Morgunblaðið - 08.04.2003, Side 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 41
EFTIR hinn fræga fund í Prag þar
sem nokkurn veginn ljóst varð hvert
þeir stefndu í utanríkismálum, Hall-
dór og Davíð, skrifaði ég stutta grein í
Morgunblaðið („Hvað er að gerast á
Íslandi?“) , þar sem ég benti á hvert
stefndi í utanríkismálum. Seinna
áréttaði ég þetta svo í smá grein sem
ég nefndi: „Við mótmælum öll.“ Mér
finnst sem stjórnarandstaðan hafi
sofið á verðinum því lítið lét hún þessi
mál til sín taka fyrr en skaðinn var
skeður. Nú eru þessir herrar að gera
okkur aðila að árásarstríði sem getur
orðið afdrifaríkt bæði fyrir okkur og
alla heimsbyggðina. Þetta skref stíga
ráðherrarnir í trássi við alþjóðasam-
félagið og án þess að bera málið undir
þing eða þjóð. Ekki einu sinni utan-
ríkismálanefnd. Enda virðist formað-
ur þeirrar nefndar ekki líta mjög há-
tíðlega á hlutverk sitt. Aðfarir eins og
þessar eiga ekkert skylt við lýðræði.
Þetta er glórulaust einræði. Það er
búið án nokkurra umræðna við þing
og þjóð, að gera okkur taglhnýtinga
við árásarstríð og herveldi sem fer
sínu fram án alþjóðasamþykkta. Her-
veldi sem mútar þjóðum og hefir í
hótunum við aðrar. Sem lætur sér
sæma að kenna samfélagi þjóðanna
um að hafa brugðist hlutverki sínu.
Svona var þetta ekki þegar Clinton
var forseti. Hann lagði sig fram sem
þjóðasættir. Núverandi forseti
Bandaríkjanna er hins vegar á góðum
vegi með að setja allt í bál og brand og
þessum ævintýramanni eru íslenskir
ráðherrar búnir að veita hollustu sína
og ofurselja þjóð sína í árásarstríð.
Nú lítur allur heimurinn í forundran
þessa litlu þjóð, sem þykist þess um-
komin að reiða sverð að annarri þjóð.
Aldrei fyrr hafa íslenskir ráðamenn
leitt þjóð sína í slíka niðurlægingu.
Nú getum við búist við hryðjuverkum
hér þegar við erum orðnir yfirlýstir
stríðsmenn gegn þjóð sem þarf frem-
ur á öðru að halda frá „vinum“ sínum
en sprengjuregni og tortímingu. Ís-
lenska þjóðin hefir aldrei viljað bera
vopn á aðrar þjóðir. Það hefir verið
hennar gæfa og dýrasti arfur. Við
hljótum að vænta þess, að þjóðin segi
svo áþreifanlegt nei við öllu stríðs-
brölti núverandi valdhafa, að hún
endurheimti sæmd sína og heiður í
þessum málum og leggi í framtíðinni
lóð sitt á vogarskálar friðar og mann-
úðar, en láti aldrei hafa sig í að
kveikja í tundrinu til tortímingar
þeim sem þeir telja sig vera að frelsa
úr ánauð. Það hljóta að vera til far-
sælli leiðir. Hatur verður aldrei upp-
rætt með hatri. Við megum ekki una
því, að vera leidd eins og akneyti og
vera ofurseld valdi þeirra sem ekki
kunna að fara með fjöregg okkar og
halda að þeir geti stjórnað í trássi við
vilja þjóðarinnar. Við væntum þess,
að íslenska þjóðin beri gæfu til að
hrista af sér þessa óværu og að þetta
verði til að kenna þjóðinni að halda
vöku sinni. Til þess þurfa þessir herr-
ar að fá skýra áminningu í kjörklef-
anum. Við hljótum að vænta þess að
þeir fái þau skilaboð sem duga til að
svona gerist ekki aftur.
„Og kannske mun eitt sinn æskunni
fallast hendur
og undrun lostin spyrja í fávisku sinni:
Æ, getur það verið satt, sem í sögunni
stendur?
