Morgunblaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 130. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Lifi kvik-
myndirnar!
Kvikmyndahátíðin í Cannes
hafin í 56. sinn Fólk 54
Nemendaleikhúsið frumsýnir
Lorca-leikgerð Listir 27
Ítölsk lið í
úrslitum
Juventus og AC Milan glíma um
Evrópubikarinn Íþróttir 50
SAMKVÆMT drögum að nátt-
úruverndaráætlun til ársins 2008,
sem Umhverfisstofnun hefur sent
hagsmunaaðilum til umsagnar,
eru gerðar tillögur um þrjá nýja
þjóðgarða og 77 friðlýst svæði,
þar af átta sem ekki hafa verið á
náttúruminjaskrá. Tillögur að nýj-
um þjóðgörðum ná til Vatnajök-
uls, Heklu og nágrennis og Látra-
bjargs og Rauðasands. Einnig
leggur stofnunin til að friðland
Þjórsárvera verði stækkað veru-
lega sem og þjóðgarðarnir á Þing-
völlum og í Jökulsárgljúfrum.
Áætlunin er sú fyrsta sem unn-
in er samkvæmt lögum um nátt-
úruvernd frá árinu 1999. Skal um-
hverfisráðherra láta vinna slíka
áætlun fyrir allt landið á fimm ára
fresti og leggja hana fyrir Alþingi.
Þar eiga að vera sem gleggstar
upplýsingar um náttúruminjar
sem ástæða þykir til að friðlýsa.
Lagt er til að sjö svæði sem
liggja að Vatnajökli verði samein-
uð fyrirhuguðum þjóðgarði, þeirra
á meðal eru Skeiðarársandur
sunnan megin og Kverkfjöll og
Krepputunga norðan jökulsins.
Þau átta svæði sem lagt er til að
verði friðlýst, en hafa ekki áður
verið á náttúruminjaskrá, eru
Rauðimelur á Reykjanesi, Slétta-
fellshverir á Arnarvatnsheiði,
birkiskógur í Fögruhlíð í Skaga-
firði, Háls-, Vagla-, Lunds- og
Þórðarskógur í Þingeyjarsveit,
Hofsá í Vopnafjarðarhreppi, Eyj-
ólfsstaðaskógur á A-Héraði, Aust-
urskógar við Hornafjörð og Skeið-
arársandur.
Nýir þjóðgarðar við Heklu,
Látrabjarg og Vatnajökul
!!
" # $ Fjölmargar tillögur í drögum
að nýrri náttúruverndaráætlun
Tillögur um/6
YFIRMAÐUR herráðs rússneska flotans
segir að orrustuþotur Varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli, sem sendar voru til
móts við tvær rússneskar herflugvélar ná-
lægt Íslandi föstudaginn 25. apríl síðastlið-
inn, hafi brotið alþjóðalög með glæfralegu
flugi og farið alltof nálægt „Björnunum“.
„Hópur bandarískra orrustuflugvéla
nálgaðist flugvélar okkar í óleyfilegri fjar-
lægð og flaug glæfralega,“ er haft eftir
Viktor Kravtsjenkó flotaforingja í frétta-
skeyti Itar-Tass-fréttastofunnar.
Hann segir alþjóðalög ekki leyfa minni
fjarlægð en 200 metra á milli flugvéla.
„Enginn mældi nákvæmlega hversu nálægt
bandarísku flugvélarnar voru komnar okk-
ar vélum, en fjarlægðin var að minnsta
kosti 100 metrum minni en lög leyfa og það
er sannleikur,“ segir Kravtsjenkó.
Má ekki ógna öryggi véla og áhafna
„Bandaríkjamenn senda flugvélar til að
fylgjast með vélum okkar í hvert skipti sem
við förum í flug á Norðursvæðinu og yfir
Kyrrahafi og eiga fullan rétt á því,“ segir
Kravtsjenkó. „Það mikilvæga er að enginn
má ógna öryggi flugvéla okkar og áhafna.“
Kravtsjenkó segir að „Birnirnir“ hafi
verið í æfingaflugi yfir N-Atlantshafi til að
líkja eftir aðstæðum í bardaga. Vélarnar
hafi ekki rofið lofthelgi Íslands, sem nær 12
sjómílur frá ströndum landsins, heldur
flogið yfir alþjóðlegu hafsvæði. Í Morgun-
blaðinu hefur komið fram að flugvélarnar
fóru inn á loftvarnasvæðið, sem nær u.þ.b.
150 sjómílur út fyrir landið. Íslenzk stjórn-
völd áskilja sér rétt til að fá að vita deili á
flugvélum, sem eru á ferð á þessu svæði.
