Morgunblaðið - 08.04.2003, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 53
SÍMAKLEFINN (Phone
Booth), spennutryllir með
Colin Farrell, fór beint í
fyrsta sæti bandaríska bíó-
listans, þegar talið hafði verið
upp úr peningakössum bíó-
anna á sunnudagskvöldið.
Myndin, sem fjallar um
náunga sem haldið er föngn-
um í símaklefa af leyniskyttu
sem fylgist með honum, hefur
verið í salti í heila fimm mán-
uðu eða allt síðan í nóvember.
Þá var skyndilega hætt við að
frumsýna hana vegna þess
hve söguþráðurinn þótti
óþægilega líkur fjöldamorð-
um leyniskyttu sem lék laus-
um hala Washington-borg og
nágrenni.
Aðrir leikarar í þessari
mynd Joels Schumachers eru
Forest Whitaker, Katie
Holmes og Kiefer Suther-
land, en Farrell hefur áður
leikið fyrir Schumacher í
myndinni Tigerland, sem
segja má að hafi komið þess-
um unga og efnilega Íra á
kvikmyndakortið.
Gagnrýnendur tala um myndina
sem kröftuga litla stúdíu, enda er
hún ekki lengri en 81 mínúta að
lengd, sem verður að teljast
óvenjustutt nú á tímum þegar þeir
í Hollywood virðast búnir að bíta í
sig að lengra þýði alltaf betra. Col-
in Farrell er líka sagður enn festa
sig í sessi sem einn öflugasti kvik-
myndaleikarinn í dag.
Símaklefinn átti ekki erfitt með
að næla í toppsætið því bíóaðsókn
var almennt heldur dræm um
helgina. Þannig snaraði önnur ný
mynd sér beint í annað sætið,
gamanmyndin Allt sem ég vil
(What a Girl Wants) sem fjallar
um 19 ára frísklega stelpu frá
Bandaríkjunum (sem fer til Eng-
lands til þess að reyna að kynnast
föður sínum betur en hann er
íhaldssamur og stífur pólitíkus,
leikinn af Colin Firth. Gert er ráð
fyrir að báðar myndirnar, Síma-
klefinn og Allt sem ég vil, verði
frumsýndar hérlendis 13. júní.
Á öðru plani (A Man Apart),
nýjustu mynd Vin Diesel, lýsir
gagnrýnandinn Dave Kehr hjá
New York Times sem hasarlausri
hasarmynd og virðist sem kollegar
hans séu honum sammála um það.
Þó náði myndin þriðja sætinu,
einkum vegna aðdráttarafls Dies-
els.
!
"#$%
"&$%
""$"
'$'
'$#
($)
#$*
#$)
)$+
)$%
"#$%
"&$%
""$"
&#$)
"""$)
&%$,
&%$%
"#&$&
*%$%
"+$%
Colin Farrell í aðalhlutverki toppmyndarinnar
Síðbúið símtal
skarpi@mbl.is
Colin Farrell fær lífshættulegt símtal í
Símaklefanum.
LEIKARINN Viggo Mortensen,
sem hlaut heimsfrægð fyrir leik
sinn í Hringadróttinssögu, var
staddur á landinu í liðinni viku.
Líkt og Aragorn er kappinn mikill
knapi og fór Viggo ásamt syni sín-
um, Henry Mortensen, tvisvar
sinnum á hestbak hjá Hestaleig-
unni í Laxnesi. Þeir héldu í tvo
tveggja klukkustunda útreiðartúra
um nágrenni Laxness, að sögn
Hauks Þórarinssonar hjá hesta-
leigunni, sem fór með feðgunum í
seinni túrinn.
Vaskaði upp sjálfur
„Hann er vanur knapi og hafði
gaman af. Þeir lentu í úrhellis-
slyddu í fyrra skiptið en skemmtu
sér vel. Þeir fengu sér kjötsúpu á
eftir og hann vaskaði meira að
segja sjálfur upp,“ segir Haukur
um alþýðlegheit Viggos.
