Morgunblaðið - 30.10.2003, Qupperneq 42
DAGBÓK
42 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Flíspeysa sem er
alltaf eins og ný
ÉG er móðir sem á tveggja
ára dreng og er eins og
flestum foreldrum umhug-
að um að kaupa á hann föt
sem eru þægileg og líta vel
út þó ég þvoi fötin oft. Ég
kaupi gjarnan flísfatnað
þar sem hann er bæði
þægilegur fyrir barnið og
hlýr, en ég hef rekið mig á
að gæðin á flísefni eru væg-
ast sagt mjög misjöfn og
langt í frá að allt flísefni sé
eins. Ég hef lent í að kaupa
flíssokka og -peysu sem eft-
ir nokkur skipti og bara
einn þvott leit út eins
margra ára gamalt og vel
notað hundateppi og skilj-
anlega er lítið gaman að
klæða barnið í slíka flík.
En núna er ég búin að
taka gleði mína á ný, ég fór
í verslunina Blanco y
Negro á Laugaveginum í
sumar og keypti þessa fínu
flíspeysu á drenginn minn.
Það er svo gott efni í peys-
unni, það er sama hvað ég
þvæ hana oft, hún er alltaf
eins og ný.
Það sem meira er, mig
langaði til að hafa peysuna
aðeins öðruvísi en peysurn-
ar í búðinni og var mér bara
boðið að fá hana eins og ég
vildi án aukagreiðslu, það
væri ekkert mál. Þetta
kalla ég frábæra þjónustu!
Það er líka svo gott að
vita að ennþá skuli vera til
staðir með persónulega og
faglega þjónustu.
Anna Björg Hjartard.
Ráð við
músagangi
HÉR kemur ráð frá les-
anda til konunnar með
músaganginn sem skrifaði í
Velvakanda sl. þriðjudag.
Mér var sagt að kaupa
tólg og dreifa um kjallar-
ann í gamla húsinu mínu
sem ég nota fyrir sumarbú-
stað.
Það svínvirkaði. Engin
ný músaspörð sl. ár! –
Gangi henni vel.
Ó.Á.
Vegaframkvæmdir
á Reykjanesbraut
ÉG vil koma á framfæri
áskorun til þeirra verktaka
sem eru að leggja nýja ak-
rein á Reykjanesbrautinni
að þeir setji upp betri
merkingar þar sem er sett-
ur krókur á veginn. Finnst
þetta ekki nægilega vel
merkt og tel hættu á
óhöppum vegna þessa, ekki
síst þegar hálka er á braut-
inni.
Sigrún.
Skora á
endursýningu
ÉG skora á RÚV að end-
ursýna myndina um
frönsku stelpuna sem var
með anorexíu. Ég missti af
myndinni og þykir mér það
leitt, því mikið hefur verið
talað um hana og hve góð
hún var.
Áhorfandi.
Enn um
músagang
LESANDI hafði samband
við Velvakanda vegna pist-
ils sem birtist sl. þriðjudag
um ráð við músagangi.
Sagði lesandi að hægt væri
að fá í Byko lítil hús sem
mýsnar sækja inn í og væri
hægt að veiða þær í þessi
hús og sleppa þeim síðan.
Þakkir fyrir
góða grein
ÉG vil koma á framfæri
þökkum til Guðrúnar Jó-
hannsdóttur vegna greinar
í Morgunblaðinu laugar-
daginn 25. okt. Hún skrifar
mjög góða grein og vil ég
þakka henni fyrir hana og
er henni alveg sammála.
Hún var að svara kennara á
Akranesi sem skrifaði níð-
grein um bændur.
Sigríður Atladóttir.
Húrra fyrir Siv
ÉG hrópa húrra fyrir Siv
Friðleifsdóttur sem hefur
staðið sig mjög vel í að
framfylgja rjúpnabanninu.
S.A.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag fara út Goðafoss
og Arnarfell.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 10 boccia, kl.
13 myndlist. Hársnyrt-
ing, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 9–12.30
bókband, kl. 9.30
boccia, kl. 10.30–10.55
helgistund, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13–16.30 smíð-
ar og handavinna, kl.
13.30 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
bókband.
Félagsstarfið, Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan op-
in, almenn handavinna.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað,
hárgreiðslustofan opin
og postulín, kl. 13
handavinna, kl. 9–16.30
púttvöllurinn opinn
þegar veður leyfir.
Félagsstarfið, Furu-
gerði 1. Kl. 9 aðstoð við
böðun, alm. handa-
vinna, smíðar og út-
skurður. Kl. 13.30
boccia.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
bað og glerskurður, kl.
10–11 leikfimi, kl. 9–12
hárgreiðsla, kl. 13.30
sönghópurinn, kl. 15.15
dans.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
greiðsla, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kl. 9
videókrókurinn opinn,
kaffi. Pútt í Hraunseli
kl. 10–11.30. Leikfimi í
Bjarkarhúsi kl. 11.20.
Glerlist kl. 13. Orlofs-
farar á Vestfirði í sum-
ar, munið myndasýn-
inguna í dag kl. 14.
