Morgunblaðið - 15.05.2003, Síða 54
54 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14.
Miðasala opnar kl. 15.30
kl. 6 og 9.
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40. B.i. 12
Kvikmyndir.is
Þetta var hin
fullkomna
brúðkaupsferð...
þangað til hún
byrjaði!
Sýnd kl. 4 B.i. 12
Ertu nokkuð myrkfælinn?
Búðu þig undir að öskra.
Mögnuð hrollvekja sem fór
beint á toppinn í
Bandaríkjunum.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16.
HK DV
SV MBL
Kvikmyndir.com
"Tvöfalt húrra"
Fréttablaðið
X-ið 977
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12
SV MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
"Tvöfalt
húrra"
Frétta-
blaðið
Daglegt flug til London
Iceland Express flýgur til London alla daga.
Skoðaðu og bókaðu á IcelandExpress.is eða komdu á söluskrifstofuna
Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga.
Lág fargjöld. Engin bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl.
Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
ÞÓTT kvikmyndirnar myndu ekki
beint lifa lengi ef allar myndir
væru eins og opnunarmyndin
Fanfan la tulip verður ekki annað
sagt um hana en að hún sé algjört
bíó.
Þessi nýjasta mynd úr smiðju
Lucs Bessons, gerð af skósveini
hans Gerard Krawczyk, skartar
sannarlega myndrænum stjörn-
um, þeim Vincent Perez og Pen-
élope Cruz, og er endurgerð á
ástsælli franskri samnefndri
mynd frá 1952 þar sem Gérard
Philipe og Gina Lollobrigida voru
í aðalhlutverkum. Hún kostaði
líka skildinginn, er uppfull af has-
ar, skylmingum, eltingaleikjum
og ástarjátningum – er sem sagt
algjört bíó.
En spurningin sem skein úr
andliti blaðamanna sem sáu
myndina í gærmorgun var hvort
slíkur farsi, hvort svona léttvægt
ævintýri væri verðug opn-
unarmynd á eins virðulegri og
virtri kvikmyndahátíð og Cannes.
Íslenski blaðamaðurinn á staðnum
leyfði sér að minnsta kosti að
efast um það og var sannarlega
ekki einn um því þeir voru ófáir
fúllyndu skríbentarnir sem skorti
þolinmæði til að halda myndina
út. Hér er sá íslenski ekkert að
setja sig í neinar snobbstellingar,
síður en svo, það er ferskt innlegg
í annars fremur íhaldssama hátíð
að brjóta upp hefðina með nett
gamaldags ævintýramynd með
nýtísku framvindu á ógnarhraða
bílaeltingaleikjanna sem Besson
og Krawczyk eru vanari að fást
við. Nei, sem opnunarmynd hefði
fyrsta útgáfan af ævintýrum Fan-
fan túlípana á nýrri öld bara mátt
vera ögn rismeiri, og nægir að
benda á Brúður prinsessunnar
eftir Rob Reiner sem dæmi um
samskonar mynd, sem mun betur
er heppnuð.
Franskur húmor
En Besson er gulldrengur
þeirra Frakka þegar að kvik-
myndagerðinni kemur, trúlega sá
voldugasti í bransanum hér í
landi, og nægir örugglega nú orð-
ið að blikka hinn aldna einvald
hátíðarinnar Giles Jacobs – þótt
sjálfur vilji meina að hann hafi
dregið sig í hlé. Jacobs hefur lýst
yfir að hann hafi stokkið á þessa
mynd þegar hún bauðst, talið hana tilvalda; létt og hjartnæm og
skartar þar að auki tveimur af
skærustu stjörnum evrópskra
kvikmynda, sem fréttaljósmynd-
arar myndu laðast að og vekja um
leið athygli heimsbyggðarinnar
svo ekki færi milli mála að kvik-
myndahátíðin í Cannes væri ný-
byrjuð. Og það er kannski þegar
allt kemur til alls megintilgang-
urinn með opnunarmyndunum, að
beina kastljósinu að borginni litlu
á frönsku Rivíeruni sem allir
tengja við kvikmyndir. Og
kannski eigum við sem ekki erum
altalandi á móðurmáli hátíð-
arinnar aldrei eftir að kveikja á
töfrum myndarinnar, fatta brand-
arana í henni fullkomlega. Því
hélt Luc Besson í það minnsta
fram á blaðamannafundi sem að-
standendur myndarinnar, þ.á m.
stjörnurnar Perez og Cruz, héldu
að lokinni blaðamannasýningu í
gær. „Ég er ansi hræddur um að
þið sem ekki skiljið frönsku eigið
ekki eftir að njóta myndarinnar
sem skyldi, einfaldlega vegna
þess að svo stór hluti húmorsins í
henni hefur með talandann að
gera. Textinn sem Jean Cosmos
samdi er líka svo ljóðrænn og
flæðandi. Sá sem ekki nær
tengslum við þetta flæði mun ekki
fá eins mikið út úr skemmt-
uninni.“
Þau Perez og hin spænska Cruz
– sem talaði sjálf frönskuna í
myndinni – tóku heilshugar undir
með framleiðanda sínum en Perez
átti einmitt heilmikinn þátt í að
ráðist var í gerð myndarinnar,
segist löngum hafa verið unnandi
skylminga og hafa dreymt um að
leika hlutverk hetjunnar Fanfan.
Það var hann sem fékk Cruz til að
taka að sér hlutverkið, sem hún
segist hafa stokkið á, enda beðið
eftir tækifæri til að leika í Frakk-
landi og reyna sig við þetta nýja
form, ævintýramyndirnar.
Von Trier og Kidman
Þótt mál málanna fyrsta daginn
sé jafnan opnunarmyndin eru
menn fljótir að huga að því sem
öllu máli skiptir, sjálfri að-
alkeppninni, sem hefst í dag. Alls
eru tuttugu myndir í keppninni
og er greinilegt á öllu að spennt-
astir eru menn fyrir mynd Lars
von Triers, Dogville, enda Trier
jafnan sigursæll á hátíðinni. Svo
skartar myndin auðvitað óumdeil-
anlega stærstu leikkonu kvik-
myndanna um þessar mundir,
56. kvikmyndahátíðin í Cannes hófst í gær með sýningu myndarinnar Fanfan la
Lifi kvik-
myndirnar!
Í anda meistara ítalskrar kvikmyndagerðar
ber 56. kvikmyndahátíðin í Cannes yfirskrift-
ina Lifi kvikmyndirnar. Nú er það eina von
Skarphéðins Guðmundssonar sem og allra
hinna sem hátíðina sækja eða fylgjast með
henni að hún standi undir stríðshrópi þessu. Penélope Cruz á fjölmiðlafundi vegna Fanfan la tulip. Andie McDowell leikkona ásamt ónefndri fyrirsætu.
Luc Besson (t.v.) forðaðist myndavélar en var þó hérna gripinn glóðvolgur.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins