Morgunblaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2003 9
www.isb.is
Útibú Eignast‡ring Eignafjármögnun Fyrirtækjasvi› Alfljó›asvi› Marka›svi›skipti
Hvernig stendur flitt húsfélag?
fiú fær› nánari uppl‡singar í næsta útibúi Íslandsbanka e›a
hjá fljónustuverinu í síma 440 4000.
Byrja›
u
strax
a›
safna
í
sjó›!
Styttist í a› gera flurfi vi› flaki›, gluggana, stéttina e›a
mála húsi›? Ef svo er flá borgar sig a› byrja strax a›
safna í framkvæmdasjó›. Auk fless bjó›ast húsfélögum
hagkvæm framkvæmdalán hjá Íslandsbanka.
F
í
t
o
n
F
I
0
0
7
8
7
4
framkvæmdir
á döfinni?
Eru
HÓPUR tólf félaga í Heimdalli, fé-
lagi ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík, hefur tilkynnt framboð
sitt til stjórnar í félaginu, en stjórn-
arkjör fer fram í lok mánaðarins.
Bolli Thoroddsen verkfræðinemi
býður sig fram í embætti formanns.
Hann er fulltrúi í borgarstjórnar-
flokki Sjálfstæðisflokksins, inspect-
or scolae í MR 2000–2001 og gjald-
keri-quaestor skólafélags MR árið
áður. Varaformannsefni er Steinunn
Vala Sigfúsdóttir verkfræðinemi,
fulltrúi í ritstjórn vefritsins tikin.is
og í varastjórn SUS, inspector
scholae í MA 1999–2000, formaður
Félags framhaldsskólanema 2000–
2001 og fulltrúi í Stúdentaráði Há-
skóla Íslands 2002–2003. Aðrir sem
gefa kost á sér í stjórn eru: Brynjar
Harðarson, nemandi í Verslunar-
skóla Íslands og féhirðir nemenda-
félags VÍ 2003–04, Brynjólfur Stef-
ánsson, verkfræðingur og sérfræð-
ingur hjá áhættu- og fjárstýringu
Íslandsbanka, fulltrúi í Stúdentaráði
HÍ 2001–2003, þar af formaður Stúd-
entaráðs 2002–2003, Gísli Kristjáns-
son stærðfræðinemi, forseti Stiguls,
félags stærðfræðinema, 2003–2004
og formaður nemendafélags Versl-
unarskóla Íslands 2000–2001, Hreið-
ar Hermannsson, nemandi í Mennta-
skólanum í Hamrahlíð, fram-
kvæmdastjóri nemendafélags MH
2002–2003, Margrét Einarsdóttir
lögfræðingur, situr í ritsjórn vefrits-
ins tikin.is og er fulltrúi í borgar-
stjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins,
fyrrverandi stjórnarmaður í Heim-
dalli og SUS, María Sigrún Hilmars-
dóttir hagfræðingur, formaður
Mennta- og menningarsamtaka Ís-
lands og Japans, ritari og varafor-
maður Ökonomíu, félags hagfræði-
nema, 2001–2002, Sigurður Örn
Hilmarsson, laganemi í HÍ, inspec-
tor scholae í MR 2002–2003, Stefanía
Sigurðardóttir, nemandi í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti og for-
seti nemendafélags FB, Tómas Haf-
liðason, meistaranemi í verkfræði og
framkvæmdastjóri Kælivéla ehf.,
Ýmir Örn Finnbogason, viðskipta-
fræðinemi í Háskólanum í Reykja-
vík, gjaldkeri Visku, nemendafélags
HR, 2002–2004, sat í verkefnisstjórn
Jafningjafræðslunnar 1997–1998 og
var gjaldkeri Félags framhalds-
skólanema 1999–2000.
Verðum að snúa þróuninni við
„Í síðustu kosningum var fylgi
Sjálfstæðisflokksins hlutfallslega
lægst meðal yngstu kjósendahóp-
anna, m.a. í Reykjavík, sem gefur til
kynna að starf Heimdallar hafi ekki
náð til ungs fólks. Þessari þróun er
mikilvægt að snúa við og nýta það afl
sem býr í Heimdalli til að virkja ungt
fólk og kynna því stefnu og hugsjónir
Sjálfstæðisflokksins.
Við sem nú bjóðum fram krafta
okkar í þágu Heimdallar höfum öll
mikla reynslu af félagsstarfi, einkum
í framhalds- og háskólum landsins.
Við viljum nýta þessa reynslu til að
vinna að ofangreindum markmiðum
Heimdallar. Við viljum fjölga virkum
félagsmönnum og skapa þeim vett-
vang til virkrar og mótandi þátttöku
í stjórnmálum á Íslandi á vegum
Sjálfstæðisflokksins,“ segir í frétta-
tilkynningu frá hópnum.
Framboð til stjórn-
ar Heimdallar
Átta af tólf frambjóðendum til stjórnar Heimdallar. Talin frá vinstri,
Brynjar Harðarson, Ýmir Örn Finnbogason, Steinunn Vala Sigfúsdóttir,
Gísli Kristjánsson, Bolli Thoroddsen, Sigurður Örn Hilmarsson, María
Sigrún Hilmarsdóttir og Brynjólfur Stefánsson.
LÖGREGLUNNI í Reykjavík var
tilkynnt um innbrot í íbúðarhús í
austurbæ Reykjavíkur í fyrra-
kvöld. Töluverðum verðmætum var
stolið, að sögn lögreglunnar, m.a.
skjávarpa, myndbandstæki, heima-
bíói, fartölvu, geisladiskum og
fleira.
Talið er að þjófurinn eða þjóf-
arnir hafi komist inn með því að
spenna upp svalahurðina. Lögregl-
an vinnur að rannsókn málsins.
Innbrot í
austurbænum
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930
Moggabúðin
Músarmotta, aðeins 450 kr.