Morgunblaðið - 15.05.2003, Qupperneq 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 43
Kynningar- og samráðsfundur
lífeyrisþega LSR verður í dag,
fimmtudaginn 15. maí kl. 15–17, á
Grand Hóteli við Sigtún. Lífeyr-
issjóður starfsmanna ríkisins og
Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga
halda kynningar- og samráðsfund
fyrir sjóðfélaga sína og maka
þeirra sem fá lífeyrisgreiðslur frá
sjóðunum. Tilgangur fundarins er
að veita sjóðfélögum upplýsingar
um - afgreiðslu lífeyris - áhrif
kjarasamninga á lífeyrisgreiðslur -
framkvæmd meðaltals- og eft-
irmannsreglu - önnur hagsmuna-
mál sem varða lífeyrisþega - og al-
mennt um starfsemi sjóðanna.
Tónlistarmenn á eftirlaunum flytja
nokkur lög. Kaffiveitingar verða í
boði sjóðsins. Nánari upplýsingar
á skrifstofu LSR í síma og á vef-
síðu sjóðsins, www.lsr.is
Bakarahátíð í Smáralind Dagana
15.–18. maí fer fram keppni í
brauð- og kökubakstri í Vetr-
argarðinum í Smáralind Kópavogi.
Keppnin hefst í dag, fimmtudag,
en þá keppa fjórir bakaranemar
til úrslita í nemakeppni Kornax
2003 kl. 13–18. Úrslit verða kynnt
í Vetrargarðinum kl. 19. Föstu-
daginn 16. kl. 12–18 og laugardag-
inn 17. maí kl. 9–15, fer fram
baksturskeppni bakaríanna og
Bakó. 9 tveggja manna lið keppa
frá jafnmörgum bakaríum. Úrslit
verða kynnt og verðlaun afhent kl.
17 á laugardag. Á sunnudag verða
afurðir allra þátttakenda til sýnis
á 1. hæð í Smáralind á svæðinu
fyrir framan Hagkaup. Hafliði
Ragnarsson, bakari og köku-
skreytingameistari, sem lenda í
öðru sæti í keppni í súkku-
laðiskreytingum í Belgíu, sýnir
verðlaunastykkið sitt í Vetr-
argarðinum á meðan keppnin
stendur yfir. Á föstudag kl. 14
verður athöfn þar sem sagt verður
frá keppninni. Þar munu Lands-
samband bakarameistara, Klúbbur
bakarameistara og Samtök iðn-
aðarins heiðra Hafliða í tilefni
þessa árangurs.
Tölvustýrður vélbúnaður Haldin
verður kynning á prófverkefnum í
námskeiðinu Tölvustýrður vélbún-
aður í dag, fimmtudaginn 15. maí,
kl. 13–15.30 í tilraunasal véla- og
iðnaðarverkfræði í VR-III, Há-
skóla Íslands. Kynnt verður:
Tölvustýrður lyfjaskammtari, Jón
Geir, Fannar Örn Þórðarson og
Ásdís Kristinsdóttir. Sjálfvirkur
kortagerðarþjarki, Ari Pálmar
Arnalds, Jón Atli Kjartansson og
Stefán Orri Stefánsson. Færslu-
búnaðar fyrir örþjarka, Elías
Halldór Bjarnason. Tölvustýrður
hægindastóll fyrir tölvuleiki, Egill
Júlíusson, Guðmundur Krist-
jánsson og Ögmundur F. Pet-
ersson. GSM stöðumælalausnir,
Finnur Friðrik Einarsson, Óli Þór
Jónsson og Sindri Sigurjónsson.
Sjálfvirk margmiðlunarhirsla, Sig-
mundur Guðjónsson. Myndgrein-
ingarstýring Vélarms, Stefán Þór
Þórsson. Kynningin er öllum opin.
Frekari upplýsingar um nám-
skeiðið og verkefni nemenda má
sjá á heimasíðu námskeiðsins:
www.hi.is/~mo
Í DAG
MISSAGNIR voru í frétt af kjara-
nefnd í Morgunblaðinu í gær. Kjara-
nefnd ákveður ekki laun lögreglu-
manna, tollvarða og fangavarða
heldur semja þessar starfsstéttir um
sín laun. Til skamms tíma ákvað
kjaranefnd laun og starfskjör heilsu-
gæslulækna en gerir það ekki lengur
eftir lagabreytingu í vor. Beðist er
velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
Vorþing á Keldum verður haldið
á morgun, föstudaginn 16. maí, kl.
13. Um er að ræða hálfs dags fund
sem haldinn er á bókasafni Til-
raunastöðvar Háskóla Íslands í
meinafræði á Keldum. Fundurinn
er ókeypis og öllum opinn. Árs-
skýrsla Keldna fyrir árið 2002
kemur út sama dag. Erindi halda
m.a. Vilhjálmur Lúðvíksson, ráð-
gjafi á skrifstofu vísindamála í
menntamálaráðuneytinu, og Sig-
urður Ingvarsson forstöðumaður.
Upplýsingar um dagskrá og flytj-
endur má finna á heimasíðu
Keldna, veffang: www.keldur.hi.is.