Hér segir að fólk hafi barist í veröld minni.“
Í þessum ljóðlínum eftir Tómas
Guðmundsson birtist draumsýn hans,
að styrjaldir verði svo fjarlægar að
unga kynslóðin trúi því ekki að fólk
hafi barist. Það mætti gjarnan vera
hugsjón okkar að skapa slíkan veru-
leika. Það er eflaust ósk okkar flestra
eða allra, þótt villugjarnt virðist á
þeim leiðum sem öðrum því miður. Ís-
lenska þjóðin verður bæði sár og
sorgmædd þar til hún endurheimtir
friðarsáttmála sinn.
GUNNÞÓR GUÐMUNDSSON,
Spítalastíg 3, Hvammstanga.
Til varnar
vorri þjóð
Frá Gunnþóri Guðmundssyni
MEGRUN og megrunarkúrar eru
eitt af því sem mest er talað um og
auglýst í dag og ekki að ástæðu-
lausu. Við Íslendingar eigum sjálf-
sagt fljótlega heimsmet í því að
fitna, eins og öllu öðru. Við erum
ótrúleg öfgaþjóð í öllu sem við tök-
um okkur fyrir hendur. En það sem
er sárast við allar þessar auglýs-
ingar, um öll þessi undraefni sem
eiga að gera fólk grannt á engum
tíma, er hvað allir þessir megrun-
arkúrar virðast vera óheyrilega
dýrir. Hve miklu þeir sem ætla að
léttast um einhver kíló þurfa að
fórna fyrir kílóin, bæði peningalega
og í öllu sínu hátterni. Svo að við
tölum nú ekki um hvað margar af
þessum aðgerðum geta farið illa
með heilsu fólks, kannski ekki akk-
úrat meðan á megrun stendur,
heldur geta komið eftirköst síðar.
Mig langar til að leggja orð í megr-
unarbelginn.
Megrun þarf alls ekki að vera
dýr, heldur þvert á móti eitt það
ódýrasta sem þú tekur þér fyrir
hendur eða u.þ.b. 400 kr. á tveggja
mánaða fresti. Megrun þarf ekki að
kalla á nýjan lífsstíl hjá þér og ótal
fórnir. Borðaðu eins og þú hefur
gert til þessa, nema þú skalt forð-
ast það sem þú og allir aðrir vita og
reynslan hefur kennt þér að er fit-
andi. Gott er auðvitað að hreyfa sig
ögn með, t.d. léttar gönguferðir,
svona upp á meltinguna, blóðrásina
og skrokkinn. Þokkaleg hreyfing
ætti að halda meltingunni í nokkuð
góðu standi, en nauðsynlegt er að
hún sé í lagi ætli maður að létta sig.
Og nú kemur bomban: Eplaedik.
Eplaedik er stórkostlegur kostur,
ekki bara til megrunar, heldur sem
allsherjar heilsukostur. Virkni epla-
ediks er margþætt og öll af hinu
góða og ætla ég ekki að telja hana
upp hér, enda erum við að tala um
megrun. En efnin í eplaediki sem
gera það svo víðtækt í verkan eru:
Kalíum, bundið fjölda annarra
steinefna, svo sem fosfóri, klór,
natríum, magníum, kalki, brenni-
steini, járni, flúor og silisíum, ásamt
mörgum snefilefnum.
Það er svolítið misjafnt hvað fólk
notar mikið af eplaediki. En sem
þumalputtaregla er ágætt að fá sér
einn til einn og hálfan sentimetra af
eplaediki í vatnsglas með hverri
máltíð. Þetta er nú allt og sumt
sem þarf.
