Morgunblaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BANDARÍSKT herlið á meira en 100
skriðdrekum og brynvögnum réðst í
birtingu í gærmorgun inn í Bagdad
og náði á sitt vald tveimur höllum
Saddams Husseins, forseta Íraks, og
þar á meðal hinu opinbera aðsetri
hans. Mætti liðið einhverri mót-
spyrnu Íraka en talsmaður Banda-
ríkjahers sagði, að ekki hefði verið
um eiginlega innrás í Bagdad að
ræða, heldur hefði tilgangurinn verið
að sýna hverjir réðu ferðinni í stríð-
inu.
Íraskir hermenn í úrvalssveitum
Lýðveldishersins veittu bandaríska
herliðinu mótspyrnu þegar það réðst
á aðsetur Saddams en í sömu bygg-
ingasamstæðu er íraska upplýsinga-
og utanríkisráðuneytið. Mikill
brennisteinsfnykur lá yfir miðborg-
inni og heyra mátti skothríð úr öllum
áttum en svo virtist sem upplýsinga-
og utanríkisráðuneytið væri enn í
höndum Íraka síðdegis í gær. Vildu
Bandaríkjamenn ekkert um það
segja hvort eða hvenær herliðið yrði
kallað burt frá Bagdad en í gærkvöldi
var sagt að brynsveitin myndi ekki
halda á brott að sinni. Fréttir voru
um mikil átök við Rashid-hótelið, ekki
langt frá höllum Saddams.
Látlaust sírenuvæl
Sírenuvælið í sjúkrabílum var
meira eða minna alveg látlaust í allan
gærdag í Bagdad og eru öll sjúkrahús
í borginni yfirfull af særðu fólki. Að
minnsta kosti 14 óbreyttir borgarar
létu lífið þegar flugskeyti var skotið á
íbúðahverfi í borginni en það eyði-
lagði að minnsta kosti þrjú hús.
Breska sjónvarpsstöðin Sky sýndi í
gær myndir af bandarískum her-
mönnum inni í einni af höllum Sadd-
ams í borginni en þær eru á vestur-
bakka Tígris-fljóts.
Mike Birmingham majór og tals-
maður 3. fótgönguliðssveitarinnar
sagði, að með innrásinni hefðu þeir
viljað sýna íröskum almenningi, að
Saddam og menn hans réðu engu um
stjórn mála í landinu. „Við getum gert
það, sem við viljum, og farið hvert,
sem við viljum,“ sagði Birmingham.
Saddam í sjónvarpi
Bandaríkjamenn sögðu í gær, að
Írakar hefðu sprengt upp tvær brýr
yfir Diyala-fljót, eina af þverám Tígr-
is, í þeim tilgangi að tefja framsókn
Bandaríkjamanna. Rennur fljótið fyr-
ir austan Bagdad og er nú verið að
koma þar fyrir flotbrúm.
Á sama tíma og Bandaríkjamenn
fóru sínu fram í miðborg Bagdad
sýndi íraska sjónvarpið Saddam
Hussein með helstu herforingjum
sínum og einig Qusay, syni sínum og
yfirmanni Lýðveldisvarðarins. Sjást
æ oftar myndir af honum í sjónvarpi
og líklega til að sýna, að hann haldi
enn um stjórnvölinn.
Réðust inn í hallir Sadd-
ams í miðborg Bagdad
Öll sjúkrahús í
borginni sögð
vera yfirfull af
særðu fólki
Bagdad. AP, AFP.
AP
Bandarískur bryndreki á leið inn í miðborg Bagdad í gærmorgun. Minnismerkið með sverðunum var reist 1988 til
að fagna meintum sigri yfir Írönum eftir átta ára, blóðugt stríð. Hnefarnir voru mótaðir eftir hnefum Saddams.
Bandarískur fótgönguliði, staddur á efri hæð einnar af höllum Saddams.
BANDARÍKJAMENN hafa undan-
farna daga flutt bardagamenn sam-
taka íraskra útlaga til Íraks til að
gera þeim kleift að taka þátt í herför-
inni. Um er að ræða liðsmenn Íraska
þjóðarráðsins (INC), þekktustu
samtök íraskra útlaga, og er einn af
leiðtogum þeirra, Ahmed Chalabi,
kominn til Nasiriyah í Suður-Írak.
