Morgunblaðið - 08.04.2003, Qupperneq 46
ÍÞRÓTTIR
46 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ARNAR Grétarsson skoraði sitt fimmtánda
mark fyrir Lokeren í belgísku 1. deildinni um
helgina þegar hann tryggði liði sínu sigur á
Moeskroen, 3:2. Hann er nú kominn í fimmta
sætið yfir markahæstu leikmenn deildarinnar.
Wesley Sonck hjá Genk er markahæstur
með 21 mark en hann var markakóngur deild-
arinnar í fyrra með 30 mörk. Ole Martin Årst
hefur gert 18 mörk fyrir Standard og síðan
koma þeir Sambegou Bangoura hjá Lokeren
og Paul Kpaka hjá Germinal Beerschot með
16 mörk hvor.
Markaskor Arnars í vetur er athyglisvert
því áður en þetta tímabil hófst hafði hann
skorað 8 mörk í 131 deildaleik eftir að hann
gerðist atvinnumaður erlendis.
Rúnar Kristinsson skoraði einnig gegn
Moeskroen og hefur gert 9 mörk í deildinni í
vetur.
Arnar fimmti
markahæsti
BLACKBURN skellti Fulham á útivelli, 4:0, í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gær og komst þar með upp í 7. sæti deildarinnar með 49
stig. Tyrkinn Hakan Sukur skoraði tvö af mörkum Blackburn í leikn-
um, eitt í hvorum hálfleik. David Dunn skoraði fyrsta markið úr víta-
spyrnu á 37. mín, og Damien Duff skoraði þriðja markið á 53. mín.
Fulham-liðið var úti á þekju í leiknum og er greinilegt að metnaður
leikmanna hefur minnkað undanfarnar vikur. Mikil spenna hefur ver-
ið innan félagsins og minnkaði hún síst á dögunum þegar endanlega
var kveðið upp úr um að Jean Tigana stýrir ekki liðinu nema til vors-
ins. Fulham er í 13. sæti deildarinnar með 38 stig og er hvergi nærri
sloppið úr fallhættu.
„Málið snérist um það hvort liðið skoraði fyrsta markið. Það féll í
okkar hlut og eftir að annað markið var staðreynd var ég ekki í vafa
um að sigurinn félli okkur í skaut,“ sagði Graeme Souness, knatt-
spyrnustjóri Blackburn, í leikslok og var afar ánægður með frammi-
stöðu Sukurs. „Sukur passar vel með Andy Cole í fremstu víglínu, það
er alltaf að sannast betur eftir því sem hann nær sér á strik eftir að
hafa verið í miklum erfiðleikum í upphafi ferilsins hjá okkur. Nú er
Sukur kominn á beinu brautina og farinn að sýna hvað í honum býr.“
Sukur með tvö mörk
gegn Fulham
Reuters
Hakan Sukur fagnar
öðru marka sinna gegn
Fulham í gærkvöldi.
ÚRSLIT
Grindvíkingar ætluðu ekki aðfalla í sömu gryfju og í fyrsta
leik liðanna þar sem þeir fengu að-
eins fimm villur
dæmdar á sig í fyrri
hálfleik. Þeir gul-
klæddu börðu á leik-
mönnum Keflvíkinga
í stað þess að láta leikmenn liðsins
skora auðveldar körfur. Nökkvi
Jónsson var sendur inná með það
eitt að markmiði að ergja Edmund
Saunders og ná upp baráttuanda í
vörn Grindvíkinga og skilaði Nökkvi
því hlutverki með sóma – en það
hrökk ekki til.
Magnús Gunnarsson, Edmund
Saunders og Damon Johnson létu
mikið að sér kveða í stigaskorun
Keflvíkinga í fyrsta leikhluta og gáfu
tóninn hvað framhaldið varðar. Í liði
Grindvíkur var Darrell Lewis í mikl-
um ham í fyrri hálfleik þar sem hann
skoraði alls 28 stig. En það eru göm-
ul sannindi að einn leikmaður getur
ekki unnið titla og aðeins Páll Axel
Vilbergsson náði að sýna sitt rétta
andlit í sóknarleiknum í fyrri hálfleik
á meðan lykilmenn komust ekki á
blað. Staðan í hálfleik var 60:48 og
áttu Grindvíkingar í mestu vandræð-
um með að stöðva Edmund Saund-
ers og Damon Johnson undir körf-
unni. Þar sem skyttur heimaliðsins
eru það öflugar er ekki annað hægt
en að hafa góðar gætur á þeim og þá
opnast möguleikar undir körfunni
sem Keflvíkingar hafa nýtt sér afar
vel til þessa. Sömu sögu er að segja
af liði Grindvíkinga sem hefur yfir að
ráða öflugum skyttum. Keflvíkingar
hafa lagt gríðarlega áherslu á að
stöðva þriggja stiga skot Grindvík-
inga og hafa þess í stað boðið þá vel-
komna í slaginn undir körfunni þar
sem þeir hafa yfir að ráða Edmund
Saunders, Jóni Nordal Hafsteins-
syni og Damon Johnson. Við þessari
leikaðferð hafa Grindvíkingar ekki
fundið svör og virtist sem leikmenn
liðsins gæfu upp alla von í síðari hálf-
leik.
