Morgunblaðið - 16.07.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 16.07.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2003 9 CATALINA-flugbátur af gerðinni PBY 5-A hefur staðið á Keflavík- urflugvelli frá því fyrir helgi en beð- ið er færis að fljúga vélinni til Nars- arsuaq á Grænlandi. Aðeins um 25 slíkar vélar eru eftir í heiminum, en vélin sem er hér á landi var smíðuð árið 1943 og var notuð til að finna og sprengja kafbáta í seinni heims- styrjöldinni. Flugbáturinn hefur einnig verið notaður í kvikmynda- iðnaðinum í Hollywood, en vélin var notuð í kvikmyndinni „Below“ sem fjallar um kafbátahernað. Chuck Ellsworth er flugstjóri í ferðinni en með honum eru Robert Ramsay flugmaður, Clive Edwards og Mark Edwards flugvirkjar. Chuck er 67 ára gamall og er þetta síðasta alþjóðlega flugið hans. Hann hefur sérhæft sig í flugi á flugbátum og hefur hann kennt víða um heim á slíkar vélar. Að sögn Chuck er verið að ferja flugbátinn til Southfolk í Virginíuríki í Bandaríkjunum þar sem nýir eigendur taka við vélinni. Árið 2000 flaug Chuck vélinni frá Suður-Afríku til Jeddah í Sádi- Arabíu en annar hreyfill vélarinnar bilaði þar. Um það leyti sem vélin var í Jeddah var pílagrímaflug á vegum Atlanta í fullum gangi og segir Chuck að það hafi komið sér vel. „Ég var að leita leiða til að koma hreyflinum til London þegar íslenskur flugvirki á vegum Atlanta kom og ræddi við mig. Hann sagðist geta aðstoðað mig í að koma hreyfl- inum á áfangastað fyrir ekki neitt. Hreyflinum var komið fyrir í einni af vélum Atlanta og flogið með hann til London. Þetta kom sér mjög vel fyrir mig, sérstaklega vegna þess að það hefði tekið langan tíma að koma hreyflinum úr landi, auk þess sem kostnaðurinn hefði orðið mikill,“ segir Chuck en í þakklætisskyni fyr- ir greiðann hafði hann samband við Arngrím Jóhannsson, stofnanda Atlanta, og bauð honum að fljúga vélinni þegar hann kæmi til Íslands. „Ég ákvað þegar hreyfillinn var fluttur með flugfélaginu að bjóða forstjóra félagsins að fljúga Catal- ina-flugbátnum. Ég talaði við Arn- grím áður en ég kom hingað til lands en því miður þurfti hann að bregða sér af landi brott. Tilboð mitt stendur þó enn og Arngrímur á inni flug hjá mér á Catalina- flugbáti.“ Flugbátur úr seinni heimsstyrj- öldinni á Íslandi Ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson Catalina-flugbátar af þessari gerð voru notaðir í seinni heimsstyrjöldinni til að granda kafbátum.Útsýnið úr hliðarglugganum. VERKALÝÐSFÉLAG Húsavíkur hefur samþykkt beiðni Verkalýðs- félags Raufarhafnar um samstarf fé- laganna. Þá hefur Verkalýðsfélagi Öxarfjarðar og Verkalýðsfélagi Þórs- hafnar einnig verið boðin aðild að við- ræðum um sameiningu stéttarfélaga í Þingeyjarsýslum í eitt stórt félag. Að sögn Aðalsteins Árna Baldurs- sonar, formanns Verkalýðsfélags Húsavíkur, væri þessi sameining öll- um til bóta en þá yrði til félag með 1.500–2.000 félagsmenn. „Verkalýðs- félag Húsavíkur er með yfir 1.000 fé- lagsmenn en hin félögin eru lítil, 150– 200 manns í hverju,“ segir Aðalsteinn Árni. „Málin sem verkalýðsfélögin þurfa að fást við eru alltaf að verða flóknari og erfiðari. Miklar kröfur eru gerðar um þjónustu og starfsemi. Það er því ljóst að þessi minnstu félög eiga erfitt með að sinna þessum skyldum. Sameining félaganna myndi efla allt svæðið. Þessi félög standa vel og geta veitt góða þjónustu.