Morgunblaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 49 FÓLK  ÁSGEIR Sigurvinsson og Logi Ólafsson, sem hafa tekið við þjálfun landsliðsins í knattspyrnu, halda út fyrir landsteinana um helgina. Þeir fara til Noregs og Belgíu til að fylgj- ast með íslenskum leikmönnum í leik.  ÞEIR hafa haft samband við Eyj- ólf Sverrisson, fyrrverandi fyrirliða, sem hefur lítið leikið með Herthu Berlín í Þýskalandi vegna meiðsla í vetur – tvo leiki í byrjunarliði og komið tvisvar inná sem varamaður, til að kanna hvort hann sé tilbúinn að leika gegn Færeyingum á Laugar- dalsvellinum 7. júní.  MARGT þykir benda til þess að markahrókurinn Kevin Phillips verði seldur til Middlesbrough frá Sunder- land. Vitað er að Tottenham, Leeds, Aston Villa, Portsmouth, Manchest- er City, Rangers og Celtic hafa einn- ig rennt hýru auga til Phillips sem skoraði 30 mörk á leiktíðinni.  EKKI er langt síðan Phillips var verðlagður á 12 millj. punda, 1,4 milljarða króna, en nú er talið að Sunderland geti selt hann fyrir um þriðjung þeirrar upphæðar.  SAMNINGAVIÐRÆÐUR á milli Leeds og AS Roma um kaup ítalska liðsins á Oliver Dacourt eru langt komnar og lýkur nær örugglega með samkomulagi fyrir helgina. Roma greiðir 4,2 millj. punda, um 495 millj. króna, fyrir Dacourt sem hefur verið í leigu hjá félaginu síðan í janúar.  RUDI Völler, landsliðsþjálfari Þjóðverja í knattspyrnu, afhendir fyrirliða Bayern Mücnhen meistara- skjöldinn eftir leik Bayern og Stuttgart á Ólympíuleikvanginum í München á laugardaginn. Þetta er í átjánda sinn sem Bayern München verður þýskur meistari í knatt- spyrnu.  EKKI kemur til greina að Teddy Sheringham leiki með Millwall á næstu leiktíð, að sögn umboðsmanns hans, en forvígismenn félagsins hafa lýst yfir áhuga á að tryggja sér kapp- ann sem er laus mála hjá Tottenham.  CHRISTOPH Daum segist ekki vera á leið í þýsku knattspyrnuna á nýjan leik, en vangaveltur hafa verið í þýskum fjölmiðlum síðustu daga um að Daum verði næsti þjálfari Schalke. Daum þjálfar nú austur- ríska meistaraliðið Austria Vín og segist ætla að halda því áfram. Þrjú ár eru liðin síðan Daum var sagt upp sem þjálfara Bayer Leverkusen eftir að upp komst að hann var kókaín- fíkill. Daum fór síðar í meðferð vegna fíknar sinnar en honum gekk illa að fá vinnu um tíma á eftir.  JOE Cole, hinn ungi fyrirliði West Ham, var í gær kallaður inn í enska landsliðshópinn. Hann kemur fyrir Kieron Dyer frá Newcastle sem get- ur ekki leikið með í þeim þremur landsleikjum sem fram undan eru hjá Englendingum vegna meiðsla. Cole átti að spila með enska 21 árs lands- liðinu í vor en hefur nú verið hækk- aður í tign. CARLOS Bilardo, þjálfari argent- ínska knattspyrnufélagsins Estud- iantes, vill fá Diego Maradona til sín sem aðstoðarþjálfara. Bilardo, sem gerði Estudiantes að argent- ínskum meisturum fyrir 21 ári, sneri aftur til félagsins fyrir tveim- ur vikum og hefur rétt hlut þess eftir magurt gengi með því að krækja í fjögur stig í tveimur leikj- um. Bilardo stýrði argentínska landsliðinu um árabil og það lék tvo úrslitaleiki í HM undir hans stjórn, með Maradona sem fyrirliða. Bilardo og Maradona störfuðu saman hjá Boca Juniors árið 1996 en þá var Maradona fyrirliði liðsins undir stjórn Bilardo. Eftir það lagði hann skóna á hilluna og hefur síðan meira og minna barist við eit- urlyfjafíkn sína en hann hefur að- allega dvalið á Kúbu þar sem hann hefur gengist undir meðferð. „Það verður ætíð pláss fyrir Diego hjá mér. Ég sagði um leið og ég tók við liðinu að Diego væri vel- kominn ef hann kærði sig um,“ sagði Bilardo í gær. Bilardo vill fá Maradona STEFÁN Logi Magnússon mark- vörður er genginn til liðs við 1. deildarlið Víkings í knattspyrnu. Stefán Logi, sem er 22 ára gamall, lék með Víkingi og Fram í yngri flokkunum og spilaði með yngri landsliðunum. Hann var í unglinga- liði Bayern München í Þýskalandi um skeið en fór þaðan til Öster í Svíþjóð, og var í rúm tvö ár hjá Far- um í Danmörku. Þaðan fór hann til B1909 í janúar en hafði skamma viðdvöl, fór til Englands og var hjá enska 1. deildarliðinu Bradford City síðari part vetrar. Þar meidd- ist hann í fyrsta leik með varaliðinu og kom ekkert við sögu hjá aðalliði félagsins. Stefán Logi til Víkings LITHÁÍSKI markvörðurinn Egid- ijus Petkivicius er genginn til liðs við Framara. Hann hefur leikið með KA-mönnum undanfarin tvö ár en var þar áður í herbúðum Vals og FH. Petkivicius er snjall