Morgunblaðið - 21.09.2003, Side 39
AUÐLESIÐ EFNI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2003 39
LÖGREGLAN í Stokkhólmi í
Svíþjóð hefur handtekið
mann sem grunaður er um
að hafa myrt Önnu Lindh,
utanríkis-ráðherra Svíþjóðar.
Maðurinn er 35 ára gamall.
Hann hefur framið mörg
afbrot. Hann sat meðal
annars í fangelsi í átta
mánuði fyrir fjársvik. Á
föstudag var maðurinn
úrskurðaður í
gæslu-varðhald. Þar verður
hann í viku til viðbótar.
Sænskir fjölmiðlar segja
að maðurinn hafi verið í
sambandi við sænska
öfga-menn. Hann hafi verið
vinur margra þekktra
ný-nasista í Svíþjóð. En
ný-nasistar eru meðal
annars kynþátta-hatarar og á
móti því að útlendingum sé
leyft að setjast að í Svíþjóð.
Maðurinn er sagður vera
atvinnulaus. Hann hefur átt
við áfengis-vanda að etja og
notað fíkniefni. Sagt er að
hann eigi sér ekki heimili.
Sænsk blöð sögðu
geð-lækni hafa skoðað
manninn í fyrra. Hann hafi
ekki verið talinn eiga við
alvarleg geðræn vandamál
að stríða.
Maðurinn þekktist af
myndum sem teknar voru í
verslunar-miðstöðinni þar
sem Anna Lindh var myrt.
Sagt er að faðir hans hafi
þekkt hann á myndunum.
Faðirinn hafði síðan
samband við lögregluna.
Minningar-athöfn um Önnu
Lindh var haldin í Stokkhólmi
á föstudag. Hún var borin til
grafar í gær, laugardag.
Morðingi Önnu Lindh fundinn?
Reuters
Rúmlega þúsund manns komu saman í ráðhúsinu í Stokkhólmi á föstudag til að minnast
Önnu Lindh. Meðal gesta voru ráðamenn frá mörgum ríkjum heims, þar á meðal Íslandi.
UMTALAÐASTA
kærustupar í heimi,
stór-stjörnurnar Ben
Affleck og Jennifer
Lopez, hafa slitið
sambandi sínu. Þetta
fullyrtu allir helstu
fjölmiðlar í
Bandaríkjunum fyrr í
vikunni þar sem fátt er
nú rætt meira um.
Á Affleck, sem er
kvikmynda-leikari og
handrits-höfundur, að
hafa sagt upp Lopez,
sem er
kvikmynda-leikkona og
söng-kona, vegna þess
að hann telur sig víst
ekki tilbúinn að binda sig
svona ungur. Affleck er
31 árs gamall en Lopez
33 ára.
Þau höfðu áður gefið
út þá yfirlýsingu að þau
væru trúlofuð og stóð
lengi til að þau giftu sig á
sunnudaginn var.
Brúðkaupinu var síðan
skyndilega slegið á frest
stuttu fyrir helgina. Var
skýringin sögð vera sú að
þeim fyndist of mikið
fjölmiðla-fár í kringum
athöfnina. En nú virðist
hin rétta skýring hafa
komið í ljós.
Fjölmiðlar í
Bandaríkjunum keppast
nú um að finna
ástæðuna fyrir
sambands-slitunum. En
flestir virðast á því að
glaumgosa-líf hans hafi
ráði þar mestu.
Reuters
Jennifer Lopez og Ben
Affleck á meðan allt lék í
lyndi í júlí síðast-liðnum.
Samband-
inu lokið?
AUÐUR Valdimarsdóttir er
bara tíu og hálfs mánaðar en
hún er nýkomin heim frá
Bandaríkjunum. En þar var
grædd í hana lifur úr öðru
barni. Auður er yngsti
Íslendingurinn sem hefur
fengið grætt í sig líffæri.
Auður litla er með mjög
sjaldgæfan lifrar-sjúkdóm og
lifrin í henni var orðin ónýt.
Þess vegna þurfti hún að
fara til Bandaríkjanna í
aðgerðina sem gekk mjög
vel. Foreldrar hennar segja
að aðgerðin hafi gengið
vonum framar. „Hún er eins
og nýtt barn, kát og hress,“
segja þau.
Þegar Auður var sex vikna
kom sjúkdómurinn í ljós
þegar hún var í aðgerð á
Landspítala –
háskólasjúkrahúsi. Auður var
mjög veik. Hún var alltaf
þreytt og foreldrar hennar
segja að mjög erfitt hafi verið
að fá hana til að borða. Núna
borðar hún eins og hestur og
dafnar vel að þeirra sögn.
Fékk lifur úr
öðru barni
Morgunblaðið/Kristinn
Auður Valdimarsdóttir með foreldrum sínum, Ásdísi
Ásgeirsdóttur og Valdimar Jónssyni, og systrum sínum, Ásu
og Margréti. Hún dafnar vel eftir aðgerðina.Netfang: auefni@mbl.is
VÍKINGAR tryggðu sér sæti í
úrvals-deildinni í knattspyrnu
á dögunum er þeir gerðu
markalaust jafntefli við
Keflvíkinga. Keflavík hafði
fyrir leikinn tryggt sér sæti í
úrvals-deildinni og hafði
aðeins að einu að keppa – að
ná stiga-metinu í 1. deild
sem er í eigu ÍA frá árinu
1990. Keflvíkingar náðu þó
aðeins að jafna met
Skagamanna og náðu 43
stigum á keppnis-tímabilinu.
Víkingar hafa ekki átt sæti
í deildinni síðast liðin fjögur
ár. Þeir urðu því að ná stigi
gegn Keflavík á útivelli, en
Þór frá Akureyri átti einnig
möguleika á að komast upp
um deild. Þór vann
Leiftur/Dalvík, en það dugði
ekki þar sem Víkingar gerðu
jafntefli.
„Ég er mjög ánægður með
leik minna manna og að liðið
sé komið upp í efstu deild.
Leikurinn var gríðarlega
erfiður og spennandi en
leik-skipulag okkar gekk upp,
þó að við nýttum ekki
mark-tækifærin sem við
fengum,“ sagði Sigurður
Jónsson, þjálfari Víkinga.
„Þetta er eitt besta sumar
sem Keflavík hefur átt. Við
höfum spilað marga góða
leiki og verið sigur-sælir.
Okkur hefur í raun gengið
mjög vel síðustu tíu mánuði
og það er alltaf gaman að
vera hjá liði sem er
sigur-sælt,“ sagði Milan
Stefán Jankovic, þjálfari
Keflvíkinga.
Keflavík og
Víkingur í efstu
deild á ný
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Leikmenn Keflavíkur fagna titlinum í 1. deild.