Morgunblaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 48
ÍÞRÓTTIR
48 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Bláa Lóns
mótið
Sunnudaginn 18. maí
Höggleikur með/án forgj., hámarksforgj. karla 24, konur 28.
Keppnisgjald kr. 3.000
Ræst út frá kl. 8-15,
skráning á www.golf.is og í síma 421-4100.
Verðlaun
1. sæti m. forgj. Flugfarseðill fyrir tvo til Evrópu með Icelandair og
Dekurdagur í Bláa lóninu
2. sæti m. forgj. Flugfarseðill fyrir einn til Evrópu með Icelandair og
Dekurdagur í Bláa lóninu
3.-5. sæti m. forgj. Vöruúttektir og Dekurdagur í Bláa lóninu
1. sæti án forgj. Flugfarseðill fyrir tvo til Evrópu með Icelandair og
Dekurdagur í Bláa lóninu
2. sæti án forgj. Flugfarseðill fyrir einn til Evrópu með Icelandair.
Dekurdagur í Bláa lóninu
3. sæti án forgj. Vöruúttekt og Dekurdagur í Bláa lóninu
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins = Dekurdagur í Bláa lóninu
Allir keppendur fá teiggjafir frá Bláa lóninu
EIÐUR Smári Guðjohnsen segir að
Chelsea hafi burði til að hafna í einu
af þremur efstu sætum ensku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu næsta
vetur, ef félagið hafnar tilboðum í
sína bestu leikmenn í sumar. Eiður
sagði við netmiðilinn Soccernet í
gær að ef hópurinn héldist saman,
yrði jafnvel styrktur, og nokkrir
leikmanna spiluðu betur en í vetur,
væri allt hægt. Chelsea hafnaði í
fjórða sæti á nýliðnu tímabili og fer
því í úrslitaumferð um sæti í Meist-
aradeildinni næsta haust.
„Nú þurfum við að byrja á því að
tryggja okkur sæti í sjálfri Meist-
aradeildinni, og í framhaldi af því að
setja stefnuna á toppinn. Við eigum
að geta verið í hópi þriggja efstu
næstu tvö árin, takist okkur að ná
aðeins meiri stöðugleika í liðið,“
sagði Eiður Smári.
Forráðamenn Chelsea biðu með
allar viðræður við leikmenn þar til
fyrir lægi hvort félagið næði fjórða
sætinu. Takist Chelsea að komast
inn í sjálfa Meistaradeildina er talið
að hagnaður af því verði um 1,1
milljarður króna. Eiður Smári hefur
við og við verið orðaður við sölu frá
félaginu, sem og William Gallas og
John Terry. Reiknað er með að
Gianfranco Zola haldi áfram en helst
er talið að Jody Morris sé á förum.
Eiður Smári vill
stefna á toppinn
ÚT er komin hér á landi bókin
(kilja) Ég er hann Diego, sem er
sjálfsævisaga argentínska knatt-
spyrnumannsins Diego Armando
Maradona. Bókin var gefin út á
Spáni árið 2000, en Ingólfur Pét-
ursson þýddi hana á íslensku og
gefur hana út að eigin frumkvæði.
Bókin er komin í dreifingu í versl-
anir en hún hefur verið þýdd á yfir
20 tungumál.
„Bókin fjallar um líf Maradona
frá því hann man eftir sér og endar
þegar hann er kominn í meðferð
vegna fíkniefnaneyslu á Kúbu.
Maradona er litrík persóna, hann
hefur frá afar mörgu að segja á
skrautlegum ferli sínum og hlífir
engum í skrifum sínum. Maradona
er vafalaust í hópi eftirminnileg-
ustu knattspyrnumanna fyrr og síð-
ar og óhætt er að segja að hann
komi víða við í þessari bók,“ sagði
Ingólfur Pétursson (sjá mynd) við
Morgunblaðið.
Ingólfur segir að Maradona
greini á skemmtilegan hátt frá því
þegar hann ákvað að yfirgefa risa-
félag á Spáni til þess að ganga til
liðs við lítið félag á Ítalíu og svo
rekur hann feril sinn með landsliði
Argentínu.