„Þarna eru á ferðinni íraskir ríkis-
borgarar sem vilja berjast fyrir
frelsi Íraks, sem munu mynda
kjarna nýs hers í Írak þegar búið er
að frelsa landið,“ sagði hershöfðing-
inn Peter Pace, varaforseti banda-
ríska herráðsins, í viðtali á ABC-
sjónvarpsstöðinni.
Um sjö hundruð útlagar eru sagð-
ir komnir til Íraks og hafa þeir komið
upp bækistöðvum í Nasiriyah. Tals-
menn INC sögðu að um léttvopnaðar
sveitir væri að ræða og að þær
myndu sinna ýmsum verkefnum, s.s.
koma nauðþurftum til almennings í
Írak eða leita
uppi stuðnings-
menn stjórnar
Saddams Huss-
eins. Bandaríkja-
menn sögðu að
þær myndu taka
þátt í bardögum,
sinna túlkastörf-
um og aðstoða
bandamenn við að
eiga samskipti við heimamenn.
„Við erum stoltir af því að leggja
til mannskap í þessum aðgerðum,“
var í gær haft eftir Chalabi. Hann
hefur ekki búið í Írak í 45 ár en er
sagður njóta stuðnings áhrifamanna
í varnarmálaráðuneytinu banda-
ríska. Í utanríkisráðuneytinu eru
menn hins vegar sagðir minna hrifn-
ir af þeirri hugmynd, að leiða hann til
áhrifa í Írak. Er því m.a. haldið fram
að hann njóti ekki mikilla vinsælda
meðal Íraka sjálfra.
Flogið með útlaga-
sveitir til S-Íraks
Washington, Kaíró. AFP, AP.
Ahmed Chalabi
NOKKUÐ kveður að því að
vopnaðir hópar fari um sveitir
suðvesturhluta Íraks og víðar
með ránum og gripdeildum.
Kvarta margir undan því að
stigamenn með alvæpni fari um
og ræni dráttarvélum og flutn-
ingabílum, steli varningi úr
verksmiðjum og hafi í hótunum
við fólk. Breskir hermenn, sem
nú hafa að mestu náð Basra,
næststærstu borg Íraks, á sitt
vald hafa einnig með höndum
að leita uppi íraska hermenn,
sem ganga lausir á þessu svæði,
og afvopna íbúana.
„Þetta er að breytast í frið-
argæslu rétt eins og í Bosníu og
Kosovo,“ sagði breskur her-
maður. „Ég kom hingað til að
heyja stríð.“
Annar hermaður lýsti því
hvernig hann aðstoðaði bónda
úr þorpinu Mushirij, sem er um
tíu kílómetra vestur af Basra,
við að ná dráttarvél sinni. Elti
hann dráttarvélarþjófinn uppi
á 100 tonna skriðdreka.
„Bandaríkjamennirnir her-
námu okkur, þeir sögðust
mundu vernda okkur,“ sagði
Íraki, sem ekki vildi láta nafns
getið. „En þjófarnir koma og
stela frá fyrirtækjum okkar.
Hvernig getum við hafið störf í
fyrirtækjum okkar?“
Óttast þjófa og
breska hermenn
Maðurinn segir að ótti ríki
bæði við þjófana og breska her-
menn. „Ef þetta heldur áfram í
sjö daga eða lengur munum við
berjast við þá,“ sagði maðurinn
og átti við bresku hermennina.
„Við höfum ekki byssur, en við
getum orðið okkur úti um
byssur. Ef hér verður hvorki
komið vatn né rafmagn munum
við berjast við þá. Meira að
segja þetta barn,“ sagði hann
og klappaði átta ára dreng á
kollinn.
Annar þorpsbúi sagði að fyr-
ir innrásina hefði öryggi ekki
verið vandamál. Þá hafi íraska
lögreglan verið á staðnum. Nú
sé engin lögregla.
Rán og
grip-
deildir
Basra. Washington Post.
STRÍÐ Í ÍRAK
„Við getum gert það sem við viljum, og farið hvert sem við viljum“
MIKE BIRMINGHAM, MAJÓR Í BANDARÍKJAHER VIÐ BAGDAD
!
" # $" %# &
'("&# #
)& * + #"# # ,-.*!
! / " % # &
#
&
0 1 23
24
5 # 2
2
2
# "
67 8
#
9
:
;
;. >9#
<