Morgunblaðið - 08.04.2003, Side 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 23
Sími 860 1180
Móðuhreinsun glerja
•16 ára reynsla í móðuhreinsun glerja.
•Móðuhreinsun glers er einungis
7-10% af heildarkostnaði nýs glers.
•Notum aðferð sem er viðurkennd af
Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins.
Hringdu, við komum á staðinn
og metum verkið þér að kostnaðarlausu.
gæðum,“ segir Birgir og sýnir stolt-
ur uppspretturnar sem fyrirtækið
notar og veitir vatni frá þeim að
nýju eldisstöðinni í landi Teyginga-
lækjar. Allt vatn til stöðvarinnar er
sjálfrennandi og því ekki þörf á
neinni orku til að knýja dælur. Öllu
er haganlega fyrir komið við eld-
isstöðina. Þar eru þegar komin í
notkun nokkur eldisker og önnur
bíða þess að verða tekin í notkun.
Fyrirtækið er einnig með eldis-
stöð við Nýjabæ, skammt vestan
Klausturs, en sú stöð gaf af sér 25
tonn á síðastliðnu ári og miðað við
áform fyrirtækisins ætti 120–150
tonna framleiðsla að vera orðin að
veruleika eftir þrjú til fjögur ár.
Það er ákveðni og sannfæring í
rödd Birgis þegar hann segir frá
áformum fyrirtækisins. „Við leggj-
um áherslu á gæði framleiðslunnar,
hægan vöxt bleikjunnar, þéttleika
og passlega feitan fisk. Þetta verður
allt að vera í góðu jafnvægi.“
„ÞAÐ er að koma vor í þetta hjá
okkur,“ segir Birgir Þórisson, fram-
kvæmdastjóri Glæðis hf. á Kirkju-
bæjarklaustri, sem framleiðir og
selur hina þekktu Klausturbleikju.
„Við erum að slátra 200–300 kílóum
á viku og síðan fer það upp í 500–
700 kíló á sumrin en þá er eft-
irspurnin meiri,“ segir Birgir en
segja má að fyrirtækið reki minnstu
fiskvinnslu á landinu, í viðbyggingu
gamla gistihússins á Klaustri. Nú
fara um 30 tonn af bleikju á markað
á ári frá fyrirtækinu en stefnan er
sett á 150 tonn með framtíðarupp-
byggingu.
Hluti af framleiðslu fyrirtækisins
fer á markað vikulega hjá versl-
unum og veitingastöðum í Þýska-
landi. Innanlands fer Klaustur-
bleikjan á markað í fersk-
fiskborðum Nóatúnsverslananna,
fiskbúðum, á hótel og veitingastaði.
„Við stefnum að því að senda mun
meira af reyktri bleikju á Þýska-
landsmarkaðinn. Það sem er mest
spennandi við þetta er vinnsludæm-
ið. Við höfum verið í samvinnu við
Þjóðverjana sem vilja hafa minna
salt í reykta fiskinum og við erum
að nálgast þá með þetta. Stefnan er
að sjálfsögðu að koma upp stærri
vinnslu hérna á Klaustri og þá um
leið fleiri störfum. Með 150 tonna
framleiðslu erum við komnir með
alvöru vinnslustöð hérna,“ segir
Birgir.
Leggjum áherslu á gæðin
Bleikjueldið á Klaustri hófst með
tilraun nokkurra manna sem gaf
strax góða raun og hefur vaxið enda
vel haldið utan um verkefnið af alúð
og vandvirkni sem einkennir störf
Skaftfellinga. „Við erum með ein-
stakar aðstæður hér fyrir þetta
eldi, gott vatn sem alltaf er eins að
Glæðir ehf. á Klaustri með stórhuga áform í bleikjueldi
Stefnan sett á 120–150
tonna framleiðslu
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Birgir Þórisson, framkvæmdastjóri Glæðis ehf. á Kirkjubæjarklaustri, við
eina vatnslindina sem er grundvöllur bleikjueldis fyrirtækisins.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Hörður Daði Björgvinsson og
Magnea G. Þórarinsdóttir gera að
nýslátraðri bleikju.
Selfoss
FYRIR skömmu var aðalfundur
hjá björgunarsveitinni Sæ-
björgu. Á fundinum var Birgir
Tryggvason kosinn formaður,
Arnar Laxdal Jóhannsson vara-
formaður, Emanúel Ragnarsson
gjaldkeri, Katrín Ríkarðsdóttir
ritari, og meðstjórnendur voru
kosnir Harpa Finnsdóttir, Elm-
ar Lárusson og Arnþór Magn-
ússon. Kosið var líka um full-
trúa í svæðisstjórn og hlaut það
Magnús Emanúelsson og vara-
maður hans er Emanúel Ragn-
arsson.
Á fundinum var farið yfir árs-
reikninga fyrir árið 2002 og
fjáröflunarleiðir voru ræddar.
Ræddar voru líka ýmsar tillögur
sem fundarmenn komu með.
Einnig er fyrirhugað að fjölga
félögum sveitarinnar og byggja
upp unglingastarf innan félags-
ins.