Boðið upp á kaffi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids í dag
kl. 13. Framsögn kl.
16.15. Félagsvist kl. 20.
Félagsstarf eldri
borgara, Mosfellssveit.
Opið kl. 13–16, bók-
band, kl. 13 tréskurð-
ur, kl. 13.30 les-
klúbbur, kl. 17 starf
kórs eldri borgara,
Vorboðar.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–15 handavinna,
kl. 9.05 og 9.55 leikfimi,
kl. 9.30 glerlist og ker-
amik, kl. 10.50 róleg
leikfimi, kl. 13 gler- og
postulín, kl. 20 gömlu
dansarnir, kl. 21 línu-
dans. Dagskránni, sem
vera átti í dag kl. 14, er
frestað um óákveðinn
tíma.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulín, kl.
10 ganga, kl. 13–16
handavinna, brids kl.
13.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, perlu-
saumur, kortagerð og
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 boccia ,
kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé-
lagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–13 bútasaumur, kl.
10–11 boccia, kl. 13–16
hannyrðir, kl.13.30–16
félagsvist. Hársnyrt-
ing og fótaaðgerðir.
Korpúlfar, Grafarvogi.
Á morgun er sund-
leikfimi í Grafarvogs-
laug kl. 9.30.
Norðurbrún 1. Opin
vinnustofa kl. 9–16.45.
Kl. 10–11 ganga, leir.
Vesturgata. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
bað, kl. 9.15–15.30,
handavinna, kl. 9–10
boccia, kl. 10.15–11.45
enska, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13–16 kóræf-
ing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 glerskurður,
perlusaumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt og brids.
Ættfræðifélagið. Fé-
lagsfundur í kvöld kl.
20.30 á Laugavegi 162,
3. hæð. Gunnar B.
Guðmundsson frá
Heiðarbrún flytur fyr-
irlestur um íslenskar
fornættir. Allir vel-
komnir.
Gullsmárabrids.
Bridsdeild FEBK,
Gullsmára, spilar í fé-
lagsheimilinu í Gull-
smára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
Félag áhugamanna
um íþróttir aldraðra.
Leikfimi í Bláa salnum
kl. 11.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborgar-
svæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19.30 tafl.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60. Fundur kl. 17 í
umsjá Valgerðar Gísla-
dóttur. Allar konur
velkomnar.
Blóðbankabílinn.
Ferðir blóðbankabíls-
ins: sjá www.blodbank-
inn.is
Í dag er fimmtudagur 30. októ-
ber, 303. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Sannlega, sannlega
segir ég yður: Sá sem trúir hefur
eilíft líf.
(Jóh. 6, 47.)
Vefþjóðviljinn fjallarum þingsályktun-
artillögu um aðgerðir til
að draga úr „fyrir-
sjáanlegu ójafnvægi í
byggðamálum“. Hann
vitnar í greinargerð með
tillögunni:
Vandinn er nefnilega sá,ef marka má grein-
argerðina, að verið er að
gera of mikið í byggða-
málum og þess vegna
þarf að gera meira. Þetta
hljómar auðvitað ein-
kennilega í eyrum flestra,
sem skýrist af því að
flestir eru ekki þingmenn
annarra kjördæma en
Norðausturkjördæmis.
Flutningsmenn þings-
ályktunartillögunnar eru
tveir nútímalegir þing-
menn Samfylkingarinnar
í Norðvesturkjördæmi og
þeir sjá fyrir sér mikinn
vanda í kjördæmi sínu
vegna framkvæmda í
næsta kjördæmi. Og þar
sem þeir telja að ríkið
beri ábyrgð á fram-
kvæmdunum í næsta
kjördæmi vilja þeir að
ríkið hlutist til um enn
frekari framkvæmdir
annars staðar, og þá
vafalaust í Norðvest-
urkjördæmi.
Orðin kjördæmapot ogsérhagsmunagæsla
eru meðal fjölmargra
sem koma upp í hugann
þegar slíkar tillögur eru
lesnar, en tillagan sýnir
hve langt sumir þing-
menn – jafnvel þessir nú-
tímalegu jafnaðarmenn –
eru tilbúnir að ganga til
að kaupa atkvæði. En um
leið sýna þeir óvart fram
á hve vitlaus hin svokall-
aða byggðastefna er, því
ef marka má tillöguna
verður aldrei nóg að gert
í byggðamálum. Einn
landshluti eða eitt byggð-
arlag mun væntanlega
alltaf fá meira í sinn hlut
en aðrir þegar ríkið út-
deilir skattfé í nafni
byggðastefnu, og þá
verður það væntanlega
alltaf að nýrri og nýrri
röksemd fyrir auknum
framlögum til mála-
flokksins. Ef mikið er
framkvæmt á Norðaust-
urlandi þarf næst að
framkvæma mikið á
Norðvesturlandi, því
næst á Suðurlandi og svo
koll af kolli, hring eftir
hring.
