Morgunblaðið - 12.06.2003, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 12.06.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR 44 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ RETO Stiffler, forseti belgíska 1. deildarliðsins Standard Liege, ásamt einum af yfirþjálfurum liðsins, Michel Preud- ’homme, sem á árum áður lék í marki Belga, voru á meðal áhorfenda á leik Ís- lendinga og Litháa í Kaunas. Þeir voru aðal- lega að fylgjast með Brynjari Birni Gunnars- syni. Forsetinn setti sig í samband við Ásgeir Sig- urvinsson, landsliðsþjálf- ara, sem einmitt hóf at- vinnumannaferil sinn hjá Standard, og fékk nánari upplýsingar um Brynjar Björn. Preud’homme lék með Ásgeiri hjá Stand- ard. Brynjar Björn hefur leikið með liði Stoke und- anfarin ár en samningur hans við félagið er út- runninn. Hann fékk á dögunum nýtt tilboð frá félaginu og hefur frest fram til loka mánaðarins til að ákveða hvort hann riti nafn sitt undir nýjan samning. Brynjar var til skoðunar hjá Braga í Portúgal fyrir skömmu en hann hefur ekkert heyrt frá forráðamönnum liðsins eftir þá heimsókn. Standard Liege skoðar Brynjar Björn Brynjar Björn EIÐUR Smári Guðjohnsen jafnaði í gær markamet Atla Eðvaldssonar fyrir Ísland í Evrópukeppni lands- liða þegar hann skoraði annað markið gegn Litháen í Kaunas í gær. Þeir hafa nú báðir skorað 5 mörk fyrir Ísland í EM. Þetta var áttunda mark Eiðs Smára fyrir A-landsliðið og hann hefur því skorað meira en helm- ing sinna marka í Evrópukeppni landsliða. Hann er nú í 12.–16. sæti yfir markahæstu landsliðsmenn Íslands frá upphafi.  Hermann Hreiðarsson, sem skoraði sitt þriðja mark fyrir Ísland, og Þórður Guðjónsson, sem gerði sitt 12., skoruðu báðir sitt annað mark í EM. Þórður fjórði markahæstur  Þórður er orðinn fjórði markahæsti leikmaður A- landsliðs Íslands frá upphafi. Aðeins Ríkharður Jóns- son með 17 mörk og þeir Ríkharður Daðason og Arnór Guðjohnsen með 14 hafa skorað fleiri mörk fyrir Ís- lands hönd. Þórður fór fram úr þeim Pétri Péturssyni og Matthíasi Hallgrímssyni sem nú eru í 5.–6. sæti á markalistanum með 11 mörk. Eiður jafnaði EM-met Atla MORGUNBLAÐIÐ hefur heimildir fyrir því að landsliðsmarkvörður- inn Árni Gautur Arason sé inni í myndinni hjá þýska liðinu 1860 München, en félagið er á hött- unum eftir nýjum markverði. Árni tók þá ákvörðun fyrr á þessu ári að framlengja ekki samning sinn við norsku meistarana Rosenborg og verður hann laus allra mála um næstu áramót nema að eitthvert félagið kaupi hann strax. Rosenborg seldi finnska lands- liðsmanninn Janni Saarinen til 1860 München á dögunum og í kjölfarið spurðust forráðamenn þýska liðsins fyrir um Árna Gaut sem hefur verið úti í kuldanum hjá Rosenborg frá því hann ákvað að rita ekki nafn sitt á nýjan samn- ing. Þá hefur Árni Gautur verið nefndur í sambandi við Ipswich. Árni Gautur til München?  PÉTUR Guðmundsson, körfu- knattleiksmaður sem eitt sinn lék í NBA í Bandaríkjunum, hefur verið ráðinn umsjónarmaður yngri flokka starfs hjá körfuknattleiksdeild Grindavíkur. Jafnframt mun Pétur þjálfa meistaraflokk kvenna hjá fé- laginu.  ÍSLANDSMEISTARAR kvenna í handknattleik, ÍBV, eru taldir vera að reyna að fá rússneska landsliðs- markvörðinn Nigienu Saidowa til liðs við sig. Saidowa hefur leikið um 30 landsleiki fyrir Rússland. Vigdís Sigurðardóttir, sem var aðalmark- vörður ÍBV á síðustu leiktíð, er hætt að leika handknattleik.  