Morgunblaðið - 21.09.2003, Side 28
FRÉTTIR
28 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Jón Hólm Stefánsson,
sími 896 4761.
Ef þú þarft að selja eða kaupa
bújörð hvar á landi sem er
hafðu þá endilega samband
við okkar mann,
Jón Hólm bónda,
sem aðstoðar þig
með bros á vör.
Bújarðir KRINGLUNNI 4-12,s. 800 6000s. 585 0600
GRÆNAMÝRI - SELTJARNARNES
258,7 fm 8 herbergja þ.a. 5 svefnherbergja einbýlishús í frábæru
ástandi með bílskúr og upphituðu bílaplani á yndislegum stað,
með nærliggjandi útivistarsvæði fyrir börn og fallegum og
skjólgóðum garði. Miðja hússins er opin upp í mæni og flæðir
birta um allt húsið sem skartar fyrsta flokks innréttingum og
gólfefnum. STÓRGLÆSILEG EIGN. ÁSETT VERÐ 37,9 M.
Suðurlandsbraut 54
við Faxafen, 108 Reykjavík.
Sími 568 2444, fax 568 2446.
Ingileifur Einarsson lögg. fasteignasali.
Til leigu 300 til 600 fm gott skrifstofu-
húsnæði á 2. hæð og 130 fm lager-
húsnæði með innkeyrsludyrum í kjall-
ara. Skrifstofuhúsnæðið leigist í einu
eða tvennu lagi. Mjög góð sameign,
tvær lyftur, innangengt er í kjallara.
Næg bílastæði, frábær staðsetning í
hinu nýja stofnanahverfi Reykjavíkur.
Til afhendingar strax. Tilv. 15114
Borgartún 33
Til leigu 588 - 741 fm. nýtt og glæsi-
legt iðnaðar- eða lagerhúsnæði. Hús-
næðið skiptist í um 475 fm. lagerhús-
næði með mikilli lofthæð og 2 stórum
innkeyrsludyrum. Um 50 fm - 70 fm
skrifstofuhúsnæði á jarðhæð. Stór
malbikuð lóð. Til afhendingar strax. 31195
Klettháls 1a
Til sölu eða leigu mjög vel staðsett
lager- og verslunarhúsnæði í endabili
á besta stað í Skeifunni. Laust strax.
Góð bílastæði. Um er að ræða jarð-
hæð 253,6 fm með stórum inn-
keyrsluhurðum og 2. hæð að stærð
124 fm með sérinngangi. Einnig til
leigu jafn stór eining við hliðina á
þessari.
Skeifan 3
Til sölu eða leigu 130 fm mjög gott
endurnýjað skrifstofuhúsnæði í einu til
þrennu lagi. LAUST STRAX. TILBOÐ
Tilv. 15112
Hamraborg 3
Mjög góð 4ra herb. 95 fm íbúð á 2.
hæð í snyrtilegu fjölbýli. Góðar innr.
Dúkur og flísar á gólfi. Þrjú góð svefn-
herbergi. Snyrtilegt eldhús með hvítl-
akkaðri innréttingu, beyki-köntum og
háf. Opið inn í stofu. Góð geymsla
inni í íbúð. VERÐ 13,9 m.
HELGA BJÖRG TEKUR VEL Á MÓTI YKKUR MEÐ KAFFI Á KÖNNUNNI.
SIGURÐUR ÖRN SIGURÐARSON, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI
GULLSMÁRI 3, KÓP. - OPIÐ HÚS Í DAG
SUNNUDAG KL. 16-18
www.eigna.is – eigna@eigna.is – sími 530 4600
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Vel staðsettur bústaður 43 fm auk svefnlofts við Vatnsendahlíð þ.e. norðan
megin vatns. Lóðarmörk við Skógræktina. 60 fm verönd. Til afhendingar
strax. V. 7,9 m. 5553
SKORRADALSVATN
KRABBAMEINSFÉLAG Íslands
og Friendtex á Íslandi hafa skrifað
undir samstarfssamning sem felur í
sér að sölumenn Friendtex bjóða
viðskiptavinum sínum að styrkja
Krabbameinsfélagið með því að
kaupa litla bangsa, en allur ágóðinn
rennur til félagsins. Friendtex er
heimasölufyrirtæki sem selur tísku-
fatnað á Norðurlöndum. Höfuð-
stöðvar fyrirtækisins eru í Herning í
Danmörku. Nánari upplýsingar um
samstarfið eru á vefsíðunni friend-
tex.is.
Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, og Ragnar Á.
Ragnarsson, framkvæmdastjóri Friendtex á Íslandi, undirrita samning.
Leggur Krabba-
meinsfélaginu lið
Bílinn og Vistvernd í verki Vist-
vernd í verki stendur fyrir opnum
fundi í ráðhúsi Reykjavíkur á bíl-
lausa deginum á morgun, mánu-
daginn 22. september kl. 16.30.
Fjallað verður um hvernig gera
má samgöngur í höfuðborginni
greiðari og vænni fyrir umhverfið.
Tveir þátttakendur segja frá ýms-
um aðferðum við að skipuleggja
betur samgöngur og leiðir til að
takmarka mengun vegna bílferða.
Fulltrúi frá Íslenska fjallahjóla-
klúbbnum ræðir um hjólreiðar í
borginni og framkvæmdastjóri Fé-
lags íslenskra bifreiðaeigenda
fjallar um bílamenningu og akstur.
Fundurinn er öllum opinn og að-
gangur ókeypis.
Á MORGUN
Á FUNDI hreppsnefndar Hríseyj-
arhrepps sem haldinn var 9. sept-
ember sl. var eftirfarandi ályktun
samþykkt einróma:
„Hreppsnefnd Hríseyjarhrepps
skorar hér með á ríkisstjórn og
sjávarútvegsráðherra að standa nú
þegar við gefin fyrirheit um línu-
ívilnun og aukningu byggðakvóta
sem landsfundir ríkisstjórnarflokk-
anna samþykktu fyrir kosningar
síðastliðið vor og skýrt er kveðið á
um í stjórnarsáttmála núverandi
ríkisstjórnar. Löngu er tímabært að
styðja af alvöru við hinar dreifðu
byggðir víða um land, sem orðið
hafa fyrir barðinu á stórum fyr-
irtækjum, sem slegið hafa eign
sinni á veiðiréttinn, sameign þjóð-
arinnar, og fært hann til milli staða
eftir eigin geðþótta í nafni hagræð-
ingar. Afleiðingin er sú, að hvert
byggðarlagið á fætur öðru verður
sem rjúkandi rúst með atvinnulausa
íbúa og verðlausar eignir. Hinir
sömu aðilar hafna síðan öllum úr-
bótum til handa strandbyggðum
með þeim rökum að verið sé taka af
þeim þeirra eign. Það er einnig
krafa okkar að Alþingi Íslendinga
taki á þessum málum um leið og
það kemur saman í haust og tryggi
mörgum byggðarlögum víða um
land áframhaldandi tilveru.“
Standa á
við loforð
um línu-
ívilnun
HALDINN var stofnfundur Fé-
lags áhugamanna um .net (.NET
User Group Iceland) í húsakynn-
um Opinna kerfa, að Höfðabakka
9, 11. september s.l. Á fundinn
mættu um 90 manns frá yfir 30
fyrirtækjum sem öll eiga það
sameiginlegt að nýta sér .net
tæknina frá Microsoft. Félagið er
byggt að fyrirmynd erlendra not-
endahópa og er félagi í alþjóð-
legum samtökum .net hópa
(INETA - International .NET
Association).
Markmið félagsins er að skapa
vettvang til samskipta milli þeirra
sem eru að vinna með .net
tæknina, miðla upplýsingum um
og auka útbreiðslu .net á Íslandi.
Í því skyni mun félagið standa
fyrir fundum mánaðarlega, annan
fimmtudag í mánuði, segir í
fréttatilkynningu.
Stjórn félagsins var kjörin á
fundinum og hana skipa Gunnar
Leó Gunnarsson, Sæmundur
Valdimarsson, Gísli Rafn Ólafsson
og Markús Guðmundsson. Að
loknum kosningum hélt Gísli Rafn
Ólafsson fyrirlestur um hvers er
að vænta í næstu útgáfum af Vis-
ual Studio.net, SQL Server og
Windows hugbúnaðinum.
Þeir sem hafa áhuga á að ger-
ast félagar geta sent póst á
netugi@gridland.net og fá þeir þá
sendar upplýsingar um dagskrá
og staðsetningu næsta fundar.
Félag áhugamanna um
.net á Íslandi stofnað
Gísli Rafn Ólafsson hélt fyrirlestur á fundinum.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111