Morgunblaðið - 10.08.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 2003 43
Búðu þig undir versta brúðkaup
sumarsins þar sem allt getur gerst!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Framhaldið af hinni frábæru
Legally Blond sem sló í gegn!
www.laugarasbio.is
Ef þú gætir verið
Guð í eina viku,
hvað myndir þú gera?
Fyndnasta mynd
sumarsins
frá leikstjóra Liar
Liar og
Ace Ventura
J I M C A R R E Y
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.10.
Frábær teiknimynd með íslensku tali fyrir
alla fjölskylduna
Missið ekki af þessu klassíska ævintýri!
Sýnd kl. 3 og 5. Ísl. tal.
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Kvikmyndir.com
SV. MBL
HK. DV
YFIR 22.000 GESTIR!
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
www.regnboginn.is
Framhaldið
af hinni
frábæru
Legally
Blond
sem
sló í
gegn!
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8.30 og 10.40.
YFIR 30.000
GESTIR!
Fyndnasta mynd
sumarsins
frá leikstjóra Liar
Liar og
Ace Ventura
Ef þú gætir verið
Guð í eina viku,
hvað myndir þú gera?
J I M C A R R E Y
LAND og synir hefur verið ein
helsta – ef ekki sú helsta – poppsveit
landsmanna síðustu fimm ár eða svo
og sú sveit sem gert hefur sig líkleg-
asta til að taka við krúnunni af Sál-
inni. En ferðin er búin að vera
skrykkjótt. Fyrsta platan … slöpp.
Sú næsta, Herbergi
313 (’99), frábær og
hefur – ef eitthvað
er – vaxið með ár-
unum. Eftir það
tekur við dufl og
daður við frægð og
frama í útlöndum sem skilar sér í
hálfkaraðri en ofhlaðinni plötu sem út
kom síðasta haust, Happy Endings.
Óðal feðranna er því eftir öll þessi
ár nokkurs konar byrjunarpunktur.
Það er verið að safna vopnum á nýjan
leik. Sjarmi hennar liggur í því að hér
er komin hljómsveit sem auðheyran-
lega er að leita að tónlistinni sem
slíkri á nýjan leik frekar en fylgihlut-
unum. Það fréttist er líða tók á vorið
að Land og synir væru á ný við upp-
tökur, hvergi bangnir og ákveðnir í
að láta ekki erlenda markaðsmógúla
slá sig út af laginu, eins og gert var á
síðasta ári. Í bígerð var plata sem átti
að vera hreinni og beinni en það sem
á undan hafði farið.
Og það … hefur tekist. Ekki það að
um sé að ræða hrátt gaddavírsrokk
heldur er þetta heiðarlegt íslenskt
popprokk að hætti Lands og sona.
Sem er nú greinilega orðin sjóuð
sveit og reynd því platan er þægilega
áreynslulaus og þétt. Ef Herbergi
313 var Sgt. Pepper’s þá er þetta
Abbey Road. Mest um vert er þó að
það er búið að stilla miðið á nýjan
leik. Það er ekki verið
að skjóta úr loftbyssu
hér.
Platan fer þrusuvel
af stað með svölum og
melódískum rokkara,
„Þar er frelsið ekki til“.
Sérstaklega er viðlagið
grípandi. Stemningin
er svo róuð niður í því
næsta áður en hið
dramatíska – og mjög
svo góða – „Von mín er
sú“ brestur á. Coldplay-
áhrifin (píanóið) leyna
sér ekki um leið og
þetta er sígild ballaða
úr ranni Hreims. Þá má
heyra áhrif frá U2 oftar
en einu sinni í gítarleik
annara laga og er unnið
smekklega úr þeim
áhrifum.
Meðfram lögum
þessarar ættar dýfa Land og synir
tám í dulítið öðruvísi polla. „Á fjórum
fótum“ er grallarastemma í Stuð-
mannastíl enda eiga þeir síðarnefndu
textann við lagið. Strax þar á eftir
kemur „Dökkhærð og dimm“,
skringilegt verk og helst að Trúbrot
eða sálartónlist sjöunda áratugarins
komi í hugann. Þá dettur lagið næst-
um því niður í „Your Song“ Eltons
Johns í blábyrjun! Þessi lög eru
keyrð fagmannlega áfram þótt mátt-
ur sveitarinnar liggi ekki í svona út-
úrdúrum. En það eina sem virkilega
er hægt að setja út á er að í lögum
eins og „Draumurinn lifir“ fer
Hreimur kannski aðeins of nálægt
væmninni, en ég verð að segja að það
er bara vegna einlægninnar sem hef-
ur jafnan staðið sveitinni nær.
Í heild stendur platan nefnilega
glæsilega. Óðal feðranna er lág-
stemmt og metnaðarfullt poppverk,
nánast án slagara, en aftur á móti
drekkhlaðin næmum og vel fram-
bornum popplögum sem vinna á í ró-
legheitunum.
Öllu þessu er haldið saman af góð-
um og innilegum söng Hreims og
þéttri og vel spilandi sveit. Birgir
Nielsen á t.d. marga firnagóða spretti
þar sem hann fer frumlegar og fersk-
ar leiðir í taktuppbyggingu.
Já, víst er að það er gott að finna
fótum sínum forráð á nýjan leik og
standa þannig hnarreistur upp. En
ekki síst er það alveg skýrt að Land
og synir eru langbestir í því að vera
Land og synir. Verið velkomnir aftur!
Staðið á lappir
Land og synir
Óðal feðranna
Skífan
Land og synir eru hér þeir Hreimur Örn
Heimisson (söngur, raddir), Birgir Niel-
sen (trommur, slagverk), Jón Guðfinns-
son (bassi), Njáll Þórðarson (orgel, píanó
og hljóðgerflar), Gunnar Þór Eggertsson
(gítarar) og Arnþór Örlygsson (forritun).
Til aðstoðar voru þeir Snorri Sigurðarson
(Flügelhorn), Jakob Frímann Magnússon
(raddir og píanó), Ómar Ragnarsson
(blístur) og Pétur Jesú (raddir). Lög eftir
Hreim Örn Heimisson. Textar eftir Hreim,
Adda, Gunna, Kristján Hreinsson, Birgi
Örn Steinarsson, Stefán Hilmarsson,
Andreu Gylfadóttur og Stuðmenn. Stjórn
upptöku og útsetninga var í höndum
Adda 800 og Lands og sona.
Arnar Eggert Thoroddsen
Óðal feðranna er lágstemmt og metnarfullt popp-
verk … drekkhlaðin næmum og vel frambornum
popplögum sem vinna á í rólegheitunum.
Ljósmyndir/Atli Már Hafsteinsson
Tónlist