Keflvíkingar leika við hvern sinn
fingur þessa dagana og hafa sett upp
sýningaratriði hvað eftir annað í
leikjum liðana til þessa. Edmund
Saunders tróð með tilþrifum af og til
í leiknum og Damon Johnson sýndi
hvað í honum býr er hann braust
framhjá Predrag Pramenko í síðari
hálfleik og tróð þar á eftir yfir Guð-
mund Bragason sem reyndi að verj-
ast.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Grindvíkinga, var að vonum ósáttur
við niðurstöðuna eftir tvo fyrstu leik-
ina um Íslandsmeistaratitilinn.
„Við náum að skora yfir 100 stig
og það er í lagi en að sama skapi
fáum við of mörg stig á okkur og
varnarleikurinn þarf að lagast.
Kannski þurfum við að endurskoða
aðeins hraðann í okkar leik og
bremsa okkur aðeins af. Ná betri
tökum á því sem við erum að gera og
leika betur saman sem lið.“ Friðrik
játti því að lið hans hefði ekki brugð-
ist rétt við þegar á móti hefði blásið.
„Það hefur verið okkar veikleiki í
þessum leikjum að menn hafa skriðið
inn í skel þegar illa gengur í stað
þess að gefa meira af sér fyrir liðs-
heildina. Þetta er hlutur sem við
þurfum að laga og það er ósköp ein-
falt að við verðum að þjappa okkur
saman sem lið fyrir næsta leik. Við
spáum ekkert í það að ekkert lið hef-
ur náð að snúa við blaðinu í stöðunni
2:0 og næsti leikur er það eina sem
skiptir máli þessa stundina,“ sagði
Friðrik.
Keflvíkingar eru illviðráðanlegir
þessa dagana þar sem liðið hefur yfir
að ráða afar öflugum skyttum í bland
við mjög sterka hávaxna leikmenn.
Styrkur liðsins er því margþættur
og þar að auki hafa leikmenn liðsins
fundið auðveldustu leiðina að körf-
unni. Breiddin er meiri í liði Keflvík-
inga og þeir hafa notfært sér það –
og eru þessa stundina afar líklegir til
þess að hampa titlinum á fimmtu-
daginn í Grindavík.
Deildarmeistararnir verða allir að
leggja sitt af mörkum ef þeim á að
takast að snúa við blaðinu. Darrell
Lewis, Páll Axel Vilbergsson og
Guðmundur Bragason létu mest að
sér kveða í gær en Guðlaugur Eyj-
ólfsson og Helgi Jónas Guðfinnsson
áttu erfitt um vik gegn stífri vörn
heimamanna. Nökkvi Jónsson skil-
aði því sem af honum var óskað og
má ætla að flest þurfi að ganga
Grindvíkingum í hag ætli þeir sér
ekki að fara í sumarfrí seint á
fimmtudagskvöld á heimavelli.
„Skríðum inn í skel þegar á móti blæs,“ segir Friðrik Ingi þjálfari Grindavíkur
Keflvíkingar leika
við hvern sinn fingur
Víkurfréttir/Tobías
Lok, lok og læs. Helgi Jónas Guðfinnsson komst lítt áleiðis gegn vörn Keflvíkinga.
ÁÐUR en önnur rimma Keflvík-
inga og Grindvíkinga um Ís-
landsmeistaratitilinn í körfu-
knattleik hófst í gær mátti
greina að léttleikinn og gleðin
voru ríkjandi í herbúðum Kefl-
víkinga sem brostu af og til og
tóku þátt í þeirri stemmningu
sem hafði myndast hjá fjöl-
mörgum áhorfendum sem
mættu óvenju snemma að
þessu sinni. Aðra sögu var að
segja af leikmönnum Grindvík-
inga sem voru afar einbeittir
fyrir átökin en náðu ekki að
svara fyrir sig eftir tapið á
heimavelli. Keflvíkingar voru
undir í skamma stund í fyrri
hálfleik áður en þeir hristu af
sér slenið og litu aldrei um öxl
eftir það. Í hálfleik var staðan
60:48 og í leikslok var munurinn
11 stig, 113:102.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
KÖRFUKNATTLEIKUR
Keflavík – Grindavík 113:102
Íþróttahúsið í Keflavík, úrslit Íslandsmóts
karla, annar leikur, mánudaginn 7. apríl
2003.
Gangur leiksins: 4:0, 9:4, 11:9, 16:12, 18:14,
22:23, 26:25, 29:28, 35:31, 41:35, 47:40,
52:44, 60:48, 64:50, 71:52, 78:66, 84:70,
93:74, 96:79, 101:81, 109:91, 113:102.