En þú dettur ekki úr 100 kg og
niður í 50 kg á einni viku, heldur
leggur af hægt og örugglega og
getur ekkert við því gert. Þú ein-
faldlega leggur bara af. Eplaedik
brennir nefnilega umframfitu úr
líkamanum. Eplaedikið getur haft
góð áhrif á háan blóðþrýsting sem
oft er fylgifiskur þeirra sem eru of
þungir. Ég tala nú ekki um ef þú
færð þér eina til tvær teskeiðar af
hunangi með máltíðum, en hunang-
ið dregur til sín umframvatn úr
blóðinu og lækkar þannig blóð-
þrýstinginn. Auk þess hefur epla-
edikið bakteríudrepandi áhrif og
getur því varið þig gegn ýmsu. Ein-
hvern tíma var mér sagt, að konur
sem tækju inn eplaedik í vatni
tvisvar á dag þyrftu ekki að hafa
áhyggjur af kjallaramálum. Ein-
faldleikinn er kannski bara árang-
ursríkastur þegar upp er staðið.
AÐALSTEINN BERGDAL,
Hrísey.
Ódýr megrun
Frá Aðalsteini Bergdal
FJÖRUTÍU sveita undanúrslit í
Íslandsmótinu í sveitakeppni fóru
fram í Borgarnesi um helgina.
Nokkuð var um óvænt úrslit og
spila 3 sveitir í úrslitunum sem ekki
hafa spilað þar áður og margir af
okkar sterkustu spilurum munu
eiga náðuga daga nú um bænadag-
ana en þá fara fram 10 sveita úrslit
á Hótel Loftleiðum. Sveitirnar sem
spila til úrslita eru: Skeljungur,
Skaginn hf., Grant Thornton, Fé-
lagsþjónustan, Tryggingamiðstöðin,
Subaru-sveitin, Íslenskir aðalverk-
takar, Landsbankinn, sveit Guð-
mundar Sv. Hermannssonar og
Siglósveitin. Skoðum nánar úrslitin í
riðlunum:
A-riðill:
Í þessum riðli voru sveitir Skelj-
ungs og Orkuveitu Reykjavíkur sig-
urstranglegastar. Orkuveitan, sem
er núverandi Íslandsmeistari, varð
að bíta í það súra epli að enda í
fjórða sæti en sveit Skagans hf.
hreppti annað sætið sannfærandi.
Lokastaða efstu sveita varð annars
þessi:
Skeljungur 146
Skaginn hf. 125
Tryggingastofan 118
Orkuveita Reykjavíkur 117
B-riðill:
Í B-riðlinum urðu einnig óvænt
úrslit. Þar lék á als oddi sveitin
Grant Thorton og náði hæstu skor
mótsins eða 167 stig af 175 mögu-
legum. Keppnin um annað sætið var
hörkuspennandi og endaði með því
að sveit Félagsþjónustunnar
tryggði sig inn í úrslitin með glæsi-
brag en lokastaðan í riðlinum varð
þessi:
Grant Thornton 167
Félagsþjónustan 130
Sparisjóðurinn í Keflavík 117
Strengur 111
C-riðill:
Subaru-sveitin hafði nokkra yfir-
burði í þessum riðli og tapaði aðeins
síðasta leiknum með litlum mun.
Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar
var nokkuð örugg með annað sætið
en lokastaðan varð þessi:
Subaru-sveitin 152
Tryggingamiðstöðin 141
Sveit Guðm. Baldurssonar 132
Sveit Gylfa Baldurssonar 117
D-riðill:
Þessi riðill var hreint ótrúlegur.
Fyrsta sætið var frátekið fyrir Ís-
lenska aðalverktaka með Sævar
Þorbjörnsson í fararbroddi en fyrir
síðustu umferðina áttu fimm sveitir
möguleika á öðru sætinu. Sveit
Landsbankans hreppti hnossið en
þeir eru skráðir austan heiða einn af
forsprökkunum í þeirri sveit er
Aðalsteinn Sveinsson en hann er
eiginmaður Stefaníu Skarphéðins-
dóttur, framkvæmdastjóra Brids-
sambandsins. Lokastaðan í riðlin-
um:
Íslanskir aðalverktakar 145
Landsbankinn 117
Frímann Stefánsson 105
Þrír frakkar 105
Teymi 103
E-riðill:
Í þessum riðli sigldu tvær sveitir
lygnan sjó, þ.e. sveit Guðmundar
Sv. Hermannssonar og Siglósveitin.
