Morgunblaðið - 25.11.2003, Síða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 15
VIVAG
Náttúruleg lausn fyrir konur.
Áður: 437 kr.
KVENNABLÓMI
Fyrir konur á breytingaskeiði.
Áður: 1.872 kr.
ONE TOUCH
Örbylgjuvax og háreyðingar-
krem fyrir mismunandi
svæði líkamans.
1.497
-25%
Af One Touch
línunni.
349
Við hlustum!
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
ti
l 2
. 1
2.
2
00
3
Áttu ekki eitthvað
gott til að losna við
öll þessi hár?
á rekstrarleigu
KIA Ísland ehf.
Flatahrauni 31, Hafnarfirði.
Sími 555 6025.
www.kia.is
*Smur, og þjónustuskoðanir eru innifaldar
í verði rekstrarleigunnar.
*Rekstrarleiga er háð breytingum á gengi
erlendra mynta og vöxtum.
Kynntu þér nánari skilmála hjá sölumönnum KIA
KIA fjölnotabíll.
Rekstrarleiga kr. 33.700*
Í 36 mánuði
Verð kr. 1.890.000
ÞRJÁTÍU og sex erlendir náms-
menn, flestir frá Asíu- og Afríku-
ríkjum, biðu bana í eldsvoða í
heimavist Vináttuþjóðaháskóla Pat-
rice Lumumba í Moskvu í fyrrinótt.
139 voru fluttir á sjúkrahús, þar af
um fimmtíu alvarlega slasaðir. Að
sögn embættismanna leikur grunur
á að kveikt hafi verið í húsinu, en
lögreglurannsókn á upptökum elds-
ins hófst í gær.
Þetta er mannskæðasti eldsvoði í
Moskvu í áratug. Eldurinn kom
upp um klukkan hálf þrjú aðfara-
nótt gærdagsins (hálftíma fyrir
miðnætti að íslenskum tíma) og tók
um þrjár klukkustundir að ráða
niðurlögum hans. Rúmlega 270
manns voru í húsinu er eldurinn
kviknaði, flestir erlendir náms-
menn.
Sautján fórnarlambanna voru frá
Kína, önnur frá Víetnam, Bangla-
desh og nokkrum Afríkuríkjum og
löndum í Suður-Ameríku. Vin-
áttuþjóðaháskólinn er kenndur við
vinstrisinnann Patrice Lumumba
sem var fyrsti forseti Kongó eftir
að landið hlaut sjálfstæði árið 1960.
Nokkrir stukku út um
glugga af fimmtu hæð
Tuttugu og átta lík fundust inni í
byggingunni, þrír fundust látnir
fyrir utan hana en þeir höfðu reynt
að flýja eldinn með því að stökkva
út um glugga á fimmtu hæð. Einn
lést á leið á sjúkrahús.
Menntamálaráðherra Rússlands,
Vladimír Filippov, tjáði ITAR-
TASS-fréttastofunni að rannsóknin
á upptökum eldsins beindist ann-
arsvegar að hugsanlegri íkveikju
og hinsvegar að „rangri meðferð
raftækja“. Leitað væri þriggja afr-
ískra námsmanna sem bjuggu á
fyrstu hæðinni, þar sem eldurinn
kom upp, en sáust hlaupa á brott
skömmu áður en hann kviknaði.
36 fórust í mannskæðasta eldsvoða í Moskvu í áratug
Grunur um íkveikju
Moskvu. AFP.
Reuters
Sérfræðingur rannsakar brunarústirnar í svefnsal Vináttuþjóðaháskóla Patrice Lumumba í Moskvu í gær.
Barist við eldinn um nóttina.