Hugmyndir um meint„ójafnvægi í byggða-
málum“ eða tilraunir til
að ná fram „jafnvægi í
byggð landsins“ eru af
ýmsum ástæðum dæmdar
til að mistakast. Og jafn-
vel þótt ríkið kæmist að
niðurstöðu um að einhver
tiltekin dreifing byggðar
væri æskilegt markmið í
byggðamálum og tækist
að þvinga þá dreifingu
fram, þá verður aldrei
hægt að kalla þá dreif-
ingu jafnvægi. Ríkið mun
aldrei geta tryggt jafn-
vægi í byggð landsins
nema með því að hætta
afskiptum af byggðaþró-
un. Ríkið getur hins veg-
ar, með því að dreifa
skattfé út um landið, við-
haldið ójafnvægi í byggð
landsins og komið í veg
fyrir að eðlilegt jafnvægi
náist.“
STAKSTEINAR
„Ójafnvægi“?
Víkverji skrifar...
KLUKKAN er rétt gengin í níu ogvið silumst áfram í bifreið Vík-
verja í langri bílaröð niður Arn-
arneshæðina. Víkverji, sem er á leið
til vinnu, slær fingrum á stýrið í
óþolinmæði en endalaus bílalestin
mjakast ekki hraðar fyrir vikið og
Víkverja gefst því gott tóm til að láta
hugann reika.
x x x
SÚ HUGSUN að hjóla, ganga tilvinnu eða að taka jafnvel strætó
höfðar til óskhyggju Víkverja eins
og væntanlega fleiri. Þannig gæti
hann hugsanlega grennt sig, bætt
úthald og dregið úr útblásturs-
mengun í höfuðborginni. En ekkert
af þessu verður að veruleika eða
stendur í reynd til; Víkverji mun
áfram gera út tvo bíla (og bæta
kannski mótorhjóli við). Raunar tel-
ur Víkverji að umræða um einkabíla
sé á miklum villigötum. Verst þykir
honum þegar rangra spurninga er
spurt í upphafi eða upphafstónninn
er fullyrðing sem ekki er ætlast til
að nokkur sála dragi í efa.
Fyrir fáum árum var fluttur sjón-
varpsþáttur um fólksfækkun í
byggðunum á Vestfjörðum. Upp-
hafsspurning fréttamannsins var sú
til hvaða aðgerða þyrfti að grípa til
þess að stöðva þá þróun eða jafnvel
snúa henni við. Þeirri spurningu var
aldrei varpað fram hvort nauðsyn-
legt væri að gera nokkurn skapaðan
hlut. Eða hvort eðlilegt væri að hið
opinbera verði almannafé til þess að
draga úr að fólk flytti úr einum
landshluta í annan. Með svipuðum
formerkjum hefur umræðan um
einkabíla verið að undanförnu. Stað-
hæft er að óheft og vaxandi umferð
einkabíla gangi ekki. Hvaða goð-
umlíka vera hefur letrað þau sann-
indi á himininn? hugsar Víkverji
með sér í röðinni. Áratugum saman
hefur einkabílum fjölgað án þess það
hafi valdið teljandi vandræðum svo
lengi sem menn hafa brugðist eðli-
lega við og greitt fyrir umferðinni.
x x x
VÍKVERJI silast enn áfram í bíla-lestinni endalausu en í huganum
brunar hann áfram eftir breiðum og
fallegum stofnæðum með mörgum
akreinum og mislægum gatnamót-
um. Víkverji telur raunar að höfuð-
borgarbúar, sem í reynd en ekki í
óskhyggju hafa kosið og munu kjósa
einkabílinn, eigi heimtingu á að
þannig sé staðið að málum að helstu
stofnæðar beri bílaumferðina. Að
íbúar úthverfanna komist með
sæmilegum hætti til vinnu sinnar.
Víkverji slær enn fingrum á stýrið
og veltir því fyrir sér hvort það sé
ekki í senn viljaleysi og virðing-
arleysi við íbúa höfuðborgarsvæð-
isins sem veldur því að þorri þeirra
situr fastur alla morgna í biðröðum á
helstu samgönguæðum höfuðborg-
arinnar?
Morgunblaðið/Golli
Morgunblaðið/SverrirHaust
LÁRÉTT
1 fat, 4 fress, 7 lengd-
areining, 8 undirokun, 9
nytjar, 11 umrót, 13 hitti,
14 fuglar, 15 maður, 17
vætlar, 20 stór geymir,
22 rekur í, 23 skvettum,
24 starfsvilji, 25 steinn.
LÓÐRÉTT
1 beiskur, 2 grafar, 3
svelgurinn, 4 haltran, 5
ansa, 6 að innanverðu, 10
selur dýrt, 12 eldiviður,
13 leyfi, 15 yfirhöfnin, 16
illa innrætt, 18 sjúk, 19
áflog, 20 þroska, 21 gá-
leysi.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 rembihnút, 8 undur, 9 lofar, 10 gil, 11 narta, 13
tuðar, 15 skálk, 18 gilda, 21 aur, 22 kjóll, 23 eimur, 24
risaeðlur.
Lóðrétt: 2 eldur, 3 borga, 4 hollt, 5 úlfúð, 6 kunn, 7 frúr,
12 tel, 14 uni, 15 sekt, 16 ábóti, 17 kalda, 18 greið, 19
lömdu, 20 akra.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16