Morgunblaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 12
ERLENT
12 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur Vinafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands
verður haldinn fimmtudaginn 22. maí 2003 kl. 18.15
í Sunnusal Hótel Sögu. Á dagskrá fundarins eru
venjuleg aðalfundarstörf.
Fundarboð
Stjórn Vinafélags
Sinfóníuhljómsveitar Íslands
SAUTJÁN af 32 evrópskum ferða-
mönnum, sem hurfu í Sahara-eyði-
mörkinni í Alsír í febrúar sl. og
óttast var um, hafa verið frelsaðir
úr haldi mannræningja. Hópur
bókstafstrúaðra múslíma sem
sagður er tengjast al-Qaeda,
hryðjuverkasamtökum Osama bin
Ladens, handsamaði ferðamennina
á ferð þeirra um eyðimörkina fyrir
þremur mánuðum að því er fram
kom í yfirlýsingu frá alsírska
hernum í gær. Ferðamennirnir eru
nú komnir til Algeirsborgar og eru
að sögn sendimanna í landinu við
góða heilsu. Um er að ræða sex
Þjóðverja, 10 Austurríkismenn og
einn Svía.
Í yfirlýsingu hersins kemur
fram að hersveitir hafi að morgni
sl. þriðjudags fundið staðinn þar
sem gíslunum var haldið. „Gísl-
arnir 17 voru frelsaðir, heilir á
húfi, í stuttri árás á hryðjuverka-
mennina,“ segir enn fremur í yf-
irlýsingunni. Þar er hins vegar
ekkert minnst á hina gíslana 15
sem fjölmiðlar í Alsír segja enn í
haldi fyrrnefnds bókstafstrúar-
hóps í fjallendi nálægt landamær-
um Líbýu.
Þýsk yfirvöld hvöttu í gær ein-
dregið til þess að fyllstu varfærni
yrði gætt við leit að þeim gíslum
sem enn eru í haldi mannræningj-
anna. „Ríkisstjórninni er mjög um-
hugað um örlög þeirra gísla sem
enn eru í haldi. Við ætlumst til
þess að allt verði gert til að koma í
veg fyrir að lífi þeirra verði stofn-
að í hættu,“ tjáði talsmaður þýsku
stjórnarinnar fréttamanni AFP-
fréttastofunnar í gær.
17 gíslar
lausir
í Alsír
Algeirsborg. AFP.
NEÐRI deild rússneska þingsins
staðfesti í gær nýjasta afvopnunar-
samning Rússa og Bandaríkja-
manna en samkvæmt honum verður
langdrægum kjarnorkuvopnum
beggja þjóða fækkað um sem svar-
ar tveimur þriðju. Atkvæðagreiðsl-
an fór fram fyrir luktum dyrum en
þar greiddu 294 atkvæði með stað-
festingu sáttmálans en 134 voru
andvígir. Öldungadeild Bandaríkja-
þings hefur þegar staðfest samn-
inginn.
Dúman, neðri deild rússneska
þingsins, hafði frestað því að fjalla
um samninginn vegna stríðsins í
Írak. Vladímír Pútín, forseti Rúss-
lands, hvatti í gær þingmenn til að
staðfesta samninginn og sagði hann
vera mikilvægt innlegg til að
tryggja stöðugleika í öryggismál-
um. Samkvæmt samningnum munu
Rússar og Bandaríkjamenn fækka í
kjarnorkuvopnabúrum sínum þann-
ig að hvor þjóð eigi 1.700–2.200
kjarnaodda í langdrægum vopnum
árið 2012.
Efri deild rússneska þingsins á
eftir að leggja blessun sína yfir
sáttmálann en sú samþykkt er að-
eins talin formsatriði. Sáttmálinn
sem oftast er nefndur „Moskvu-
samningurinn“ var undirritaður þar
í borg í maí í fyrra. Hann tekur til
langdrægra árásarvopna og er
skammstafaður SORT. Samningur-
inn yfirtekur að mestu leyti START
II-samninginn svonefnda um fækk-
un langdrægra gereyðingarvopna
frá árinu 1993. SORT-samningurinn
kveður þó ekki á um upprætingu
þessara vopnakerfa; samkvæmt
honum þarf einungis að taka þau úr
notkun.
Rússar
staðfesta
afvopnun-
arsamning
Moskvu. AFP.
♦ ♦ ♦
HUNDRUÐ Íraka fylgdust í gær
og fyrradag með gröfu, sem notuð
var til að grafa upp beinagrindur úr
fjöldagröf nálægt borginni Hilla, og
leituðu að líkamsleifum ættingja
sinna sem voru drepnir eftir upp-
reisn sjíta í Suður-Írak árið 1991.
Líkamsleifar allt að 3.000 fórnar-
lamba aftökusveita Saddams Huss-
eins hafa fundist í gröfinni síðustu
fjóra daga og hermt er að þetta sé
stærsta fjöldagröf sem fundist hef-
ur í Írak til þessa.
Allt að níu beinagrindur voru
grafnar upp í einu og fólkið reyndi
að koma í veg fyrir að þær brotn-
uðu þegar skófla gröfunnar var
tæmd. Beinagrindurnar voru lagðar
á moldina við hlið hundraða ann-
arra líkamsleifa. Síðan var leitað að
skilríkjum, leifum af úrum eða öðr-
um hlutum til að bera kennsl á hina
látnu.
