Morgunblaðið - 30.10.2003, Blaðsíða 20
AUSTURLAND
20 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
Pipar og salt
Mortel og ostaskeri
Tilboð í dag, föstud. og langan laugardag.
Tilboð gilda á
meðan birgðir
endast.
Hvítt marmara
Mortel kr. 1.600
Ostaskeri kr. 1.200
Settið kr. 2.800
Tilboðsverð kr. 1.800
Grænt marmara
Mortel kr. 2.300
Ostaskeri kr. 1.400
Settið kr. 3.700
Tilboðsverð kr. 2.700
Egilsstöðum | Í dag verður Há-
skólanámssetur Fræðslunets Aust-
urlands á Egilsstöðum vígt við
formlega athöfn.
Líneik Anna Sævarsdóttir for-
stöðumaður segir að í sumar sem
leið hafi verið gerður samningur
milli Fræðslunets Austurlands og
menntamálaráðuneytis um upp-
byggingu háskólanámsseturs á
Egilsstöðum. „Verkefnið er fjár-
magnað í tengslum við samkomu-
lag menntamálaráðuneytis og iðn-
aðarráðuneytis um verkefni á sviði
byggðamála,“ segir Líneik Anna.
„Í því felst að byggð verður upp
sérstök aðstaða fyrir háskólanema
í fjarnámi og unnið að þróun
tengsla atvinnulífs og rannsókna-
stofnana á Austurlandi við há-
skólanám í landinu.“
Styrkir tengsl við rann-
sóknastofnanir og atvinnulíf
Í háskólanámssetrinu verður að-
staða fyrir kennara til að hitta
nemendahópa og til að vinna tíma-
bundið að verkefnum á Austur-
landi. Fjarnemar fá aðgang að góð-
um tölvutengingum, öflugum
tölvum og fjarfundabúnaði. Þá eru
tilbúnar kennslustofur og aðstaða
fyrir hópa- og verkefnavinnu. Lín-
eik Anna segir að allir fjarnemar
séu velkomnir, þótt einkum sé
reiknað með að íbúar í nágrenninu
nýti sér þjónustu setursins reglu-
lega.
„Fræðslunetið mun í gegnum
starfsemina byggja styrkari tengsl
við rannsóknastofnanir og aust-
firskt atvinnulíf með það að mark-
miði að íbúar Austurlands verði
virkir þátttakendur í miðlun þekk-
ingar og þróun háskólanáms á
landsvísu,“ segir Líneik Anna að
lokum.
Í dag eru liðin fimm ár frá því að
Fræðsluneti Austurlands var
hleypt af stokkunum og verður
þeirra tímamóta einnig minnst við
vígsluna, sem hefst kl. 16 í dag í
húsnæði háskólanámssetursins á
Tjarnarbraut 39e á Egilsstöðum.
Háskólanámssetur
orðið að veruleika
Neskaupstað | Skipverjar á Bjarti
NK 121 tóku fálka upp á arma sína
þar sem þeir voru á veiðum á Þórs-
banka fyrr í vikunni. Fálkinn hefur
nú verið snyrtur til og gefið að éta á
Náttúrufræðistofnun í Reykjavík
og er hinn hressasti.
Björgvin Þórarinsson skipverji á
Bjarti segir að fálkinn hafi verið bú-
inn að fljúga á milli skipa í nokkra
daga. „Hann var orðinn slæptur
greyið svo ég henti úlpunni minni
yfir hann og tók um borð“ segir
Björgvin. Fálkinn var settur í bláa
síldartunnu og byrgt fyrir með
netadræsu. Björgvin reyndi að gefa
honum mávakjöt að éta en fálkinn,
sem umvifalaust var nefndur Davíð,
var áhugalaus með öllu um ætið.
Þegar í land var komið tók Björg-
vin fálkann með sér í bíl til Egils-
staða og þaðan fór hann með flugi
til Reykjavíkur, þar sem Þorvaldur
Björnsson, starfsmaður Nátt-
úrufræðistofnunar, tók við honum.
Þorvaldur segir þetta vera Ís-
landsfálka og sjötta fuglinn sem
lendi inni hjá honum frá því í haust.
Skjótt kom í ljós að Davíð var dama
og tók Þorvaldur við að hreinsa af
henni grút, þvo henni, þurrka og
snyrta fjaðrir. „Hún var lengi í hár-
greiðslunni daman og var hreint
ekki ánægð, gargaði og yggldi sig
herfilega meðan á þessu stóð,“ seg-
ir Þorvaldur. „Hún borðar vel og er
bara frísk. Ég hef verið að gefa
henni gæsabringur, teistukjöt og
nautakjöt og þetta rennur ofan í
hana á ógnarhraða, svo hún er al-
spræk að verða.“ Þorvaldur reikn-
ar með að sleppa dömunni Davíð
um helgina, á rjúpnafriðunar-
svæðið ofan við Reykjavík: „Þó að
við aumingjarnir megum ekki
skjóta rjúpur, þá ætti fálkinn að
geta haft þar gott æti.“
Aðframkominn fálki tekinn um borð
í Bjart frá Neskaupstað
Daman Davíð tekin
á löpp á Þórsbanka
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fálki í síldartunnu: Hann var ekki beint ánægður með prísundina.
