistla
um stjórnmál og fréttir úr kosninga-
baráttunni.
STJÓRNMÁL
VELFERÐARSJÓÐUR barna á Ís-
landi veitti Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur öðru sinni tvær millj-
ónir króna til styrktar börnum frá
efnalitlum heimilum til dvalar í sum-
arbúðum í sumar. Á síðasta ári
greiddi nefndin fyrir 96 börn í sum-
arbúðir KFUM og K fyrir tilstuðlan
Velferðarsjóðs barna.
Að þessu sinni verður boðið upp á
sumardvöl í Ævintýralandi að
Reykjum í Hrútafirði.
Úthlutun hefst miðvikudaginn 9.
apríl á Sólvallagötu 48, kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur
Úthlutun í
sumarbúðir
Hrafnaþing á Hlemmi Opið
fræðsluerindi Náttúrufræðistofn-
unar Íslands verður á morgun,
miðvikudaginn 9. apríl kl. 12.15, í
sal Möguleikhússins á Hlemmi,
Reykjavík. Guðmundur A. Guð-
mundsson fuglafræðingur flytur er-
indið „Eru milljón heiðlóur á Ís-
landi?“ Hrafnaþing á Hlemmi eru
öllum opin. Nánari upplýsingar um
erindið og Hrafnaþing er að finna á
heimasíðu stofnunarinnar www.ni.is
undir liðnum „Efst á baugi“.
Hádegisverðarfundur Félags við-
skipta- og hagfræðinga verður
haldinn á morgun, miðvikudaginn
9. apríl kl. 12–13.30, í Hvammi
Grand Hótel Reykjavík. Fyrirles-
arar eru: Árelía Eydís Guðmunds-
dóttir, dósent við Háskólann í
Reykjavík og Hjalti Sölvason,
starfsþróunarstjóri Nýherja. Fund-
urinn er opinn öllum. Verð með há-
degisverði er 2.800 kr. fyrir fé-
lagsmenn og 3.800 kr. fyrir aðra.
Vinsamlega skráið þátttöku með
tölvupósti fvh@fvh.is
Jafnrétti fjölmenning og fjöl-
tyngi Hólmfríður Garðarsdóttir,
lektor í spænsku, heldur fyrirlestur
á vegum Stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur í erlendum tungu-
málum, á morgun, miðvikudaginn
9. apríl kl. l6.30, í stofu 201 í Odda.
Fyrirlesturinn ber titilinn: Jafnrétti
fjölmenningar og fjöltyngis: Um
kynferði málfræði, málnotkun og
þýðingar. Fyrirlesturinn verður
túlkaður á táknmál.
„Börn og umhverfi“ Reykjavík-
urdeild Rauða krossins gengst fyrir
námskeiðinu „Börn og umhverfi“
áður barnfóstrunámskeið, fyrir
nemendur fædda 1989, 1990 og
1991. Námskeiðið hefst miðviku-
daginn 9. apríl og stendur í fjögur
kvöld. Námskeiðið er haldið í
Fákafeni 11, 2. hæð kl. 18–21.
Markmiðið er að nemendur öðlist
aukna þekkingu á börnum og um-
hverfi þeirra. Leiðbeinendur eru
leikskólakennari og hjúkrunarfræð-
ingur.
Á MORGUN
LÖGREGLAN í Reykjavík lýs-
ir eftir bifreiðinni VF-156 sem
er rauður Mitsubishi Lancer,
árgerð 2000.
2. mars sl. var brotin upp
hurð á bílskúr við Blesugróf og
bílnum stolið þaðan. Þeir, sem
geta gefið upplýsingar hvar bif-
reiðina er nú að finna, eru vin-
samlegast beðnir um að hafa
samband við lögregluna í
Reykjavík.
Lýst eftir
bifreið
34. ÓLYMPÍULEIKARNIR í eðl-
isfræði fara fram í Taipei á Taívan
12.-20. júlí næstkomandi. Mennta-
málaráðuneytið hefur þekkst boð
menntamálaráðherra Taívan um að
senda fullt keppnislið til leikanna
og hefur liðið nú verið valið með
landskeppni sem Eðlisfræðifélag
Íslands og Félag raungreinakenn-
ara gengust fyrir í febrúar og mars.
5 piltar sem stóðu sig framúrskar-
andi vel í úrslitakeppninni, og enn
eru yngri en tvítugir 30. júní næst-
komandi, verða fulltrúar Íslands á
þessu alþjóðlega móti afburðaung-
linga.
