Morgunblaðið - 16.07.2003, Page 19

Morgunblaðið - 16.07.2003, Page 19
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2003 19 Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtal- inna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15. júlí 2003, virð- isaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. júlí 2003 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. júlí 2003 á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslu- gjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðis- aukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, búnaðar- gjaldi, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vöru- gjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á um- búðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipu- lagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum opinberum gjöldum, sem eru: Tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignar- skattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmála- gjald, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddur barnabótaauki og of- greiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjald- anda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreg- inn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frek- ari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt eiga von á að skrán- ingarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. júlí 2003. Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Gjaldheimta Vestfjarða Gjaldheimta Austurlands Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum HIN árlega Fjölskylduhátíð full- veldisins í Hrísey verður haldin um helgina, eða dagana 18. til 20. júlí, og er þetta í sjöunda skipti sem hátíðin er haldin. Gestir sem sækja hátíðina fá af- hent vegabréf sem svo er stimplað þegar farið er „í gegnum tollinn“. Á föstudag verður boðið upp á vatnaslagssvæði, diskótek og leik- tæki verða á staðnum fyrir yngstu kynslóðina. Þá gefst gestum kost- ur á að fara út í vita á heyvagni og kveikt verður upp í útigrillum kl. 19. Um kvöldið verður óvissu- ferð og skemmtanir á veit- ingastöðunum Brekku þar sem hljómsveitin Skál í botn spilar og Fossinum þar sem verður djass. Fjölbreytt dagskrá verður svo alla helgina, m.a. verður skoð- unarferð að kræklingarækt við Hrísey, hópakstur dráttarvéla, söngvarakeppni barna, myndlist- arsýning, sjóstöng, vitaferðir, rat- leikur og Hríseyjarhreysti fyrir 12 til 15 ára. Kvöldvaka verður þar sem Jóhannes eftirherma og Hvanndalsbræður ásamt Rögn- valdi gáfaða troða upp. Dún- tekjuferð verður á sunnudag, akstursleikni á dráttarvélum og gönguferðir með leiðsögn, svo eitt- hvað sé nefnt, en hátíðinni lýkur kl. 17 á sunnudag. Um 3.000–4.000 manns sóttu fullveldishátíðina í fyrra og er von á svipuðum fjölda nú í ár. Hríseyjarferjan Sævar fer á klukkutíma fresti frá kl. 11.30 frá Árskógsströnd en síðasta ferð frá Hrísey í land er kl. 23. Um 3–4.000 manns sóttu fjölskylduhátíð fullveldisins í Hrísey í fyrra og er von á svipuðum fjölda nú um helgina. Von á allt að 4 þúsund manns Fjölskylduhátíð fullveldisins í Hrísey RÚNAR Sigurpálsson bar sigur úr býtum á 10. Baugaselsmótinu sem fram fór sl. sunnudag. Það er ferða- félagið Hörgur sem heldur mótið í samvinnu við Ara Friðfinnsson en það fer fram á hverju sumri að Baugaseli, eyðibýli efst í Hörgárdal, til minningar um Steinberg Friðfinnsson. Rúnar hlaut 12 ½ vinning úr 13 skákum en Hall- dór Brynjar Halldórsson varð annar með 11 1⁄2. Þriðji varð svo Ólafur Kristjánsson með 10 1⁄2 en þessir þrír voru í nokkrum sérflokki keppendanna fjórtán. Veðrið hefur oft verið betra en kepp- endur létu það ekki á sig fá heldur tefldu utan dyra og var ekki laust við að stöku fingur væru orðnir loppnir í síðustu umferðunum. Rúnar vann Baugasels- mótið Fimmtudagur 17. júlí Djass í Deiglunni. Heitur fimmtudagur kl. 21.30. Karnival með Eyjólfi Þorleifssyni, saxó- fón, Ómari Guðjónssyni, gítar, Þorgrími Jónssyni, kontrabassa og Helga Svavari Helgasyni, trommur. Föstudagur 18. júlí Ljóðapartý Nýhils í Deiglunni kl. 21.00. Nýhil er félagsskapur ungra athafnamanna á sviði lista, þ.á m. ljóðskáld, rithöfund- ar, myndlistarmenn, tónlistar- menn og kvikmyndagerðarmenn og er megináhersla lögð á rit- listina. 40 sýningar á 40 dögum. Að- alheiður S. Eysteinsdóttir opnar sýningu í ash gallerí, Varmahlíð, Skagafirði. Laugardagur 19. júlí Myndlist – opnun – Ketilhúsið kl. 14. Hlynur Hallsson opnar sýningu sýna BÍÓ-KINO-MOV- IES í aðalsal og finnska lista- konan Senja Vellonen opnar sýningu á bókverkum á svölum. 40 sýningar á 40 dögum. Að- alheiður S. Eysteinsdóttir opnar sýningu í Menningarmiðstöðinni Skaftfelli, Seyðisfirði. Sunnudagur 20. júlí Starfsdagur í Laufási kl. 14. Fólk að störfum í Laufási upp á gamla mátann. Sumartónleikar í Akureyrar- kirkju kl. 17. Lars Frederiksen frá Danmörku. Þriðjudagur 22. júlí Harmónikkutónleikar í Deigl- unni kl. 21. Igor Zavadsky frá Úkraínu, þekktasti harmónikku- leikari Rússa.                                ATVINNA mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.