Morgunblaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 23
ÞESSIR skemmtilegu
karlar kíkja upp
fyrir hljóðmön sem
skýlir húsum við
Seyðisfjarðarveg á
Egilsstöðum. Ein-
hverjir hug-
myndaríkir íbúar
hafa komið þeim fyr-
ir til að gleðja öku-
menn sem fram hjá
fara. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Kátir
karlar á
hljóðmön
Egilsstaðir
KNATTSPYRNUDEILD Víkings í
Ólafsvík og Bónus gerðu með sér
styrktarsamning keppnistímabilið
2003 og er Bónus aðalstyrktaraðili
félagsins. Liðið mun leika í búning-
um í sumar með auglýsingu frá Bón-
us eins og keppnistímabilið 2002.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, lék með Vík-
ingi í fjölda ára, og var einn sterkasti
varnarmaður liðsins. Er mikill hugur
í knattspyrnumönnum Víkings á
komandi keppnistímabili, og hefur
Esjub Purisevic verið ráðinn þjálfari
liðsins, en hann hefur þjálfað meist-
aradeild Vals sl. tvö ár. Fyrirhugað
er að úrvalsdeildarlið Vals komi til
Ólafsvíkur í byrjun maí í æfingar-
búðir, og spili leik við heimamenn.
Morgunblaðið/Alfons
Á myndinni má sjá Guðmund Marteinsson, framkvæmdastjóra Bónuss, til
hægri, og Jónas Gest Jónasson, formann meistaraflokksráðs Víkings Ó.,
undirrita samninginn í íþróttahúsi Ólafsvíkur.
Bónus
styrkir
Víking
Ólafsvík