Morgunblaðið - 08.04.2003, Síða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 35
✝ María Guðmunds-dóttir fæddist á
Rifi á Snæfellsnesi 25.
mars 1920. Hún lést á
Landakotsspítala 23
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Guð-
mundur Guðmunds-
son og Jófríður Jóns-
dóttir, systkini
hennar voru átta;
Kristný, f. 17. sept.
1903, d, 1940; Frið-
þjófur, f. 27. okt.
1904, d. 1987; Pétur,
f. 21. jan. 1906, d
1978; Ester Úranía, f. 9. apríl 1911,
d, 1932; Steingrímur, f. 3. sept.
1913, d. 1982; Katrín, f. 2. maí
1918, d. 1991. Á lífi
eru Guðbjörg, f. 4.
jan. 1908, býr í
Bandaríkjunum, og
Ásta Lára, f. 23. des.
1921.
María ólst upp á
Rifi. Um tvítugt fór
hún til Reykjavíkur
og vann við ýmis
heimilisstörf og
lengst af við sauma-
skap hjá versluninni
Nonna á Vesturgöt-
unni. Hún giftist ekki
og eignaðist ekki
börn.
María verður jarðsett frá Ingj-
aldshólskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Mig langar til að minnast frænku
minnar með nokkrum orðum, hún var
stórbrotin og dálítið sérstök kona, lá
ekki á skoðunum sínum ef því var að
skipta, trygg þeim sem hún tók, ég
bar mikla virðingu fyrir þessari konu.
Þegar ég var unglingur og fór að
fara til Reykjavíkur, þá var alltaf
komið hjá Möllu eins og við kölluðum
hana, eftir að hún eignaðist heimili
með móður sinni sem hún annaðist
um þar til að hún lést. Var það fastur
liður að koma til ömmu og Möllu og þá
var tekið vel á móti okkur.
Hún var vel gefin kona enda hefur
hún verið iðin við að skrifa seinni ár
ævi sinnar og skilur eftir sig heilmik-
inn fróðleik um siði og venjur fyrri
tíma, og minningar um forfeður sína.
Hún hafði þann eiginleika að geta tjáð
sig á blaði um það sem í hjarta hennar
bjó, enda kemur það svo fram í sög-
unum hennar.
Hún var sjálfstæð kona og sýndi af
sér mikla reisn þar sem hún fór og
leitaði lítið til annarra.
Og síðustu árin eftir að heilsan fór
að bila var ég svo heppin að fá að
kynnast henni náið og njóta þess að
vera nálægt henni og hlúa að henni.
Hún fræddi mig mikið um gamla tím-
ann og ég tel að það hafi verið forrétt-
indi fyrir mig að fá að kynnast henni
svona náið.
Með þessum orðum vil ég þakka
þér, elsku Malla, fyrir þær stundir
sem við áttum saman.
Guð blessi minningu þína.
Ester Úranía Friðþjófsdóttir.
MARÍA
GUÐMUNDSDÓTTIR
✝ Jenný Guðlaugs-dóttir fæddist í
Hvammi í Grýtu-
bakkahreppi 4. nóv-
ember 1909. Hún lést
á hjúkrunarheimilinu
Hlíð á Akureyri 21.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Emilía
Sigurbjörg Halldórs-
dóttir frá Keflavík í
Fjörðum, f. 1. nóvem-
ber 1874, d. 12. októ-
ber 1957, og Guð-
laugur Jóakimsson
frá Litla-Gerði í Dals-
mynni, f. 25. mars
1877, d. 8. júlí 1951,
Hvammi Grýtu-
bakkahreppi.
Jenný var elst níu
systkina sem öll kom-
ust til fullorðinsára,
Höskuldur, Svanfríð-
ur, Sigurvin og Óli er
öll látin en Jóakim,
Torfi, Laufey og
Kristín lifa systur
sína. Jenný var ógift
og barnlaus.
Útför Jennýjar var
gerð frá Akureyrar-
kirkju 4. apríl.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast ömmusystur minnar og
nöfnu Jennýjar Guðlaugsdóttur.
Jenna frænka eins og hún var alltaf
kölluð var mér nánast eins og amma.
Því hagaði þannig til að hún bjó
lengi vel í kjallaranum hjá ömmu og
afa og síðar hjá ömmu eftir að afi
lést. Seinustu æviárin bjuggu þær
systur saman í íbúð á Dvalarheim-
ilinu Hlíð.
Fyrstu minningar mínar um þessa
góðu og glaðlegu konu voru heim-
sóknirnar til hennar í kjallarann í
Munkaþverástræti. Þá voru soðin
egg og þau borðuð með smjöri.
