Morgunblaðið - 08.04.2003, Qupperneq 17
STRÍÐ Í ÍRAK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 17
Kynntir verða GSM símar frá Nokia
og Sony Ericsson með blátannartækni
og annar blátannarbúnaður.
Blátönn (bluetooth) sem er kennd við
Harald Blátönn Danakonung, er staðall
fyrir þráðlausar gagnasendingar. Tæknin
byggir á pakkasendingum sem gerir
kleift að flytja bæði gögn og rödd milli
GSM síma , tölvu, handfrjáls búnaðar
og fleiri tækja.
Temdu þér blátannartæknina strax í dag,
hún á eftir að veita þér aukið
frelsi, fleiri tómstundir og möguleika í
framtíðinni.
Komdu í Ármúlann og upplifðu tækniundrið
Blátönn
í gsm
símum
Í komandi framtíð mun blátönnin valda
enn frekari tæknibyltingu, því möguleikarnir
eru óendanlegir.
Ný tæknibylting
þráðlaus framtíð!
Ármúla 26 • S. 522 3000 • hataekni.is
Kynningarvika
8.-11. apríl 2003
0
3
-1
3
4
MOHAMMAD Saeed al-Sahhaf,
upplýsingaráðherra Íraks, lýsti yfir
því á fundi með fréttamönnum í gær
að engar bandarískar hersveitir
væru í Bagdad. Á sama tíma og ráð-
herrann lét þessi orð falla á þaki hót-
els í miðborginni sáu fréttamenn á
fundinum bandarískan bryndreka í
námunda við Lýðveldishöllina, eina
af höllum Saddams Husseins í borg-
inni.
Al-Sahaf sagði yfirlýsingar banda-
manna þess efnis að liðsafli þeirra
hefði tekið sér stöðu í miðborg Bagd-
ad lygar einar. Árásinni hefði verið
hrundið og innrásarliðinu „slátrað“.
Írakar hefðu „skorið trúleysingjana á
háls“ og Bagdad myndi reynast „gröf
þeirra“. Sagði ráðherrann að Banda-
ríkjamenn hefðu framið „sjálfsmorð“
með því að senda brynvagnana inn í
Bagdad.
Yfirlýsingar ráðherrans voru ekki í
samræmi við það sem fréttamenn í
miðborg Bagdad greindu frá. Frétta-
mannafundur ráðherrans var haldinn
á þaki hótels þar sem erlendir frétta-
menn halda til í borginni. Venjan hef-
ur verið sú að slíkir fundir séu haldnir
í ráðuneyti upplýsinga en óstaðfestar
fréttir hermdu í gær að á það hefði
verið ráðist.
Andrew Gillingham, fréttamaður
breska útvarpsins, BBC, í borginni,
sótti fund al-Sahhafs. Sagði hann að
þegar ráðherrann
hefði látið þau orð
falla að árás
Bandaríkja-
manna hefði verið
hrundið hefði
greinilega mátt
sjá bandarískan
bryndreka í á að
giska 500 metra
fjarlægð. Skot-
hríð og drunur hefðu og kveðið við.
Sagði Gillingham að íraski ráð-
herrann hefði sjálfur getað séð
bryndrekann hefði hann snúið sér við
þar sem hann stóð á þaki hótelsins.
Gillingham og fleiri fréttamenn
staðfestu hins vegar að svo virtist
sem aðrir hlutar höfuðborgarinnar
væru enn á valdi Íraka. Undarlegt
ástand ríkti sums staðar í borginni
þar sem daglegt líf virtist að mestu
haldast óbreytt. Strætisvagnar
gengu ennþá og nærri því þar sem
bardaginn fór fram í miðborginni var
fólk í biðröðum eftir að kaupa brauð
og veitingastaðir voru opnir.
Þessi lýsing átti þó aðeins við um
miðborgina því úr úthverfunum bár-
ust þær fréttir að skelfingu lostnir
íbúar reyndu að flýja borgina. Þar
geisuðu víða harðir bardagar í gær og
sagði í fréttum BBC að ljóst væri að
mannfall hefði orðið í röðum
óbreyttra borgara.
Segja Bandaríkjamenn
hafa „framið sjálfsmorð“
$
-<>.997
'.
'"9H
10$$
F/5 %
1/+$6"H
"7
22<
97
O+$+2@""#++
# 2+N+.1+G+
(%+N#3
0!+20 H
90!+.
10+%"97
-9<H95"%
(%+1!H
#7!+
(%+1!#7!+
R66N+* !%."
'<+
<H
7!
'<+$/9%+9%1!+%""!66
#+ "7 #+# #% '<<
1!#%"
<9%+
#=<%<2<+
15"7!
'+N+$%<!"
*"7$!G#%+'<H
+$/%1=!
G#%+'<+$/%1=!
*+**1/+$6" "7
!#%+ +20+
(9
9!
! !
(
99
!
3
9
>! !899!
3 =
)
)
: 9
1!H
#7!+*
#<'<H
+$/9%+
+%+!2+H
<@"9#%+1!
(9
!
(
99
!
!