Nýlega festi björgunarsveitin
kaup á Zodiak-slöngubát með
kerru, að upphæð 3 milljónir
króna, og fékk um einnar millj-
ónar króna styrk frá útgerðar-
mönnum í Snæfellsbæ til kaup-
anna. Nú þegar hefur slöngu-
báturinn sannað gildi sitt, en
hann var notaður við björgun er
Röstin SH sökk út af Svörtu-
loftum fyrir skömmu og mann-
björg varð. Báturinn var not-
aður til að ferja skipbrotsmenn
til hafnar.
Er mikið samstarf á milli
björgunnarsveitanna á Hellis-
sandi og Ólafsvík og eru sveit-
irnar með sameiginlegan út-
kallslista og sameiginlegar æf-
ingar.
Nýr björgunar-
bátur Sæbjargar
Ólafsvík
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Nýskipuð stjórn björgunarsveitarinnar Sæbjargar í Ólafsvík. Nýskip-
aður formaður, Birgir Tryggvason, er í miðju í fremri röð.
ÞEIR voru ófáir „gangsterarnir og
glæsipíurnar“ sem komu fram á sviði
í sal Borgarhólsskóla á dögunum. Þar
sýndi 7. bekkur skólans söngleikinn
Bugsy Malone og voru sýningar alls
sex talsins fyrir fullu húsi enda mikill
áhugi meðal bæjarbúa að sjá krakk-
ana fara á kostum í þessari sýningu.
Eins og kunnugt er fjallar söng-
leikurinn um stríð milli tveggja maf-
íuhópa og á hann að gerast á tímum
bannáranna í Ameríku. Leikur
krakkanna er með miklum ágætum
og leikstjórinn, María Sigurðardótt-
ir, greinilega unnið frábært starf á
þeim stutta tíma sem hún hafði til
verksins.
María kom gagngert norður til að
setja þessa sýningu á svið og naut að-
stoðar Hólmfríðar Benediktsdóttur
sem sá um söngæfingarnar. Hólm-
fríður sá einnig um tónlistarstjórn í
sýningunni ásamt Guðna Bragasyni.
Allir nemendur 7. bekkjar taka þátt í
sýningunni á einn eða annan hátt
ásamt kennurum auk þess sem for-
eldrar tóku miknn þátt í undirbún-
ingsvinnu, svo sem málun leikmynd-
ar og búningavinnu.
Ekki er langt síðan 10. bekkur
skólans flutti valda kafla úr Gaura-
gangi Ólafs Hauks Símonarsonar í
leikstjórn Sigurðar Illugasonar við
góða aðsókn og undirtektir. Gaman
er að sjá þann leiklistaráhuga sem er
í Borgarhólsskóla og miðað við þann
efnivið sem kom fram í þessum sýn-
ingum 7. og 10. bekkjar þarf Leik-
félag Húsavíkur ekki að kvíða fram-
tíðinni hvað leikara varðar.
Bugsy
Malone í
Borgar-
hólsskóla
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Ólafía Helga Jónasdóttir (til vinstri) leikur Tallulha og Alma Svanhild Ró-
bertsdóttir leikur Blousey Brown í söngleiknum Bugsy Malone.
Húsavík
FYRIR skömmu kom til hafnar á Tálknafirði nýr bátur í
eigu Sveinunga ehf., sem er fyrirtæki í eigu Hrólfs Björns-
sonar. Báturinn er rúmlega 7 tonna plastbátur frá Trefj-
um í Hafnarfirði og er af gerðinni Cleopatra 31 L, með 450
ha. Caterpillar vél. Hrólfur hyggst gera bátinn út á línu og
ráðgerir að leggja fyrir steinbít til þess að byrja með. Bát-
urinn heitir Sigurvon, en nafnið fékk Hrólfur hjá föður sín-
um, sem átti bát með þessu nafni í áratugi. Magnús Guð-
finnsson mun verða Hrólfi til aðstoðar við veiðarnar.
Nýr bátur
á Tálknafjörð
Tálknafjörður
Morgunblaðið/Finnur
ÞESSIR ungu, vösku
glímumenn héldu
merki mývetnskrar
glímu hátt á loft þeg-
ar þeir kepptu á
grunnskólamóti og
Íslandsmóti ung-
linga sem haldið var
nýlega á Reyð-
arfirði. Afraksturinn
var 6 sigrar og 3 bik-
arar.
Á myndinni eru
þeir taldir frá
vinstri. Þór Kárason,
14 ára, frá Garði,
Pétur Þórir Gunn-
arsson, 15 ára, frá Baldursheimi,
Bjarni Þór Gunnarsson, 11 ára, frá
Baldursheimi og Júlíus Björnsson,
16 ára, frá Skútustöðum. Þjálfari
þeirra er Eyþór Pétursson, bóndi í
Baldursheimi og fyrrum glímu-
kóngur Íslands. Æfingar stunda
þeir utan skólatíma. Vonandi halda
þeir áfram að rækta með sér glímu-
kunnáttu eins og margir frændur
þeirra hafa áður gert.
Æskilegt væri að glímukennsla
væri tekin inn í námskrá grunn-
skóla og einnig Íþróttakenn-
araskóla Íslands. Aðeins þannig er
viðlit að halda merki þjóðaríþrótt-
arinnar hátt á loft svo sem rétt er
og skylt.
Mývetnskir glímumenn
Mývatnssveit
Morgunblaðið/BFH