Morgunblaðið - 15.05.2003, Page 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 25
ÞESSI tvö leikrit fjalla um sam-
skipti kynjanna áður en og eftir að
ákvörðun er tekin um að hefja sam-
búð. Fyrra leikritið fjallar um lífið eft-
ir að þessi afdrifaríka ákvörðun er
tekin. „Hún“ er sáróánægð með lífið
og telur helst að það mætti bæta með
því að taka að sér óvenjulegt gælu-
dýr; „hann“ – sem hélt að allt væri í
himnalagi – er sjálfsögðu á móti því.
„Hún“ hefur öll ráðin í sambandinu
og blekkir „hann“ og pínir uns „hann“
sér þann kost einn vænstan að leita til
vinar síns um heppilegan mótleik sem
svo losar hann við gæludýrið (og ef til
vill sambúðarkonuna) á eftirminnileg-
an máta.
Eins og fjöldamörg verka Jóns er
leikritið bráðfyndið. Annar kostur
þess er að töluverðu efni er komið til
skila á skömmum tíma. Hjálmar
Hjálmarsson nær rétta andrúmsloft-
inu, þessum gnarrandi rétta tón, svo
absúrd-húmor Jóns nær að njóta sín.
Þar skiptir meginmáli að leikararnir
leiki blátt áfram íslenskar almúga-
manneskjur, þar sem lögð er áhersla
á ýmsa algenga takta í framburði og
tóni án þess að ýkja um of. Kjartan
Guðjónsson og Guðlaug Elísabet
Ólafsdóttir eru brakandi fyndin sem
nafnlausa parið sem eru ekki á eitt
sátt um hversdagslega tilveru sína.
Guðlaug nær sterkum tökum á þess-
ari slungnu konu, enda leikur hún
hana einmitt í réttum anda, áhorfend-
ur vita aldrei hvort „hana“ langar
virkilega í þetta gæludýr eða hvort
hún er að þessu út af einskærum leið-
indum og gremju út í sambýlismann-
inn. Kjartan nær ótrúlega langt í
aumingjatöktunum og samleikur
þeirra tveggja er svo trúverðugur að
verkið öðlast í þeirra meðförum dýpri
merkingu. Hilmir Snær leikur vininn
sem ræður „honum“ heilt og leikur á
yfirvegaðan hátt rödd skynseminnar.
Hljóðvinnslan er einstaklega vönd-
uð: fótatakið er „hann“ kemur inn í
upphafi leiksins gefur eitt og sér til
kynna í hverskonar húsakynnum par-
ið býr. Tónlistin, fuglagargið, brot-
hljóðin og finnskumælandi rödd úr
sjónvarpinu eiga stóran hlut í hvað
verkið kemst vel til skila.
Í skýjunum
Áður en flutningur Í skýjunum
hófst og eftir að því lauk var það
kynnt. Því miður var fimm ára gömul
kynning notuð óbreytt og „nýtt“ verk
boðað.
Hér er sagt frá ekki ósvipuðu pari,
en nú í tilhugalífinu. Freyja á það
sameiginlegt með „henni“ í leikritinu
sem var flutt á undan að eiga und-
irtökin í sambandi sínu. Hún leikur
sér að tilfinningum Arnars, nokkuð
viss um að hún getur dregið hann
sundur og saman í háði að vild en
samt með smá viðsnúningi haft sitt
fram og hann góðan að lokum.
Höfundurinn, Þorsteinn Guð-
mundsson, er hallur að því að finna
hið spaugilega við daglegt líf án þess
að eitthvað sérstaklega óvenjulegt
komi fyrir eða að persónur hans hagi
sér á óvæntan hátt. Hann hefur
greinilega miklu meiri áhuga á að lýsa
persónum en framvindu. Margt er at-
hyglisvert í verkinu og persónurnar
skýrt mótaðar, sérstaklega hve
Freyja getur verið andstyggileg og
hve máttlausar mótbárur Arnars eru
og hvað hún hefur mikla ánægju af að
hafa líf hans í hendi sér.
Vandamálið er að verkið er of
langt, þrátt fyrir að byrja vel verða
samræðurnar of keimlíkar í löngum
miðhlutanum. Málalengingarnar
draga verkið niður, hér skortir
dramatíska spennu og Gísli Rúnar
Jónsson hefur ekki fundið neina lausn
á því vandamáli. Samskipti bryðjunn-
ar og aulans verða einfaldlega ekki
nógu áhugaverð til að halda verkinu
uppi í hálftíma án beittari brandara
og sinnaskipti þeirra í lokin eru ótrú-
verðug. Helga Braga Jónsdóttir og
Örn Jónsson ná að skapa áhugaverð-
ar persónur en þó að aðstæður og til-
svör séu gjarnan spaugileg er eins og
leikurinn verði hálf máttlaus og allt í
lausu lofti. Sviplítil hljóðmynd bætir
ekki úr skák.
