Morgunblaðið - 08.04.2003, Qupperneq 36
MINNINGAR
36 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs hópa
kl. 10–14 í neðri safnaðarsal kirkj-
unnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12.
Að lokinni bænastund gefst þátttakend-
um kostur á léttum hádegisverði. Sam-
vera foreldra ungra barna er kl. 14 í
neðri safnaðarsalnum. Tólf spora fundur
kl. 19 og opinn bænafundur á sama
tíma fyrsta þriðjudag hvers mánaðar.
Bústaðakirkja. TTT-æskulýðsstarf fyrir
10–12 ára kl. 17.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður
að samverustund lokinni. 10–12 ára
starf KFUM&K kl. 17.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Passíusálmalestur kl. 12.15. Eldriborg-
arastarf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og
spjall.
Háteigskirkja, eldri borgarar. Á morgun
er stutt messa, fyrirbænastund, kl. 11.
Súpa og brauð kl. 12. Brids kl. 13.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 lestur Pass-
íusálma og bænagjörð í Guðbrandsstofu
í anddyri Langholtskirkju. Allir velkomn-
ir.
Laugarneskirkja. Fullorðinsfræðsla kl.
20. Að þessu sinni talar Freddie Filmor
frá BNA og segir okkur frá hugsjónum
sínum og boðunarstarfi. Gengið inn um
dyr á austurgafli kirkjunnar. Öllum opið
og gaman að taka þátt. Þriðjudagur
með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörðarstund
þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir
söng við undirleik Gunnars Gunnarsson.
Í kvöld flytur Freddie Filmor guðs orð og
bæn. Fyrirbænastund kl. 21.30 í umsjá
Margrétar Scheving sálgæsluþjóns og
hennar samstarfsfólks. (Sjá síðu 650 í
Textavarpi).
Neskirkja. Litli kórinn – kór eldri borg-
ara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Back-
man. Allir velkomnir. Foreldramorgunn
miðvikudag kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Umsjón Elínborg Lárusdóttir.
Seltjarnarneskirkja. Friðarstund kl. 12–
12.30. Hljóð bænastund.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safn-
aðarheimilinu kl. 10–12. Hittumst,
kynnumst, fræðumst. Kl. 16.15–17.15.
STN-starf fyrir 7–9 ára börn.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefn-
um má koma til sóknarprests í viðtals-
tímum hans.
Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra.
Óvissuferð kl. 11. KFUM&K í Digranes-
kirkju fyrir 10–12 ára krakka kl. 17–
18.15. Fræðslusalur opinn fyrir leiki kl.
16.30. Unglingakór Digraneskirkju kl.
17–19. Alfa hátíð kl. 19. (Sjá nánar:
www.digraneskirkja.is)
Fella- og Hólakirkja. Mömmu/foreldra-
morgunn kl. 10–12 í umsjón Lilju G.
Hallgrímsdóttur djákna fyrir aðstandend-
ur barna undir grunnskólaaldri,
mömmur, pabba, afar og ömmur, öll vel-
komin með eða án barna. Kaffi, djús,
spjall og notalegheit í góðu umhverfi
kirkjunnar. Starf fyrir 11–12 ára stúlkur
kl. 16.30.
Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 13.30–16. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Kaffiveitingar
og alltaf eitthvað gott með kaffinu.
Æskulýðsfélag í Rimaskóla kl. 20–22,
fyrir unglinga í 8. bekk. Æskulýðsfélag í
Grafarvogskirkju, kl. 20–22, fyrir ung-
linga í 9. og 10. bekk. Á leiðinni heim.
Þekktir leikarar og skáld lesa Pass-
íusálmana kl. 18.15–18.30.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta
kl. 9.15. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Kóræfing kl. 19.45. Biblíuleshópur kl.
20.
Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag
kl. 10–12 í safnaðarheimilinu Borgum.
Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorg-
unn kl. 10 í safnaðarheimili Lindarsókn-
ar, Uppsölum 3.
Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús
milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall. Bibl-
íulestur kl. 19.30. Æskulýðsfundur fyrir
13 ára unglinga (fermingarbörn) kl. 20.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borg-
ara í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl.
13–16 á vegum kirkjunnar. Spilað og
spjallað. Helgistund kl. 16. Fjölbreytt
æskulýðsstarf fyrir 9–12 ára stúlkur í
safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 17.30–
18.30 í umsjón KFUK.
Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára
börn í dag kl. 17.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–
12 ára börn í safnaðarheimilinu Strand-
bergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir
7–9 ára börn kl. 16.30–18. Æskulýðs-
starf 8. og 9. bekkur kl. 20–22.
Lágafellskirkja, barnastarf. Kirkjukrakk-
ar í Lágafellsskóla í dag fyrir 6–7 ára
börn kl. 13.15 og 8–9 ára börn kl.
14.30. Umsjón Þórdís djákni.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15
kirkjuprakkarar 6–8 ára í kirkjunni.
Leikjadagur. Sr. Þorvaldur og leiðtog-
arnir. Kl. 18 fermingaræfingar fyrir þá
sem fermast 12. apríl kl. 11. Foreldrar
mæti með. Kl. 18.45 fermingaræfingar
fyrir þá sem fermast 13. apríl kl. 11.