Efstu keppendurnir voru Eyvind-
ur Ari Pálsson frá MR með 64 stig,
Shlok Smári Datye frá MA með 59
stig, Eysteinn Helgason frá VÍ með
58 stig, Wing Wa Yu frá MH með
57 stig og Jón Karl Sigurðsson frá
VÍ með 55 stig. Þessir piltar fengu
allir peningaverðlaun frá Morgun-
blaðinu. Þeir komast þó ekki allir á
Ólympíuleikana í eðlisfræði þar sem
Eyvindur keppir fyrir Íslands hönd
á Ólympíuleikunum í stærðfræði og
Jón Karl er orðinn tvítugur.
Ólympíuleikarnir í eðlisfræði eru
árleg keppni framhaldsskólanem-
enda og eru þeir nú haldnir í 34.
skipti, að þessu sinni í Taipei á
Taívan. Ólympíuleikarnir hófust
1967 í Póllandi sem keppni 5 þjóða í
Austur-Evrópu en smám saman
hefur þátttökuþjóðum fjölgað og
hófu Íslendingar þátttöku 1984 með
tveimur nemendum frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð undir
stjórn Hans Kr. Guðmundssonar,
rektors NorFa, og Viðars Ágústs-
sonar, framkvæmdastjóra Hug-
fangs. Íslenska keppnisliðið er að
þessu sinni skipað þremur nem-
endum frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri, þeim Einari Hrafni Hjálm-
arssyni, Shlok Smára Datye og
Hauki Sigurðarsyni, Eysteini
Helgasyni frá Verslunarskóla Ís-
lands og Wing Wa Yu frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð. Keppnis-
liðið mun fá þjálfun í þrjár vikur
fyrir Ólympíuleikana í Háskóla Ís-
lands undir stjórn fararstjóranna
Ingibjargar Haraldsdóttur, deildar-
stjóra í eðlisfræði við Menntaskól-
ann í Kópavogi, og Kristjáns Rún-
ars Kristjánssonar, doktorsnem-
anda í eðlisfræði við Háskóla Ís-
lands.
Ólympíuleikar í eðlis-
fræði í Taipei á Taívan
Íslenska keppnisliðið á Ólympíuleikunum ásamt fararstjóra.
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
hefur ákveðið að veita 2,7 milljónir
úr Þróunarsjóði leikskóla í styrki
til alls 13 verkefna á skólaárinu
2003–2004, segir í fréttatilkynn-
ingu frá menntamálaráðuneytinu.
Auglýst var eftir umsóknum eink-
um á tveimur forgangssviðum,
annars vegar tvítyngd börn og
fjölmenningarlegur leikskóli og
hins vegar samstarf foreldra og
barna.
Leikskólinn Sólborg hlaut hæsta
styrkinn eða 350 þúsund krónur til
verkefnisins Gildi snemmtækrar
íhlutunar fyrir málþroska tví-
tyngdra barna – heyrandi barna
heyrnarlausra foreldra, en upphæð
styrkja var á bilinu 100–350 þús-
und. Leikskólinn Efstihjalli hlaut
300 þúsund og sömu upphæð fengu
Bæjarskrifstofur Garðabæjar.
Aðrir sem hlutu styrk voru leik-
skólarnir Dalur, Iðavöllur, Hof,
Álfheimar, Sjónarhóll, Dverga-
steinn og Leikskólinn Stykkis-
hólmi. Einstaklingar sem hlutu
styrki voru Kolbrún Vigfúsdóttir,
Inga Valdís Einarsdóttir og Rann-
veig Oddsdóttir.
2,7 milljónum úthlutað til leikskóla
HREPPSNEFND Hrunamanna-
hrepps hefur áhyggjur af ástandi vega í
sveitarfélaginu og í uppsveitum Árnes-
sýslu. Þetta kemur fram í ályktun sem
var samþykkt samhljóða á fundi
hreppsnefndar fyrir nokkru.
Þar segir meðal annars að ástand
safnvega, tengivega og hluta stofn-
brauta innan marka sveitarfélagsins sé
með öllu óviðunandi og ástand þeirra
skaði mjög ferðaþjónustu og verslun í
sveitarfélaginu auk þess sem núverandi
ástand raski möguleikum íbúa til at-
vinnu og atvinnurekstrar. Jafnframt
séu tengi- og safnvegir þjóðvegur íbúa
á svæðinu og þeirra milljón ferðamanna
sem sækja svæðið heim ár hvert og því
mikilvægt að úrbætur verði gerðar.
Í ályktuninni kemur fram að um
þriðjungur stofnbrautar í gegnum
Hrunamannahrepp sem jafnframt er
hluti „Gullna hringsins“ sé enn óupp-
byggður og brýnt sé að ljúka þeirri leið
og tengja sveitarfélagið að nýju við
helstu ferðamannaleiðir svæðisins.
Hreppsnefndin skorar á þingmenn og
samgöngunefnd Alþingis að beita sér
fyrir því að stórauknu fé verði varið til
tengi- og safnvega með sértækum að-
gerðum.
Áhyggjur af
vegum í Hruna-
mannahreppi