Stig Keflavíkur: Damon Johnson 39, Ed-
mund Saunders 35, Magnús Gunnarsson
17, Gunnar Einarsson 11, Jón Nordal Haf-
steinsson 6, Sverrir Sverrisson 4,
Fráköst: 24 í vörn – 8 í sókn.
Stig Grindavíkur: Darrel Lewis 40, Páll
Axel Vilbergsson 19, Guðmundur Bragason
12, Guðlaugur Eyjólfsson 12, Helgi Jónas
Guðfinsson 12, Predrag Pramenko 4, Jó-
hann Ólafsson 3.
Fráköst: 21 í vörn – 19 í sókn.
Villur: Keflavík 20 – Grindavík 22.
Dómarar: Jón Bender og Sigmundur Már
Herbertsson, fínir.
Áhorfendur: Fullt hús, um 1.000.
Keflavík er yfir, 2:0, í einvíginu og getur
tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með
sigri í þriðja leik liðanna á fimmtudags-
kvöldið kl. 19.15 í Grindavík.
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Boston – Washington ........................... 98:99
Eftir framlengingu.
Philadelphia – Sacramento.................. 81:97
Indiana – Miami.................................... 90:69
Houston – Orlando ............................. 114:93
Seattle – Utah....................................... 82:80
Toronto – New Jersey ......................... 87:96
Detroit – San Antonio .......................... 83:89
Golden State – Denver....................... 106:99
Portland – Minnesota........................... 78:97
LA Lakers – Phoenix ....................... 115:113
Eftir framlengingu.
KNATTSPYRNA
Canela-bikarinn
Æfingamót í Canela á Spáni
A-riðill:
KR – FH .....................................................2:1
Veigar Páll Gunnarsson 22., Einar Þór
Daníelsson 36. – Allan Borgvardt 80.
Grindavík – Úrvalslið ÚÚ........................3:1
Jóhann R. Benediktsson 1., Ólafur Örn
Bjarnason, vítaspyrna, 42., Alfreð Jóhanns-
son 47. – Sölvi Daníelsson 53.
KR og Grindavík leika um efsta sæti rið-
ilsins á morgun og FH og Úrvalslið ÚÚ um
3. sætið.
Úrvalslið Úrvals-Útsýnar er áttunda lið-
ið í mótinu, skipað varamönnum úr hinum
sjö liðunum.
B-riðill:
Fylkir – ÍBV ............................................. 1:0
Ólafur Páll Snorrason 28.
ÍA – Afturelding .......................................2:4
Brynjólfur Bjarnason, Sturla Guðlaugsson
– Guðjón Sveinsson 2, Hjörtur Hjartarson,
Garðar Gunnlaugsson.
Fylkir og ÍA leika um efsta sæti riðilsins
á morgun og ÍBV og Afturelding um 3. sæt-
ið.
Deildabikar kvenna
Efri deild:
Valur 3 3 0 0 15:4 9
ÍBV 2 1 0 1 6:5 3
KR 2 1 0 1 6:9 3
Breiðablik 2 1 0 1 3:6 3
Stjarnan 3 1 0 2 4:8 3
Þór/KA/KS 2 0 0 2 2:4 0
Staðan var ekki rétt í blaðinu í gær og
leiðréttist hér með.
Reykjavíkurmót kvenna
Neðri deild:
Þróttur/Haukar-2 – ÍR ............................ 2:1
Lokastaðan:
FH 4 3 1 0 13:6 10
Fjölnir 4 2 1 1 10:8 7
Þrótt./Hauk.–2 4 2 1 1 7:7 7
HK/Víkingur 4 1 1 2 10:9 4
ÍR 4 0 0 4 4:14 0
FH er meistari í neðri deild.
England
Úrvalsdeild:
Fulham – Blackburn ................................0:4
- David Dunn vítaspyrna, 37., Hakan Sukur
42., 54., Damien Duff 53. – 14.017.
Staða efstu liða:
Portsmouth 40 25 11 4 84:38 86
Leicester 40 24 11 5 66:35 83
Sheff. Utd 40 20 10 10 63:44 70
Nottingham F. 39 19 11 9 73:40 68
Reading 40 21 4 15 50:40 67
1. deild:
Wimbledon – Sheffield United.................1:0
Svíþjóð
Malmö FF – Örebro..................................2:0
Halmstad – Sundsvall ...............................2:0
Hammarby – Elfsborg..............................3:0
HANDKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni karla, Essodeildin, 8 liða
úrslit, fyrstu leikir.
Ásvellir: Haukar – Fram ......................19.15
Hlíðarendi: Valur – FH.........................19.15
Austurberg: ÍR – Þór A. .......................19.15
KA-hús: KA – HK .................................19.15
Í KVÖLD