“ Aðalsteinn Árni segir væntanlegt að félögin fundi í byrjun september og ef allt gengur að óskum yrði sam- einingin væntanlega um næstu ára- mót. Myndi efla allt svæðið Hugmyndir um sam- einingu stéttarfélaga í Þingeyjarsýslum VINNA við að koma Guðrúnu Gísla- dóttur KE á flot stöðvast að öllum líkindum út vikuna vegna tjóns sem varð á björgunarskipinu Stakkanesi um helgina. Skipið var tekið í slipp á mánudag og standa viðgerðir yfir. Óhappið varð aðfaranótt síðastlið- ins laugardags, segir Haukur Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Ís- húss Njarðvíkur, eigandi Guðrúnar Gísladóttur. Slysið varð með þeim hætti að tankur sem búið var að sökkva og festa við Guðrúnu Gísla- dóttur slitnaði frá flakinu og rakst í Stakkanesið. Þetta var fyrsti tank- urinn sem verið var að fylla af lofti. Enginn var að vinna við tankana þegar atvikið varð aðrir en vakt- menn og engin hætta var á ferðum. Búið er að skoða festingar á hinum tönkunum til að tryggja að þetta gerist ekki aftur, að sögn Hauks. „Þetta er nú ekki stórmál, en þetta tefur okkur nú þegar við erum búnir að ná tökum á verkinu,“ segir Haukur. Hann segir að eftirlitsmaður þurfi að meta tjónið á Stakkanesinu og segja fyrir um hvernig skuli gert við það. Ekki kom leki að Stakka- nesinu vegna skemmdanna. „Það var aldrei nein hætta á ferðum og þetta er óverulegt tjón,“ segir Haukur. Litlar skemmdir urðu á tanknum og var gert við hann sam- dægurs. Haukur segir að nú sé von á um 900 fermetra pramma sem muni að- stoða Stakkanesið við björgunina. Hann létti vinnuna við björgun skipsins. Á prammanum eru loft- pressur, auk þess sem stórt spil er á prammanum. Verkið er stopp þar til annað- hvort Stakkanesið eða pramminn komast í gagnið. Þegar það verður er næsta skrefið að koma skipinu á kjölinn og lyfta því svo upp. „Mér sýnist að þetta muni ekki taka mik- inn tíma þegar við verðum komnir í gang nema við verðum fyrir ein- hverjum svona óvæntum óhöppum.“ Guðrún Gísladóttir hefur legið á um 40 metra dýpi síðan hún sökk við Lófóten í Norður-Noregi fyrir rúmu ári síðan. Unnið að viðgerð á björgunarskipinu Björgun Guðrúnar Gísladóttur KE Útsala Útsala Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–16.00. Sparikjólar á útsölu Engjateigi 5, sími 581 2141. Vestmannsvatn með sögu og sál Sumarbúðirnar við Langar þig að koma í spennandi vikudvöl í Sumarbúðunum við Vestmannsvatn í Aðaldal? Sérstök áhersla er lögð á leiklist, tjáningu og útivist. Til að komast af í villtri náttúru Íslands þarf þol, útsjónarsemi og vilja. Hefur þú það? Farið verður í tveggja daga útilegu þar sem gist er eina nótt í tjöldum. Á áfangastað verður farið í „survivor“-leiki, auk þess sem kolin verða hituð í von um að fiskur veiðist í vatninu. Hver verður hinn íslenski „survivor“? Í okkar „survivor“ eru allir sigurvegarar, enginn rekinn heim.... Vikuvöl frá 7. til 14. ágúst sem ætluð er börnum og unglingum á aldrinum 10-14 ára kostar 21.800 kr. Er ekki tilvalið að kenna unglingunum að skemmta sér á heilbrigðan hátt úti í náttúrunni? Skráning í símum 864 8470 og 464 3607 Hulda Ragnheiður sími 544 2140 Matar- og kaffistell Brúðargjafir & gjafalistar 48 tegundir Útsala Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.