Morgunblaðið - 21.09.2003, Síða 42
Þ
AÐ má fullyrða að aðdá-
endur góðrar íslenskrar
rokktónlistar hafi verið
nokkuð uggandi síðast-
liðin ár yfir 200.000
naglbítum en engu hefur verið
þrykkt á plast síðan hin frábæra
Vögguvísur fyrir skuggaprins kom
út vorið 2000. Var sveitin nokkuð
hætt? Búið að setja naglbítinn í kör?
Nei, sem betur fer ekki. Blaða-
maður hitti á meðlimi; þá Vilhelm
Anton Jónsson, Kára Jónsson og
Benedikt Brynleifsson á kaffihúsi í
Reykjavík og hóf óðar að fylla upp í
þessa þriggja ára eyðu í góðu sam-
starfi við piltana.
Gullbryddaður kostagripur
Ekki það að tríóið hafi setið með
hendur í skauti þennan tíma, það er
öðru nær. Stuttu eftir að Vögguvís-
urnar komu út sagði Axel trommu-
leikari skilið við sveitina og Bene-
dikt kom skömmu síðar inn.
Benedikt er því búinn að vera hluti
af sveitinni í rúm tvö ár, þó hann sé
nýtt andlit fyrir fjöldanum. Vilhelm
eða Villi á þó orðið, og snýr það að
plötunni nýju og þessari undurfal-
legu nafngift hennar. „Platan fékk
þetta nafn rétt áður en hún fór í
framleiðslu,“ útskýrir hann. „Síð-
ustu plötur hétu frekar súrrealísk-
um nöfnum, Neondýrin og Vöggu-
vísur fyrir skuggaprins. Þær hétu
eftir lögum á plötunum sem við höfð-
um sérstakt dálæti á. Það er sama
tilfellið núna.“
Það er greinileg spenna fyrir
gripnum, sérstaklega að sjá hann
fullkláraðan.
„Umslagið er gullbryddað, afrit-
unarvörn og allt,“ segir Villi. „Svona
sem einn af höfundunum þá þætti
mér gaman ef fólk sæi sóma sinn í
því að fara út í búð og kaupa þennan
kostagrip. Sérstaklega vegna um-
slagsins (hlær).“
Síðastliðin þrjú ár hafa bræðurnir
verið í háskólanámi, Villi í heimspeki
en Kári í sálfræði. Einnig hefur Villi
starfað við sjónvarpið og verið stofu-
gestur hjá landsmönnum sem einn
af umsjónarmönnum Ats í sjónvarp-
inu. Og síðan hefur Benedikt eða
Benni verið að tromma sig inn í
bandið. En af hverju trommara-
skipti?
„Bara,“ segir Villi og hlær. „Nei,
Axel langaði bara til að gera eitthvað
annað. Hann hefur mikið til verið að
sinna upptöku á tónlist undanfarið
og t.a.m. tók hann upp nýju plöt-
una.“
Benedikt bæti því við að það hafi
verið ljúft að taka upp plötuna vegna
þessa. Hann sjálfur sé frá Akureyri
eins og Villi, Kári og Axel og þeir
fjórir séu allir vinir. Hann hafi verið
samferða naglbítunum allt síðan
sveitin var stofnuð árið 1993 og
fylgst með þeim úr fjarlægð.
Og eins og til að undirstrika þetta
fær Kári í töluðum orðum smáskila-
boð í símann sinn frá Axeli, þar sem
hann er að spyrja hann út í eitthvert
símavesen.
Benni kynnir sig
Benedikt er mikilhæfur trymbill og
lærði m.a. þá list í skóla í Kaup-
mannahöfn. Hann er virkur leigu-
spilari og spilaði t.d. með Manna-
kornum á frábærri tónleikaplötu
sveitarinnar sem út kom í hitteð-
fyrra. Hinir strákarnir segjast bros-
andi vera himinlifandi með Benna og
hann hafi brotið fyrsta kjuðann sinn
með Naglbítunum!