Tilhugalíf og sambúð
LEIKLIST
Útvarpsleikhúsið
Höfundur: Jón Gnarr. Leikstjóri: Hjálmar
Hjálmarsson. Hljóðvinnsla: Georg Magn-
ússon. Fótatak, dýraskrækir og rödd úr
sjónvarpi: Dalla Jóhannsdóttir, Gunnlaug
Þorvaldsdóttir, Jan Murtomaa, Moli og
Þorvaldur Þór Björnsson. Leikarar: Guð-
laug Elísabet Ólafsdóttir, Kjartan Guð-
jónsson og Hilmir Snær Guðnason. Upp-
taka frá 1999; flutt sunnudaginn 11. maí,
endurtekin fimmtudagskvöldið 15. maí.
MÁVURINN
Sveinn Haraldsson
Höfundur: Þorsteinn Guðmundsson. Leik-
stjóri: Gísli Rúnar Jónsson. Hljóðvinnsla:
Sverrir Gíslason. Leikarar: Helga Braga
Jónsdóttir og Örn Árnason. Upptaka frá
1998; flutt sunnudaginn 11. maí, end-
urtekin fimmtudagskvöldið 15. maí.
Í SKÝJUNUM
Jón
Gnarr
Þorsteinn
Guðmundsson
Kvennakórinn Kyrjurnar heldur
vortónleika í Seltjarnarneskirkju kl.
20.30. Á efnisskrá eru dægurlög,
þjóðlög og aðrar dægurflugur.
Stjórnandi kórsins er Sigurbjörg
Hvanndal Magnúsdóttir og undir-
leikari Halldóra Aradóttir.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Vorhátíð LHÍ í Listasafni Reykja-
víkur – Hafnarhúsinu kl. 12–
12.30 Fókusinn – verk nemenda
skoðuð.
Raftónlist kl. 20 Guðmundur
Steinn Gunnarsson og Hallvarður
Ásgeirsson, gítarleikarar, flytja dag-
skrá. Frumflutt verða tónverk eftir
Þóru Gerði Guðrúnardóttur og Hall-
varð Ásgeirsson.
Á MORGUN
Farsi á
faraldsfæti
LEIKFÉLAG Hólmavíkur er í leik-
för með gamanleikinn Sex í sveit en
hann var frumsýndur á Hólmavík á
skírdag. Leikritið verður sýnt í Óðali
í Borgarnesi í kvöld kl. 21 og svo í
Tjarnarbíói í Reykjavík á laugar-
dagskvöld kl. 20.30.
Leikstjóri er Skúli Gautason en
höfundur er Marc Camoletti. Gísli
Rúnar Jónsson þýddi og staðfærði.
Verkið gerist eitt laugardagskvöld
í sumarbústað við Eyjafjörð þar sem
húsráðendur eru hin vel stæðu og
huggulegu hjón Þórunn og Bene-
dikt. Þau eru ekki við eina fjölina
felld og brátt drífur að viðhöld þeirra
beggja ásamt fleira fólki.
Þá er sýning áformuð í Króks-
fjarðarnesi í júní.
ATVINNA
mbl.is
Traustir
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Tryggvabraut 5 • Sími 462 2700Bíldshöfða 14 • Sími 587 6644
Camp-let tjaldvagninn er þrautreyndur hér á landi og áratuga reynsla sannar hin
dönsku gæði. Camp-let hefur stórt áfast fortjald, eldhúseiningu og tvö rúmgóð
svefnpláss. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að tjalda og þá er leitun að stærri
og rúmbetri tjaldvagni á íslenskum
tjaldstæðum! Verð frá 529.000 kr.
Vortilboð!
Staðfestu pöntun
fyrir 25. maí og ókeypis
yfirbreiðsla fylgir með.
Komdu og skoðaðu nýja 10 RT fellihýsið frá Starcraft. Það er stórt og sterkt, á
15" dekkjum með álfelgum, upphækkað, smíðað á „off-road“ undirvagn og smell-
passar fyrir jeppana. Allt sem prýðir úrvals fellihýsi er til staðar; pottþéttur
Aqualon tjalddúkur,
miðstöð og eldavél,
grjótvörn og tveir
gaskútar.
StarcraftCamp-let
„off-road“ fellihýsið
vortilboð
ferðafélagar
O
PI
Ð
Í B
ÍLDSHÖFÐA
O
PIÐ Í BÍLDS
HÖ
FÐ
A
Opið
í kvöld
til 21