SIGURÐUR Ingimundarson verð- ur áfram þjálfari Keflavíkur í körfu- knattleik karla. Sigurður hefur þjálf- að karlalið Keflavíkur í sjö tímabil og gert liðið að Íslandsmeisturum þrisv- ar sinnum og tvisvar hefur liðið orðið bikarmeistari undir hans stjórn.  STEVE Finnan, sem Liverpool hefur ákveðið að kaupa frá Fulham, er mjög ánægður með að fá tækifæri til að leika með Liverpool. „Þegar ég mun klæðast rauðu skyrtunni í fyrsta sinn verður það augnablik sem ég mun ávallt varðveita. Mig langar að vera hjá félagi þar sem ég á mögu- leika á að vinna titla og ég tel að hjá Liverpool séu mjög góðar líkur á því,“ sagði Finnan.  MANCHESTER United er talið hafa áhuga á að klófesta franska markvörðinn Sebastien Frey frá Parma. Frey er mjög eftirsóttur og hefur verið bendlaður við Barcelona og Arsenal á liðnum vikum. Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United, er að leita að nýjum markverði eftir að Fabien Barthez féll í ónáð hjá hon- um.  CHARLTON Athletic hefur áhuga á að fá Teddy Sheringham til liðs við sig. Sheringham, sem er 37 ára gam- all, hefur yfirgefið Tottenham og hafa fjölmörg lið sett sig í samband við hann. Nokkur ensk úrvalsdeild- arlið og lið frá Portúgal, Spáni, Jap- an og Bandaríkjunum vilja næla í Sheringham.  TIM Floyd hefur verið ráðinn þjálf- ari New Orleans Hornets í NBA- deildinni. Floyd hefur áður þjálfað Chicago Bulls en hætti með liðið árið 2001. Hann stjórnaði Bulls í 239 leikj- um en náði aðeins að stýra liðinu til sigurs í 49 þeirra.  SANTIAGO Canizares, markvörð- ur Valencia, hefur sagt að Arsenal hafi gert Valencia tilboð í sig. „Ég veit að Arsenal hefur boðið í mig og það er heiður fyrir mig. Núna er þó ekki rétti tíminn til að hugsa um hvar ég leik á næstu leiktíð þar sem ég á enn eftir að ljúka tímabilinu með Val- encia,“ sagði Canizares. FÓLK Það er varla með orðum lýsthversu samhent íslenska liðið var á vellinum í gær og menn tilbúnir að fórna sér í verk- efnið og ekki síður að gera leikinn eftir- minnilegan fyrir Rúnar Kristinsson sem var að leika sinn 100. landsleik og ekki síður fyrir Guðna Bergsson sem var að ljúka löngum og glæsilegum knattspyrnuferli sínum. Landsliðs- þjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson töluðu mikið um það fyrir leikinn að til að eiga möguleika á að leggja Litháana að velli yrði liðs- keðjan að vera sterk, baráttan og vilj- inn fyrir hendi og sjálfstraustið í lagi. Allir þessir hlutir skiluðu sér til strák- anna og það var í raun aðdáunarvert að sjá kraftinn, baráttuna og sigur- viljann sem skein út úr hverju andliti. Fyrri hálfleikinn lék íslenska liðið af mikilli skynsemi. Litháar voru meira með boltann en náðu ekki að finna leið framhjá vel skipulögðum leik Íslend- inga. Þegar Þórður Guðjónsson skor- aði fyrsta markið eftir 14 mínútna leik í síðari hálfleik snerist leikurinn al- gjörlega á band Íslendinga og síðasti hálftíminn er einhver sá besti sem ís- lenskt landslið hefur sýnt um árabil. Í stað þess að bakka aftar á völlinn sem oft og iðulega hefur gerst í kjölfarið á marki létu Íslendingar kné fylgja kviði. Þeim tókst að lokka Litháa framar á völlinn en þar mættu þeir ís- lenskum varnarmúr sem ekki gaf nein færi á sér. Íslendingar beittu baneitruðum skyndisóknum gegn óþolinmóðum andstæðingum