Morgunblaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 16
ERLENT
16 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HÉR ríkir mjög sérkenni-legt ástand. Öll innristarfsemi landsins erlömuð sem felur í sér að
skortur er á eldsneyti, engir fjöl-
miðlar eru starfandi, verslanir eru
opnar að mjög takmörkuðu leyti og
þrátt fyrir að fólk reyni almennt að
sækja vinnu fær það engin laun.
Auk þess eru ruslahaugar á víð og
dreif um borgina og skolplagnir
víða í ólagi.“
Þetta er að sögn Sigrúnar Árna-
dóttur, framkvæmdastjóra Rauða
kross Íslands, það ástand sem
íraskir borgarar og Rauði krossinn
vilja helst bæta úr í Bagdad.
Almenningur óttasleginn
Sigrún segir þó meginvanda
bandamanna og hjálparstarfs-
manna felast í því að tryggja öryggi
borgaranna og koma á skipulagi,
lögum og reglu í landinu. „Það hef-
ur ekki tekist að tryggja öryggi
hins almenna borgara og það haml-
ar hjálparstarfi og hefur mjög lam-
andi áhrif á líf fólks.“
Hún segir að strax eftir að stríð-
inu lauk hafi verið farið ránshendi
um allt enda voru þá öll fangelsi
opnuð og fangar gengu lausir. „Allt
sem hægt var að taka var tekið,
meira að segja rafmagnslagnir og
innstungur. Það er sama hvert
maður kemur, alls staðar blasir
sami vandinn við og þrátt fyrir að
reynt hafi verið að fjölga í lögreglu-
liði Bagdad-borgar hefur það haft
lítið að segja til að koma í veg fyrir
það stjórnleysi sem hér ríkir. Fólk
er almennt mjög hrætt. Það vill að
öryggi landsmanna verði tryggt og
að hjólin fari aftur að snúast.“
Hörmulegt ástand á eina
geðsjúkrahúsi borgarinnar
Sigrún kynnti sér ástandið á eina
starfandi geðsjúkrahúsinu í Bagd-
ad sl. þriðjudag en alþjóða Rauði
krossinn hefur ráðstafað veruleg-
um fjármunum í fyrirhugaða
enduruppbyggingu þess. Margir
ósakhæfir afbrotamenn sluppu af
sjúkrahúsinu þegar ránsflokkar
gerðu atlögu að því og stálu öllu
steini léttara að stríðinu loknu.
„Ættingjar margra sjúklinganna
sóttu þá á sjúkrahúsið áður en
átökin hófust og hafa þeir sjúkling-
ar nú flestir skilað sér til baka
þrátt fyrir að aðbúnaður sé bágur.
Margra sjúklinga er saknað og
stjórnendur sjúkrahússins óttast að
allt að 60% þeirra sem áður nutu
aðhlynningar á sjúkrahúsinu séu
nú annað hvort í reiðileysi á göt-
unum eða látnir.“
Sigrún hefur eftir starfsfólki
geðsjúkrahússins að erfitt sé um
vik að grennslast fyrir um afdrif
þessara sjúklinga vegna þess að
símkerfi Íraks er með öllu óvirkt
auk þess sem mikið af gögnum
glataðist í átökunum.
Aðspurð segir Sigrún ekki bera á
matvælaskorti í Írak en Rauði
krossinn hafi þó aðstoðað við dreif-
ingu matar á sjúkrahús, bæði til
sjúklinga og starfsmanna. „Það eru
fyrst og fremst öryggismálin sem
eru í ólestri hérna og úr því þarf að
bæta,“ segir hún og bætir við að
mikill fjöldi vopna hafi fundist um
alla borg og hernámsliðið safni
þeim saman og fargi.
Sigrún tekur fram að á fundi full-
trúa þrjátíu og þriggja landsfélaga
Rauða krossins sem haldinn var sl.
þriðjudag hafi verið samþykkt
stuðningsyfirlýsing við það hjálpar-
starf sem fram undan er í Írak.
Að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá alþjóðasamtökum
Rauða krossins um niðurstöðu
fundarins var jafnframt samþykkt
að lýsa yfir fullri samstöðu með
írösku þjóðinni. Þá er lögð áhersla
á að í uppbyggingarstarfi því sem
framundan er skuli grunnþarfir
írösku þjóðarinnar vera forgangs-
atriði. Auk þess er lögð áhersla á
að ábyrgð á uppbyggingarstarfinu
liggi fyrst og fremst hjá hernáms-
veldinu.
Morgunblaðið/Þorkell
Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, kynnti sér
ástandið í eina starfandi geðsjúkrahúsinu í Bagdad. Húsið er þó vart starf-
hæft eftir að öllu steini léttara var stolið þaðan í stríðinu. Fyrir átökin voru
þar um 1.500 sjúklingar. Óttast er að margir þeirra séu á vergangi eða látnir.
Kona afgreiðir flóttafólk í lyfjabúð í flóttamannabúðum fyrir Palestínumenn í írösku höfuðborginni.
Sjálfboðaliðar frá Rauða hálfmánanum í Írak reyna að hafa uppi á fórnar-
lömbum stríðsátakanna í landinu, og stundum eru líkum fórnarlambanna
teknar nýjar grafir eftir að kennsl hafa verið borin á þau.
Starfsmenn Rauða hálfmánans og Rauða krossins aðstoða Íraka í Bagdad
við að hringja í ættingja erlendis. Margir hafa enn ekki komið boðum til
eða heyrt frá ættingjum sínum í landinu þar sem allt símkerfi er lamað.
Biðröð er eftir aðgangi að símanum, en á götunum eru menn sem veita
sömu þjónustu en taka 50 dali á mínútuna. Margir hafa alls ekki ráð á því.
„Forgangsmál
að tryggja öryggi
borgaranna“
Samkvæmt Genfar-
sáttmálanum er það
hlutverk hernaðar-
aðila að tryggja ör-
yggi borgara að loknu
stríði. Það hefur að
mati Sigrúnar Árna-
dóttur, framkvæmda-
stjóra Rauða kross Ís-
lands, sem er stödd í
Bagdad, ekki gengið
eftir. Þorkell Þorkels-
son, ljósmyndari
Morgunblaðsins, er
einnig staddur í borg-
inni á vegum Rauða
krossins.