„Ég var í sveit á Akureyri sem hét
Hann kafnar (einhverjir muna
kannski eftir Akureyrarsveitinni
Hún andar sem var innblásturinn að
nafninu). Í dag er ég síðan að spila
út um allt, alls konar tónlist. En
200.000 naglbítar hafa forgang yfir
það allt saman. Þetta er reyndar
fyrsta bandið sem ég er í þar sem
sköpunarþráin fær loksins að njóta
sín. Það er frábært.“
Bræðurnir segja líka hlæjandi að
loksins hafi hann fengið að kynnast
því að fá ekkert borgað fyrir að spila
tónlist!
Eins og áður er getið er sveitin tíu
ára. Bræðurnir voru ekki nema fjór-
tán og fimmtán þegar þeir byrjuðu.
Fyrir sjónir almennings komu þeir
svo árið 1995 er þeir höfnuðu í þriðja
sæti Músíktilrauna. Þá sungu þeir á
ensku. Sveitin átti svo lagið „Hæð í
húsi“ á safnplötunni Spírum frá
1997. Það lag fékk mikla spilun og
seinna gerði sveitin samning við
Skífuna og gaf út sína fyrstu plötu
árið eftir, Neondýrin.
„Fyrstu tvö árin æfðum við hvern
einasta dag held ég að ég geti full-
yrt,“ segir Villi.
„Þetta var áhugamál númer eitt,“
bætir Kári við. „Þetta var það eina
sem við vildum gera. Spila tónlist.
Við pældum aldrei neitt mikið í því.
Þetta var bara það sem við gerðum.“
Villi rifjar upp gamlar upptökur
frá þessum tíma, hápólitísk lög sem
þeir eiga enn á kassettum.
„Þegar ég hlusta á þetta í dag þá
finnst mér þetta alveg frábært efni!
Við sömdum okkar eigin lög frá degi
eitt.“
Enda var það greinilegt í Mús-
íktilraunum á sínum tíma að hér var
komin fullmótuð sveit, þrátt fyrir
ungan starfsaldur. Villi segir enn-
fremur að eftir Tilraunirnar hafi
þeir tekið upp tíu laga plötu á ensku
með Kristjáni Edelstein, plata sem
Endurkoma
skuggaprinsanna
Þriðja plata 200.000 naglbíta ber nafnið Hjartagull. Arnar Eggert
Thoroddsen ræddi við sveitina um þetta nýja verk, samstarf sveit-
armeðlima og hvað á daga þeirra hefur drifið síðustu þrjú ár.
200.000 naglbítar og Hjartagullið
42 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12. Sýnd kl. 2 og 3.30. með ísl. tali.Sýnd kl. 2, 4 og 6. með ísl. tali.
Sýnd kl. 5, 8 og 11. B.i. 16 ára.
FRUMSÝNING
KRAFT
SÝNIN
G
KL. 11
.00.
Fór bei
nt á
toppinn
í
USA!
Þeir eru mættir aftur! Frá ofur
framleiðandanum Jerry Bruckheimer.
i i f ! f
f l i i .
Mögnuð spennumynd í anda The Mummy og X-Men 2 með
hinum frábæra Sean Connery sem fer fyrir hópi klassískra
hetja sem reyna að bjarga heiminum frá örlögum
brjálæðings! Geggjaðar tæknibrellur og læti.
Missið ekki af þessari!
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
kl. 3, 6 og 9. B.i. 16 ára.
Miðasala opnar kl. 13.30
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal.
Miðaverð 500 kr.
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16.
Skonrokk FM 90.9
Fjölskyldumynd ársins!
Sýnd kl. 2, 4 og 6 með íslensku tali.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 með ensku tali
MEÐ
ÍSLEN
SKU
OG EN
SKU
TALI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.Sýnd kl. 2, 5, 8 og 11. B.i. 16 ára.
Geggjaðar tæknibrellur og læti.
Missið ekki af þessari!
FRUMSÝNING
Fór bein
t á
toppinn
í
USA!
Þeir eru mættir aftur! Frá ofur
framleiðandanum Jerry Bruckheimer.
i i f ! f
f l i i .
POWERSÝNINGKL: 10.30
POWERSÝNINGKL: 11