H
0/0!<
97
Saeed al-Sahaf
Upplýsingaráðherra Íraks sagði fregnir um áhlaup Bandaríkjamanna
tilbúning á sama tíma og bandarískur bryndreki sást í 500 metra fjarlægð
ATHYGLI vekur að ekkert skuli
hafa heyrst frá Sádí-Arabanum
Osama bin Laden, leiðtoga al-Qaeda-
hryðjuverkasamtakanna, frá því að
Bandaríkin og bandamenn þeirra
réðust á Írak. Skýrist þögn bin Lad-
ens e.t.v. af því að hann sé ófær um
samskipti við umheiminn? Er hann
kannski alls ekkert á lífi lengur?
Í aðdraganda stríðsins hvatti bin
Laden heittrúaða múslima til að
fylkja liði með Írökum gegn Banda-
ríkjunum. „Við núverandi aðstæður
er ekkert að því að múslimar fylki
liði með sósíalistunum [sem ráða
ríkjum í Bagdad] gegn „krossförun-
um“, jafnvel þó að við teljum og höf-
um lýst því yfir að þessir sósíalistar
séu trúvillingar,“ sagði bin Laden í
útvarpsávarpi 11. febrúar sl.
Notaði Bandaríkjastjórn þetta
ávarp bin Ladens m.a. til að skjóta
stoðum undir þær staðhæfingar að
samgangur væri milli al-Qaeda og
Saddam-stjórnarinnar í Bagdad.
Franski fréttaskýrandinn Hasni
Abidi segir hugsanlegt að bin Laden
sé ekki lengur tæknilega fær um að
koma skilaboðum sem þessum á
framfæri eftir að Khalid Sheikh Mo-
hammed, þriðji valdamesti leiðtogi
al-Qaeda, var handtekinn 1. mars sl.
„Handtaka Sheikhs Mohammeds
– en hann bjó yfir upplýsingum um
ferðir bin Ladens – þrengdi mjög að
bin Laden,“ segir Abidi.
„Hefur bin Laden misst samband
við menn sína?“ spyr hins vegar Ant-
oine Basbous, franskur fréttaskýr-
andi sem fæddist í Líbanon. „Eða
bíður hann e.t.v. réttrar stundar til
að láta ljós sín skína?“
„Bin Laden telur sig kannski ekki
græða mest á því að láta í sér heyr-
ast núna, þegar stríð stendur yfir
milli Bandaríkja-
manna og stjórn-
ar Saddams
Husseins, en
hana hefur bin
Laden áður for-
dæmt,“ segir
Abidi. „Ávarp frá
honum myndi
hafa betri skír-
skotun ef hann
gæti sýnt fram á að stríðið sé milli
Bandaríkjamanna og írasks almenn-
ings,“ bætir hann við.
„Hann getur eins beðið þangað til
Saddam er úr sögunni til að útskýra
að þjóðernissinnaðar múslimastjórn-
ir séu dæmdar til að mistakast og að
Umma [samfélag sem byggist á ísl-
amskri bókstafstrú] eigi að taka við,“
segir Basbous.
„Saddam er eini samkeppnisaðili
bins Ladens [í arabaheiminum] og
hann hefur undanfarna mánuði verið
á öllum sjónvarpsskjám,“ segir
Ghassan Charbel í grein í Al-Hayat,
sem er gefið út í London. „Bin Laden
fylgist áreiðanlega grannt með þess-
um atburðum úr helli sínum. Hann
hlýtur að hafa áhuga á þessum at-
burðum því það er ljóst að ef árás-
irnar 11. september [2001] hefðu
ekki komið til þá væru bandarískir
hermenn ekki komnir að borgar-
mörkum Bagdad nú,“ sagði hann.
„Kannski eru menn hans að und-
irbúa árás á bækistöðvar Banda-
ríkjahers. Það mun taka nokkurn
tíma,“ segir Basbous og róttækling-
urinnYasser Al-Serri, sem er búsett-
ur í London en er eftirlýstur í
Egyptalandi, finnst þetta sennileg-
asta skýringin: „Hann gæti verið að
leggja á ráðin um eitthvað sem
myndi segja meira en mörg orð.“
Fylgist bin
Laden með úr
helli sínum?
Kaíró. AFP.
Osama bin Laden
GENGI hlutabréfa snarhækk-
aði víða í heiminum í gær þegar
fréttir um að bandarískar her-
sveitir hefðu ráðist inn í mið-
borg Bagdad vöktu vonir um að
stríðinu í Írak færi senn að
ljúka.
Er leið á daginn dró samt
nokkuð úr sveiflunni í Banda-
ríkjunum, Dow Jones-vísitalan
bandaríska hækkaði um 0,28%
og Nasdaq um 0,43%. Helstu
hlutabréfavísitölur í Evrópu
hækkuðu mun meira, um 3,2% í
Bretlandi, 3,4% í Frakklandi og
4,6% í Þýskalandi.
Gengi dollarans hækkaði
gagnvart evrunni og japanska
jeninu.
Olíuverð lækkar
en hækkar á ný
Heimsmarkaðsverð á olíu
lækkaði hins vegar um meira
en dollara á fatið í fyrstu en
snarhækkaði aftur vegna frétta
um að OPEC, samtök olíuút-
flutningsríkja, kynnu að
minnka framleiðsluna.
Formaður OPEC kvaðst
hafa boðað fulltrúa aðildarríkj-
anna til fundar 24. apríl þar
sem þau stæðu frammi fyrir of-
framboði á olíu.
Fjárfest-
ar von-
góðir
Formaður OPEC
varar við of-
framboði á olíu
London. AFP.