Foreldrar mæti með. Kl. 19.30 ferming-
aræfingar fyrir þá sem fermast 13. apríl
kl. 14. Foreldrar mæti með.
Keflavíkurkirkja. Úr heimi bænarinnar
eftir Ole Hallesby kl. 20–22. Umsjón
með bænahópnum hafa Laufey Gísla-
dóttir og Sigfús Baldvin Ingvason. Einn-
ig verður komið saman í heimahúsum.
Heitt verður á könnunni.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Hveragerðiskirkja. Kl. 10 foreldramorg-
unn. Heitt á könnunni og spjall með
heimavinnandi foreldrum.
Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni
kl. 18.30– 19.
Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag
kl. 13.40.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
KFUK, Holtavegi 28. Ferill í myndlist
Þorgerðar Sigurðardóttur myndlistar-
konu: Gerð helgimynda. Konur eru
hvattar til að fjölmenna.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Fermingarfræðsla kl. 15.30. Hópur 3
(8. C Brekkuskóla og 8. E Lundarskóla).
Glerárkirkja. Kyrrðar- og tilbeiðslustund
í kirkjunni kl. 18.10.
Safnaðarstarf
unni lýkur með „Pálínuboði“ þar
sem fjölskyldurnar leggja eitt-
hvað matarkyns á eitt risastórt
hlaðborð. Kirkjan sér fyrir kaffi
og djús fyrir alla.
Vegna skipulags þurfa for-
eldrar að skrá börn sín á nám-
skeiðið og hringja í Grafarvogs-
kirkju á tímabilinu frá kl. 9-12
dagana 8., og 9. apríl nk. í síma
587 9070.
Starfsfólk Grafarvogskirkju.
Á leiðinni heim
ÞEIR sem lesa Passíusálma í
Grafarvogskirkju í þessari viku
eru: Í dag, þriðjudag, les Gunnar
Eyjólfsson; miðvikudag les Krist-
ín Marja Baldursdóttir; fimmtu-
dag les Þór Tulinius og á föstu-
dag les Arnar Jónsson.
Stórsamkoma
í Austurbæ
Í KVÖLD, þriðjudag, kl. 20:00
GRAFARVOGSKIRKJA býður öll-
um börnum í 1. bekk grunnskól-
anna í Grafarvogi að taka þátt í
kristilegu leikjanámskeiði í
kyrruviku, 14., 15. og 16. apríl.
nk., þeim að kostnaðarlausu.
Umrætt námskeið ber yf-
irskriftina: „Kátir krakkar í
kyrruviku“ eða KKK.
Á fyrsta degi fá öll börnin sér-
merkta boli. Námskeiðið er frá
kl. 13-16 í Grafarvogskirkju um-
rædda þrjá daga. Leiðbeinendur
verða sunnudagaskólakennarar,
prestar og íþróttakennari ásamt
aðstoðarfólki.
Í upphafi hvers dags er fána-
hylling, þá verður sameiginleg
stund. Eftir hana er skipt í hópa.
Annar hópurinn er í kirkjunni í
verkefnavinnu, föndri og ýmsu
öðru, m.a. að teikna og mála
myndir. Hinn hópurinn er úti í
íþróttum og leikjum með íþrótta-
kennara og aðstoðarmönnum
hans. Þá kemur nestistími.
Að honum loknum fer hópurinn
sem var inni út með íþróttakenn-
aranum og hópurinn sem var úti
fyrr um morguninn fer inn í
föndur og fræðslu. Að þessu
loknu lýkur deginum með sam-
eiginlegri stund í kirkjunni.
Miðvikudaginn 16. apríl kl. 19–
20 verður uppskeruhátíð „Kátra
krakka í kyrruviku“. Þá getur öll
fjölskyldan komið með barninu í
Grafarvogskirkju. Myndir og ann-
að sem börnin gerðu verða til
sýnis. Stutt helgistund, þar sem
börnin syngja söngvana sem þau
lærðu á námskeiðinu. Afhending
þátttökuviðurkenninga. Samver-
verður stórsamkoma á vegum
KFUM og KFUK í Austubæ (áður
Austurbæjarbíó). Þeir sem fram
koma verða Gospelkór Reykjavík-
ur og góðir gestir frá Þýskalandi,
dr. Roland Werner, Gottfried
Müller og Lunatic Art dansflokk-
urinn sem notar listdans til að tjá
boðskap kristinnar trúar.
Roland Werner er einn af
fremstu leiðtogum í kristilegu
ungmennastarfi í Þýskalandi.
Hann er skemmtilegur prédikari
og notar nýjustu aðferðir til að
miðla hinum kristna boðskap.
Þess vegna hefur hann með sér
ungmennaprédikarann Gottfried
Müller sem hefur getið sér gott
orð í Þýskalandi sem góður ræðu-
maður og dansflokkinn Lunatic
Art og hefur fengið góða dóma
fyrir listsköpun sína. Tónlist-
arfólk úr KFUM og KFUK mun
sjá um tónlistina og leiða almenn-
an söng. Aðgangur er ókeypis og
allir eru hjartanlega velkomnir á
meðan húsrúm leyfir.