markvörður, með mikla og góða reynslu sem verður Frömurum góður liðsstyrkur en að sama skapi er brotthvarf hans mikil blóðtaka fyrir KA-liðið. Sebastian á Selfoss? Sebastian Alexandersson og Magnús Erlendsson hafa varið mark Safamýrarliðsins und- anfarin ár en horfur eru á að annar eða jafnvel þeir báðir yf- irgefi liðið í sumar. Magnús hyggur á nám í Danmörku í haust og bíður eftir svari frá skólanum en Sebastian á í við- ræðum við Selfyssinga um að taka að sér þjálfun liðsins. Framarar reikna með að halda öllum öðrum leikmönnum sem léku með liðinu á nýafstöðnu tímabili, Þeir hafa bætt tveimur nýjum leikmönnum í lið sitt fyrir átökin næsta vetur, Petkivicius og Birni Friðrikssyni línumanni, sem kom frá Stjörnunni, og Framarar útiloka ekki að frekari liðsstyrkur sé á leiðinni. Petkivicius til liðs við Framara RÓBERT Gunnarsson, landsliðs- maður í handknattleik, hefur gert nýjan samning við danska úrvalsdeildarfélagið Århus GF sem gildir til tveggja ára. Róbert fór til danska liðsins fyrir síðasta tímabil, frá Fram, og lék stórt hlutverk með því í vetur ásamt Tjörva Ólafssyni, fyrrverandi leikmanni Hauka. Århus GF hafn- aði í fimmta sæti deildarinnar og missti af því í síðustu umferð að komast í fjögurra liða úrslitin um danska meistaratitilinn. Erik Veje Rasmussen, lands- liðsmaður Dana um árabil, hefur verið ráðinn þjálfari Århus GF fyrir næsta tímabil en hann hefur síðustu árin stjórnað liði Flens- burg í Þýskalandi með góðum ár- angri. Fast sæti í landsliðinu Róbert sagði við dagblaðið År- hus Stiftstidende í gær að hann vonaðist til þess að góð frammi- staða sín með liðinu tryggði sér fast sæti í íslenska landsliðinu en hann er á heimleið um helgina til að taka þátt í landsliðsæfingum. Það eru 58 ár síðan kona tókþátt í atvinnumannamóti fyrir karla og segir Singh að stórfyr- irtæki sem standa á baki við Sör- enstam græði mest á þátttöku hennar. „Hvað ætlar hún að sanna? Þetta er fáránlegt. Hún er besta konan sem hefur atvinnu af að leika golf og ég legg áherslu á að hún er kona! Það er mótaröð fyrir karlmenn og það er önnur mótaröð fyrir konur. Hún er að taka sæti frá öðrum keppendum sem hefðu glaðir tekið þátt í þessu móti. Ég vona að hún komist ekki í gegnum niðurskurðinn þar sem hún á ekki heima á mótaröð fyrir karlmenn,“ segir Singh. Forráðamenn PGA-mótaraðar- innar hafa brugðið á það ráð að hafa nafn Singh ekki í hattinum þegar dregið verður í ráshópa og er engin hætta á að Sörenstam endi í ráshópi með Singh. Nick Price, sem sigraði á Colon- ial-mótinu fyrir ári segir að þátt- taka Sörenstam sé í raun auglýsing fyrir hana og þá aðila sem standa á bak við hana. „Hún hefði átt að fara í gegnum úrtökumót líkt og aðrir kylfingar,“ segir Price. Scott Hoch, sem lék eitt sinn með Sörenstam á móti þar sem keppt var í tveggja manna liðum sem skipuð voru karli og konu, segir að hann vilji að Sörenstam gangi vel á mótinu í Colonial. „Þá geta menn séð hve mikill munur er á mótaröð atvinnukvenna og at- vinnukarla,“ segir Hoch. Singh er sá fyrsti sem hefur látið í ljós skoðun sína á þátttöku Sören- stam og til viðmiðunar tekur hann Lauru Davies sem tók þátt í móti sem fram fór í fjórum mismunandi borgum í Asíu árið 1998. Davies var 39 höggum á eftir Singh sem sigraði á mótinu. „Laura slær langt og er meðal þeirra bestu. Það er mikill munur á körlum og konum í golfinu og ég tel að það sé rangt að leyfa Sör- enstam að vera með. Við gætum al- veg eins látið Williams-systurnar keppa á mótaröð atvinnumanna í tennis. Allir vita að þær eru bestar í röðum kvenna en þær eiga lítinn möguleika gegn körlum þrátt fyrir að þær séu gríðarlega sterkar.“ Sörenstam sigraði á 13 atvinnu- mannamótum í fyrra sem hefur ekki gerst í 40 ár en fyrir tveimur árum varð hún fyrst allra kvenna til þess að leika 18 holur á 59 högg- um. Reuters Sænska golfstúlkan Annika Sörenstam fagnar, eftir að hafa sett niður 30 feta pútt. Reuters Vijay Singh frá Fídjíeyjum horfir á eftir golfboltanum eftir upphafshögg. Singh lét Sörenstam hafa það óþvegið KYLFINGURINN Vijay Singh liggur ekki á skoðun sinni á þátttöku sænsku konunnar Annika Sörenstam á PGA- mótinu sem fram fer á Colon- ial-vellinum í næstu viku. Singh segir að Sörenstam hafi ekkert að gera í keppni á at- vinnumannaröð fyrir karla og hefur hótað því að taka ekki þátt verði hann í ráshóp með Sörenstam. Róbert samdi við Århus GF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.