Á MORGUN
Neistinn, styrktarfélag hjart-
veikra barna, heldur aðalfund sinn
þriðjudaginn 27. maí kl. 20 í SÍBS-
húsinu, Síðumúla 6. Dagskrá: Venju-
leg aðalfundarstörf.
Á NÆSTUNNI
FERÐASKRIFSTOFAN
Ultima Thule, sem fagnar um
þessar mundir 10 ára starfs-
afmæli sínu, stóð nýlega fyrir
netleik á heimasíðu sinni.
Spurt var um tegund gistingar
í ferð til Marokkó og rétt svar
var – Gist er í tjaldbúðum bed-
úína í Sahara-eyðimörkinni.
Vinningshafarnir í leiknum
voru:
1. Eyrún S. Ingvadóttir á
Akureyri vann Grænlandsferð
„Greenland Introduction“ að
verðmæti kr. 119.000, 2. Sigrún
Nikulásdóttir á Seltjarnarnesi
vann Breiðafjarðarferð að
verðmæti kr. 25.900, 3. Óskar
Ingi Stefánsson á Seltjarnar-
nesi vann kvöldferð í Nauthóls-
vík fyrir allt að 15 þátttakend-
ur og 4. Ragnhildur M.
Húnbogadóttir á Blönduósi
vann ferðabúnað úr Kayakbúð-
inni.
Vinnings-
hafar í
ferðaleik
Ultima
Thule
debenhams
S M Á R A L I N D
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
11
33
5/
20
03
ENDURFƋING
Renewing Serum styrkir grunnþynnu húðar þinnar, bætir lífskraft
hennar og gefur henni nýja fyllingu.
Renewing Serum inniheldur efni sem vinnur djúpt í grunnþynnu húðar
þinnar, endurbyggir undirstöðu hennar og endurnýjar hana innanfrá.
Sjáðu áþreifanlegan árangur frá fyrsta degi, húð þín lyftist, fínar línur
minnka og opin húð þéttist.
Upplifðu húð þína endurfæðast og verða mýkri, þéttari og þrýstnari.
Renewing Serum - nýr styrkur innanfrá.
Kynningarvika í Debehams frá 15. - 22. maí.
www.shiseido.com
BÆJARTÚN - TVÆR ÍBÚÐIR
Vorum að fá í einkasölu glæsilegt
einbýlishús á þessum eftirsótta stað
í Kópavogi. Í húsinu eru tvær sam-
þykktar íbúðir. Á efri hæð er 133 fm
6 herb. íbúð auk 32 fm bílskúrs. Á
neðri hæð er 77 fm 2ja herb. íbúð.
Nýl. fallegar innr. Fallegur suður-
garður. Áhv. 7 millj. byggsj. Verð
27,5 millj.
SKÓGAR - BREIÐHOLTI
Vorum að fá í sölu mjög vandað og
vel um gengið einbýli á tveimur
hæðum ásamt tvöföldum bílskúr og
sólskála. Stærð samtals um 400 fm.
Allar innréttingar og hurðir eru úr
hnotu, parket og flísar á gólfum.
Fallegur garður, útsýni. Húsið allt
nýlega tekið í gegn að utan.
Verð aðeins 33,8 millj.
SÆVARLAND - ENDARAÐHÚS
Vorum að fá í einkasölu 278 fm
endaraðhús á tveimur hæðum auk
24 fm bílskúrs. Í dag eru tvær íbúðir
í húsinu. Á efri hæð eru 4 herb. og
tvær stofur. Á neðri hæð er rúmgóð
3ja herb. íbúð með sérinng. úr
garði. Bílskúr er fullbúinn. Eignin er
laus til afh. í haust. Verð 25,4 millj.
BRÚARÁS - ENDARAÐHÚS
Vorum að fá í sölu fallegt og vel
hannað 208 fm endaraðhús auk 42
fm bílskúrs. Í dag eru tvær íbúðir í
húsinu. Á efri hæð nýlegar góðar
eikarinnréttingar. Fallegur garður.
Húsið er laust til afhendingar fljót-
lega. Verð 26,8 millj.
BOÐAGRANDI - GLÆSIL. ÚTSÝNI
Nýkomin í sölu sérstaklega falleg
og björt 4ra-5 herb. 95 fm endaíbúð
á efstu hæð ásamt stæði í bíla-
geymslu. Tvennar svalir með glæsil.
útsýni. Þrjú rúmgóð svefnherb.
Stofa og borðstofa. Eikarparket á
gólfum. Falleg eign. Stutt í alla
þjónustu, skóla og leiksk.
Áhv. 3,5 millj. Verð 14,5 millj.
TJARNARMÝRI - GLÆSILEG
Vorum að fá í einksölu glæsileg 73
fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð (efstu)
ásamt stæði í bílgeymslu. Allar inn-
réttingar og gólfefni er mjög vand-
að. Stórar suðursvalir með góðum
útsýni. Falleg sameign. Íbúðinni
fylgir ca 35-40 fm óinnréttað risloft.
Falleg sameign. Verð 15,5 millj.
FASTEIGNASALAN GIMLI, GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - 570 4810
GIMLI I LIG
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur
Langahlíð
Vorum að fá í sölu góða 105 fm
íbúð á 2. hæð í fallegu fjölbýlis-
húsi. Íbúðinni fylgir herbergi í risi
með aðgangi að snyrtingu.
Verð 13,8 millj. 3337