Morgunblaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 22
KIWANISKLÚBBURINN Skjálf-
andi færði á dögunum öllum sjö
ára börnum á Húsavík reið-
hjólahjálma að gjöf. Þeir Kiw-
anismenn hafa gert þetta um ára-
bil og að þessu sinni fór athöfnin
fram á planinu við Naust, hús
Björgunarsveitarinnar Garðars.
Eftir að hafa afhent börnunum
hjálmana var viðstöddum boðið
upp á grillaðar pylsur og svala-
drykk.
Lögreglan mætti einnig á svæð-
ið og kynnti Hreiðar Hreiðarsson
börnunum m.a. hvernig nota ætti
hjálmana og eins brýndi hann fyr-
ir þeim, og foreldrum þeirra, að
hjóla aldrei án þeirra og tóku all-
ir vel í það.
Að þessu loknu fór fram reið-
hjólaskoðun. Varð strax nóg að
gera í því hjá lögreglunni þar sem
allir vildu fá skoðun á hjólin sín
og helst af öllu miða sem sýndi að
allt væri í stakasta lagi með þau.
Að sögn Skarphéðins Aðalsteins-
sonar lögreglumanns var ástand
hjólanna misjafnt en í heildina
mætti segja að það væri þokka-
legt.
Við þetta sama tækifæri afhenti
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi
Skátafélaginu Víkingi á Húsavík
góðar gjafir. Var þar um að ræða
veglegan gasofn og gashellu
ásamt gaskútum til að nota í úti-
legum. Þuríður Sigurðardóttir
skátaforingi þakkaði gjafirnar
fyrir hönd skátanna og sagði þær
koma fljótlega að góðum notum
því fyrirhuguð væri ferð hjá fé-
laginu innan skamms.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Skarphéðinn Aðalsteinsson lögreglumaður skoðar reiðhjól Elfu Bjarkar
Víðisdóttur en lögreglan kenndi börnunum einnig að nota hjólahjálma.
Færðu sjö
ára börnum
reiðhjóla-
hjálma
Húsavík
LANDIÐ
22 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í LOK aprílmánaðar heimtust af
fjalli þrjú veturgömul lömb sem
höfðu vetursetu í Kaldalóni við
Ísafjarðardjúp.
Eigendur urðu að vonum hissa
þegar þríeykið kom til byggða;
gimbur og hrútur frá Melgraseyri
og hrútar frá bænum Skjaldfönn.
Þegar fréttaritari bankaði upp á
hjá þeim Snævari Guðmundssyni
og Önnu Guðnýju Gunnarsdóttur
nokkrum dögum síðar var
gemlingurinn borinn og ekki ann-
að að sjá en móður og lambi heils-
aðist vel. Hinn fjallmyndarlegi
lambhrútur, sem jafnframt var
lambakóngur á bænum, fékk
nafnið Sigvaldi Kaldalóns.
Morgunblaðið/Kristín S. Einarsdóttir
Veturseta
búfjár í
Kaldalóni
Hólmavík
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur samið við Forsvar ehf. á
Hvammstanga um smíði upplýsinga-
kerfis sem halda á utan um fjárhags-
áætlanir sveitarfélaga á Íslandi í
framtíðinni. Samið er um að smíð-
inni verði lokið í apríl 2004, en hluti
kerfisins verði kominn í notkun fyrir
næstu áramót. Einnig er samið um
uppfærslu og viðhald til ársloka
2006. Unnið hefur verið að samn-
ingsgerð um þessa framkvæmd frá
september á liðnu ári.
Það voru félagsmálaráðherra, Páll
Pétursson og Karl Sigurgeirsson
framkvæmdastjóri Forsvars ehf.
sem undirrituðu samninginn á
Hvammstanga. Viðstaddir undirrit-
un voru einnig Garðar Jónsson skrif-
stofustjóri í félagsmálaráðuneytinu,
Elín R. Líndal markaðsfulltrúi For-
svars ehf., Þorvaldur Böðvarsson
stjórnarmaður Forsvars ehf. og Örn
Steinar Ásbjarnarson tölvunarfræð-
ingur hjá Forsvari ehf.