Sveit Guðmundar hökti eitthvað í
byrjun en síðan fór vélin í gang og
malaði hljóðlega út mótið. Siglfirð-
ingarnir spiluðu þétt og unnu rið-
ilinn en lokastaðan varð þessi:
Siglósveitin 140
Sveit Guðm. Sv. Hermannss. 134
Sparisjóður Norðlendinga 105
Esja 104
Í einstaklingsútreikningnum
(Butler) var Jónas P. Erlingsson
með hæstu skorina eða 2,05. Ragnar
Magnússon var með 1.49, feðgarnir
Eiríkur Hjaltason og Hjalti Elías-
son voru með 1,21 og Jón Bald-
ursson var fimmti með 1,18.
Keppnisstjórarnir, Sveinn Rúnar
Eiríksson og Björgvin Már Krist-
insson, stýrðu hjörðinni. Stefanía
Skarphéðinsdóttir var mótsstjóri.
Þar fer fólk sem kann til verka.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Þeir voru fyrirfram ekki taldir til afreka í undankeppni Íslandsmótsins í
sveitakeppni en í upphafi skyldi endirinn skoða. Þeir spila í úrslitunum um
bænadagana. Talið frá vinstri: Sigurjón Karlsson, Sverrir Þórisson, Björn
Friðriksson, Erlingur Sverrisson og Aðalsteinn Sveinsson.
Stjörnuhrap
í Borgarnesi
BRIDS
Hótel Borgarnes
UNDANÚRSLIT ÍSLANDSMÓTS
Í SVEITAKEPPNI
4.–6. apríl 2003
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Reykjavíkur
Helgarnir skelltu sér á toppinn
eftir 4 kvöld af 5 í Aðaltvímenningi
félagsins.
Staða efstu para er:
Helgi Jónsson – Helgi Sigurðsson +521
Hrólfur Hjaltason – Oddur Hjaltason +486
Björn Theodórss. – Sigurður B. Þorst. +453
Örn Arnþórss. – Guðlaugur R. Jóh. +369
Anton Haraldss. – Sigurbjörn Har. +270
Ísak Örn Sigurðss. – Ómar Olgeirss. +242
Hæsta skor kvöldsins 4. kvöldið af
5 náðu:
Helgi Jónsson – Helgi Sigurðsson +215
Guðrún Jóh. – Kristjana Steingr. +188
Jóhann Ævarsson – Björn Friðrikss. +159
Björn Theodórss. – Sigurður B. Þorst. +145
Hrólfur Hjaltason – Oddur Hjaltason +133
Erla Sigurjónsd. – Sigfús Þórðarson +130
Öll spil og úrslit úr mótinu er að
finna á heimasíðu BR www.bridge-
felag.is
Föstudaginn 28. mars var spilað-
ur Monrad Barómeter með þátttöku
30 para. Spilaðar voru 7 umferðir
með 4 spilum á milli para. Efstu pör
voru:
Vilhjálmur Sig. jr. – Heiðar Sigurjónss. +63
Jón Viðar Jónmundss. – Torfi Ásgeirss. +50
Hermann Friðriksson – Guðjón Bragas.+50
Sveinn Þorvaldsson – Gísli Steingr. +44
Að tvímenningnum loknum var
spiluð miðnætursveitakeppni með
þátttöku 6 sveita. Sveit undir nafni
Ice-t varð sigurvegari með 56 stig úr
3 leikjum, einu stigi á undan sveit
Baldurs Bjartmarssonar. Fyrir
Ice-t spiluðu: Júlíus Sigurjónsson,
Jóhann Ævarsson, Björn Friðriks-
son og Erlingur Örn Arnarson.
Keppnisstjórar eru Sigurbjörn
Haraldsson og Björgvin Már Krist-
insson og taka þeir á móti öllum með
bros á vör. Engu skiptir hvort menn
eru vanir eða óvanir, stakir eða í
pörum, tekið er vel á móti öllum.
Föstudagsbridge BR fellur niður
föstudaginn 4. apríl vegna undanúr-
slita Íslandsmótsins í sveitakeppni
2003 sem fram fara í Borgarnesi.