Morgunblaðið - 08.04.2003, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 9
LANDSÞING ungs fólks var haldið
í Gerðubergi á laugardag og endaði
á því að ungmennin lögðu fram
þrjár heildartillögur fyrir Sólveigu
Pétursdóttur, dóms- og kirkju-
málaráðherra, og Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra. Fundurinn var haldinn af
Samfés, samtökum félagsmið-
stöðva, og var tilgangurinn að
fulltrúar íslenskra ungmenna af
öllu landinu fengju tækifæri til að
koma saman, ræða sín mál og setja
fram tillögur til úrbóta með skipu-
lögðum hætti.
Fundargestir skiptu sér í vinnu-
hópa þar sem fram fór hugarflæði,
vinnuskipulag og mótun tillagna.
Tillögurnar voru margar og mjög
áhugaverðar. Til að mynda vildu
unglingarnir samræmingu laga við
18 ára aldur. Þau vildu til að mynda
lækka áfengiskaupaaldurinn niður
í 18 ár og hækka bílprófsaldurinn í
18 ár á móti. Þau lögðu einnig fram
tillögu um aukið aðgengi að getn-
aðarvörnum og ræddu mjög op-
inskátt um kynfræðslu í skólum.
Á fundinn voru boðaðir tveir
fulltrúar, yngri en 18 ára, frá
hverri félagsmiðstöð á landinu og
voru alls um 60 ungmenni á staðn-
um.
Landsþingið starfar í anda 12.
greinar barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna. Sáttmálinns segir að að-
ildaríki skulu tryggja barni sem
myndað getur eigin skoðanir rétt
til að láta þær frjálslega í ljós í öll-
um málum sem það varða, og skal
tekið réttmætt tillit til skoðana þess
í samræmi við aldur þess og
þroska.
Landsfundurinn var hliðstæða
við þá vinnu sem nýlega fór fram í
tengslum við sameiginlegan fund
borgarfulltrúa í Reykjavík og ung-
menna.
Óskar Dýrmundur Ólafsson, for-
maður Samfés og forstöðumaður
félagsmiðstöðvarinnar Miðbergs,
stóð fyrir fundinum. „Þetta gekk
vonum framar. Þetta hefur ekki
verið haldið svona áður með þess-
um formerkjum. Það var mikill
áhugi hjá unglingunum. Þarna var
hugur í þeim að koma einhverju í
verk og varpa fram tillögum,“
sagði Óskar. Hann sagði jafnframt
að unglingarnir hefðu ákveðið að
slíkur fundur yrði aftur haldinn að
ári.
Ráðherrar tóku við
tillögum frá ungmennum
Morgunblaðið/Golli
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra og Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra tóku vel í tillögurnar sem unglingarnir lögðu fram.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur auglýst eftir umsóknum um
gerð gagnvirks námsefnis sem fyr-
irhugað er að verði aðgengilegt á
Netinu á slóðinni mentagatt.is. Á
vefnum er að finna upplýsingar um
námsefni sem tengist markmiðum
aðalnámskrár og eru styrkveiting-
arnar liður í að efla útgáfu á efni sem
þar verður aðgengilegt, að því er
segir í fréttatilkynningu frá mennta-
málaráðuneytinu.
Umsóknareyðublöð má nálgast á
vef menntamálaráðuneytisins,
menntamalaraduneyti.is og á veg
Menntagáttar. Umsóknarfrestur er
til 28. apríl nk.
Auglýst eftir
gagnvirku
námsefni
MATVÖRUVERSLUN hefur verið
opnuð á Bakkafirði að nýju, en þar
hefur ekki verið verslun síðan Sjafn-
arkjöri var lokað hinn 1. desember á
síðasta ári. Árni Róbertsson, sem
rekur verslunina Kauptún á Vopna-
firði, opnaði verslunina á föstudag
ásamt því að taka að sér umboðssölu
fyrir eldsneyti ESSO. „Þetta gekk
alveg vonum framar og var bara
mjög gaman,“ sagði Árni.
Hann sagði að vel hafi til tekist
með uppsetningu verslunarinnar og
aðsóknin um helgina hafi verið góð.
Bakkfirðingar hafa þurft að sækja
alla þjónustu um 35 km leið til
Vopnafjarðar í vetur og létti því mik-
ið við opnunina.