sínum og úr tveimur slíkum skoruðu Eiður Smári Guðjohnsen og Hermann Hreiðarsson falleg mörk og innsigl- uðu glæstan sigur og með smá heppni hefði sigurinn getað orðið stærri því Tryggvi Guðmundsson fékk úrvals- færi skömmu fyrir leikslok þegar hann slapp innfyrir vörn Litháa eftir sendingu Rúnars Kristinssonar en skot hans fór himinhátt yfir markið. Litháar ógnuðu marki Íslendinga aðeins einu sinni í fyrri hálfleik. Þá áttu þeir skot beint úr aukaspyrnu rétt utan teigs en Árni Gautur Arason var öryggið uppmálað og varði vel eins og allan leikinn. Íslendingar áttu besta færið í fyrri hálfleik þegar Þórður Guðjónsson komst á auðan sjó en misheppnað skot hans með vinstra fæti fór langt framhjá markinu. Litháar hófu síðari hálfleikinn með nokkrum krafti. Árni Gautur þurfti að taka á honum stóra sínum þegar hann sló kollspyrnu Razanunkas í horn en fáeinum mínútum síðar fékk Eiður Smári gott færi þegar hann skaut við- stöðulausu skoti yfir mark Litháa eft- ir góðan undirbúning Þórðar Guð- jónssonar. Þetta færi Eiðs kveikti mikinn neista í íslenska liðinu og eftir glæsilegan undirbúning Eiðs Smára skallaði Þórður í net Litháa. Markið gerði það að verkum að Litháar gerð- ust óþolinmóðir í leik sínum. Þeir sóttu að mörgum mönnum en gleymdu vörninni og við það náðu Ís- lendingar mjög skæðum skyndisókn- um. Á 71. mínútu átti Jóhannes Karl Guðjónsson glæsisendingu innfyrir fáliðaða vörn Litháa þar sem Eiður Smári afgreiddi boltann á sinn hátt í netið og á lokamínútunni stráði Her- mann Hreiðarsson enn meira salti í sár Litháa þegar hann skallaði af krafti í netið eftir fallega fyrirgjöf Eiðs Smára. Það braust út gífurlegur fögnuður hjá íslensku landsliðsmönnunum þeg- ar rúmenski dómarinn flautaði til leiksloka. Frækinn íslenskur sigur í höfn og eftir mikið skvaldur á liðinu hafa þeir Ásgeir og Logi heldur betur tekið til hendinni og komið liðinu á rétta braut. Það er kannski ósann- gjarnt að taka einhverja leikmenn út sem léku betur en aðrir því allt liðið á mikið lof skilið fyrir frammistöðuna. Það var ekki veikan hlekk að finna og liðsheildin ótrúlega samhent. Árni Gautur steig ekki feilspor í markinu og varði vel þau skot sem komu á markið. Aftasta varnarlínan, Guðni, Hermann og Lárus, spiluðu af miklu öryggi og yfirvegun. Guðni stjórnaði eins og hershöfðingi og maður spyr sig hvernig íslenska liðið getur án hans verið í komandi verkefnum. Hermann og Lárus voru geysiöflugir og unnu öll sín návígi. Mikið mæddi á Þórði og Arnari Þór, bæði hvað varn- arleikinn varðar og eins í framspilinu. Báðir leystu þeir hlutverk sín vel. Miðjumennir, Rúnar, Brynjar og Jó- hannes Karl, stóðu í ströngu og höfðu oftast betur, Brynjar vann vel, og Rúnar og Jóhannes voru hættulegir. Framherjarnir Helgi og Eiður Smári unnu geysilega vel. Helgi fékk kannski ekki úr miklu að moða og þó svo að Eiður hafi á köflum virkað svo- lítið þungur er hann gulls ígildi. Hann kom við sögu í öllum mörkunum og skilaði leiðtogahlutverki sínu með sóma. Íslenska liðið sýndi það hversu megnugt það getur verið og nú er lag að byggja ofan á þennan árangur og mæta til leiks síðar í sumar með sama hugarfar og vilja og þá er ekki spurn- ing um að Ísland getur tekið þátt í baráttu um efstu sætin í riðlinum. Íslendingar voru á toppnum – fyrir ofan Þjóðverja í tvær klukkustundir ÍSLENSKA þjóðin getur svo sannarlega verið stolt af landsliði sínu í knattspyrnu eftir magnaða frammistöðu þess á móti Litháum í Kaun- as í gærkvöld. 