Morgunblaðið/Jim Smart
Grafarvogskirkja
Kátir krakkar
í Grafarvogs-
kirkju
Andrés tengdafaðir
minn lést að kvöldi 15.
mars á vistheimilinu
Grund, en þar hafði
hann verið til heimilis í
rúma fjóra mánuði og
notið þar góðrar þjónustu og umönn-
unar.
Andrés var Mýramaður, alinn upp
við landbúnað þar sem hver og einn
hafði verk að vinna og öll verk átti að
vinna samvisksamlega og af trúnaði.
Snemma fór Andrés að heiman til að
vinna fyrir sér, 16 ára fór hann á ver-
tíð í Sandgeði. Á mótorbátum og tog-
urum frá Hafnarfirði var Andrés í 12
ár. Sagði hann mér að það hefði verið
erfiður tími. Á þessum árum voru
menn nánast þrælar, mannréttindi
oft fótum troðin og félagsleg réttindi
lítil. Andrés var valinn af félögum
sínum til trúnaðarmannsstarfa
snemma á starfsævinni. Það má
segja að Andrés hafi verið félagsleg-
ur trúnaðarmaður alla sína starfs-
ævi. Í trúnaðarráði Dagsbrúnar var
Andrés í 30 ár, eftir að hann kom í
land og fór að vinna í Mjólkursam-
sölunni en þar fannst honum gott að
vinna. Trúnaðarmannsstarfið hjá
ANDRÉS
GUÐBRANDSSON
✝ Andrés Guð-brandsson fædd-
ist á Hrafnkelsstöð-
um á Mýrum 19.
desember 1916.
Hann lést 15. mars
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Laugarneskirkju 27.
mars.
Samsölunni átti vel við
hann.
Andrés var góður
samningamaður, rétt-
sýnn og sú verkalýðs-
hugsjón sem einkenndi
öll hans störf í þágu
verkamanna gerði
hann farsælan í störf-
um sínum, virtur af fé-
lögum sínum og á með-
al stjórnenda Samsöl-
unnar.
Árið 1951 kvæntist
Andrés Ingibjörgu Sig-
urþórsdóttur og eign-
uðust þau eina dóttur,
Sigrúnu, sem flutti fjögurra ára
ásamt foreldrum sínum í nýbyggt
hús á Rauðalæk 18 í Reykjavík. Þar
var félagshyggjan að störfum því
tvær systur Andrésar, Lóa og Sigga,
ásamt sínum mönnum, Þórði og
Snorra, byggðu húsið í félagi við
Andrés.
Ég kem fyrst inn á Rauðalæk 1974
og kynnist þessum fjölskyldum sem
bjuggu í húsinu. Það var einkenn-
andi hversu mikil hlýja og góðvild
ríkti milli þeirra.
Andrés fylgdi okkur Sigrúnu og
hélt heimili með okkur eftir að hann
missti konu sína 1975 eftir erfið veik-
indi hennar.
Hann tók þátt í uppeldi barna-
barna sinna og eru það góðar minn-
ingar sem þau varðveita um afa sinn
sem var alltaf til staðar heima og gaf
góð ráð og talaði við þau um lífið og
tilveruna.
Vilberg Sigurjónsson.
MINNINGARGREINUM
þarf að fylgja formáli með upp-
lýsingum um hvar og hvenær
sá sem fjallað er um er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn og loks hvaðan útförin
verður gerð og klukkan hvað.
Ætlast er til að þetta komi að-
eins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í greinun-
um sjálfum.
Formáli
minningar-
greina
KIRKJUSTARF
Innilegar þakkir sendum við þeim, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður,
systur og ömmu,
ÖNNU SOFFÍU JÓHANNSDÓTTUR,
Hringbraut 86,
Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við Karlakór Keflavík-
ur, Kvennaklúbbi KKK, saumaklúbbnum, ferðafélögum og Sjúkrahúsi
Keflavíkur.
Konráð Fjeldsted,
Agnes Hólmfríður Konráðsdóttir,
Gunnar Hans Konráðsson, Sigríður Pálsdóttir,
Jóhann Kristján Konráðsson, Hanna Rósa Sæmundsdóttir,
Friðrik Þór Konráðsson, Kolbrún Svala Júlíusdóttir,
Sigfríður Pálína Konráðsdóttir
og barnabörn.
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Kærar þakkir til allra, sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við andlát og útför
SIGURÐAR JÓNSSONAR,
Ystafelli,
Þingeyjarsýslu.
Kolbrún Bjarnadóttir
og fjölskylda.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
GUÐRÍÐUR AÐALSTEINSDÓTTIR,
Álfholti 56b,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnar-
firði fimmtudaginn 10. apríl kl. 13.30.
Ottó H. Karlsson,
Klara Jóhanna Ottósdóttir,
Ólafur Þór Ottósson, Helga Björg Sigurðardóttir,
Aðalheiður Björk Ottósdóttir,
Ása Hrund Ottósdóttir
og barnabörn.