Árni er hvergi banginn og hefur
trú á að verslunin eigi eftir að standa
undir sér. Hann notar sama lager og
í verslun sinni á Vopnafirði og segist
reka verslunina meira og minna í
gegnum síma. Vöruverð í búðunum
er það sama. „Ég hefði aldrei farið af
stað með þetta nema ég teldi að það
væri grundvöllur fyrir þessu.“
Einn starfsmaður er í 75% stöðu í
versluninni en hún er opin sex tíma á
dag virka daga og tvo tíma á laug-
ardögum. Árni leigir húsnæði undir
verslunina þar sem Sjafnarkjör var.
Góð aðsókn í versl-
un á Bakkafirði
RÚM 40% fyrirtækja kvarta undan
opinberri reglubyrði og segja hana
íþyngjandi í sínum rekstri, að því er
fram kemur í könnun sem Samtök
atvinnulífsins gerðu fyrir nokkru.
Samkvæmt könnuninni eru það eink-
um fyrirtæki í ferðaþjónustu, útgerð
og fiskvinnslu sem kvarta sáran.
Á vef samtakanna segir að í könn-
uninni hafi forsvarsmenn fyrirtækja
verið beðnir að nefna dæmi um það
sem þeim finnist íþyngjandi reglu-
byrði. Það sem flest fyrirtæki hafi
kvartað undan sé það sem í daglegu
tali kallist „eftirlitsiðnaðurinn“, þ.e.
ýmiss konar opinbert eftirliti með
rekstri.
Einnig er kvartað yfir innheimtu-
þjónustu fyrirtækja fyrir ríkisvaldið
sem snýr m.a. að umsýslukostnaði
við útreikning virðisaukaskatts og að
ýmsum opinberum gjöldum sem þau
innheimti. Þá segir að algengt sé að
fyrirtæki kvarti undan flóknu ferli
við að fá fólk til starfa frá löndum ut-
an Evrópska efnahagssvæðisins og
við endurnýjun starfsleyfa þess.
40% fyrirtækja segja opin-
bera reglubyrði íþyngjandi
Nýjar mussur kr. 4.200
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Bankastræti 14, sími 552 1555
Ný sending
af bolum, vattjökkum
og vestum
Falleg ítölsk gjafavara
til að gefa og eiga
Klassískur fatnaður
fyrir dömur og herra
Grímsbæ,
sími 588 8488
við Bústaðaveg
Rykútsala
Mikil lækkun vegna
byggingaframkvæmda
20% afsláttur
af öllum nýjum vörum
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán. - fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16
Úrval úrval
Nýtt frá París
sérverslun. Sérhönnun st. 42-56
níu munstur og litir
verð 5800
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, s. 553 2347
Síðir handlitaðir Batik kjólar
Fataprýði Verið velkomnar
Þri. 8/4: Afrískur réttur m. hvítlauks-
snúðum og kúss m. fersku
salati, hrísgrjónum og meðlæti.
Mið. 9/4: Indónesískt góðgæti
m. fersku salati, hrísgrjónum
og meðlæti.
Fim. 10/4: Moussaka = grískur ofnréttur
m. fersku salati, hrísgrjónum
og meðlæti.
Fös 11/4: Chili sin carne og fylltar
pönnukökur m. fersku salati,
hrísgrjónum og meðlæti.
Helgin 12/4-13/4: Pakistanskar
kræsingar.
Mán. 14/4:Brokkolíbaka og girnilegt
gulrótarsalat.
Matseðill
www.graennkostur.is
Silfurhúðum gamla muni
Veitum 20% afslátt
Álfhólsvegi 67, 200 Kópavogi, sími 554 5820.
Opið kl. 16-18 þri., mið., fim. • www.silfurhudun.is
Hör - hör - hör
Buxur, pils, jakkar
Fyrir flottustu fljóðin
Bæjarlind 12,
Kópavogi, sími 544 2222
Opið: mán.-fim. frá kl. 10-18.30
fös. frá kl. 10-19.30 - lau. frá kl. 10-16.30fyrirtaeki.is
Öll fyrirtækjaskráin okkar er nú á netinu í mjög aðgengilegu formi.
Skoðið síðurnar okkar og hafið samband.
Nýjung:
Farið inn á síðuna Atvinnutækifæri. Það gæti borgað sig.
fyrirtaeki.is
Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur
á hverjum tíma.
Nánari upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
Einar Örn Reynisson, lögg. fasteignasali.