Kom fálkanum til bjargar:
Björgvin Þórarinsson, skipverji á
Bjarti, skilaði fálkanum í síldar-
tunnu til aðhlynningar í Reykjavík.
Fjarðabyggð |
Eskfirðinga- og
Reyðfirðinga-
kaffi var haldið
með pomp og
prakt í Reykja-
vík á dögunum.
Þá hittust brott-
fluttir Eskfirð-
ingar og Reyð-
firðingar og
rifjuðu upp
gamla og góða
daga eystra.
Hátt í 200 manns mættu til fagn-
aðarins, sem þótti takast einkar
vel. Hefur það verið siður hjá
þessum hóp síðustu 23 árin að
hittast fyrsta sunnudag í vetri og
stinga saman nefjum.
AuðbjörgJóhanns-
dóttir frá Eskifirði.
Þeir áttu allir eitt sinn heima á Reyðarfirði: Helgi Seljan er hér í góðum
félagsskap þeirra Guðmundar Magnússonar og Thulin Johansen.
Fjórar fræknar frá Eskifirði, fermingarsystur frá 1946, f.v.: Árný Friðriks-
dóttir, Katrín Rósmundsdóttir, Ása Ásmundsdóttir og Maggý Ingvarsdóttir.
Brottfluttir Eskfirðingar og Reyðfirðingar gera sér glaðan dag
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Egilsstöðum | Í dag er
haldið í Valaskjálf á Egils-
stöðum Haustþing ungs
fólks á Héraði. Málefni
þingsins beinast fyrst og
fremst að aldurshópnum
16–25 ára en snerta einnig
nemendur 10. bekkjar.
Haustþing ungs fólks
fjallar að þessu sinni um
samfélagið eins og unga
fólkið vill sjá það árið 2010
og yfirskrift þingsins er
„2010, hver er ég – hvar
verð ég“. Þar gefst ungu
fólki tækifæri til að
koma sinni sýn á fram-
færi og ráðamönnum
Austur-Héraðs að heyra
rödd unga fólksins.
Þetta er í annað sinn sem slíkt þing
er haldið á Héraði, en bæjarstjórn
Austur-Héraðs hefur ákveðið að ár-
lega verði haldið þing ungs fólks á
Héraði.
Á þinginu fjalla þrír vinnuhópar
um málefni sem snerta framtíðarsýn
unga fólksins. Einn hópur fjallar um
umhverfis- og skipulagsmál, annar
um atvinnumál og sá þriðji um mann-
lífs- og menningarmál. Niðurstöður
úr vinnuhópunum verða kynntar og
ræddar í þinglok. Samþykktir þings-
ins verða síðan lagðar fyrir fund
fræðslu- og menningarráðs Austur-
Héraðs til umfjöllunar og að því
loknu lagðar fyrir sveitarstjórn Aust-
ur-Héraðs.
Haustþing ungs fólks á Héraði
hefst í Valaskjálf klukkan 15:30. Allt
ungt fólk mun vera velkomið á þingið
og er þátttaka ekki bundin við búsetu
á Austur-Héraði.
Unga fólkið á Austur-Héraði þingar
Hver er ég og hvar
verð ég árið 2010?
Unga fólkið lætur rödd sína heyrast: Haustþing
ungs fólks á Austur-Héraði er haldið í dag.
Ljósmynd /ÁÓ
Göng | Lokið er við að sprengja
einn fjórða hluta af heildarlengd Fá-
skrúðsfjarðarganga, eða rúmlega
1.470 metra. Vel hefur gengið að
vinna við göngin og náðust til dæmis
159 metrar á sjö daga tímabili, sem
er metárangur til þessa. Reyð-
arfjarðarmegin eru göngin orðin
rúmlega 830 metra löng, en 642
metrar Fáskrúðsfjarðarmegin.
Heilbrigðisstofnun | Samkvæmt
frumvarpi til fjárlaga vantar 90
milljónir króna til að Heilbrigð-
isstofnun Austurlands geti viðhaldið
óbreyttri starfsemi. Mismunurinn
samsvarar kostnaði við heilbrigð-
isþjónustu á Vopnafirði eins og hún
leggur sig.
Fjárlagatillögur gera ráð fyrir
1.170 milljónum til rekstur HSA en
áætlun stofnunarinnar nam 1.260
milljónum króna.
Tískuverslun Laugavegi 25