Ljósmynd/Varnarliðið
Ein þriggja F-15-véla Varnarliðsins ásamt
öðrum „Birninum“ 25. apríl sl.
„Birnir“
í hættu að
mati Rússa
Segja varnarliðsþotur
hafa flogið of nálægt
BANDARÍKJAMENN vöruðu í
gær við því að hryðjuverkamenn
sem tengdust al-Qaeda-samtök-
unum gætu verið að undirbúa
árásir á Bandaríkjamenn í Malas-
íu. Einkum væri hættan mikil í
Sabah-héraði en þar væru liðs-
menn hreyfingar, er nefnist
Jemaah Islamiya, mjög virkir.
Talið er að alls 14 manns hafi
látið lífið í gærmorgun þegar
tvær konur sprengdu sprengjur
sem þær báru innanklæða meðan
á trúarsamkomu stóð í þorpi í
Tétsníu. Að minnsta kosti 145
manns særðust í sprengingunni,
þar af 45 lífshættulega. Þetta er
önnur sjálfsmorðsárásin sem gerð
hefur verið í Tétsníu á þremur
dögum en á mánudag féllu 59
manns skammt frá þorpinu
Znamenskoje. Rússneskir emb-
ættismenn sögðust í gær ekki úti-
loka að menn tengdir al-Qaeda
hefðu staðið að baki tilræðunum í
Tétsníu.
Um 15 þúsund íslamskir píla-
grímar sóttu samkomuna í þorp-
inu Ílaskhan-Júrt um 25 km suð-
austur af Grosní, höfuðborg
Tétsníu, í gær. Verið var að minn-
ast nokkurra virtra trúarleiðtoga
sem fæddust í þorpinu. Svo virð-
ist sem árásinni hafi verið beint
gegn Akhmad Kadyrov, yfir-
manni heimastjórnar Tétsníu,
sem var viðstaddur athöfnina en
Kadyrov slapp ómeiddur. Fjórir
lífverðir hans féllu.
Sprengingin varð skammt frá
mosku í þorpinu. Rússneska Int-
erfax-fréttastofan sagði að kona
að nafni Shakhida Bajmúradova
hefði hlaupið að hópi fólks við
moskuna og sprengt sig þegar
verið var að lesa bænir. Aðrir
heimildarmenn sögðu tilræðis-
mennina hafa verið tvær konur
og hefðu þær þóst vera blaða-
menn. Margir þeirra sem létu líf-
ið voru aldraðir.
Vara við tilræðum
al-Qaeda í Malasíu
Talið að 14 hafi
fallið í sjálfsmorðs-
árás í Tétsníu í gær
Washington, Moskvu. AFP.
Morgunblaðið/Þorkell
SIGRÚN Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Rauða kross Íslands,
heilsar sjúklingi á geðsjúkrahúsi í
Bagdad en hún er nú stödd þar til
að kynna sér hvernig hjálparstarfið
gengur. Stolið hefur verið öllu
steini léttara úr húsinu en þar voru
fyrir stríðið hátt í 1.500 sjúklingar.
Margra þeirra er nú saknað í upp-
lausninni sem tók við eftir hrun
stjórnar Saddams Husseins. Alþjóða
Rauði krossinn hyggst verja miklu
fé í endurreisn stofnunarinnar.
Sigrún segir að hernámsliði
Bandaríkjamanna hafi ekki tekist
að tryggja öryggi borgaranna.
„Fólk er almennt mjög hrætt. Það
vill að öryggi landsmanna verði
tryggt og að hjólin fari aftur að snú-
ast,“ sagði Sigrún.
Enn
ótryggt
ástand
Þúsundir/12
Forgangsmál/20
CARLOS Menem, fyrr-
verandi forseti Argent-
ínu, hefur ákveðið að
bjóða sig ekki fram í
seinni umferð forseta-
kosninganna á sunnu-
dag, að sögn breska út-
varpsins, BBC, í gær.
Keppinautur hans,
Nestor Kirchner, verður
því sjálfkrafa forseti.
Kannanir hafa sýnt að Kirchner njóti
mun meiri stuðnings en Menem. Hann
sagði í sjónvarpsviðtali að aðstæður væru
ekki hentugar fyrir sig til að taka þátt í
seinni umferðinni. Kirchner sakaði Menem
um að koma með ákvörðuninni í veg fyrir að
kjósendur gætu sýnt hug sinn.
Menem dreg-
ur sig í hlé
Carlos Menem
♦ ♦ ♦
Leikarar á
krossgötum