Morgunblaðið - 21.09.2003, Qupperneq 21
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2003 21
Skotveiðimenn
Betri tíð með blóm í haga
Veiðihornið Síðumúla 8 - sími 568 8410
Veiðihornið Hafnarstræti 5 - sími 551 6760
www.veidihornid.is
Veiðihornið er þekkt fyrir góða þjónustu, mikið vöruúrval
og hagstætt verð. Í dag opnar Veiðihornið formlega
glæsilega skotveiðideild í Síðumúla 8. Vertu velkominn í
sunnudagskaffi í Síðumúla 8 (gula húsið í Síðumúlanum)
Sérframleiddar gervigæsir fyrir
íslenskar aðstæður,
12 í kassa (8 á beit, 2 í hvíld og 2 á verði).
Skeljar sem staflast saman, lausir hausar.
Lítil fyrirferð. Galvaniseraðir krossar fylgja.
Langbesta verðið á markaðnum, aðeins kr.
9.800 fyrir allt þetta.
Opnunartilboð aðeins
í eina viku kr. 8.999
Einnig flotsvanir kr. 1.980, flotgæsir kr. 1.695,
endur kr. 695 og andastél kr. 580.
Gerið verðsamanburð.
Fatnaður og fylgihlutir
Frábært úrval af felulitagöllum, flautum,
töskum, bakpokum, felunetum og fylgihlutum
frá Mad Dog, Faulk´s, Allen, Hunters Specialties,
Kleen Bore o.fl. á fínu verði.
Mad Dog fleece fóðraður PVC galli (mittisbuxur
og jakki) aðeins kr. 8.990.
Mad Dog Growler galli, vatnsheldur með öndun
(smekk-buxur og jakki) aðeins kr. 19.800.
Mad Dog Silent Plus jakki, vatnsheldur með
öndun - Fullt verð kr. 24.900 - opnunartilboð
aðeins 19.995.
Mad Dog Silent Plus smekkbuxur, vatnsheldar
með öndun - Fullt verð kr. 18.900 -
opnunartilboð aðeins kr. 15.995.
Hvergi betra verð á gæsaskotum
Sellier & Bellot 3" 53 gr. Haglastærðir BB, 2 og 4 - Verð aðeins kr. 990 pakkinn (25 stk)
Sellier & Bellot 2 3/4" 42.5 gr. Haglastærðir 2, 4 og 6 - Verð aðeins kr. 795 pakkinn (25 stk)
Sellier & Bellot Skeet skot 24 gr. Verð aðeins kr. 320 pakkinn (25 stk) Leirdúfur kr. 995 (150 stk)
Einnig á lager haglaskot fyrir 16 og 20 gauge byssur. Riffilskot frá Sellier & Bellot í flest kaliber, s.s.
22, 22 Hornet, 222, 223, 243, 6.5x55, 270, 308, 30-06, 300 o.fl. Frábært verð.
Hvergi betra verð á gæsa- og andaflautum
Faulk´s grágæsaflauta kr. 1.890. Faulk´s heiðagæsaflauta kr. 1.890.
Faulks andaflautur frá kr. 1.280.
Norinco pumpa
Góð byrjendabyssa á frábæru verði. 28" hlaup, 3 þrengingar. Fullt verð kr. 31.900.
Opnunartilboð aðeins kr. 27.900.
Í tilefni opnunar skotveiðideildar Veiðihornsins
bjóðum við alla skotveiðimenn í sunnudagskaffi í
Síðumúla 8 í dag frá 13 til 17.
ELÍN Pálmadóttir blaðamaður er
nú að leggja lokahönd á ritun minn-
inga sinna sem út koma hjá Vöku-
Helgafelli nú fyr-
ir jólin. Bókin
nefnist Eins og
ég man það. Fer-
ill Elínar er fjöl-
breyttur, ekki
síst í blaða-
mennsku þar
sem hún er með-
al frumherja hér
á landi, enda með
blaðamannaskír-
teini númer fjögur.
Listamenn og virkjanir
Elín Pálmadóttir hóf ung störf
hjá Sameinuðu þjóðunum í New
York í árdaga samtakanna í lok
fimmta áratugarins þegar jafnt að-
alritari sem lærlingar stóðu saman í
biðröð í matsal SÞ. Hún vann í
sendiráði Íslands í París á sjötta
áratugnum og kynntist listalífi
borgarinnar vel. Í bókinni rifjar
hún upp kynni af listamönnum á
þeim árum, ekki síst Gerði Helga-
dóttur myndhöggvara. Elín sneri
aftur til Íslands og lenti þá fyrir til-
viljun í blaðamennsku. Á Morgun-
blaðinu tók hún fljótlega að sér
fréttaflutning af jöklum, eldgosum
og virkjanamálum á hálendinu og
fylgdi jarð- og verkfræðingum í
rannsóknarleiðangra um ósnortin
víðerni landsins. Hún lýsir fjölda
ferða inn á öræfin og er óhætt að
segja að þar komi margt forvitni-
legt í ljós varðandi virkjun fallvatna
landsins.
Elín Pálmadóttir ritar
minningar sínar
Elín Pálmadóttir
JÓN Svavar Jósefsson, bassbaritón,
heldur styrktartónleika í Ými, tón-
listarhúsi Karlakórs Reykjavíkur,
Skógarhlíð 20, þriðjudaginn 23. sept-
ember. Jón Svavar útskrifaðist með
8. stig ásamt burtfararprófi frá Tón-
listarskóla Garðabæjar nú í vor og er
á leið í framhaldsnám til Vínar í
Austurríki í vetur. Efnisskrá Jóns er
spennandi og áhugaverð því þar má
bæði finna sjaldgæf og sérstök ís-
lensk sönglög en einnig hefðbundnar
óperuaríur og ljóð. Miðaverð er
1.500 kr. og miðar eru seldir við inn-
ganginn.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.
Styrktartónleikar í Ými
ilsson, Jón Páll Eyjólfsson, Kolbrún
Anna Björnsdóttir, Kristjana
Skúladóttir og Vala Þórsdóttir.
Leikstjóri er Aino Freyja Jär-
velä, aðstoðarleikstjóri er Hrefna
Hallgrímsdóttir. Hljóðmynd annast
Ingibjörg Stefánsdóttir og Hallur
Ingólfsson, Búningar hannar Guð-
rún Lárusdóttir, lýsingu Alfreð
Sturla Böðvarsson. Hreyfingar: Jó-
hann Freyr Björgvinsson.
Áætluð frumsýning er 19. októ-
ber.
DANSLEIKHÚS með ekka, í sam-
starfi við Borgarleikhúsið, æfir nú
leikritið Hættuleg kynni.
Verkið er byggt á skáldsögunni
„Les Liaisons dangereuses“ eftir
Choderlos Laclos. Sagan byggir á
bréfaskiptum merkilegra persóna
rétt fyrir frönsku byltinguna á
18.öld. Valdatafl og yfirráðasemi
annars vegar og tilfinningasemi og
undirlægjuháttur hinsvegar eru
meginþemu sögunnar.
Leikarar eru Agnar Jón Eg-
Hættuleg kynni æfð
í Borgarleikhúsinu