Feðgunum líkuðu íslensku hest-
arnir vel. „Mér skilst að hann hafi
ekki prófað íslenska klára áður en
hann var vel sáttur,“ segir Hauk-
ur.
Sem dæmi um ást Viggos á
hestum þá óskaði hann þess að
Aragorn fengi að vera meira á
hestbaki í Hringadróttinssögu en í
fyrstu var ætlunin. Hann hafði
ennfremur hest sinn í myndinni
ávallt nærri og fór á hestbak þeg-
ar ekki var verið að mynda til að
styrkja samband manns og hests.
Mortensen-feðgarnir fóru af
landi brott í gær en þess má geta
að hinn 15 ára Henry hefur leikið í
kvikmyndum eins og pabbinn.
Hann lék m.a. son Viggos á hvíta
tjaldinu í myndinni Blóðrauð sjáv-
arföll (Crimson Tide) frá árinu
1995.
Haukur er mikill aðdáandi
Hringadróttinssögu, bæði bókanna
og myndanna, og var því ánægður
með heimsóknina. „Þetta er mikill
heiður.“
Viggo Mortensen skellti sér á hestbak
Viggo Mortensen með Kristján Ara, son Írisar og Hauks, í fanginu.
Fékk sér kjötsúpu
Henry Mortensen, hestamaðurinn og leikarinn Viggo Mortensen, Íris
Kristjánsdóttir, Haukur Þórarinsson og sonur þeirra, Júlíus Hauksson.
Sýnd kl. 4 og 6. / Sýnd kl. 6.
Áður en þú deyrð,
færðu að sjá
Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 8 og 10.Sýnd kl. 4. / Sýnd kl. 4.
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
SV MBL
Radíó X
SG DV
FRÁ LEIKSTJÓRA
“ROMEO MUST DIE”
OG “EXIT WOUNDS”
INNIHELDUR
FRÁBÆRA TÓNLIST
MEÐ DMX, EMINEM
OG 50 CENT
Sýnd kl. 6.
SG DV
HL MBL
Sýnd kl. 4. / Sýnd kl. 4.
Frábær
skemmtun fyrir
alla fjölskylduna.
Með hinum rauðhærða
Rupert Grint sem
leikur Ron Weasley í
HARRY POTTER
myndunum
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. / kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i.16. / Sýnd kl. 10.
Kvikmyndir.is
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 OG 10 B.I. 16.
KEFLAVÍKÁLFABAKKI / AKUREYRIÁLFABAKKI / KRINGLAN ÁLFABAKKIÁLFABAKKI
Sjóðheit og mögnuð stórmynd
með frábærum tæknibrellum.
Frá leikstjóranum Jon Amiel.
HILARY SWANK
AARON ECKHART
DELROY LINDO
STANLEY TUCCI
Íslenskt tal Tilboð 500 kr.
sv mbl
Kvikmyndir.isi i i
Sýnd kl. 6 og 8. / Sýnd kl. 8.
AKUREYRI / KEFLAVÍK
SV MBL
RADIO X
KVIKMYNDIR.IS
ÁLFABAKKI / KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8, og10. B.i. 12. / Sýnd kl. 5.45, 8.30 og 10.10. B.i. 12. / Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 12.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
05.04. 2003
2
5 5 5 7 4
3 2 6 0 2
4 10 12 15
39
02.04. 2003
7 8 22
27 31 45
18 45
Tvöfaldur 1. vinningur
í næstu viku
1. vinningur var
seldur í Noregi
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
4539-8500-0008-6066
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
Iðnó Tónleikar
gegn stríði. Fram
koma Vígspá,
Dys, I Adapt,
Kimono, Elín
Helena, Lunch-
box, Innvortis og
Hrafnaþing. Að-
gangseyrir 500
kr. Tónleikarnir hefjast klukkan 18
og standa til 22.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Kimono kynnir
nýtt efni í kvöld.