83 myndir prýða bókina og segir
Ingólfur að hún sé mjög hentug fyr-
ir fólk að taka með sér í sumarfríið
enda létt og þannig bundin að auð-
velt er að ferðast með hana.
„Yngri kynslóðin þekkir kannski
ekki alveg Maradona en ég hef fulla
trú á að bókin seljist vel. Hann er
goðsögn og líf hans utan vallar sem
innan hefur verið ansi skrautlegt.
Hann var einn af mínum uppáhalds-
leikmönnum og ég veit um marga
sem héldu mikið upp á hann.“
Bókin er 320 blaðsíður.
Sjálfsævisaga Maradona
Morgunblaðið/Kristinn
David Moyes hjá Everton hefur verið kjörinn knatt-spyrnustjóri ársins í Englandi af samtökum knatt-
spyrnustjóra. Moyes, sem er 39 ára gamall Skoti, er
yngsti stjórinn í úrvalsdeildinni en undir hans stjórn reif
Everton sig upp úr áralangri fallbaráttu, hafnaði í 7. sæt-
inu í vetur og var hársbreidd frá því að vinna sér sæti í
UEFA-bikarnum.
Moyes er tengdur Íslandi en faðir hans, Kenny Moyes,
hefur um langt árabil staðið fyrir blómlegum samskipt-
um milli íslenskra og skoskra félaga og var á sínum tíma
heiðraður af Knattspyrnusambandi Íslands.
Harry Redknapp hjá Portsmouth var valinn stjóri árs-
ins í 1. deild en undir hans stjórn vann liðið sér sæti í
efstu deild í fyrsta skipti í fjórtán ár. Paul Jewell hjá
Wigan var útnefndur í 2. deildinni en lið hans vann yf-
irburðasigur þar, náði 100 stigum og spilar í fyrsta skipti
í 1. deild næsta vetur. Þá var fyrrum varnarjaxl Stoke
City, Denis Smith, útnefndur í 3. deildinni en lið hans,
Wrexham, vann átta síðustu leikina og komst þannig upp
í 2. deild.
Alex Ferguson hjá Manchester United var heiðraður
sem knattspyrnustjóri fyrsta áratugarins í úrvalsdeild-
inni, frá 1992, eins og áður hafði verið tilkynnt. „Þetta er
nú bara vegna þess að ég er sá eini sem hef lifað af tíu ár í
deildinni,“ sagði Ferguson í léttum dúr þegar hann tók
við viðurkenningunni.
David Moyes á hliðarlínunni í leik hjá Everton.
Moyes knatt-
spyrnu-
stjóri ársins
San Antonio Spurs náði á ný und-irtökunum gegn meisturum
Los Angeles Lakers í undanúrslita-
einvígi liðanna í vesturdeild NBA í
fyrrinótt. San Antonio sigraði, 96:94,
og er þar með forystu, 3:2.
Liðið getur tryggt sér sæti í úrslit-
um vesturdeildarinnar með sigri í
sjötta leiknum í Los Angeles, en
annars verður oddaleikur í San Ant-
onio.
Litlu munaði að San Antonio tap-
aði niður 25 stiga forskoti því Lakers
átti góðan endasprett. Robert Horry
átti þriggja stiga skot undir lokin en
það geigaði og heimamenn sluppu
með skrekkinn.
Phil Jackson stjórnaði Lakers á
ný, þremur dögum eftir að hafa
gengist undir hjartaþræðingu. Kobe
Bryant skoraði 36 stig fyrir Lakers
og Shaquille O’Neal 20. Tim Duncan
skoraði 27 stig fyrir San Antonio og
Tony Parker 21.
Dallas í sömu stöðu
Dallas komst í sams konar stöðu
gegn Sacramento, vann 112:93 á
heimavelli og er yfir, 3:2. Sjötti leik-
urinn er í Sacramento í nótt.
Steve Nash skoraði 25 stig fyrir
Dallas í fyrrinótt og Nick Van Exel
var með18 stig.
Doug Christie skoraði 21 stig fyrir
Sacramento og Júgóslavinn Peja
Stojakovic var með 19stig.
AP
Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers (t.v.), reynir hér að stöðva skot Davids Robinsons,
hins sterka leikmanns San Antonio Spurs, í leik liðanna í fyrrinótt.
Meistarar
Lakers upp
við vegg