Mörg fórnarlambanna höfðu ver-
ið grafin með persónuskilríki í vös-
unum. Á nokkrum höfuðkúpnanna
voru enn borðar sem notaðir voru
til að binda fyrir augun og úlnlið-
irnir voru bundnir saman.
Einn Írakanna, Nama Khalef
Jara, gekk á milli líkamsleifanna og
leitaði að bróður sínum, Tahar.
Þegar hann fann persónuskilríki
hans ofan á einni beinahrúgunni
hneig Jara niður og tók bróður sinn
í faðminn. „Þetta er ég, Jara,“
hrópaði hann. „Ég er hérna.“
Allt að 15.000 manns
tekin af lífi
Gröfin fannst nálægt þorpinu
Mahawil, um 60 km sunnan við
Bagdad, og íbúar þess segjast lengi
hafa vitað að nokkrar fjöldagrafir
væru á svæðinu. Nokkrir þeirra
segja að þar kunni að vera líkams-
leifar allt að 15.000 manna sem
teknir hafi verið af lífi þegar stjórn
Saddams Husseins bældi niður
uppreisn sjíta eftir Persaflóastríðið
árið 1991.
Jabar Sattar grét og hélt á plast-
poka sem innihélt líkamsleifar
bróður hans, Faris. Hann sagði að
Faris hefði verið hermaður og ný-
kominn heim frá Kúveit þegar ör-
yggissveit handtók hann á heimili
hans, um það bil þrjá km frá gröf-
inni.
„Ég leitaði í tólf ár,“ hrópaði
Sattar og horfði á beinagrindina í
plastpokanum. „Ég sagði við sjálfan
mig á hverjum degi að þú værir á
lífi og kæmir aftur. Hvað á ég núna
að segja föður okkar?“
Varð vitni að aftökunum
Bóndinn Jabar Arjawi vísaði íbú-
um nálægs þorps á fjöldagröfina í
vikunni sem leið. Hann segir að
þetta sé gröf karlmanna, kvenna,
barna, bæði sjíta og súnníta, sem
voru tekin af lífi frá byrjun mars til
miðs apríl árið 1991.
Arjawi var einn af örfáum Írök-
um sem urðu vitni að aftökunum
sem fóru fram nálægt akri hans en
þagði yfir leyndarmálinu, af ótta við
að verða sjálfur drepinn, þar til af-
tökusveitirnar flúðu eftir innrás
bandamanna í mars.
Arjawi segist hafa fylgst með af-
tökunum þegar hann var að erja
akurinn eða með kíki frá heimili
sínu, um kílómetra frá fjöldagröf-
inni. Hann segir að aftökurnar hafi
oftast farið fram tvisvar eða þrisvar
á dag og 100 til 150 manns hafi ver-
ið teknir af lífi í einu. Fólkið hafi
verið bundið á höndum og stundum
fótum, með bundið fyrir augun, og
því hafi verið ýtt ofan í þriggja
metra djúpar gryfjur. Síðan hafi
verið hleypt af byssum ofan í gryfj-
urnar, oft í nokkrar mínútur. Arj-
awi segir að ýtur hafi rutt mold yfir
líkin og stundum yfir fólk sem hafi
lifað af skothríðina og reynt að
klifra upp úr gröfinni.
Arjawi telur að nær 6.000 manns
hafi verið tekin af lífi við akurinn
hans og talið er að tvær aðrar
fjöldagrafir séu í grennd við þorpið.
Frásögn Arjawis hefur ekki enn
verið staðfest en þorpsbúarnir
segja að allt sem hann hafi sagt
þeim til þessa – meðal annars um
hvar þeir ættu að grafa og hvað
þeir myndu finna – hafi reynst rétt.
„Þeir urðu ríkir“
Þorpsbúarnir segja að öryggis-
sveitirnar, sem handtóku fólkið,
hafi verið skipaðar mönnum úr
nokkrum fjölskyldum á svæðinu.
Þær hafi fengið andvirði 70-150
króna fyrir hvern mann sem þær
handtóku. Langflestir þeirra sem
voru handteknir sáust aldrei á lífi
aftur.
Nokkrir þorpsbúanna segja að
samkeppni milli fjölskyldnanna hafi
orðið til þess að verðið lækkaði og
þær hafi handtekið fólk sem þær
vissu að tóku ekki þátt í uppreisn
sjíta. Í gröfinni hafa fundist líkams-
leifar súnníta, barna og fólks frá
Egyptalandi, Jemen og fleiri lönd-
um.
„Saddam vildi að tala látinna yrði
svo há að fólkið yrði skelkað og fjöl-
skyldurnar uppfylltu óskir hans,“
sagði einn þorpsbúanna. „Þetta var
keppni á milli þessara manna um
hylli Saddams, sem myndi segja:
Þú stendur þig vel, þú ert betri böð-
ull en hann. Þeir þénuðu allir mikla
peninga og keyptu góða bíla og
landbúnaðartæki. Þeir urðu ríkir.“
Þúsundir fórnarlamba
aftökusveita grafnar upp
Los Angeles Times/Carolyn Cole
Líkamsleifar allt að 3.000 manna hafa fundist í fjöldagröf nálægt borginni Hilla í Írak síðustu daga.
Los Angeles Times/Carolyn Cole
Nama Khalef Jara grætur og heldur á líkamsleifum bróður síns, Tahars.
Stærsta fjöldagröfin sem
fundist hefur í Írak til þessa
’ Hvað á ég núna aðsegja föður okkar? ‘
Hilla. Los Angeles Times.