3:0 sigur íslenska liðsins og frábær leikur frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu á lengi eftir að lifa í minningunni og þegar rýnt er í sögubækur landsliðsins er ekki nokkur vafi að leikurinn í Kaunas er í hópi bestu útileikja landsliðsins frá upphafi. Undirritaður varð vitni að sigri Íslendinga á Ungverjum á Nep-leikvanginum í Ung- verjalandi fyrir 11 árum, 2:1, og það var ekki laust við að sá leikur rifj- aðist upp þegar íslensku hetjurnar í Kaunas voru að brjóta niður Litháa og salla á þá mörkum í síðari hálfleik. Tveir sigrar í röð hafa nú fleytt Íslendingum upp í annað sætið í riðlinum og draumur um að ná einu af tveimur efstu sætunum er sprellifandi, nokkuð sem fáa dreymdi um eftir ósigrana tvo á móti Skotum. Ísland var á toppnum í riðlinum í tvær klukkustundir í gærkvöldi, eða þar til Þjóðverjar skor- uðu mörk sín á elleftu stundu í Færeyjum, 2:0. Guðmundur Hilmarsson skrifar frá Kaunas Strákarnir sýndu glansleik í Kaunas Ísland 0:3 Litháen Leikskipulag: 3-5-2 Undankeppni EM, 5. riðill Dariaus ir Gireno - Kaunas Miðvikudag 11. júní 2003 Aðstæður: Rakur völlur en góður. Áhorfendur: Um 7.500. Dómari: Sorin Corpodean, Rúmeníu, 4 Aðstoðardómarar: Marcel Savaniu, Ion Muresan Skot á mark: 11(6) - 9(5) Hornspyrnur: 4 - 11 Rangstöður: 3 - 4 Leikskipulag: 3-5-2 Árni Gautur Arason MM Lárus Orri Sigurðsson MM Guðni Bergsson MM Hermann Hreiðarsson MM Þórður Guðjónsson M Brynjar Björn Gunnarsson M Rúnar Kristinsson M Jóhannes Karl Guðjónsson M (Arnar Grétarsson 86.) Arnar Þór Viðarsson M (Indriði Sigurðsson 88.) Eiður Smári Guðjohnsen M Helgi Sigurðsson M (Tryggvi Guðmundsson 80.) Gintaras Stauce Deividas Semberas Ignas Dedura Tomas Zvirgzdauskas Nerijus Barasa (Darius Maciulevicius 71.) Aurelijus Skarbalius Vadimas Petrenka Igoris Morinas Raimondas Zutautas (Tomas Danilevicius 62.) Edgaras Jankauskas (Dmitrijus Guscinas 77.) Tomas Razanauskas 0:1 (59.) Eiður Smári Guðjohnsen gaf fyrir markið frá vinstri inn á vítateiginn þar sem Þórður Guðjónsson skallaði knöttinn í netið frá markteigshorninu fjær. 0:2 (72.) Jóhannes Karl Guðjónsson gaf stungusendingu inn fyrir flata vörn heimamanna og Eiður Smári Guðjohnsen var á auðum sjó þegar hann skaut knettinum í markið úr miðjum vítateignum. 0:3 (90.) Eiður Smári Guðjohnsen gaf sendingu fyrir markið frá hægri á fjær- stöngina þar sem Hermann Hreiðarsson var mættur og skallaði knött- inn í fjærhornið af miklu afli. Gul spjöld: Tomas Zvirgzdauskas, Litháen (35.) fyrir brot. Deividas Semberas, Litháen (55.) fyrir brot. Tryggvi Guðmundsson, Íslandi (87.) fyrir brot. Rauð spjöld: Deividas Semberas, Litháen (86.) fyrir brot. SIGURINN í Kaunas í gær, 3:0, er stærsti sigur Íslands á útivelli í Evr- ópukeppni landsliða frá upphafi. Áð- ur hafði íslenska liðið aðeins sigrað tvisvar á útivelli í keppninni, Noreg 1:0 árið 1987 og Andorra 2:0 árið 1999. Í heildina var þetta hins vegar 14. EM-sigurinn frá upphafi en Ís- land hefur fagnað ellefu slíkum á heimavelli. Stærsti sigurinn í mótsleik á úti- velli er 4:0 gegn Liechtenstein í und- ankeppni HM árið 1997 og síðan 4:1 gegn Möltu í sömu keppni árið 2001. Stærsti útisigur í EM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.