Ráðherra lýsti ánægju með að
ráðuneytið hafi náð samstarfi við að-
ila á landsbyggðinni um slíkt verk-
efni. Karl ræddi um, hve miklu
skipti fyrir þjónustufyrirtæki á
landsbyggðinni að ná að semja um
áhugaverð verkefni til úrvinnslu.
Þetta væri fyrsti samningur For-
svars ehf. við stjórnsýslu landsins og
vonandi kæmu fleiri samningar á
eftir. Aðrir viðstaddir lýstu ánægju
sinni með verkefnið. Fyrsta verk-
hluta við gerð upplýsingakerfisins
mun Forsvar kaupa að hluta til hjá
Ágústi Þorgeirssyni tölvunarfræð-
ingi hjá Ráðbarði sf. á Hvamms-
tanga.
Morgunblaðið/Karl Ásgeir
Páll Pétursson og Karl Sigurgeirsson. Fyrir aftan eru f.v. Örn Steinar Ás-
bjarnarson, Garðar Jónsson, Þorvaldur Böðvarsson og Elín R. Líndal.
Samningur um
upplýsingakerfi
Hvammstangi
BORGFIRSKU háskólarnir tveir
á Bifröst og Hvanneyri kynntu
námsframboð nýlega í verslunar-
miðstöðinni Hyrnutorgi. Þetta var
í fyrsta sinn sem þessir skólar
taka sig saman um að kynna
námsframboð og með framtakinu
er verið að gera tilraun með að
færa upplýsingagjöf um nám nær
almenningi. Að sögn kynningar-
stjóranna tveggja sýndu margir
skólunum áhuga og fengu upplýs-
ingar um nám á sviði viðskipta,
lögfræði, náttúruvísinda og land-
búnaðar.
Fyrir utan þetta kynningarsam-
starf hafa viðræður á milli Bifrast-
ar og Hvanneyrar undanfarið leitt
af sér nýjan möguleika í fram-
haldsnámi á Bifröst, þar sem í
haust verður boðið upp á sérhæf-
ingu á sviði umhverfis- og auð-
lindahagfræði og svæðafræði í
samvinnu við Landbúnaðar-
háskólann. Umsóknarfrestur um
háskólanám á Hvanneyri eða Bif-
röst rennur út í byrjun júní næst-
komandi.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Guðrún Jónsdóttir, kynningarstjóri Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri,
og Auðbjörg Agnes Gunnarsdóttir, kynningarstjóri Viðskiptaháskólans á
Bifröst, veita Hrefnu B. Jónsdóttur upplýsingar um nám heima í héraði.
Borgfirskir háskól-
ar með kynningu
Borgarnes
NÝLEGA var heiðraður starfsmað-
ur á hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Lundi á Hellu. Það var Eyrún Ósk-
arsdóttir sem starfað hefur þar í
rúmlega 21 ár og þökkuðu bæði Jó-
hanna Friðriksdóttir hjúkrunarfor-
stjóri og Drífa Hjartardóttir, for-
maður stjórnar stofnunarinnar,
Eyrúnu fyrir afar farsæl og vel
unnin störf. Þær færðu henni að
gjöf leirmuni eftir Hrönn Walters-
dóttur.
Eyrún er þó hvergi nærri hætt
störfum en tímabært þótti að sýna
henni þakklætisvott í tilefni 20 ára
starfsafmælisins. Enginn annar
starfsmaður hefur unnið svo lengi á
Lundi en alls starfa þar um 40
manns.
Starfs-
maður
heiðraður
Hella
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Jóhanna Friðriksdóttir, hjúkrunar-
forstjóri á Lundi, flytur þakkar-
ávarp til Eyrúnar Óskarsdóttur. Til
hægri er Drífa Hjartardóttir, for-
maður stjórnar Lundar.