Ósjaldan kom maður líka við á leið
heim af skautasvellinu kaldur og
þreyttur og fékk þá gjarnan heitt
súkkulaði og bakkelsi. Frá henni
fékk ég líka fyrstu og einu spari-
dúkkuna, fyrsta úrið og fyrsta borð-
búnaðinn minn og svona mætti lengi
telja. Nafna fylgdist alltaf vel með
mér og var í nánu sambandi við mig
alla tíð. Síðar þegar ég stofnaði fjöl-
skyldu og eignaðist börn tók hún
þau undir sinn verndarvæng enda
aldrei kölluð annað en amma Jenna
af þeim. Ferðirnar til hennar fyrst í
Þórunnarstrætið og síðan á Hlíð
voru margar og ánægjulegar, það
var spáð í bolla og auðvitað í þjóð-
málin því Jenna lét fátt fram hjá sér
fara. Eftir að ég flutti í Garðabæinn
urðu heimsóknirnar skiljanlega
færri og alltaf spurði hún að því
sama þegar ég var að fara: „Hvenær
heldurðu að þú komir næst?“
Ætlunin var að koma norður og
heimsækja þig í vikunni fyrir páska
en örlögin höguðu því þannig að ekk-
ert verður úr því. Elsku nafna, ég
kveð þig með þökk fyrir allt. Far þú í
friði, friður Guðs þig blessi. Kveðja.
Jenný Guðmundsdóttir.
JENNÝ
GUÐLAUGSDÓTTIR
AFMÆLIS- og minningar-
greinum má skila í tölvupósti
(netfangið er minning@mbl.is,
svar er sent sjálfvirkt um leið
og grein hefur borist) eða á
disklingi. Nauðsynlegt er að til-
greina símanúmer höfundar og/
eða sendanda (vinnusíma og
heimasíma). Ekki er tekið við
handskrifuðum greinum.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein aðalgrein af hæfi-
legri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar séu um 300 orð
eða 1.500 slög (með bilum) en
það eru um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í
sálma eða ljóð takmarkast við
eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín-
ur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein.
Greinarhöfundar eru beðnir að
hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
Nýja Glæsibæ, sími 533 6129 • Smáratorgi, sími 544 4031
Hafnarfirði, sími 565 0480 • Reykjanesbæ, sími 421 1501
Heiðrum minningu látinna
Blómalagerinn • beint frá bóndanum
Elskulegur eiginmaður, faðir, stjúpfaðir, sonur
og bróðir,
JÓHANNES SIGURÐSSON,
Lækjargötu 34d,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 9. apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á reikning í Landsbankanum,
0140-05-073492, kt. 070902-2140 sem hefur verið stofnaður i nafni
dóttur hans.
Valeria Tavares,
Jasmin Luana Jóhannesdóttir,
Luiz Felipe Tavares,
Harpa Bragadóttir, Sigurður Knútsson,
Bragi Sigurðsson,
Knútur Á. Sigurðsson, Nanna Þórdís Árnadóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
BLÆNGUR GRÍMSSON
húsasmíðameistari
frá Jökulsá á Flateyjardal,
síðast til heimilis
að Holtagerði 69,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 9. apríl kl. 13.30.
Margrét Aðalbjörg Ingvarsdóttir,
Ingvar Blængsson,
Eygló Jóhanna Blængsdóttir, Arve Hammer,
Gríma Huld Blængsdóttir, Eggert Hjartarson,
Blængur Blængsson, Eygló Hafsteinsdóttir,
Gréta Björg Blængsdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir minn, afi okkar og langafi,
GEIR G. JÓNSSON,
Aflagranda 40,
verður jarðsunginn frá Aðventkirkjunni Reykja-
vík, Ingólfsstræti 19, fimmtudaginn 10. apríl
kl. 14.00.
Marín Sjöfn Geirsdóttir,
Örvar Omrí Ólafsson,
Jón Örvar G. Jónsson,
Þóra Sigurðardóttir
og Sigurrós Jónsdóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
LÓA ÁGÚSTSDÓTTIR
frá Baldurshaga,
Vestmannaeyjum,
Holtsgötu 13,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðviku-
daginn 9. apríl kl. 15.00.
Ólöf Ágústa Karlsdóttir, Sigurjón Jóhannsson,
Sverrir Karlsson, Svanbjörg Clausen,
Sólveig Jónína Karlsdóttir, Magnús Þórður Guðmundsson,
Anthony Karl,
Íris Hrönn,
Elín Björg, Guðrún Sigríður
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför föður,
tengdaföður, afa og langafa,
ANDRÉSAR GUÐBRANDSSONAR,
Laugalæk 34,
Reykjavík.
Þökkum starfsfólki Grundar hlýhug og góða
umönnun.
Sigrún Andrésdóttir, Vilberg Sigurjónsson
og fjölskylda.